Leita í fréttum mbl.is

Einar S. Hálfdánarson

ritar tímabæra  grein í Morgunblaðið í dag. Af því að fáir lesa Moggann að sögn vinstra fólksins þá set ég hana hér í þeirri von að einhver þeirra lesi:

"Íslendingar eru mikil stemningarþjóð. Allir voru með útrás á sínum tíma, allir höfðu þó í rauninni verið á móti, en bara ekki haft hátt um það.

Rithöfundarnir skora hátt á stemningarskalanum. Enginn hærra en Laxness nema ef vera skyldu Auður og Hallgrímur (ekki þó Pétursson). Allir dáðu Davíð og síðar Jón Ásgeir. Nú eru báðir dottnir úr tísku. Nú ríkir sem sé flóttamannastemning á Íslandi.

Allir, sem hugnast að taka sér hér á landi bólfestu, eru velkomnir. Ekki bara velkomnir heldur velkomnir í framfærslu ríkisins. Í huga Íslendingsins er sérhver sem þannig stendur á um »flóttamaður«. (Lesið bara greinar blaðamanna Morgunblaðsins). Flóttamenn eru reyndar skilgreindir með allt öðrum hætti í öðrum löndum, íslenskum lögum og alþjóðlegum sáttmálum, en við látum það ekki þvælast fyrir.

 

Líkast til verðum við efasemdamenn að sætta okkur við vilja meirihlutans. Þannig virkar nú lýðræðið einu sinni. Þjóðin telur meira réttlæti í því fólgið að ungir menn frá Makedóníu fái greitt uppihald og hótelherbergi en að íslensk gamalmenni fái pláss á elliheimili síðustu æviárin.

Reyndar er það almenn skoðun íslenskra vinstrimanna að notkun fjármuna til eins bitni ekki á veitingu til annars. Svoleiðis töfrabrögð eða vúdúhagfræði þarfnast mikilla skýringa.

 

Hlutur Rauða krossins

 

Sú var tíðin að greiðsla gíróseðla frá Rauða krossinum var samfélagsleg skylda okkar. Nú hafa þar 70 manns atvinnu í flóttamannabransanum, þar af 20 lögfræðingar ef marka má fréttir. Skyldu þessir lögfræðingar aðstoða velferðarferðalanga jafnt og raunverulega flóttamenn? Fjárins er mest aflað frá spilafíklum og á dýrkeyptan kostnað aðstandenda þeirra. Það var miður að sá merki þingmaður og ráðherra, Ögmundur Jónasson, skyldi ekki fá hljómgrunn fyrir tillögum sínum um bann við spilavítum á Íslandi.

 

Ráðum ekkert við ástandið

 

Meðal nágrannaþjóða okkar er innflutningur fólks á þessum skala kallað neyðarástand. Hér láta menn eins og ekkert sé. Við móttöku fólks verður a.m.k. að vera hægt að sinna grundvallaratriðum á borð við sóttvarnir.

Hér hafa komið HIV-smitaðir einstaklingar og verið virkir smitberar vegna þess að skipulagið er í ólestri eins og vonlegt er. Á Íslandi var berklum útrýmt með geysilegum tilkostnaði (líkast til bara tímabundið).

Nú nýlega gekk hér um berklasmitaður maður og uppgötvaðist af tilviljun þar sem hann kom á bráðamóttöku spítala. Við þær aðstæður verður að berklaprófa alla sem hann hefur komið nálægt. Það verkefni kostar of fjár, en það er þó minnstur hluti vandans. Er verjandi að standa svona að sóttvörnum gagnvart eigin þjóð?

 

Ríkisfangslottó Unnar Brár

 

 

Í fyrra um jól bauð Alþingi fjölskyldu nokkurri íslenskt ríkisfang til að koma útlendu barni hér í umönnun um aldur og ævi. Fyrir góðverkinu stóð Unnur Brá Konráðsdóttir, þótt ekki gerði hún það af eigin efnum. Henni lætur betur að slá sig til riddara á kostnað annarra. Fólkinu í kjördæmi hennar blöskraði og hefði hún fallið af þingi hefði annar þingmaður ekki gefið henni eftir þingsæti sitt.

Ræðismaður Makedóníu hefur lýst því hvernig verk Unnar Brár virkuðu sem auglýsing á Balkanskaganum og hvernig ágallar á íslenskum lögum hvetja til Íslandsferða. Nú ætlar allsherjarnefnd Unnar að endurtaka leikinn.

Afleiðingarnar eru fyrirsjáanlegar. A.m.k. 70% »flóttamanna« eru hér á fölskum forsendum. Það kostar á annan milljarð á ári og fer ört vaxandi. Væri ekki ráð að Alþingi tæki sér tak og kæmi málsmeðferð í sama horf og gert er við sömu kringumstæður í Noregi?"

Það er aldeilis makalaust hvernig Alþingi hefur lýst sig gersamlega ófært við að taka á svona stjórnunarvanda eins og Einar lýsir.

Það er auðvitað fyrir áhrif svona þingmanna eins og áminnstrar Unnar Brár og annarra fulltrúa góða fólksins þar inni. En að enginn hinna þingmanna þori að lýsa skoðunum sínum nema Ásmundur Friðriksson er stórfurðulegt. Enda hafa búrtíkurnar rokið í hann með gjammi og glefsi við öll tækifæri síðan og enginn komið honum til hjálpar.

Gamalt fólk er látið liggja úti í Laugardal vegna húsæðisskorts.Það stendur þingmönnum eins og téðri Unni Brá nær huga að borga hótel í 200 daga fyrir óberkla-eða HIVskoðað sem tæknileg ekki fær hælisvist til frambúðar. Hversvegna ekki að afgreiða þessi mál á 48 tímum?

Af hverju fáum við ekki einhvern frá Noregi til að stjórna þessu heldur en að láta löggumenn skrifa skýrslur á mörgum dögum með tveimur puttum á lyklaborð og svo fleiri skýrslur hjá Rauðakrossinum? 

Einar S Hálfdánarson hefur hefur skrifað þarfa grein.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir þetta Halldór. Þessi grein Einars er firna góð. Ástæða til að deila henni. Ert þú ekki búinn að setja hana á fésið?

Jón Magnússon, 23.12.2016 kl. 16:50

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll vinur Jón og gleðilega hátíð og hamingjuóskir. Ég kann ekkert á þetta fés og fer þangað helst aldrei.

Halldór Jónsson, 25.12.2016 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband