Leita í fréttum mbl.is

Salami

aðferðin er kennd við Jósef Djúgasvíli eða Stalín öðru nafni. Hún felst í því að halda uppi stöðugu áreiti við andstæðinga sína og reyna að skaða þá stöðugt en ákveðið með lítilli eða jafnvel örþunnri sneið í einu.

Borgarstjórn Reykjavíkur beitir þessari aðferð gegn flugvellinum. Hún hófst með örvæntingarárás Ingibjargar Sólrúnar sem setti niður Háskólann í Reykjavík niður á flugvallarsvæðið. Síðan halda þeir Gísli Marteinn, Dagur B. og Jón Gnarr áfram með því að beita skipulagsmálum í þá vera að þrengja að flugvellinum á allar hliðar. Lítið skref hverju sinni. Ekki er langt síðan að byggja á blokkir inná brautina sem hét einu sinni 07/25.

Næsta uppfinnng þessa fólks er að teikna inná kort nýjan reit fyrir flugstjórnarmiðstöðina og krefjast þess að hún verði flutt frá núverandi stað rétt við austu-vestur flugbrautina á þennan nýskipulagða reit. Kostnaður áætlaður  um 15 milljarðar fyrir starfsemi sem veltir 3  í gjaldeyri með íslensku vinnuafli. Isavia, sem er einhver afspringur af gömlu Flugmálastjórn með auknu skrifræði, bendir einfaldlega á að þetta muni leiða til þess að starfsemin flytjist annað.

Auðvitað hlusta þessir Borgarfulltrúar og fylgismenn ekki á neitt nema sjálfa sig og því fer sem fer. Ekkert getur bjargað Reykjavíkurflugvelli lengur nema það að þetta fólk verði kosið frá afgerandi  í næstu Borgarstjórnarkosningum vorið 2014. Líklegra er  hitt að því muni samt takast að eyðilegja svo margt í umhverfi flugvallarins að til óbóta sé og að hann muni verða að leggjast niður.

Það er ekki í augsýn nein leið um framtíð Reykjavíkurflugvallar önnur en að honum verði lokað. Þessar deilur eru búnar að standa alla mína daga og hafa aldrei verið vitlausari en nú. Það fæðist  líklega ekki sá meirihluti á Alþingi að hann stígi þau skref sem þarf til að tryggja völlinn í sessi. Það verður stöðugur ófriður um völlinn þar sem hann er. Hávær minnihluti, líklega um 18 % þjóðarinnar, getur ekki á sárs höfði setið.Þetta hávaðafólk beitir Salami-aðferðinni gegn Reykjavíkurflugvelli með sínum hætti sem leiðir tlil þess að völlurinn verður að loka fyrr eða síðar.

Gísli Marteinn, Dagur B. og Jón Gnarr bera sama pólitíska ættarnafnið í mínum þegar kemur að því að við vallarvinir hafi stjórnmálaleg áhrif:  

SALAMI !

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Reykjavík er að því er ég vissi síðast eina höfuðborgin á Íslandi.  Hún er því höfuðborg okkar allra Íslendinga, en ekki bara eign þeirra Gísla M. Dags B. Og Jóns G.  En ef Reykvíkingar vilja endilega halda í Galna Jón, og Bullandi Dag, og Myglaða Gísla þá ráðum við landsbyggðarmen litlu um það. 

Þar með lægi það ljóst fyrir að við landsbyggðarmenn yrðum að koma okkur upp okkar eigin stjórnsýslustað og þar með yrðu tvö ríki á íslandi til heiðurs þeim galna, bullandi og myglaða.

Reykvíkingar fengju þar með að lifa í friði fyrir okkur þorpurum og sveitavörgum, með allt sitt góss, mýrar og skipulags pytti, sem og gæði öll sem þeir hafa innan sinna landamæra. Annað þyrftu þeir að kaupa og ef þeir hefðu vöru til að selja okkur þorpurum og vörgum þá ætu þeir að reyna selja það dýrt svo sem verið hefur.

Hrólfur Þ Hraundal, 5.7.2013 kl. 14:05

2 identicon

Er salami ekki álegg á brauð?

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.7.2013 kl. 16:28

3 identicon

Afhverju fáiði ekki núverandi þing til að skipta um höfuðborg. Akureyri hefur til dæmis flugvöll hliðina á miðbænum sínum. Og þá er hægt að flytja alla stjórnsýsluna þangað.

Við munum ekki sakna stjórnsýslunar eða flugvallarins (nema kannski örfáir aðilar með flugdellu).

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 5.7.2013 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3418434

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 68
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband