Leita í fréttum mbl.is

Er enginn á vakt?

 

flutnFinnst engum þetta uggvænlegt?

Er ekki svona skriða neitt til að nema staðar við?

Hvervegna koma inn 5894 útlendingar meðan 2862 Íslendingar fara?

Það er verið að skipta um þjóð í landinu.Íslensk menning er á útleið og einhver önnur að koma í staðinn. Hvað ár skerast ferlarnir? Það ár verða arfbornir Íslendingar komnir í minnihluta.

Þarf ekki að reyna að spyrja þessa sem fara, hversvegna þeir fari? Úr hvaða stéttum þeir koma?

Ef þetta eru allt háskólaborgarar sem eru að selja menntunina erlendis, á þá að vera að halda úti háskólum þegar fleiri fara en útskrifast?

Eru engin stjórnvöld á vakt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það sem ég veit úr minni familíu,er barnabarn og kærasti nýfarin í nám á Spáni í 1 ár.,kemur ekki til greina annað en að koma aftur heim.Íslenskt(menntað) sambýlisfólk,með 2 börn frá Noregi,var að kaupa á Völlunum í Hafnarfirði og flytur heim fyrir jól.Sambýlisfólk frá Noregi (ísl/norskt/menntað)hyggst kaupa og flytja heim næsta sumar. Ef eitthvað álíka gerist hjá nokkrum fleiri,er ástæða til bjartsýni.  

Helga Kristjánsdóttir, 12.11.2015 kl. 01:50

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég var 19 ára þegar ég sá að það er eru örfáir í peningaelítunni sem stjórna öllu á Íslandi. Ef fólk fæðist ekki í réttri fjölskyldu þá á það lítinn sjens annan en að vinna fyrir peningaelítunna allt sitt líf.

Kanski eru allar háskólagráðurnar til einhvers, fólk er farið að sjá í gegnum oþveramenskuna.

Því miður þá er þetta á leiðina í að það verður peningaelítan og ómentaðir innflytjendur sem eftir verða, sem taka við að þræla fyrir peningaelítunna.

Peningaelitan vill ekki vinna og deila ágóðanum með öðrum, þeirra uppáhalds söngur er Money Money með ABBA og uppáhalds kvikmynd þeirra er Wall Street "Greet is good."

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 12.11.2015 kl. 03:22

3 identicon

Fólk flytur frá Íslandi af sömu ástæðum og það flyst af landsbyggðinni til Reykjavíkur. Einangrun og afdalamennska af öllu tagi er efalítið aðal ástæðan. Þau sem eiga Ísland og gögn þess og gæði, eru yfirleitt búsett í öðrum löndum og nota gróðann til að lifa þar hóglífi. Þeim er sama hvaða fólk býr hér, meðan ekki þarf að borga því nema skítalaun til að hámarka gróðann.Ég þekki ekki fólk sem kemur aftur, ef það hefur haft sig á annað borð í að koma sér annað.

Binni (IP-tala skráð) 12.11.2015 kl. 05:09

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Nei, nei,  Halldór, hér er eingin á vakt enda vita íslendingar ekkert hvað er að vera á vakt, nema kannski konur starfandi á sjúkrahúsum. 

Íslendingar eru agalaus þjóð, enda kunna nútíma Íslendingar ekki að ala upp börn, hvað þá illa uppalda unglinga. Við erum verst sett af öllum sjálfstæðum þjóðum hvað þetta varðar, vegna þess að hér er eingin her, en allar sjálfstæðar þjóðir aðrar hafa her.

Sænskir menn í atvinulífinu þar, segja mér að síðan herskildu lauk í Svíþjóð þá séu  augljós kaflaskipi  á gagnsemi Sænskra starfsmanna.  Agalaus ósamstæður, óstundvís hópur manna sem kann ekki að vinna saman og sér ekki lausnir sem eru í seilingar fjarlægð.

Hrólfur Þ Hraundal, 12.11.2015 kl. 07:11

5 Smámynd: Jón Bjarni

Ætli stærsta ástæðan sé ekki sú að hópur eldri borgara sem vill helst halda íslendingum 20-30 árum á eftir nágrönnum okkur hafa hér full mikil völd.

Þú Halldór hafðir af því miklar áhyggjur af því um daginn að yfirtaka ungs fólks á Sjálfstæðisflokknum yrði honum að falli - annað hefur þó komið á daginn eftir nýjustu könnun - fylgið hefur rokið upp

Jón Bjarni, 12.11.2015 kl. 11:56

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hvar var fylgi Sjallana á leiðini upp, ef það var í sköðunarkönnun  í Fréttablaðinu, þá er lítið að marka það. 

Fréttablaðið er ekki þekkt fyrir að segja rétt frá.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 12.11.2015 kl. 14:30

7 Smámynd: Jón Bjarni

Kannanir Fréttablaðsins hafa ný yfirleitt verið hvað næst niðurstöðum síðustu kosninga - hvað áttu eiginlega við.. Og afhverju ætti Fréttablaðið að ýkja fylgi Sjálfstæðisflokksins - er samsæriskenningin ekki sú að blaðið hati flokkinn?

Jón Bjarni, 12.11.2015 kl. 18:46

8 Smámynd: Már Elíson

Helga Kristjáns - 1# - Þetta er ömurlegt að heyra og varla hægt að trúa þessu. - Að fólk, sem er búið að vera lúbarið og svipt veraldlegum eigum sínum og vitandi að engin von eða framtíð bíður þess hér á landi - skuli koma AFTUR til landsins. Vesalings fólkið (sem þú ein þekkir ?). Kannski er búið að lofa því einhverju sem (flótta)fólkið (sem ÉG þekki) fær ekki, og fær aldrei hér á landi ?? - Kynntu þér aðstæður fólks sem bíður í röðum hér á landi eins og flóttafólk, til að komast til annarra landa þar sem ÖLL kjör, á hvaða sviði sem er, eru betri. - Ef þú kærir þig um skal ég segja þér sannleikann, sannleikann sem þú veist ekki eða vilt ekki vita. - Láttu svo ekki plata þig. 

Már Elíson, 12.11.2015 kl. 19:43

9 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Jóhann Flugvirkjameistari (kl.03:22) og Binni !

Alveg hárréttar ályktanir ykkar: sem niðurstöður.

Enda - engar innistæður landsmanna, fyrir uppdiktaðri þjóðerniskennd né annarrskonar flími, til þess að breiða yfir hlutlægann sem huglægann sóðaskapinn, sem allt of margir hafa fallið fyrir, til þessa hérlendis - þegar ómerkir stjórnmála ónytjungar og aðrir þeim ámóta, hafa farið, með Himinskautum lyginnar.

Már Elíson !

Ekki síður mikilvægt: sem brýnt, þitt innlegg - og vona ég svo sannarlega að nafna mín Kristjánsdóttir (kl.01:50) nái áttum, hið allra fyrsta, svo og annað hrekklaust og vel meinandi fólk:: yfirleitt.

Halldór síðuhafi !

Alveg endilega - farðu nú að gera þér ljósa þá staðreynd, að vinir þínir:: Sigmundur Davíð og Bjarni lagsmaður hans, eru nákvæmlega sömu lítilmennin í sínum óhrjálegu tiltektum, eins og þau Jóhanna og Steingrímur J. (2009 - 2013) sýndu okkur svo glöggt, á sínum tíma, fornvinur góður.

Ekki seinna vænna: Halldór minn.

Sjáðu dekur og smjaður Eyglóar Harðardóttur og Ármanns Kr. Ólafssonar fyrir þeim Múhameðsku t.d. / sem og frammá fólks : Selfyssinga - Akureyringa - Hvergerðinga og Þorlákshafnar búa (Ölfusinga), svo: fáeinir séu taldir aðrir, Verkfræðin gur snjalli !

Með beztu kveðjum sem endranær - af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 12.11.2015 kl. 20:19

10 Smámynd: Elle_

Halldór, þú stalst hugsun minni bæði þegar þú sagðir að verið væri að skipta um þjóð í landinu og að verið væri að selja háskólamenntunina erlendis.  Það er voðalegt, bæði eyðsla og mikill missir af lærðu fólki. 

Hrólfur, það er mikið agaleysi og stjórnleysi í heild í landinu.  Og það var það fyrsta sem ég tók eftir að ég losnaði við þegar ég fór vestur um haf.  En það eru margir góðir unglingar í landinu og ég á einn þeirra.  Mér finnst þeir hinsvegar lítilsvirtir oft og of oft farið illa með unglinga.  Foreldrar (og fullorðið fólk) ættu að líta á sig sjálfir frekar en saka unglinga um að vera vandræðafólk.  Ætlunin var ekki að skjóta þig niður en ég meina þetta.

Már, það er rangt að enginn komi aftur og Helga lætur ekki vanalega plata sig.  Fólk kemur oft aftur af persónulegum ástæðum ekki síst.  Það á kannski aldraða foreldra og gamla trygga vini í landinu og það hef ég oft heyrt vera skýringuna.  Það kemur næsta víst ekki aftur vegna peninga. 

Elle_, 12.11.2015 kl. 21:59

11 identicon

Úr hvaða heimild er taflan tekin?

Þorgeir ragnarsson (IP-tala skráð) 13.11.2015 kl. 10:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 3418444

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband