Leita í fréttum mbl.is

Bankarán um bjartan dag?

eða viðskiptasnilld?
 
Ég hef verið að velta fyrir mér hver eigi þessa 50 milljarða sem ríkið segist hafa grætt á fyrirbrigðinu Nýji Landsbankinn og Gamli Landsbankinn?

Hvað eru þessi fyrirbrigði. Hver skapaði þau? Steingrímur J. Sigfússon?
 
Við hluthafar áttum Landsbanka íslands, the National Bank of Iceland, nafnið og fyrirtækið  sem ríkið af gæsku sinni seldi Björgólfunum ef því að þeir þóttust eiga peninga. Þeir fengu svo lánað fyrir bankanum í Búnaðarbankanum þar sem þeir áttu enga aura. Svo lánuðu þeir S-hópnum í staðinn til að kaupa Búnaðrbankann eftir að Ólafur Ólafsson og kumpánar hans byggðu upp lygaleikrit með þýska microbankanum Hauch& Aufhauser m.a. Eða þannig? 

Landsbankinn undir þeirra stjórn byrjaði strax að nota bankamargfaldarann til að framleiða peninga.Kaupverðið voru baunir í samanburði við það. Dæmigert minnismerki um fjármálavit íslenskra stjórnmálamanna?
 
Villan varð bara sú að nýji bankinn lánaði eigendum sínum bróðurrpartinn af aurnum og þeir voru svo lélegir bísnesssmenn að þeir  töpuðu á flestöllu sem þeir komu nálægt.
 
Svo var fundin upp gargandi snilldin sem var Icesave af Halldóri bankastjóra, nú víst í Canada. Þessi snilld gerði það að verkum að ég og fleiri fórum að kaupa bréf í bankanum því að við kunnum ekki á smáaletrið.

Svo kemst bankinn í tímabundið lausafjárþrot. Lánveitandi til þrautavara finnst ekki.  Þá tekur ríkið bankann yfir með ofbeldi og heldur áfram rekstri í stað þess að hann sé lýstur gjaldþrota og afhentur skiptaráðanda. Síðan tekur ríkið að deila og drottna að hætti Steingríms J., bankasýslunnar, Elínar bankastjóra,  Ásmundar  og svo veit maður ekki neitt meira.
 
Fyrr en allt í einu er bankinn borgunarmaður fyrir öllu sínu, Icesave og hvaðeina  og farinn að græða fimmtíu milljarða í gegnu um einhvern Nýjan Landsbanka.  Og svo væntanlega áfram eins og vera ber með góð fyrirtæki.

Hvað er á seyði? Hvað hefur raunverulega gerst þarna? Eru þetta ekki bara sjónhverfingar og hókus pókusar? Er þetta ekki allt grætt í eignum gamla bankans okkar og með eignum hans? Er ekki bara einfaldlega búið að stela eignunum af gömlu hluthöfunum í bankanum af því að gjaldþrotaskipti fóru aldrei fram? Er of seint að taka þetta upp aftur?

Af hverju á ríkið þessa 50 milljarða en ekki ég?
 
Er þetta ekki bara bankarán um bjartan dag?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Halldór verkfr.; æfinlega !

Margar hörmungarnar; má upp á Þingeyzka drullusokkinn Steingrím J. Sigfússon klaga, sem kunnugt er.

En; hafa skyldir þú í huga, sem margur annarra, að einn helzti lyga- og svika Skúmur Íslands, síðan þeir Smiður Andrésson og Jón Gerreksson voru á dögum; Davíð Sunn- Mýlzki Oddsson, var á sínum tíma, með innlendum sem og ESB Evrópskum taglhnýtingum, aðal frumkvöðull þeirra óskapa, sem yfir okkur hafa gengið, undir lok 20. aldarinnar - sem og það; sem af er þeirri 21.

Ég hugði vart; að þetta þyrfti að rifja upp, nokkuð sérstaklega fyrir þér, sem öðrum, fornvinur góður.

Davíð; Jón Baldvin Hannibalsson, sem og Halldór Ásgrímsson eru ÁBYRGÐARMENN EES forsmánarinnar, með dyggri fylgispekt Vigdísar nokkurrar Finnbogadóttur !!!

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.4.2013 kl. 16:43

2 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Í umræðu um gömlu bankanna gleymist oft að skilanefndir og síðan slitastjórnir fengu aðeins vald hluthafafundar, en ekki eignarhaldið sem slíkt. Eignarhaldið hefur aldrei verið tekið yfir af FME og er því eru þessi fyrirtæki í raun enn í eigu hluthafa. Þá er og einkennilegt ljósi þessa og skattareglna hvers vegna hluthöfum er ekki gert skylt að telja þessa eign fram til skatts, því eins og þú réttilega bendir á hafa gjaldþrotaskipti aldrei farið fram. Skv. 103.gr.a. í lögum um fjármálafyrirtæki lýkur slitameðferð þannig að annað hvort er fyrirtækinu skilað til hluthafa og það hefur starfsemi á ný með samþykki FME, eða hluthöfum eru greiddar út eftirstöðvar eigna eftir uppgjör við kröfuhafa. Hafi nauðasamningar ekki náðst skal senda fyrirtækið í gjaldþrot eins og hvert annað gjaldþrota félag og er það þá gert upp eftir gjaldþrotalögum. Þangað til er þetta félag í rekstri að því ég best fæ séð.

Ef gamli Landsbankinn á laust fé eftir að allar kröfur á hann hafa verið gerðar upp skal því skila því til hluthafa sbr. fyrrnefnda 103.gr.a., að mínu mati, ef leggja á hlutafélagið niður. Ríkið eignaðist ekki krónu í gamla Landsbankanum við Hrunið frekar en í Glitni eða Kaupþingi. Þetta gleymist iðulega í umræðunni og ansi margir líta svo á að ríkið eigi gömlu bankana en svo er ekki.

Erlingur Alfreð Jónsson, 14.4.2013 kl. 22:57

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Erlingur, það er eimitt þetta. Félagið var sett í áframhaldandi rekstur og nú stóð ekki á lánveitandanum til þrautavara. Enda búið að hreinsa gömlu spilltu stjórnina í burtu. Við litlu hluthafarnir vorum saklausir því að þeir sem réðu héldu völdunum í skjóli stærðar. eins og svo oft áður reyndist litli hluthafinn áhrifalaus og þeir stóru tröðkuðu á honum. Vilhjálmur Bjarnason sá mikli eldstólpi hefur einmitt verið óþreytandi að halda fram rétti lítilmagnans en verið stundum keyrður niður af ráðandi mönnum.

Nú skulum við segja að réttlætið hafi gengið fram í Landsbankamálinu, Það séu peningar afgangs. Ættum við þá ekki að fá afhent einhver bréf, til dæmis B-bréf án atkvæðisréttar í nýja Landsbankanum, það væri náttúrlega ótækt sðferðislega að hefja Bjöggana og Kjartan Gunnarsson aftur til valda. En mega eiga sinn hlut í afgangnum eins og ég ef hann er rakinn til gömlu hluthafanna á einhvern máta.

Halldór Jónsson, 15.4.2013 kl. 06:54

4 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Ég hef lengi haft það á tilfinningunni að á endanum munu nýju bankarnir renna inn í forvera sína, sem þar að auki eru skráðir eigendur þeirra og ballið byrja á ný. Ég er alla vega harður andstæðingur þess að lífeyrissjóðirnir kaupi þessar stofnanir.

Ef einhverjir peningar verða afgangs á að deila þeim á alla hluthafa eftir hlut hvers og eins og leggja síðan félögin niður. Það er alveg rétt hjá þér að það er algjörlega óforsvaranlegt að hefja fyrri stjórnendur til forsvars á ný. En hlutverk slitastjórna er að tryggja áframhaldandi viðskiptabankastarfsemi gömlu bankana. Það segir einfaldlega í skipunarbréfunum frá FME.

Og það er alveg furðulegt að FME skuli ekki gefa slitastjórnum meira aðhald en raun er, og jafnvel líta svo á að stofnunin hafi ekki boðvald yfir þeim.

Erlingur Alfreð Jónsson, 15.4.2013 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 3418314

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband