Leita í fréttum mbl.is

Af hverju eru hér 700 hælisleitendur?

þegar tafarlaus endursending flestra þeirra er heimil samkvæmt Dyflinarreglugerð?

Hversvegna fást engin svör hjá yfirvöldum við spurningum um vaxandi fjölda þessa fólks?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er vegna þess að þessi nýja ríkisstjórn er fjölmenningasinnuð. Þetta má sjá í nýju plaggi þeirra um stjórnarsamstarf: http://www.mbl.is/media/32/10132.pdf

Innflytjendur og útlendingamál

Í fjölmenningarsamfélagi felst mannauður og fjölbreytt reynsla sem er til þess fallin að auðga samskipti einstaklinga. Innflytjendum verði auðveldað að verða fullgildir og virkir þátttakendur í íslensku samfélagi.

Vandað verði til reglubundinnar móttöku kvótaflóttafólks og stefnt að því að taka á móti fleiri flóttamönnum. Eftir sem áður verði fjármagn tryggt til neyðaraðstoðar á vegum alþjóðlegra stofnana.

Styðja verður við innleiðingu nýrra útlendingalaga til þess að tryggja virkni þeirra gagnvart viðeigandi stofnunum og þjónustu. Hafa skal mannúðarsjónarmið að leiðarljósi við afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd, samanber skyldur í samræmi við flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, og afgreiðslutími styttur án þess að það bitni á vandaðri málsmeðferð.

Einfalda skal veitingu atvinnuleyfa fyrir fólk utan Evrópska efnahagssvæðisins. Meta ber menntun þeirra sem flytjast til Íslands að verðleikum og tryggja að aðbúnaður geri landið eftirsóknarvert til framtíðar.

Þeir vilja fleiri útlendinga til Íslands. Væntanlega á þetta lið að vera gert að ríkisborgurum, þess vegna er þeim haldið hér. Þetta er vegna þess að Sjálfstæðisflokknum er sama um þjóðernið, þeir hugsa einungis um aurinn - það er rétt með herkjum að þeir standa vörð um fullveldið. Þess vegna nær Óttarp Proppe  sínu fram, Óttar sem vildi hækka fólksfjöldann upp í 800000 með því að flytja inn fleira fólk. Þetta skaffar ódýrt vinnuafl fyrir auraverksmiðjurnar í hótelum landsins.

Alltént eru þeir líka að gefa eftir í Evrópumálum, að hluta að minnsta kosti:

Komi fram þingmál um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið eru stjórnarflokkarnir sammála um að greiða skuli atkvæði um málið og leiða það til lykta á Alþingi undir lok kjörtímabilsins. Stjórnarflokkarnir kunna að hafa ólíka afstöðu til málsins og virða það hver við annan.

Og e.t.v. í stjórnarskrármálum? Hvað ætli komi í ljós:

Unnið verður að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins Íslands á grundvelli þess viðamikla starfs sem átt hefur sér stað undanfarin ár. Ríkisstjórnin mun bjóða öllum þingflokkum á Alþingi að skipa fulltrúa í þingmannanefnd sem mun starfa með færustu sérfræðingum á sviði stjórnskipunar að sem bestri sátt um tillögur að breytingum sem verði lagðar fram eigi síðar en árið 2019.

En að minnsta kosti hugsa þeir um aurinn. Svona er þá þessi nýja stjórn.

Egill Vondi (IP-tala skráð) 10.1.2017 kl. 18:31

2 identicon

Að setja hælisleitendur(efnahagsflóttamenn) beinustuleið á hótel, við komuna til landsins, á kostnað íslenskra skattgreiðenda, stendst enga skoðun, og tel ég að stjórnvöld hafi ekkert umboð til að fara svona með skattfé landsmanna, síðan verða landsmenn að kosta brottför þessara efnahagsflóttamanna, eftir að hafa legið upp á kerfinu með húsnæði, og hælisleytendabótum svo mánuðum saman, skil ekki afhverju er ekki búið að taka upp 48 tíma regluna eins og Norðmenn eru búnir að gera, tel einsýnt að stjórnvöld hafi ekki umboð til að fara svona með skattfé landsmanna, meðan miljara vantar í heilbrigðiskerfi landsmanna, og þeir lægst launuðu, öryrkjar og eldriborgarar, eru skattpíndir til hins ýtrasta, eins og engin sé morgundagurinn.               Spurt er hvar er umboð stjórnvalda að fara svona með skattfé landsmanna ca. tvo miljarða árið 2016.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 10.1.2017 kl. 19:38

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Fróðlegar upplýsingar frá Agli Vonda, voðafréttir þó!

Mér sýnist BB & Co. vera að hjálpa þér, ágæti Halldór, til að geta loksins, með góðri samvizku, skilið við okkar gamla flokk, Sjálfstæðisflokkinn.

Hér er annar, þjóðhollari valkostur handa þér: Íslenska þjóðfylkingin.

Jón Valur Jensson, 10.1.2017 kl. 20:20

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ekki virkaði vefslóðin. Reynið þetta:

http://thjodfylking.blog.is

Og hér er stefnuskráin (engin Proppé-No Borders-stefna þar): http://www.thjodfylking.is/stefnan

Jón Valur Jensson, 10.1.2017 kl. 20:24

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

  Halldór. Svarið við spurningunni  í fyrirsögninni, er að það er alveg sama hvað hann/hún heitir, það er alveg sama hvaða flokki hún/hann tilheyrir, allir alþingismenn á alþyngi okkar Íslendinga vilja hafa þetta svona og líka forsetinn. 

Haldi einhver því framm að ég sé að segja ósatt, þá væri vænt um að sá hinn/hin  sami/sama  sannaði það.

Hrólfur Þ Hraundal, 11.1.2017 kl. 00:21

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Egill því miður, Skjóni vill víst fá 80000 múslíma til landsins.

Halldór, já við skiljum þetta hvorugur.

Jón minn Valur, af hverju ertu að eyða tíma í flokk sem enginn vill hvað þá formaninn sem valdi sig sjálfur. Það þýðir ekkert með nýja flokka.

Hrólfur, já því miður virðist Unnur Brá og Skjóni leiða hugsjónirnar um innflurninginn og allir hinir samsinna. 

Halldór Jónsson, 11.1.2017 kl. 08:21

7 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Ég tek undir: með þeim Agli Vonda / nafna þínum Guðmundssyni / Hrólfi og Jóni Val: alfarið.

Þá - er rétt að undirstrika, að Íslenzka þjóðfylkingin er líklegri til, að taka á málum, eins og Jón Valur bendir réttilega á, fremur en þinn ÚTBRUNNI flokkur (Sjálfstæðis flokkurinn), Halldór minn.

Sjálfstæðisflokkurinn: á sér ekki viðreisnar von, eftir aðkomu Davíðs Oddssonar og hins illa innrætta gengis hans, sem öllu ræður þar innandyra, Verkfræðingur góður !

Með beztu kveðjum - sem endranær / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 11.1.2017 kl. 11:24

8 identicon

Hvað getum við gert til varnar voru landi og þjóð, þegar komið er til valda í landsstjórninni fólk sem vill útrýma Íslenskastofninum, og eyðileggja afkomumöguleika fólks sem nú býr á landi voru. Því miður fyrir það fólk sem kaus sjálfstæðisflokkinn, segir stjórnarsáttmálinn sem gerður er undir stjórn Bjarna Ben. að ljóst er að hnan stendur ekki vörð um þjóðsína,með þí að hleypa fólki að stjórn landsins eins og Óttari Proppe og Unni Brá sem kjósendur í suðurkjördæmi flengdu í prófkjöri, m.a. vegna afstöðu hennar til hælisleitanda.  

Það gæti veriðstyttra en margur heldur í að grassvörður Austurvallar verði troðinn, af fólki sér yfirvofandi hættu fyrir land og þjóð.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 11.1.2017 kl. 12:02

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Svo öllu sé til haga haldið, þá fannst mér það alveg óþarfi af honum Bjarna að auka veg þeirra Gosa og Skjóna þar sem þeir voru báðir óþarfir og án ráðherra stóla yrði þeirra pólitíska líf ekki langt.

Þeir eiga nú lífsit í pólitík Bjarna að þakka, en úr því sem komið er þá er ekki annað að gera en að vona að afleikir verði í hófi.

En svona þér til upplýsinga fornvinur minn Óskar Helgi, er að Davíð Oddson var með bestu forsætisráðherrum sem við höfum haft og hann hefur aldrei gert okkur nokkurn óskunda. 

Hrólfur Þ Hraundal, 11.1.2017 kl. 12:41

10 identicon

Halldór, mér þykir leiðinlegt að sjá að þú eltir lygi þeirra hryðjuverkamanna er eiðilőgðu framboð ÍÞ af slíkum óþverraskap að upp úr stendur í sőgunni. Formaður flokksins var kosinn lőglega á lőglega boðuðum fundi. Ekki fékk hann mótframboð en tveir voru í framboði til varaformanns.   Bestu kveðjur Sigurlaug Bjőrnsdóttir ritari Íslensku Þjóðfylkingarinnar 

sigurlaug o bjornsdottir (IP-tala skráð) 11.1.2017 kl. 19:45

11 identicon

Komið þið sæl - á ný !

Hrólfur !

Jú reyndar: greiddi Davíð Oddsson götu Jóns Baldvins Hnnibalssonar og nóta hans, með þjónkun sinni við EES og Schengen óra hans, t.d.

Það eitt og sér - flýtti fyrir streymi ógæfunnar, sem yfir okkur gekk Haustið 2008, Hrólfur minn. 

Vil samt: þakka þér fyrir Skjóna (Óttars Proppé) og Gosa (Benedikts Jóhannessonar) líkingarnar.

Vel við hæfi - Vélfræðingur knái.

Ekki síðri kveðjur - hinum fyrri, og áður /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 11.1.2017 kl. 20:42

12 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Við verðum jú að forða Sr. Toshiki Toma frá þunglyndi. Hann gefur skorti á flóttamönnum ástæðu þess krankleika í einhverju sjálfhelgunarviðtalinu í vikunni.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.1.2017 kl. 01:41

13 Smámynd: Jón Valur Jensson

Takk, Óskar Helgi.

Rétt hjá Sigurlaugu: Helgi Helgason naut fulls og óskoraðs trausts landsfundar Íslensku þjóðfylkingarinnar 29. júní sl. þegar kosið var til formanns og varaformanns. Halldór fór villur vegar, kannski fengið að heyra rangmæli einhverra liðhlaupanna sem af ótrúlegri óbilgirni sprengdu upp framboð flokksins. 

Jón Valur Jensson, 12.1.2017 kl. 01:42

14 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hann gaf þó ekki upp nákvæmar skammtastærðir á reseptinu.  5000 gæti verið overdose, en mér skilst að hann sé tilbúinn að prófa.

Ég býð mig fram sem devils advocate þegar kanóniseríng hans verður tekin fyrir.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.1.2017 kl. 01:44

15 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svo ég haldi nú áfram með þá heilögu þá hvað Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir jólaguðspjallið hafa verið af 2000 ára framsýni um flóttamannavandann. Þ.e. þegar María kasólétt og Jósef flúðu um stund í skattaskjól vegna meints manntals Rómverja.

Það er ekki ofsögum sagt að það megi lesa hvað sem mönnum lystir út úr hinni góðu bók. Serstaklega eftir að kirkjan varð svona hip, líbó og PC. :)

Jón Steinar Ragnarsson, 12.1.2017 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418415

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband