Leita í fréttum mbl.is

Enn ósannindi á Útvarpi Sögu

um það að þjóðaratkvæði um áframhald aðildarviðræðna við ESB hafi verið lofað.

Að vísu voru þetta þeir Þorvaldur Gylfason og Höskuldur Þórhallson að tala saman ef einhversstaðar finnst einhver sem tekur mark á þeim. En Þorvaldur tuggði það að þessu hefði verið lofað af stjórnarflokkunum.

Ég verð að segja það herint út að þetta eru helber ósannindi hjá prófessornum og lúalegt áróðursbragð undir hallalúja Höskuldar. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins tók það skýrt fram að aðildarviðræðum skyldi hætt. Enginn nema Landsfundur getur skuldbundið Sjálfstæðisflokkinn, hversu oft sem Þorvaldur hjakkar á öðru. Það getur verið að litlu ljótu flokkarnir til vinstri geti farið eftir fámennisstjórn. Það getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki.  Loforðið var að slíta viðræðunum og ekkert annað.

Svo fimbulfambar prof.dr.Þorvaldur um að þjóðin hafi samþykkt tillögur Stjórnlagaráðs yfirgnæfandi. Kosningaþáttakan var mjög dræm og ómarktæk. Þarað auki dæmdi Hæstirétur Íslands kosningarnar ólögmætar og ógilti þær. Nei, ekki sýndi prófessorinn merki um að hafa heyrt þetta. Fimbulfambaði áfram um að nýtt Alþing eftir þetta myndi taka þessar tillögur upp sem sínar.

Staðreyndin er sú, þegar menn hafa kynnt sér þessar tillögur þá sannast á þeim hið fornkveðna sem iggur í augum uppi.  Þær eru mestan part illa unnin moðsuða og óskiljanleg á köflum í vondum texta á meira en hundrað síðum.  Forði forsjónin okkur frá því að grugga nokkurn tímann upp þessa hrákasmíði fundarins og hreina dellu í mörgum greinum sem ekki stenst skoðun.

Þessi ósannindavaðall kumpánanna var Útvarpi Sögu til lítils sóma. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Höskuldur Þórhallssson alþm. er aklaus af þessu viðtali. Það fór fram í s.k. "Bixi" hjá Höskuldi Höskuldssyni lyfjafræðingi, algerum ESB-sinna, sem ræddi þarna við annan slíkan og ekki skárri.

Þorvaldur vill greinilega stefna að valdaráni a la 2009 með því að freista þess að gera þingmeirihlutanum ókleift að sitja að völdum. Rétta svarið er ekki linkind, heldur að STJÓRNA, til þess voru menn kosnir og ekkert mál að koma þvi í gegn og fá fólk til að skilja það (samþykkt þált. Gunnars Braga) eftir á.

Og vitaskuld þurfa þessir ESB-sinnar að ljúga mörgu fyrir "málstaðinn", ef kalla má það málstað að vilja svipta Ísands fjálfsforræði og sínum æðstu löggjafarréttindum.

Jón Valur Jensson, 9.4.2014 kl. 23:00

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Afsakið óprófarkalesinn flumbruganginn á þessu, ég varð að hlaupa í símann!

Jón Valur Jensson, 9.4.2014 kl. 23:07

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Halldór.

Ég hef marg oft ritað um að ríkisstjórnin verði að sýna festu, í ESB málinu sem öðrum. Eftir gjöf í einu máli gera önnur erfiðari. Gott ef ég hef ekki einverntímann áður sett þessa skoðun fram í athugasemdadálkum þínum. 

Þingsályktunnartilaga utanríksráðherra um afturköllun aðildarumsóknar að ESB, sem er í fullkonu samræmi við flokkssamþykktir beggja stjórnarflokka og er hluti stjórnarsáttmálans, var borin upp og samþykkt í báðum stjórnarflokkum. Þar fékk þessi tillaga sína umfjöllun og allir þingmenn annars stjórnarflokksins samþykktu hana, en einn eða tveir þingmenn hins settu fram fyrirvara. Því er ljóst að tillagan hefur meirhlutafylgi á Alþingi. Það er ekkert annað en sleifarskapur að afgeiða hana ekki gegnum þingið.

Það var vitað að þingmenn stjórnarandstöðu yrðu á móti, eins og þeirra er von og vísa. Þeir eru á móti öllu, sama hvaða nafni það nefnist. Því er ekki við þá að sakast hvernig komið er.

Það voru hins vegar nokkrir stjórnarþingmenn sem hlupust undan merkjum og urðu hræddir þegar rauði herinn fór að mæta á Austurvöll. Það er kjarkleysi þeirra sem olli því að nú virðist orðið tvísýnt um að afturköllun aðildarviðræðna muni takast.

Ef það verk mistekst og við verða áfram skilgreind sem umsóknarríki, er engum um að kenna nema þeim stjórnarþingmönnum sem ekki hafa kjark og þor. En skaðinn sem þeir munu valda verður enn stærri. Hvernig á þá ríkisstjórnin að koma öðrum þjóðþrifamálum í gegnum þingið? Hvernig á henni þá að takast að snúa af þeirri vesældarbraut sem vinstiflokkarnir komu af stað á síðasta kjörtímabili? Þá nægir stjórnarandstöðu að kalla sinn her á Austurvöll, þegar hún vill stoppa mál, vitandi að nægur fjöldi kjarklasra er innan stjórnarliðsins. Þá er hætt við að skattalækkanir og önnur þjóðþrifamál séu úr sögunni og vinstrieymdin komin til með að vera áfram.

Það er kjarkur og þor sem þarf, kjarkur og þor til að standa við það sem lofað var og kjósendur kusu. Hernaður á Austurvelli á ekki að ráða gerðum stjórnvalda.

Það má ekki skilja þessi orð mín svo að ekki megi mótmæla. Ef upp koma mál sem ekki er fjallað um í undanfara alþingiskosninga er sjálfsagt mál að mótmæla, ef fólki finnst svo. Einnig er sjálfsagt að mótmæla ef stjórnvöld  standa ekki við gefin loforð, eða svíkja stjórnarsáttmála. En þegar kallaður er til her til að mótmæla því að stjórnvöld standi við það sem lofað var, er eitthvað stórkostlegt að lýðræðinu og ef stjórnvöld gangast við slíku og gefa eftir, eru þau að svíkja sína kjósendur, lýðræðið og þjóðina. 

Það væri eðlilegra að kjósendur stjórnarflokkanna fjölmenntu á Völlinn og mótmæltu þar sleifarskap ríkisstjórnarinnar, mótmæltu því að ekki skuli fyrir löngu búið að standa við það loforð að draga umsóknina til baka.

Pistill þinn Halldór var að mestu um viðtal við Þorvald Gylfason. Um þann mann vil ég hellst ekki skrifa, enda ekki gott fyrir geð mitt. Þó tel ég mína athugasemd koma inn á þinn pistil efnislega, að einhverju leyti.

Gunnar Heiðarsson, 10.4.2014 kl. 07:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418264

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband