Leita í fréttum mbl.is

Hvernig í veröldinni?

er hægt að setja niður 3000 manna byggð ofan í þá 750 manna byggð  sem nú er  við Skerjafjörðinn án þess að tala við þá einu sinni? Eiga allir að keyra Suðurgötuna frá Kvosinni þar sem þeir munu væntanlega vinna?

Þeir íbúar sem í Skerjafirðinum búa vilja greinilega miklu frekar hafa flugvöllinn en nýja byggð á flugbrautunum. Og þeim mun ákveðnari eru þeir sem þeir hafa búið þar lengur.

Þetta finnst þeim Þorbjörgu Helgu, Jóni Gnarr, Degi B. Eggertssyni, Hildi Sverrisdóttur, Áslaugu Maríu Friðriksdóttur og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur ekkert mál. Það komi íbúunum ekkert við frekar en íbúum við Hofsvallagötu koma fuglahús við. Þeir geti bara kvartað við embættismenn borgarinnar en látið borgafulltrúana í friði með þess kyns röfl.   

Við getum ekkert gert með því að hætta að kjósa Jón Gnarr því hann er hættur. Við getum bara sleppt því að kjósa hina talsmenn hins nýja Aðalskipulags.

Á morgun er færi til að láta skoðun sína á Aðalskipulaginu í ljós með því að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík.

Kjósum alla þá sem eru ekki Flugvallarvinir frá.  Hvernig í veröldinni er hægt að treysta þeim fyrir öðrum málum sem ekki skilja grundvallaratriði í borgarmálefnum eða til hvers borgir eru?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sem dæmi um firringu borgarfulllki er það, að þegar völlurinn var endurbættur fyrir rúmum áratug stóð til að gera háa hljóðmön meðfram austur-vestur-brautinni. Minnstu munaði að það tækist að gera þetta gegn háværum mótmælum fólksins, sem vildi ekki missa útsýnið gil Esjunar og og var bara ánægt með flugumferðina sem verið hafði þarna í í meira en hálfa öld.

Ómar Ragnarsson, 15.11.2013 kl. 18:24

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já ég man eftir þessu Ómar. Ég þekki fólk sem er búið að búa þarna mjög lengi og vill ekki annarsstaðar vera en í nábýli við völlinn. Og þetta er ekki dellufólk eins og þú og ég heldur bara venjulegt fólk sem fullyrðir að það verði aldrei fyrir neinu ónæði af sambýlinu. Ég las einhversstaðar að það væru helst íbúar í Grafarvogi sem teldu völlinn trufla sig. Er það ekki svo með Ólafs kóng að þeir....

Halldór Jónsson, 15.11.2013 kl. 18:53

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Til þess að skilja þetta allt Halldór, þá þarf að muna að Bakkabræður voru miklir hugvísinda menn en ekki eins miklir raunvísinda menn, svo sem verið hefur um borgarstjórn nú um hríð.

Bakka bræðra saga hin nýja hefur þegar verið skrifuð. Og getum við vænst sjónvarps á þátta á Bakkabræðra imbakassanum þá vesalings borgarstjóra líkið kemst aftur í samband við hugvísindi alvöru Bakkabræðra.

Hrólfur Þ Hraundal, 15.11.2013 kl. 20:32

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gaman væri að heyra hvað Skerjafjarðar-skáldinu finnst. Hann Kristján Hreinsson ólst upp í nánast næsta húsi við mig á Kársnesinu.

Helga Kristjánsdóttir, 16.11.2013 kl. 02:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 3419711

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband