Leita í fréttum mbl.is

ESB gerði innrás á Landsfund

Sjálfstæðisflokksins í dag með liðsveitum sínum.

Ég var svo sem löngu búinn að búast við slíkri uppákomu en vissi ekki hvaða form hún myndi taka þar sem liðsmenn Sambandsins eru mjög fáliðaðir á Landsfundi og þá í flokknum öllum á landsvísu.

Væri það líka ekki löðurmannlegt af stórveldinu ESB, sem er með öflugan áróðursrekstur í landinu okkar með gnægð fjár, ef það reyndi ekki að henda skiptilykli í tannhjólin á stærsta stjórnamálviðburði ársins í aðdraganda kosninga ? Þeir eiga líka miklar og tryggar liðsveitir meðal landsmanna þó utan Sjálfstæðisflokksins séu flestar.

Fyrsta árásin kom eftir hádegið í dag þegar skipulagðar sveitir réðust til inngöngu og byrjuðu að dreifa bæklingum á hvern fundarmann. Ekki var ráðist beint að því að gylla  aðildarumsóknina eða Evrópusambandið sérstaklega heldur farið að á lævísari hátt.

Miklum og litfögrum bæklingi var dreift til allar fundarmanna  þar sem ráðist var á íslensku krónuna með miklu afli. Henni er fundið allt til foráttu og eiginlega slegin köld í fyrstu lotu. Síðan hefjast miklar vangaveltur um það hversu margir girnilegri gjaldmiðlar standi til boða. Kanadadollarann ber hátt og eiginlega gengið út frá því að hann sé næstu kostur á eftir evrunni að sjálfsögðu. Bláköldum firrum er haldið fram eins og að skiptigengið verði það núverandi og allir verði glaðir. Allt snúist til betri vegar, vextir hrynji og verðtryggingin um leið.

Þessi bæklingur er auðvitað bein árás á forystu Sjalfstæðisflokksins sem hefur lagt á það raunhæft mat að íslenska krónan verði gjaldmiðill þjóðarinnar í næstu framtíð.

Formaðurinn hafði talað af yfirvegun um það í ræðu sinni, að forsenda gjaldmiilsskipta væri stöðugleiki í efnahagsmálum. Hefði hann sagt í kjarabaráttumálum þá hefði hann verið líklega verið nær sannleikanum í ljósi aðstæðna í launamálum opinberra starfsmanna. Þar rís nú  næsta verðbólguholskefla sem skella mun á  landsmönnum á þessu ári.

Formaðurinn útlistaði í setningarræðu sinni hvernig of sterkur gjaldmiðill þjóðar virkar. Hann leiðir aðeins til uppsagna og atvinnuleysis eins og þeirra 19 milljóna ungs fólks sem er atvinnulaust í evrulöndunum. Núna er slíkt atvinnuleysi yfir 50 % í Grikklandi og fer versnandi.

Þessi innrás ESB er auðvitað ósvífin íhlutun í málefni Landsfundar sem hafði ærið að starfa. Fundarmenn þurfa að vera velá verði að Samfylkingarfólk laumi sér ekki inn á fundinn á morgun að dreifa áróðri og hluta sér þannig í innanflokksmál Sjálfstæðisflokksins.

Ekki er að efa að þessi árás var aðeins hin fyrsta. Fleiri munu fylgja á morgun og hinn.

Eigum við ekki að standa einhuga saman gegn áróðri og undirróðri Evrópusambandsins á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins?  Eigum við ekki að fleygja öllu slíku  áróðursefni umsvifalaust í ruslakörfuna?

Stöndum saman vörð um Sjálfstæðisstefnuna sem er enn í gildi frá 1929. Við höfum ekki þurft hjálp krata til þess að skilja hana til þessa. 

Erum við ekki sjálfstætt fólk Sjálfstæðismenn og látum ekki Samfylkinguna eða ESB gera innrás og móta umræðuna á Landsfundi okkar?  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Eruð þið ekki með "Fréttablaðstunnur" á svæðinu, Halldór, til að henda svona bæklingum í....?

Ómar Bjarki Smárason, 22.2.2013 kl. 22:06

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei, það rit sést ekki í höllinni

Halldór Jónsson, 22.2.2013 kl. 22:22

3 Smámynd: Halldór Jónsson

en það þyrfti sjálfsagt tunnu undir úrgang eins og þennan pésa frá ESB

Halldór Jónsson, 22.2.2013 kl. 22:23

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einhvernveginn kemur þessi innrás mér ekkert á óvart Halldór.  Áróðurinn verður sífellt örvæntingarfyllri og áþreyfanlegri, þegar þetta hyski er að tapa orustunni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.2.2013 kl. 22:56

5 Smámynd: Rafn Guðmundsson

voru þetta ekki bara 'vondir' sjálfstæðismenn sem gerðu þetta. trúi ekki að sf hafi komið þarna til ykkar.

Rafn Guðmundsson, 22.2.2013 kl. 23:30

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Halldór,þurfa menn ekki að sýna skilríki,? Ég las ehv.staðar að ákveðinn fjöldi hefði rétt til setu á landsfundi.

Helga Kristjánsdóttir, 22.2.2013 kl. 23:44

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Jú Helga það eru skilríki. En ég þekkti ekki dreifarann sem kom á mitt borð. kannski var hann með eitthvað merki enda datt mér ekkert í hug sérstakt þegar hann kom, það koma svo oft einhverjir svona dreifarar.

Ásthildur, já ESB trúboðarnir eru örvæntingarfullir, þeir eru að tapa orustunni.

Rafn,

jú það eru einhverjir tugir sjálfstæðismanna esb sinnar, það er alveg rétt hjá þér. Þeir þessi ca. 5 % á landsfundi kunna vel að breiða úr sér svo vel að menn halda að þetta sé armur í flokknum. Sem mér finnst nú ansi vel í lagt.

Halldór Jónsson, 23.2.2013 kl. 00:00

8 Smámynd: Atli Hermannsson.

Að einhver skuli láta sér detta í hug að gera svona árás öllum að óvörum. Að henda liprentuðum bæklingi sem lendir innan við einn meter frá andlitum fólks sem á sér einskis ills von - er alveg hrikalegt. Ég sé ekki annað en að héðan í frá verði að skoða vandlega hvort ekki verði að hafa eftirlit með gerð og dreifingu bækinga sem innihalda upplýsingar sem hugsanlega gæti komið veiku fólki úr jafnvægi.

Atli Hermannsson., 23.2.2013 kl. 13:45

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er svo Atli, nema ef bæklingurinn að tarna sé áróður en ekki upplýsingar, þar liggur munurinn.  Hef ekki séð bæklinginn, en það væri fróðlegt að skoða hann með tilliti til þess um hvort er að ræða.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2013 kl. 14:14

10 Smámynd: Atli Hermannsson.

Ég skora á þig Ásthildur að skoða bæklinginn og sannreyna "áróðurinn".

En svona skilgreinir Vísindavefurinn áróður: "Áróður (propaganda) felst í því að viljandi,ítrekað og kerfisbundið er reynt að breyta eða festa í sessi viðhorf, skoðanir og/eða hegðun hjá tilteknum hópum (mass persuasion) án þess að viðtakendur (þeir sem sjá eða heyra áróðurinn) geri sér endilega grein fyrir því eða óski þess."

Atli Hermannsson., 23.2.2013 kl. 14:33

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ef hægt er að fá hann, hef reyndar lesið bækling ESB um umsóknina, þar sem kemur skýrt fram að það séu engar undanþágur, bara innlimun umsóknarríkis og það sé bara spurning um tímasetningu á samþykktum.  Svo er reynt að koma því á framfæri að það sé víst hægt að semja, sem er bara óttalegt bull að mínu mati.  Það stendur skýrum stöfum að það sé villandi að tala um aðildarviðræður, réttara væri að tala um aðlögun.  Þannig að svona fyrirfram er ég ekki á því að hér sé um upplýsingar að ræða heldur áróður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2013 kl. 15:44

12 Smámynd: Guðmundur Ingólfsson

Það er þegar komin ein undanþága sem Heimsýn hamraði svo mjög á þ.e. að það verður aldrei herskylda á Íslandi nú og svo vitum við um varanlega undanþágu fyri landbúnaðinn í Finlandi og Svíþjóð. ESB hefur líkað breyt stefnu sinni í fiskveiðimálum í áttina að því sem er hér á landi svo það ætti að bvera auðvelt að semja um þann þátt þannig að það fullnægi okkar þörfum. Eigum við bara ekki að sjá hvað kemur út úr samningunm og kjósa þá um aðild þegar staðreyndirnar liggja fyrir og við þurfum ekki að dæma eftir mis mikið lognum fullyurðingum á báða vegu, eigum við ekki að leyfa þjóðinni að sjá hvað eaunverulega er í boði en ekki einhvert bull frá misvitrum og mis óvömduðu fólki sem hefur verið að gaspra um hluti sem enginn veit í rasun neitt hvernig líta út ás endanum

Allavega þúrfum við aðgang að góðum mörkuðum og það tollfrítt ef okkur á að takast að byggja upp atvinnutækifæri fyrir framtíðar Íslendinga

Guðmundur Ingólfsson, 24.2.2013 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418160

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband