Leita í fréttum mbl.is

Friðrik Pálsson

hótelhaldari á Rangá er í viðtali við Viðskiptamoggann í dag. Viðtalið er í heild fræðandi fyrir þá sem vilja kynna sér ferðamál og ættu slíkir sem flestir að lesa þetta.

Friðrik segir m.a.:

".. „Ég átti sjálfsagt einhverja sök á því að þetta orð, náttúrupassi, fór á flakk. Mín hugmynd var og er sú að við eigum að selja umhverfis- og náttúruskjal eða viðurkenningu sem hver einasti ferðamaður kaupir þegar eða áður en hann kemur til landsins. Allir munu þurfa að kaupa þessa viðurkenningu og því verður enginn nokkru sinni spurður um það á ferðum um landið.

Enginn á að fá undanþágu frá þessu, hvorki bisnessmenn sem aðeins dvelja í Reykjavík og hafa vel efni á því að borga fyrir þetta né heldur nokkrir aðrir. Kerfið er ódýrt og sáraeinfalt og viðurkenningin mætti kosta t.d. frá 3.000 eða jafnvel 5.000 krónur. Hún má jafnvel gilda í ár, en það er bara útfærsluatriði. Það má jafnvel hugsa þetta þannig að fyrst um sinn verði að kaupa þessa viðurkenningu aðeins yfir sumarmánuðina og þannig styðja við uppbyggingu ferðaþjónustunnar yfir veturinn, en þó er ég ekki viss um það. Svona upphæð mun engu breyta um áhuga fólks á að koma til landsins, ekki nokkru.

Viðurkenningin mun hins vegar hafa jákvæð áhrif og sýna fólki að okkur er annt um náttúruna og öryggi ferðamanna og að við ætlum með þessu að safna fjármunum til að byggja upp innviðina til að geta gert enn betur í þjónustu okkar við þá. Hugmyndin með náttúrupassann fór þversum í fólk vegna þess að það sá fyrir sér gjaldhlið og eftirlit úti um allt og að fjármunirnir færu meira og minna í að halda kerfinu uppi.

Ég sagði fyrir mörgum árum að þetta væri í raun tækifæri til markaðssetningar. Ferðamaðurinn fær viðurkenningu fyrir því að við- komandi hafi lagt fram tiltekna upphæð til umhverfismála og verndunar náttúrunnar. Það er hægt að gera þetta með flottum hætti og tengja við það með hvaða hætti við höfum hingað til stýrt aðgangi að náttúruauðlindunum okkar.

Við höfum nefnilega býsna góða sögu að segja í þeim efnum, bæði í sjávarútvegi, veiðum á rjúpu, laxveiðinni og svo mætti áfram telja. Okkur er trúað fyrir þeirri náttúruperlu sem Ísland er. Það ætti enginn að miklast af því og við eigum ekki að gera það en við verðum að vera hreinskilin og viðurkenna fyrir okkur sjálfum að við sitjum á ótrúlegri perlu sem okkur ber að vernda og viðhalda. Af því að ég hef staðið í veitingasalnum á Rangá fjögur til fimm kvöld í viku í tólf ár hef ég talað við aragrúa fólks af öllum þjóðernum og upp til hópa á fólk ekki til orð yfir það hvað við erum lánsöm að eiga þá perlu sem Ísland er.“

Friðrik er beinskeyttur að vanda og segir það sem segja þarf um um nauðsyn framlaga ferðafólks til verndunar viðkvæmra staða. Hann segir réttilega frá hvernig klúðrið með eftirlitskerfið fékk andófsmenn til að snúast gegn hugmyndunum á sínum tíma og hvað fékk Alþingi til að ljúka málinu ekki.

Nú stefnir í það óefni að ein og hálf milljón ferðamanna er byrjuð að koma hingað á þessu ári og troða niður viðkvæm svæði án þess að borga neitt. Allt vegna þrætubókarlistar Alþingismanna sem gátu með því eyðilagt málið eins og svo mörg önnur sem ekki eru beinar tilskipanir ESB. Þá er stimpillinn á lofti eins og menn geta sannfærst um á vef Alþingis.

Vonandi tekur Alþingi á sig rögg og gerir eitthvað af því sem Friðrik Pálsson er að benda á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband