Leita í fréttum mbl.is

Göpum meira

upp í þessar vinaþjóðir okkar, Bandarikjamenn, Þjóðverja, Frakka og aðrar Evrópubandalagsþjóðir. Rifjum upp hversu miklir vinir þessar þjóðir voru í hruninu hjá okkur. Bara Færeyingar buðu okkur lán. Og voru Rússar ekki líklegir á tíma?

Nú fáum við að kenna á gapi utanríkismálanefndar Alþingis upp í NATO sem Bandaríkin ráða flestu. Rússar banna innflutning til sín á öllu frá Íslandi. Akkúrat eins og hlaut að koma að. Skyldu refsiaðgerðir Íslendinga gegn Rússum eiga að standa þar til að Rússar hafi skilað Krímskaga og víghreiðrinu í Sevastopol?

Gas er hinsvegar enn fáanlegt til Þýskalands frá Rússlandi. Og Exocet flaugar Frakka munu áfram rata til Rússlands. Getum við ekki krafist þess að þessum viðskiptum verði hætt eins og makrílviðskiptum? Hverskonar stórveldatvískinnungur er þetta?

Mikið hlýtur íslenska þjóðin að dá þau stjórnvöld sín sem þessu hafa til leiðar komið. Jafnvel Píratar hreyfðu ekki andmælum.

Það er um að gera að gera ekkert með fullveldi þjóðarinnar þegar kostur er á að gapa. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það tekur svo langan tíma fyrir Sjóræningjanna að stafa sig í gegnum bann ákvæðinn, því þeir eru svo illa læsir. Sjóræningja skipstjórinn hefur þess vegna ákveðið að vera með af því að VG, Björt Framtíð og Samfylkingin voru með þessu banni.

Hefði ekki verið rétt að vita hvaða skilyrðum rússar þurfa að gangast undir áður en banninu verður aflétt, áður en Sjóræningja skipstjórinn greiddi atkvæði með framlengingu bannsins?

Svo vill stór hluti landsmanna að Sjóræningja skipstjórinn verði næsti forsætisráðherra, því ekki, kanski ekkert verra en Gnarrinn sem var gerður að borgarstjóra.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 13.8.2015 kl. 20:14

2 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Vel mælt: af hálfu ykkar Jóhanns Flugvirkjameistara, beggja.

Með kveðjum: af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.8.2015 kl. 20:18

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Kæri Halldór.

Rússar sviku lánsloforð sitt til okkar eftir hrunið. Pólverjar og færeyingar lánuðu okkur aurinn eftir hrunið.

Ég held að ég geri orð Styrnis í þessu máli að mínum :

Styrmir Gunnarsson :

„Þegar þjóðarhagsmunir og viðskiptahagsmunir rekast á

Fimmtudagur, 13. ágúst 2015

Það þarf engum að koma á óvart að Ísland sé komið á lista yfir þær þjóðir, sem Rússarbeita innflutningsbanni. Það eina sem kemur á óvart í því er að það skuli ekki hafa gerzt fyrir ári.

Í þessu máli stangast á hagsmunir einstakra fyrirtækja og atvinnugreina til skemmri tíma og langtíma hagsmunir þjóðarinnar í utanríkismálum.

Nú sem fyrr telur sú atvinnugrein og þau fyrirtæki, sem fyrir innflutningsbanninu verða að fjárhagslegir hagsmunir þeirra eigi að vera í fyrirrúmi. Það er skiljanlegt frá þeirra sjónarhóli séð en það gengur ekki upp, þegar hugað er að langtíma hagsmunum íslenzkuþjóðarinnar og stöðu okkar í samfélagi þjóðanna.

Auðvitað eru skiptar skoðanir um það hver sú staða eigi að vera. Það hefur alla tíð verið ágreiningur um það hjá okkur eins og við er að búast. Sumir telja að það sem kallað varhlutleysisstefna í gamla daga henti okkur bezt, þ.e. að við stöndum utan við öll ágreiningsmál og högum seglum eftir vindi eins og bezt hentar hverju sinni.

Niðurstaða meirihluta þjóðarinnar í ógnarátökum kalda stríðsins varð sú, að sú leið yrði okkur ekki til farsældar. Þess vegna gengum við íAtlantshafsbandalagið og þess vegna gerðum við varnarsamninginn við Bandaríkin. Þetta tvennt tryggði öryggi okkar í kalda stríðinu og raunar meira en það. Það er engin spurning um að aðild okkar að fylkingu frjálsra þjóða í kalda stríðinu tryggði okkur að lokum yfirráð yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland.

Nú eru aðrir tímar og hörð barátta hefur verið háð fyrir því að Ísland gerðist aðili aðEvrópusambandinu. Í því fælist að við yrðum áhrifalaus hreppur 300 þúsund manna í 500 milljóna manna samfélagi og misstum þar með sjálfstæði okkar.

En það þýðir ekki að við eigum ekki almennt talað samleið með Vesturlöndum, þ.e.Bandaríkjunum vestan hafs og Evrópuríkjunum austan hafs. Og í því felst að við hljótum að sýna þeim samstöðu í meginmálum eins og þeim deilum, sem nú standa yfir í austurhluta Evrópu. Og gleymum því ekki að þær deilur geta hvenær sem er náð tilFinnlands og Eystrasaltsríkjanna.

Þeir sem halda því fram, að við eigum að segja okkur frá þeim stuðningi, sem við höfum sýnt við refsiaðgerðir Vesturlanda gegn Rússlandi vegna útflutningshagsmuna okkar mega ekki gleyma því að ef við gerum það, getur allt í einu annað viðmót snúið að okkur frá þeim löndum. Það á bæði við um ESB-ríkin, þar sem við eigum mikilla viðskiptahagsmuna að gæta og Bandaríkin, þar sem á ferð eru annars konar hagsmunir.

Það er t.d. augljóst að þrátt fyrir þrýsting í áratugi á stjórnvöld í Washington vegna hvalveiða okkar hafa þau farið sér hægt í að herða að okkur af þeim sökum.

Það er ekki bæði hægt að halda og sleppa.

Auðvitað er hugsanlegt að einhverjir Íslendingar telji hagsmunum okkar bezt borgið með því að skipta um lið og gerast bandamenn Rússa en þeir hinir sömu munu eiga erfitt með að rökstyðja slíkan viðsnúning.

Svo eru þeir sem telja að hægt sé að tala í báðar áttir. Þær þjóðir eru til í Evrópu, sem högnuðust á því að leika tveimur skjöldum í seinni heimsstyrjöldinni. Þær þjóðir eru líka til sem gagnrýndu aðskilnaðarstefnu hvítra manna í Suður-Afríku en seldu hvítum mönnum þar vopn á sama tíma sem voru notuð til að berja á blökkumönnum.

Viljum við skipa okkur í hóp með slíkum þjóðum?! “

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 13.8.2015 kl. 23:16

4 identicon

Sælir - á ný !

Predikari !

Þér væri hollast - sem öðrum ýmsum að minnast þess, að Davíð Oddsson var þáverandi Seðlabankastjóri hér (2008), þegar Rússar ''sviku'' lánsloforð sitt til Íslendinga: eins og þú orðar það.

I. Davíð Oddsson: sólundaði fjármunum Seðlabankans, í hendur einka braskara Kaupþings forarvilpunnar.

II. Hví - hefðu Rússar / fremur en nokkrir aðrir: yfirleitt, átt að spandera peningum til Íslendinga, undir þeim kringum stæðum, sem hér ríktu, í Septemberlok/ Október byrjun 2008 ?

III.Davíð Oddsson: sem og Jón Baldvin Hannibalsson, höfundar EES hörmunganna - hafa ekki ENNÞÁ, verið sóktir til saka, fyrir spellvirki sín.

Þú getur alveg - sparað þér, frekari hnjóðsyrði í garð Rússa - sem og annarra, sem raunverulega hafa viljað Íslendingum vel,, allt, frá Miðöldum að telja, Predikari.

Hinar sömu kveðjur - sem seinustu / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.8.2015 kl. 00:00

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Óskar nefndur Helgi.

Þú fellur jafnan í þá vilpu að hafa að mestu rangt fyrir þér - í flestu.

Davíð sagði þjóðinni frá tilboði rússa um lánið.Það sviku vinir þínir í austri.

Davóð sólundaði ekki peningum íslendinga í seðlabankanum - það sanna vitnaleiðslur í rannsóknarskýrslu Alþingis og sagan hefur einnig sýnt það.

Það var keppikefli Jóns Baldna að koma á EES og gerði það að málefni Viðeyjarstjórnarinnar með stjórnarsáttmála í skiptum fyrir annað.

Stalínkomminn sem nú ræður ríkjum í seðlabankanum sólundaði afrakstri góðs veðs sem Davíð tók - sömuleiðis tók Stalínkomminn þátt í leik jarðfræðinemans og sólundaði enn frekar fjármunum í Sjóvármálinu sem og lét seðlabankann greiða einkamálskostnað sinn gegn seðlabankanum. Einhver staðar hefðu menn verið reknir fyrir minna.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.8.2015 kl. 00:12

6 identicon

Sælir - enn !

Predikari !

Ekki: lagar þú lélegan málstað ykkar miðju- moðs manna / með því að sproksetja nafn mitt, eða annarra, til þess að dreifa athyglinni, frá einföldum staðreyndunum, um hryðjuverk þessarra manna (DO: og JBH).

Auk þess - valdi ég ekki sjálfur, fornafn né miðnafn mitt, svo fram komi, einnig / sé eitthvað athugavert við þau, á annað borð.

Að minnsta kosti - skrifa ég ekki, í skjóli felunafns, eða nafna.  

Þú getur alveg - velkzt um, í forarvilpu frjálshyggju og græðgisvæðingar vina þinna / en ekki haggar það, hinum sögulegu staðreyndum.

Og mundu - persóna mín: hefir ekkert með þá hluti að gera, sem hér eru til umfjöllunar, fremur en flestra annarra / heldur: skemmdarstarfsemi fyrrverandi sem núverandi stjórnmála- og embættismanna, hér á landi.

Að endingu: í skjóli hverra, skyldi Stalínkomminn Már sitja, Predikari ?

Vindsins - eða ???

Með þeim sömu kveðjum - sem síðustu / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.8.2015 kl. 01:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418388

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband