14.8.2015 | 09:19
Hversvegna styð ég Rússa
í deilum þeirra um Úkraínu?
Ég álít að byrjun málsins hafi borið að með óásættanlegum hætti.
ESB hrakti réttkjörinn forseta frá völdum í Úkraínu. Rússar á Krímskaga sættu sig ekki við að hafa verið gefnir til Úkrainu af fullum Úkraíningi honum Krúsjeff í gamla daga.
Rússar höfði sem heimsveldi og forystuafl í Sovétsambandinu lagt eigur sambandsins í uppbyggingu hernaðarmannvirkjanna í Sevastopol.Hrikaleg mannvirki og nauðsyn fyrir Rússa til að lokast ekki inni og vera kjarnorkustórveldi.
Öflug þjóðernisvakning í Rússlandi neitar að láta slátra Rússum í Austur Úkraínu með fjárstuðningi NATO og ESB. Þeir vilja að fólkið fái sjálft að ákveða hverjum það vill fylgja. Ísland setur viðskiptaþvinganir á þá fyrir vikið.
Við gætum eins hafa sjálf upplifað að Vestaannaeyingurinn sem var alvaldur Íslands árið eftir Shangríla hefði í fylleríi gefið Vestmanneyjar og Surtsey til þáverandi stjórnar Vestmannaeyja frá íslenska Sambandsríkinu.
Síðan gerist það að það er kosinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum sem vill nánara samstarf við fastalandið. Það líkar ekki LÍU í Eyjum og efnir til samblásturs gegn manninum. Hann er flæmdur frá völdum með búsáhaldabyltingu útgerðarmanna í Eyjum og leynilegum stuðningi frá ESB sem sér von í fiskimiðum umhverfis Eyjar. Og Bandaríkin eru að svipast eftir plássi fyrir eldflaugar til að geta ógnað Reykjavík.
Surtseyingar eru allir aðfluttir af fastalandinu og tala reykvíst stofnanamál en ekki sjóarakjaft. Þeir hafa aldrei verið Vestmannaeyingar heldur fínir menn úr MR í Reykjavík.
Í samráði við stjórnina á fastalandinu er ákveðið að þeir Surtseyingar greiði þjóðaratkvæði um hverjum þeir vilji fylgja. Surtsey sameinast fastalandinu í framhaldi af því.Landhelgisgæslan sendir varðskip til að passa þá.
Í Elliðaey er hafa Surtseyingar líka sest af og eru í meirihluta. Þeir heimta að sameinast fastalandinu og Surtsey. Vestamanneyingar búa þarna líka en eru minnihluti. Þeir krefjast sambands við eyjarnar.Eyjamenn senda fjölda sjálfboða-lundaveiðimanna á vettvang. Það eru róstur um lundann.
Fastlendingar skrúfa fyrir vatnið til Vestamanneyinga sem viðskiptaþvingun. Vestamanneyingar svara með að þeir borgi ekki lengur skatt til fastlendinga né virði kvótalögin.Þeir taki sér aukna landhelgi. Þeir selji ekki lengur fisk til fastlendinga né skili þeim gjaldeyri.Erlend ríki innan ESB vilja auðvitað fiska þar í skjóli Vestamanneyinga. Bandaríkin vilja setja þar upp herstöð og taka þá í NATO.
Hvað skyldu þau Birgitta og Helgi Rafn segja niður á Austurvelli?
Við hverju búast menn að þetta leiði til? Hvernig mun gjaldeyririnn frá Vestmannaeyjum fara að koma aftur til Reykjavíkur?
Ég styð Rússa. Ekki vegna sérstakrar samúðar með Máa og makrílnum hans. Ég styð þá vegna þess að Rússar eru að sækja rétt Rússa sem þjóðar á móti hræsnislegri hentistefnu ESB sem ekki spáir í aðra minnihluta eins og í Katalóníu.
Bandalagið sem heldur áfram á gasinu frá Rússlandi þó við Íslendingar sem eru ekki í því eigum að fórna makrílnum okkar.Og Frakkar halda áfram að selja Rússum vopn gegn einhverjum leynigreiðum frá Rússum. Og Kaninn kyndir undir til að svekkja Rússann.
Eigum við Íslendingar samleið með þessum ríkjum í þessum hráskinnaleik gegn Rússum sem aldrei hafa sýnt okkur óvináttu? Á viðskiptabannið okkar að standa þangað til Rússar eru farnir frá Krím?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.8.2015 kl. 11:55 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sæll Halldór!
Sjálfur er ég ekki endilega fastur í með eða á móti skotgröfunum tengt rússum:
Besta lendingin í málinu væri að hinn almenni neytandi myndi mótmæla framgöngu rússa í Úkraínu með því að hafna rússneskum vörum út í sinni búð sjálfur, frekar en að ríkið sé að skipta sér af málinu með viðskiptabanni.
http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1917799/
Jón Þórhallsson, 14.8.2015 kl. 09:38
Munu Bandaríkjamenn sætta sig við það að Kanadamenn gengju í hernaðar- og efnahagsbandalag með Rússum og Kínhverjum?
Ómar Ragnarsson, 14.8.2015 kl. 10:20
TIL HVERS VORU SAMEINUÐUÞJÓÐIRNAR STOFNAÐAR?
https://www.facebook.com/UNAIceland?fref=ts
Jón Þórhallsson, 14.8.2015 kl. 10:27
Halldór þú stiður Rússa vegna þess að þú ert heilvita maður eins og við flest á landinu.
Valdimar Samúelsson, 14.8.2015 kl. 11:56
Sæll kæri Halldór.
Þú gleymir því að það var samningur til næstu 40 ára sem veitti rússum fullt leyfi til að halda flotastöðinni sinn i o allri starfsemi sinni þar - allt ein og var á Miðnesheiði þegar Bandaríkin voru með stöðinna sína þar.
Rússar voru ekki í nokkurri hættu með að missa flotastöðina sína þar. Þeir hirtu Krím í trássi við alþjóðalög með hervaldi og héldu síðan skríkakosningar að talí/Lenínskum sið undir btyssukjöftum eftir á til að reyna að láta líta út fyrir að lýðræðið hefði ráðið.Öll alþjóðleg lög um fullveldi og stríðsrekstur brotin þvers og kruss. eins og kommum er lagið þegar hentar þeim. Svona kosningar eru einnig haldnar svo dæmi sé tekið í Norður Kóreu.
Svei attan.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.8.2015 kl. 12:10
Skrípakosningar átti að standa í fyrra innleggi
Biðst forláts á öðrum flýtiinnsláttarvillum sem ég held að skiljist samt.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.8.2015 kl. 12:12
Prédikari,
þetta er ekki ræett sem þú segir. Krímaskaginn er yfir 90 % rússneskur. Þeir kærðu sig ekkert um að vera gefnir í heilu lagi frá Rússlandi til Úkraínu af úkraínskri fyllibyttu. Þetta gat alls ekki gengið. Það var viðtal við íslenskan mann búsettan þarna og hann segir þetta alvega klárt með Krískaga.
Ert þú a móti sjálfsákvörðunarrétti þjóða Cachoetes? Vasrtu þá á móti því að við stofnuðum lýðveldi 1944? Var rangt að fá fullveldi 1918?
Ómar, það er til Geopolitík stórvelda. Minnumst við ekki þess þegar úkraínska fyllibyttan hélt að hann gæti sett niður kjarnorkuflaugar á Kúbu? Kennedy sagði hreint út að öllu yrði fórnað fyrr en að þetta yrði svona til frambúðar. Hinir skynsamari menn stoppuðu fyllibyttuna. Hvorugu ríkjanna Canada eða USA dytti í hug það sem þú nefnir. Bretar gátu sigrað okkur í landhelgisstríðunum en það hefði verið Phyrrosarsigur, þeir áttuðu sig á því.
Kosningin á Krím var góð , sönn og egta.Rússar völdu að vera ein þjóð. Því miður Prédikari, þú ferð villir vega.
Halldór Jónsson, 14.8.2015 kl. 14:04
Sæll kæri Halldór.
Það vita allir, sem og alþjóðlegar stofnanir með eftirliti á atkvæðagreiðslum, að þetta var afleit atkvæðagreiðsla undir ógn vélbyssukjafta, enda búið að hernema skagann þegar þar var komið sögu.
Rússar sjálfir viðurkenndu þjóðaréttinn hjá Úkraínu á Krím með því fyrir mörgum árum að semja um að fá að hafa flotastöðina þrátt fyrir sjálfstæði frá Ráðsjórnarríkjunum og sá samningur stóð þegar þeir hertóku Krím í fullkominni andstöðu við alþjóðleg lög um þjóðarétt og fullveldi.Allar þjóðir heims virtu þjóðarétt Úkraínu á Krím, enda búið að vera svo í marga áratugi - hvað sem fyllibyttu áhrærir.
Eigum við þá að afturkalla fall Sovétsins bara af því að það var fyllibyttan Boris Yeltsin sem fór í fararbroddi að auðmýkja Mikhail Gorbachev og reka hann úr valdastóli eftir að Reagan og Thatcher voru búin að setja Gorgbachev stólinn fyrir dyrnar ?
Nei Pútín fer um á sama hátt og Hitrlerhvað varðar Krím og Úkraínu. Hann væri búinn að innlima Úkraínu hefði ekki komið honum á óvart andstaða þjóða heims og viðbrögð vegna Krím.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.8.2015 kl. 16:03
Það var kannski hranalega að farið en þarna var allt í upplausn og stríðið hefði náð til Krímskaga annars. aðalatriðið að þarna er sjálfsákvörðunarréttur þjóðar virtur. Það þarf að gera líka í austurhlutanaum. Var Borgarastríðið í Bandaríkjunum kannski vitleysa? Sé neitað að viðurkenna tilveru þjóða fer illa eins í Tíbet og Kúrdistan.
Halldór Jónsson, 14.8.2015 kl. 17:35
Sæll Halldór,
Ég verð að segja að það er svolítið skoplegt að sjá íslenska hægri menn flykkjast sem einn til að styða við bak gamals KGB komma, sem hefur hreiðrað vel um sig í Kreml og gefur afskaplega lítið fyrir lýðræðið. Ef menn halda að stirð samskipti Úkraínu og Rússlands séu eitthvað ný af nálinni, þurfa menn að lesa sér til, en af sumum bloggurum má skilja að þetta sé allt EU að kenna;) Það má kenna EU um margt, en fjandskap milli rússa og úkraínumanna er svolítið hæpið dæmi.
Kveðja,
Arnór Baldvinsson, 14.8.2015 kl. 17:45
Afsaka villuna styður.
Valdimar Samúelsson, 14.8.2015 kl. 18:12
Kæri Halldór.
Sjálfsákvörðunarréttur þjóðar var einmitt alls ekki virtur á Krím Það var búið að hertaka Krím þó nokkru áður en svokallaðar kosningar fóru fram. Það var kosið undir vélbyssukjöftum og skortur var á flestum lágmarksviðmiðum lýðræðislegra kosninga eins og þær þekkjast um veröld víða.
Svona er ekki farið að nema þar sem alræðishöfðingjar sem Pútín, Hitler og Un í Kóreu eiga í hlutog ráða ríkjum og ráða einnig úrslitum kosninga að jafnaði.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.8.2015 kl. 20:04
Takk Valdimar
Cachoetes, þú berð hausnum við steininn. Krímverjar eru Rússar. Það var stríðsástand og það þurfti vélbyssukjafta til að spellvirki. Krím er rússneskt land með Rússum. úkraníumenn hefðu aldrei unnið þar atkvæðagreiðslu
Halldór Jónsson, 14.8.2015 kl. 21:44
....spellvirki yrðu ekki framkvæmd af Úkraínumönnm, fyrirgefið hvað ég er hroðvirkur
Halldór Jónsson, 14.8.2015 kl. 21:45
Kæri Halldór - þannig verður brátt á Íslandi ef fram fer sem horfir - þú verður kosinn undir ISIS eða hvað það nú verður. Það breytir ekki því að rússar fóru gróflega gegn þjóðare´tti og alþjóðalögum þegar þeir hernámu Krím - allt eins og þegar Hitler hóf innlimun ríkja í kring um sig. Eina stríðsástandið á Krím - sem og í Úkraínu - var af völdum dulbúinna yfirmanna í rússneka hernum og KGB, hvað þeir nú heita núna. Þeir skópu ástand og síðan hugarfar semheimurinn - og þú kæri Halldór áttu að blekkjast af og tala síðan um hina muklu nauðsyn að stilla til friðar sem rússneski bj0rninn gerði síðan í friðardúfuhamnum sínum. Það sáu bara flestir í gegn um það skuespil Pútíns.
Það virðast gleiri á einu máli með mér - hér skrifar fyrrum þingmaður, dómsmála- og menntamálaráðherra - Björn Bjarnason :
„14.8.2015
Föstudagur 14. 08. 15
Furðulegt er að lesa ummæli ýmissa í netheimum eftir að Rússar ákváðu að beita okkur því óvinabragði að setja bann á innflutning á fisk. Bitnar ákvörðun þeirra um að beita ríki utan ESB ofríki líklega þyngst á okkur og brýtur í bága við allt sem viðgengist hefur í viðskiptum þjóðanna í tæpa sjö áratugi. Sovétmenn voru beittir viðskiptaþvingunum með banni á sölu hátæknivarnings til þeirra. Á þeim tíma seldu Kremlverjar Íslendingum á hinn bóginn olíu og keyptu af okkur ýmsan varning.
Nú lætur Pútín eyða matvælum frá Vesturlöndum í beinni útsendingu og veldur þjóð sinni skaða með því að loka fyrir innflutning á sjávarafurðir (fyrir utan kavíar frá Ítalíu) þá rísa hér upp menn hver um annan þveran og skamma íslensk stjórnvöld og kalla Pútín „Íslandsvin“ eins og lesa mátti hjá einhverjum. Hvílíkur málflutningur.
Skömmu eftir að Pútín innlimaði Krím í mars 2014 í trássi við alþjóðalög kynnti Gunnar Bragi Sveinsson hörð mótmæli íslenskra stjórnvalda, lýsti þjóðaratkvæðagreiðslu á Krím marklausa og sagði að sem EES-ríki mundi Ísland taka þátt í viðskiptaþvingunum með öðrum EES-ríkjum, það er Noregi og Liechtenstein auk ESB-ríkjanna. Ekkert af þessu fór leynt eins og sjá má í fjölmiðlum þess tíma. Að Íslendingar hefðu sagt skilið við þennan ríkjahóp á þessum örlagatíma var fráleitt.
Frá því að þetta gerðist hefur Pútín ekki haldið að sér höndum á hernaðarsviðinu. Eins og sjá má hér segja sérfróðir menn að heræfingar Rússa annars vegar og NATO hins vegar sýni að aðilar búi sig undir átök. Pútín hefur stóreflt rússneska herinn á norðurslóðum og nú er boðað stóraukið sóknarafl hersins við landamæri Finnlands, Eystrasaltsríkjanna og Póllands.
Við þessar aðstæður keppast hinir ólíklegustu menn við að búa til einhvern séríslenskan veruleika þar sem talað er um íslensk stjórnvöld eins og örlagavald þegar allt ofríkið er í boði Pútíns og félaga. Ríkisstjórn og utanríkismálanefnd alþingis standa fast við ákvörðunina sem var tekin strax í mars/apríl 2014. Að hopa frá henni er óðs manns æði.
Í fréttum í dag segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafi rætt málið í síma við rússneskan starfsbróður sinn Dmitríj Medvedev. Takist íslenskum stjórnvöldum að fá Kremlverja til að láta af ofstæki sínu ber að fagna því.“
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 15.8.2015 kl. 01:59
Gerðu ekki ríkin tvö (Rússland og Úkranía) ekki samkomulag sín á milli að virða landamæri hvors annars þegar Úkranía öðlaðist sjálfstæði?
Hilmar (IP-tala skráð) 17.8.2015 kl. 12:45
Hilmar
Mig minnira að svo hafi verið.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 17.8.2015 kl. 13:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.