Leita í fréttum mbl.is

Stórséníið stingur enn

tólgina þegar Steingrímur J. skrifar svo um landflóttann:

 "Á fyrsta fjórðungi í ár fluttu 520 fleiri til landsins en frá því. Stór hluti (+485) þessa hóps var erlendir ríkisborgarar. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru þó einnig fleiri (+35) en brottfluttir. Á síðasta ársfjórðungi liðins árs fluttu einnig lítillega fleiri Íslendingar til landsins en frá því Þetta ásamt mun fleiri fæðingum en nemur fjölda þeirra sem falla frá veldur því að þjóðinni fjölgar nú myndarlega á nýjan leik (rúmlega 1.000 manns á fyrsta ársfjórðungi). Vissulega fluttu margir frá Íslandi, einkum á árinu 2009 eins og áður sagði, en þar munaði mest um mikinn fjölda fólks af erlendum uppruna sem hingað hafði komið til vinnu á þenslu- og vitleysistímanum fyrir hrun.

Landsmönnum fækkaði lítillega á árinu 2009 í fyrsta skipti í heila öld, en þegar upp er staðið gerðist það aðeins á því eina ári. Þróunin nú er mjög jákvæð séð í því sögulega ljósi að á löngum árabilum hefur flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara haft tilhneigingu til að vera neikvæður án þess að nokkuð efnahagshrun kæmi til.  Umtalsvert fleiri fluttu til landsins en frá því á 1. fjórðungi 2013 samkvæmt tölum Hagstofunnar og er það annan ársfjórðunginn í röð. Þetta eru mikil og góð umskipti frá árum fyrst eftir hrun, einkum frá árinu 2009. Að sjálfsögðu gleðitíðindi og staðfesta aukna bjartsýni og trú á framtíðina á Íslandi. Bati á vinnumarkaði á hlut að máli og ríma þessar tölur um jákvæðan flutningsjöfnuð ágætlega við tölur um lækkun atvinnuleysis og fjölgun starfa. Fleira fólk flytur heim því meiri vinnu er að hafa. "


Þenslu og vitleysistíma kallar hann uppgangsárin ? Þegar allir máttu eiga gjaldeyri og atvinna var næg.
 
Nú er fangaráð  samkvæmt Þistilfirðingnum að skipta um þjóð í landinu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Erna Steinarsdóttir

Skil ég það rétt Halldór að þú kallir árin sem við seldum eignir okkar og lifðum á skotsilfrinu, uppgangsár? Á sama tíma tók þjóðin neyslulán og lifði flott þar til greiða þurfti af þeim. Eru þetta uppgangsár að þínu mati? Auðvitað er ljúft að eyða lánsfé þar til kemur að skuldadögunum, en er eitthvað vit í því?

Elín Erna Steinarsdóttir, 21.4.2013 kl. 11:11

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Elín mín

Við seldum ekki eignir okkar og lifðum á skotsilfrinu. Við byggðum og fjárfestum fyrir lánsfé sem við gátum svo ekkert gert við þegar hrunið varð. Þá fóru skuldararnir á hausinn. Bankarnir tóku lán í útlöndum og lánuðu þá í innanlandsneyslu. Þeir sem tóku gátu ekki borgað. Bánkarnir lánuðu fólki til að kaupa bréf í sjálum sér. Þeir fóru allir á hausinn og hlutaféið varð ónýtt en skuldirnar fluttust áfram í nýja banka og voru rukkaðar þar.

Þetta voru uppgangsár. Fólk gat sparað verðtryggt eða sparað í hvaða mynt sem var. Þjóðinni gekk aldrei eins vel og þá . Ríkissjóður varð skuldlaus 2007.

Halldór Jónsson, 21.4.2013 kl. 15:59

3 Smámynd: Elín Erna Steinarsdóttir

Halldór minn

Það er sorglegt að allt of margir sáu ekki sjúkleikann í íslensku samfélagi fyrir hrun. Alið var á lægstu hvörum mannsins og græðgin óð uppi. Engin hlustaði á varnaðarorð þó augljós merki voru um að í óefni stefndi. Viðskiptajöfnuður var óhagstæður til margra ára, skuldir atvinnulífs og einstaklinga við útlönd uxu hröðum skrefum, erlent fjármagn streymdi inn sem þægilegt var að ylja sér við, bankarnir bjuggu til peninga með óábirgum í útlánum. Auðmenn seldu hvor öðrum hlutabréf í fyrirtækjum og skrúfuðu þannig hlutabréfamarkaðinn upp. Þetta lá allt í augum uppi ef maður vildi sjá það og hrunið kom mér ekki á óvart. Það varð hins vegar stærra en ég uggði þar sem svo margt skuggalegt fór fram í hinum einkavæddu bönkum og víðar, sem ég vissi ekkert um. Að kalla þetta uppgangsár er að mínu mati hin verstu öfugmæli.

Elín Erna Steinarsdóttir, 21.4.2013 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418299

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband