Leita í fréttum mbl.is

Rugludallurinn

Árni Páll ásamt samstofna kór Evrópusinna halda áfram uppteknum hætti við að boða landsmönnum það að upptaka evru sé handan við hornið, bara ef þeir fái að ráða.

Ekki voru landsmenn fyrr lausir við þessa steypu þegar pantaða skýrslan þeirra í ASÍ og SA frá Alþjóðastofnun Háskólans  kom fram. Nú var Árni Páll í essinu sínu að leggja út af henni.Bara fela sér að stjórna upptöku evru og afnámi gjaldeyrishaftanna.

Leiðarhöfundur Morgunblaðsins fer yfir skýrsluna og segir ma.:

"Hún hefur fremur einkenni auglýsingabæklinga sem birtast einatt frá áhugasömum ungliðasamtökum stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga. ,og það er gert með því að vitna til ummæla ónafngreindra embættismanna (töluvert háttsettra!) sem gefa til kynna að vel sé hugsanlegt að komast megi framhjá ótvíræðum leikreglum sem ESB hefur sjálft sett. Svona tal hefði mátt sækja í blogg Össurar Skarphéðinssonar og hefur sama gildi. Annað er eftir þessu.Forseti ASÍ segist opinberlega vera ánægður með skýrslu sem stendur á slíkum brauðfótum og bætir að öðru leyti engu við umræðuna. Það gæti virst karlmannlegt að tala þannig upp í vindinn.En í rauninni sýnir það aðeins að forseti hinna virðulegu samtaka gerir engar kröfur til vinnubragða við það efni sem hann kaupir fyrir fé launþegahreyfingarinnar.Og það er auðvitað mikið umhugsunarefni. Meginverkefni forseta Alþýðusambandsins er að gera kröfur og stendur fátt eftir hætti hann því."

Þetta er  umj vinnubrögðin við samningu þessa aðkeypta plaggs Evrópusinna.

Svo er það túlkunin á textanum. Þar kemur ruglandin inn. Y

Yfirrugludallurinn dregur þá ályktun að evran sé á næsta leiti fá þeir Evrópusinnar að ráða. Þetta sé lesanlegt úr skýrslunni þar sem  Ásgeir Jónsson Bjarnasonar ráðherra er einn höfunda.

Ásgeir sjálfur er ekki sammála þessari túlkun.

Frá þessu segir  í í dag í Morgunblaðinu: 

"....Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að margir hafa freistast til þess að lesa ýmsa hluti á milli lína eftir því hvar þeir standa í Evrópuumræðunni,« segir Ásgeir og tekur sem dæmi þau ummæli Frosta Sigurjónssonar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar, á Alþingi, að í skýrslunni sé lagt til að »ríkissjóður Íslands taki lán fyrir hundruð milljarða ef ekki þúsund milljarða svo að erlendir kröfuhafar geti losnað úr höftum«. Vísaði Frosti til þess að í skýrslunni kæmi fram að sækja mætti um lán úr hjálparsjóðum ESB sem lið í afnámi fjármagnshafta.

 

Ásgeir segir þetta alrangt, enda sé það alls ekki tilgangur þessara sjóða. Hið rétta sé að hann hafi bent á þann möguleika að breyta krónueignum erlendra aðila í löng skuldabréf útgefin af bönkunum. Ríkið kæmi þar hvergi nærri. »Með því er verið að breyta innlánum í skuldabréf sem kæmu á gjalddaga eftir að evruaðild væri orðin að veruleika eftir 10-15 ár, eða hér um bil. Þetta er ekki hægt í núverandi stöðu,« segir Ásgeir. "

Hvaða tilgangi þjónar það í dag að ráðgera eitthvað í dag sem hugsanlega kemur að eftir 10-15 ár? Hvað sem Árni Páll  fimbulfambar og hvað sem Össur bloggar og þeir saman segja í viðtölum á RÚV og annarsstaðar, þá er innganga í ERMII, ESB eða upptaka evru ekki handan við hornið. Er ekkert annað sem er brýnt í samfélaginu?

Það eina afl sem getur skuldbundið Sjálfstæðisflokkinn er Landsfundur. Hann sagði alveg kýrskýrt í ályktun að aðildarviðræðunum skyldi hætt og þær ekki upp teknar að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Þrástagl Evrópusinna eins og Þorvaldar Gylfasonar og ESB-hjarðarinnar um að einhverjir hafi lofað þjóðaratkvæði um hvort stöðva eigi aðildarviðræðurnar er  út í hött. Samt er þrástagast á lyginni á öllum rásum.

Aðildarviðræðurnar ber að stöðva strax með því að slíta viðræðunum í samræmi við ályktun Landsfundar. Þær verða ekki hafnar á ný fyrr en að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Nema náttúrlega samherjarnir  Árni Páll og Steingrímur J. komist aftur til valda eftir 3 ár.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldinn

Semsagt að því sem er lofað þegar veiða á atkvæði skiptir engu.  Þetta heitir þá að ljúga sig til valda.  Síðan skiptir náttúrulega engu að stór meirihluti þjóðarinnar vill klára þessar viðræður.

Það sem skiptir kjósendur máli er hverju er lofað fyrir kosningar.  Stór hluti kjósenda veit ekkert um hvað fer fram hjá stjórnmálaflokkum á þeirra árshátíðum enda yfirleitt um einhverjar vitleysinga samkomur að ræða sem hafa lítið með vilja hins almenna kjósenda að gera.

Þú ert hér í þessari grein að níða niður fólk sem þú nafngreinir og kallar svo stóran hluta þjóðarinnar Hjörð sem fylgir þeim í heimsku.  Hvað segir þessi færsla þín þá um þig ?

Baldinn, 10.4.2014 kl. 09:35

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er auðvitað til að viðhalda karpinu Baldinn,sem esb,sinnar þrástaglast á loforðum stjórnarsinna sem aldrei voru gefin. Þið vitið það vel,en einhversstaðar eru hærra settir sem fyrirskipa beitingu þessarar heimsku. Ef einhver hefur svikið loforð til valda er það Steingrímur Joð.Sigfússon,enginn tekur mark á honum framar.

Helga Kristjánsdóttir, 10.4.2014 kl. 11:13

3 Smámynd: Baldinn

Mér er alveg sama um Steingrím, Jóhönnu, Bjarna og alla hina.  Menn og konur eiga að standa við það sem þeir lofa og ekki að ljúga sig til valda.

Baldinn, 10.4.2014 kl. 11:44

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

En eiga þeir/þið að ljúga esb til valda,?????

Helga Kristjánsdóttir, 10.4.2014 kl. 13:06

5 Smámynd: Baldinn

Hvaða bull er þetta í þér Helga.  Ert þú að segja að þeir sem eru á móti ESB hafi meðtekið hinn eina sanna sannleika í málinu en hinir séu að ljúga öllu.  Þetta er bara barnalegur málflutningur.  Það er sko ekki minna um lygar hjá NEi sinnum en Já sinnum.  Báðir hópar eru fullir af ljúgandi fólki sem þykist allt vita.

Ég skal segja þér eitt og það er að ef ekki verður lagður fram góður samningur að þá mun ég segja nei.  Ég vill bara ekki að þú eða aðrir já eða nei sinnar taki af mér þann rétt að fá að kjósa um málið

Baldinn, 10.4.2014 kl. 13:22

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Baldinn, það er ekki um samning að ræða, heldur mark vissa  aðlögun að reglum Evrópusambandsins. 

Þegar því ferli er lokið þá erum við í raun gengin í þetta samband en ef það yrði þá fellt af íslendingum, hvernig á þá að bakka útúr því reglugerðar fargani?  Með bulli kanski?

Hrólfur Þ Hraundal, 10.4.2014 kl. 16:50

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Baldinn, þú ert all baldinn við að tala um loforð um þjóðaratkvæði um aðildarviðræður. Það hefur enginn gefið slíkt loforð. Það er hreinn tilbúningur spunameistaranna. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins lofaði því einu að aðildarviðræður myndu ekki hefjast aftur eftir virðræðuslit nema að undangengnu þjóðaratkvæði. Allt annað er bull og tilbúningur.

Halldór Jónsson, 10.4.2014 kl. 23:51

8 Smámynd: Kristmann Magnússon

Gott er að hafa tungur tvær og tala hvort með sinni

Kristmann Magnússon, 11.4.2014 kl. 01:11

9 Smámynd: Baldinn

Halldór.  Semsagt Fulltrúar Þíns flokks lofuðu ekki þjóðaratkvæðisgreiðslu fyrir kosningar þegar þeir voru að veiða atkvæði.  Þakka þér fyrir að benda mér á þetta, ég greinilega hef ekki tekið nóg eftir í þessari kosningabaráttu.

Það er einnig gott að vita að árshátíð flokksins þíns er það sem hlusta ber á enn ekki þingmennirnir.  Þú þá staðfestir hér að þeir eru ekkert til að taka mark á.

Baldinn, 11.4.2014 kl. 09:16

10 Smámynd: Elle_

Baldinn, eins og fjöldi fjöldi framssalssinna, ætlar aldrei að heyra að ekki sé um neinn samning að ræða.  Mig langar ekki að vera leiðinleg við þig en þetta heitir að loka fyrir.  Orðið samningur er fáránlegt í þessu samhengi.  Þú heyrir ekki, hlustar ekki, lest ekki. 

NOT NEGOTIABLE, segir Brussel.  Ætlaðist til að þú skildir það en það þýðir óumsemjanlegt.  Og þessvegna ekki um neina samninga að ræða.  Viltu ekki segja hinum það?

Elle_, 12.4.2014 kl. 00:17

11 Smámynd: Þorkell Guðnason

Fyrir mér er aðeins eitt í stöðunni:

Not negotiable - Ég heimila ekki umræður um örlög örþjóðar minnar við neinn sem setur "Not negotiable" sem viðræðu- eða samningsforsendu.

Svo var mér reyndar líka fullljóst að "Landsfundurinn" færi með æðsta vald Sjálfstæðisflokksins!

Þorkell Guðnason, 13.4.2014 kl. 01:34

12 Smámynd: Elle_

Kannski var ég hörð við Baldinn að ofan, en Baldinn þú vilt oft ekki heyra eðlilega og sanngjarna hluti ef það er á móti dýrðarveldinu, staðreyndir um það.  Gæti skilið að þú vildir ekki heyra, ef fólk væri að kasta skít í þig. 

Þú talar alltaf, eins og alltof margir gera enn, um samninga sem eru ekki neinir samningar.  Það er fólk eins og Baldur Þórhallsson, Benedikt Jóhannesson, Eiríkur Bergmann, Þorsteinn Pálsson og Össur og co, sem blekkja í þessu máli.  Það er ekki eins og þeir viti þetta ekki.  Það er ekkert lýðræðislegt við þetta fólk, sama hvað þessi hópur stendur oft fyrir framan alþingi, það vill fá fram fullveldisframsal sem það á enga heimtingu á frá einum eða neinum.  Þú heldur það sé lýðræðislegt af þeim að heimta þjóðaratkvæði núna um mál sem hófst ólýðræðislega, og bara með ofbeldi og án þjóðaratkvæðis í júlí 09, af þeirra völdum.   Það er sama fólkið og heimtar núna þjóðaratkvæði og ræðst á ríkisstjórnina. 

Og hinir sem hafa verið blekktir eða vita ekki nóg um málið, segja stjórnarliðið á harðahlaupum og stein ekki standa yfir steini.  Þar stendur nefnilega ekki grjót yfir steini.  Ríkisstjórnin er með fullt umboð til að stoppa það eins og það hófst.  Þau eiga að halda sínu striki og ekkert að hlusta á ranglátar kröfur ykkar.

Sammála Þorkeli.

Elle_, 13.4.2014 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 3418270

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband