Leita í fréttum mbl.is

Þrumufundur með Davíð

í Kópavogi í kvöld.

Á annað hundrað vinir Davíðs mættu í Glersalinn til að stilla saman strengi með honum. 

Davíð og Ástríður tóku á móti fólkinu og léku á als oddi. Davíð tók svo til máls og fór á kostum eins og honum er lagið. Hann fagnaði Katli Larsen sérstaklega en þeir drýgðu tekjur sínar ungir menn með því að leika jólasveina á skemmtunum í fjögur ár. Þá hætti Ketill.

Davíð rifjaði þetta upp og bætti við að nú væru akkúrat einn og átta í framboði til Forseta eins og Jólasveinarnir hefðu verið talsins í þá daga. Kosningabaráttan væri þó harla sérkennileg á stundum. Til dæmis hefði Ástþór Magnússon gaukað að sér blaði á einum fundinum þar sem stóð á aðeins þetta:

"Þú ert búinn að drepa þrjár og hálfa milljón manna"

Davíð sagðist hafa orðið klumsa fyrst en náð að segja að þetta væri bara töluvert. Á seinni stigi fundarins var Ástþór hinsvegar búinn að lækka þessa tölu í eina og hálfa milljón og sagði Davíð sig hafa orðið feginn svona stórum afslætti  svo snemma.

Davíð sagðist vera búinn að fara víða og væri sér vel tekið allsstaðar. Hann fyndi fyrir vaxandi stuðningi eftir að hafa rætt málin og margir  kæmu til hans og segðust vera snúnir á það band að kjósa hann. Skoðanakannanir væru margar og misvísandi.En um reynslu hans í þjóðmálum efast enginn.

Nokkrir báðu um orðið til að lýsa skoðunum sínum og rifja upp söguna. Jón Kristinn hvatti menn til að hringja í alla vini sína og færa Davíð í tal. Menn þyrftu kannski eitthvað örlítið í viðbót við það sem þeir hefðu  nú til að stíga skrefið til fulls.

Óskar Bergsson fyrrum Borgarfulltrúi Framsóknar í Reykjavík minnti Davíð á að þeir Framsóknarmenn fengju ávallt mun meira í kosningum en í skoðanakönnunum. Hann sagðist sannfærður um að Davíð ætti mikið inni hjá hinum þögla meirihluta. Hann óskaði Davíð allra heilla í kosningunni.

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri tók í sama streng og svo gerði einnig Jón Gunnarsson þingmaður. Jón taldi að reynsluleysi þingmanna væri vandamál í stjórnun landsins um þessar mundir. Mikil endurnýjun þingliðs hefði orðið of snöggt og gyldu menn þess of nú. Einmitt þá væri nauðsyn á að þjóðin gæti leitað í reynslu manns eins og Davíð Oddsson væri.

Fundinum lauk með því að menn stóðu á fætur og árnuðu Davíð og konu hans Ástríði allra heilla í baráttunni með dynjandi lófataki sem seint ætlaði að hætta.

Ekki er að efa að fylgi Davíðs í þessum kosningum stendur föstum fótum í Kópavogi og ekki hefur það minnkað við þennan þrumufund í kvöld.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lýsandi fyrir þetta framboð hans að hann hélt fund með  " á annað hundrað vinum sínum" einsog þú segir, í stað þess að mæta í kappræður með ÖLLUM hinum frambjóðendunum og svara þar spurningum frá þjóðinni.

Steinþór A. (IP-tala skráð) 21.6.2016 kl. 23:41

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hvar var fundur sem að þjóðin gat spurt Dabba?

Ekki er SteinÞór að halda því fram að RÚV og aðrir fjölmiðlar séu að spyrja forsetaframbjóðendur spurninga frá þjóðinni?

Ja mikið geta menn stungið hausnum djúpt í sandin ef þeir trúa þessu.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 22.6.2016 kl. 02:38

3 identicon

Í þessu tilfellu, jú. 
Þetta var fundur sem RVK Media & Stundin héldu, þar sem landsmönnum öllum ( líka brottfluttum einsog mér og þér) bauðst að senda inn spurningar bæði  í gegnum tölvupóst í aðdraganda fundarins, og í gegnum Twitter á meðan á honum stóð. Nútímalegt og lýðræðislegt fyrirkomulag, og einsog áður sagði; allir frambjóðendurnir mættu, nema Davíð sem að beið frammá seinasta dag til að afþakka boðið.

Steinþór A. (IP-tala skráð) 22.6.2016 kl. 08:44

4 identicon

Ekki hissa að Davíð láti Stundina eiga sig, miðað við hvernig hún hefur talað um hann í gegnum tiðina og sérstaklega núna fyrir þessar kosningar væri það eins og að mæta á kosningafund hjá Ástþóri. Stundin hefur opinberlega, sem fjölmiðill, beitt sér sérstaklega gegn Davíð.

ls (IP-tala skráð) 22.6.2016 kl. 09:21

5 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Var spurningu þinni svarað SteinÞór?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 24.6.2016 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband