Leita í fréttum mbl.is

Sparðatíningur

er nú stundaður um Vaðlaheiðargöng af fólki sem finnst allt í lagi með ókeypis göng á öðrum stöðum. Allt í einu eru skrifuð lærð ritgerð um það að vegggjaldið nái ekki að borga Vaðlaheiðargöngin.  Ólína Þorvarðardóttir sem er þingmáður fyrir landsvæði með ókeypis göng er nú að leggjast gegn áætlun um Vaðlaheiðargöngin. Hún vill bara ekki  sjá að grafa þau þar sem reksturinn  gæti orðið með halla.

Hver er gróðinn af Vestfjarðagöngunum þar sem eru engin veggjöld?  Af hverju rýkur þingmaðurinn upp núna og husgar allt í einu um um arðsemi og veggjöld? Væri ekki hægt að mynda jarðgangasjóð og jafna út kostnaðnum með veggjöldum á öllum jarðgöngum landsins?  Af hverju eru endilega engin veggjöld í Héðinsfjarðargöngum? Bara Vaðlaheiðargöngum og Hvalfjarðargöngum? Af hverju er ekki hægt að drífa í Seyðisfjarðargöngum og  Eskifjarðargöngum og kosta þau með veggjöldum? Það er jú aðferð hins siðmenntaða heims að láta samgöngumannvirki kosta sig sjálf. Má ekki líta til Bandaríkjanna og umferðamannvirkja þeirra um fyrirmyndir?

Má ekki alveg eins skrifa 100 blaðsíður um arðsemi ókeypisganga?

Nú á þessum alvörutímum skiptir  öllu máli að ráðast í framkvæmdir og hætta vitleysistali og sparðatíningi. Við þurfum annarskonar þingmenn en sparðatínara.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Kjartansson

Það er nú ansi fallegt í Héðsinsfirðinum!

Gæðilegt ár Halldór.

GK

Guðmundur Kjartansson, 7.1.2012 kl. 23:59

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Verktakapólitíkin getur ekki haldið áfram á Íslandi með sama hætti og undanfarna áratugi.

Það er þakkarvert að ólaunaður maður skuli skilja þá siðferðislegu og samfélagslegu skyldu, að segja satt og rétt frá staðreyndum.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.1.2012 kl. 00:35

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Halldór.

Vaðlaheiðagöng eru ekki á samgönguáætlun nærri strax. Ef breyta á því er það pólitísk ákvörðun og sjálfur er ég hlynntur þeim göngum sem og öðrum.

En sú pólitíska ákvörðun verður að byggjast á staðreyndum. Núverandi stjórnvöld hafa tekið þá ákvörðun og hún byggist á að göngin borgi sig upp sjálf, að farin sé sú leið sem  notuð var við gerð Hvalfjarðaganga.

Ekki veit ég hvort þú hefur lesið skýrsluna sem þú vitnar í, en það er alls enginn sparðatíningur sem þar kemur fram. Í stuttu máli þá kemst höfundur hennar að því að veggjaldið þurfi að vera á þriðja þúsund krónur fyrir fólksbíla og nærri átta þúsund fyrir flutningabíla, svo göngin geti borgað sig upp. 

Höfundur skýrslunnar, Pálmi Kristinnson, er eða var starfsmaður Spalar, fyrirtækisins sem rekur Hvalfjarðagöng og hefur mikla þekkingu á þessum málum. Jafnvel þó einungis hálfur sannleiur sé í útreikningum hans eru forsemndurnar brostnar.

Hver sá sem les þessa skýrslu kemst að því að áætlanir Vegagerðarinnar og Vaðlaheiðagangna hf eru stórlega ýktar.

Hver endanlegur kostnaður verður sem færist á ríkið er ekki gott að segja, en hann verður nokkur. Það er í sjálfu sér ekki stóra málið, heldur hitt að menn gangist við þeirri staðreynd og ákvörðun um gerð gangnanna verði út frá því.

Hitt er svo annað mál að sumir hafa ókeypis göng en ekki aðrir. Auðvitað munu Héðinsfjarðargöngin aldrei borga sig, en hvers vegna má samt ekki taka gjald þar svipað og í Hvalfjarðargöngum, eins má tala um önnur göng í landinu.

Nú er ég alls ekki talsmaður gjaldtðku á vegum, hvort sem er um göng eða ekki. En ég vil jafnræði. Ef gjald er tekið í einum göngum á að taka það í öllum, sama hver gerir þau og sama hvort gjaldið muni standa undir gerð þeirra eða ekki. Það er í öllu falli tekjur upp í kostnað og jafnræði við aðra íbúa landsins.

Hitt er annað mál að bifreiðaeigendur borga nú þegar mikinn skatt til ríkisins, mun meiri en ríkið úthlutar til viðhalds og endurnýjunnar vegakefisins Þessi skattur greiðist eftir stærð ökutækja og akstri, í gegnum eldsneytið og stærri bílar greiða kílómetragjald að auki.

Ef þessi skattur, sem þegar er innheimtur af akstri landsmann, væri nýttur til þeirra verkefna sem honum var ætlað, þyrfti ekki að taka nein aukagjöld af þeim sem aka gegnum sum göng landsins, það þyrfti heldur ekki að rífast um hvar og hvenær næstu göng ættu að koma. Við gætum hafist handa strax og gengið á línuna og borað okkur í gegnum þau fjöll sem við teljum þurfa. 

Og bifreiðaeigendur myndu borga brúsann, eftir akstri og stærð ökutækja sinna!

Skýrsla Pálama Kristinssonar, verkfræðings, um Vaðlaheiðagöng.

Gunnar Heiðarsson, 8.1.2012 kl. 09:28

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Akkúrat sem ég segi Guðmundur, láttu borga þúsundkall í öll göng og gáðu hvort það dugar fyrir öllum göngunum sem ég nefndi.

Halldór Jónsson, 8.1.2012 kl. 11:46

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Já og Guðmundur , takk fyrir að gefa mér þennan link á skýrsluna hans Pálma.

Þetta er aldeilis afrek þessi skýrsla enda P´lami afburðamaður. það er auðvitað útilokað að ég geti skilið hana svona í fyrstu umferð á fimm mínútum en ég sé hvert hann er að fara. Göngin eru of dýr til og umferð of lítil til þess að þau séu vænleg til þess að fólkið velji að keyra vegna fjárhæðar gjaldanna.

Ég hef aldrei spáð í það hvort akkúrat þessi göng séu best til að byrja á. Bar a tók Möllernum fagnandi þegar henn kynnti þetta. Ég vildi að Pálmi segði okkur hvort til dæmis Seyðisfjarðargöng væru hugsanlega líklegri til að bera sig eða einhver önnur. Væri svo þá vil ég breyta röðinni fyrstur manna.

En ég vil endilega fara í borgandi vegaframkvændir.Ég tek því ekki sem rökum að við séum að borga svo mikið nú þegar í álögum á umferð að nóg sé. Ríkið þarf þessa peninga og tekur þá með einum epa öðrum hætti. Borgandi vegaframkvæmdir eins og HFG eru allt annar handleggur þar sem allir eru að græða.

Halldór Jónsson, 8.1.2012 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418441

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband