7.8.2017 | 11:21
Var Sigmundur fórnarlamb falsfrétta?
Svo segir konungur bloggaranna Páll Vilhjálmsson:
RÚV viðurkennir að hafa ekki undir höndum Panama-skjölin, sem voru einu heimildirnar fyrir raðfréttum um meinta spillingu - en raðfréttirnar sviptu menn ærunni, starfinu og ollu stjórnarkreppu.
Skilgreining á falsfrétt er að hún er án heimilda. Og RÚV viðurkennir að hafa ekki heimildir fyrir frétt um Panamaskjölin. Einn þeirra sem varð fyrir barðinu á raðfréttum RÚV er Kári Arnór Árnason. Hann kannaðist ekki við þær sakir sem á hann voru bornar og vildi fá aðgang að heimildum RÚV. En RÚV neitaði og þá kærði Kári Arnór stofnunina.
Í frétt RÚV fyrir tveim dögum, 4. ágúst, kemur svar frá Efstaleiti:
RÚV svaraði þessari kæru og sagðist ekki hafa umrædd gögn né forræði yfir þeim heldur hefði fengið aðgang að gögnunum hjá þriðja aðila.
Engin frétt er betri en heimildin fyrir henni. Og þegar engin heimild er fyrir frétt er hún falsfrétt.
Þetta er ekki fyrsta sinn sem viðurkennt er að Panamasjölin eru falsfrétt. RÚV vann raðfréttirnar með aðstoð fyrrum starfsmenns á Efstaleiti, sem gerðist verktaki, og rekur fyrirtækið Reykjavík Medía. Hér er frétt mbl.is frá 14. júlí í fyrra
Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Reykjavík Media, svaraði kröfu ríkisskattstjóra og segist engin viðbrögð hafa fengið við því svari. Í svari hennar kom einfaldlega fram að Reykjavík Media gæti ekki afhent eitthvað sem ekki væri í vörslu þeirra.
Þeir hafa ekki aðgang að gögnunum með þeim hætti að þeir geti bara afhent einhver gögn. Þetta er físískur ómöguleiki. Þú getur ekki afhent eitthvað sem þú ert ekki með.
Sem sagt: gögnin sem raðfréttir RÚV byggðu á er ekki hægt að leggja fram. Ef heimildir frétta eru ekki fyrir hendi eru þær fréttir falsfréttir - tilbúningur að hluta eða öllu leyti."
Útvarpskommarnir og leigudrullusokkurinn geta vel við unað að hafa komið á fyrstu stjórnarbyltingu á Íslandi eftir Jörund Hundadagakóng.
Sigmundur Davíð fyrrum Framsóknarjarl liggur óbættur hjá garði.
Svá orti Gizur frændi eftir Flugumýrarbrennu:
"Enn man ek böl þat, er brunnu
bauga-Hlín ok mínir
(skaði kennir mér minni
minn) þrír synir inni;
glaðr munat Göndlar röðla
gnýskerðandi verða
(brjótr lifir sjá við sútir
sverðs) nema hefndir verði."
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 3419716
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Það kom skýrt fram á allskyns pappírum í tilteknum Kastljós-þætti að Sigmundur eða hans kona áttu fjármuni í þessum umdeildu aflandsseyjum.
Sjálfsagt er það óheppilegt að æðstu menn landsins eigi fjármuni í umdeildum skúffufyrirtækjum þó að það sé kannski ekki ólöglegt.
Er þá nokkuð annað en að endursýna þennan umdeilda Kastljósþátt sem að Sigmundur gekk út úr?
Jón Þórhallsson, 7.8.2017 kl. 12:08
Sæll Halldór.
Mál af þessu tagi þyrfti að reka
sem prófmál fyrir dómstólum.
Húsari. (IP-tala skráð) 7.8.2017 kl. 12:37
SDG og kona hann áttu aldrei neinar og hafa ALDREI ÁTT NEINAR UMDEILDAR FJARMUNI Á UMDEILDUM AFLANDSEYJUM SDG hefur aldrei heldur átt 1 kronu i arfi konu sinnar sem enn er geymdur i sama banka i Englandi og hun lagði inni fyrir x -mörgum árum ...SVO einfallt er það ....En liklega er að koma úppur kafinu að Johannes KR er sa eini sem hefur göng um þessi mál ,sa eini sem kom að vinslu þáttarins fræga um SDG og fekk að flytja siðan á Rúv ?? ...En sannleikurinn er þó það á huldu að það er nauðsyn ð taka málið upp ......
RAGNHILDUR H. (IP-tala skráð) 7.8.2017 kl. 16:06
En hvað með þetta "WINTRIS"-fyrirtæki var það ekki skráð í þessum Panamaskjölum og er ekki talið að það tengist honum eða hans konu að einhverju leiti?
Jón Þórhallsson, 7.8.2017 kl. 16:32
Samantekt Guðbjarnar Jónssonar á staðreyndum um málið:
.
.
https://www.youtube.com/watch?v=EXvqi8L2NX0
.
.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.8.2017 kl. 17:09
Jón Þórhallsson
Eiginkona SDG á það félag og geymir félagið fjármuni í hennar séreign sem henni áskotnuðust á meðan þau SDG voru sambýlingar í Oxford.
Hennar séreign, hún hefur þar að auki talið þessa fjármuni fram í skattskýrslum sínum frá fyrsta degi hér á landi. Þá má sjá í tekjublöðum frá fyrsta degi að hún hefur greitt af fjárhæðinni auðlegðarskatt samkvæmmt lögum alla tíð.
Þú veist voinandi um fjórfrelsið? Þú hefur fulla heimild til að leggja peninga þína inn hjá þeirri bankiastofnun innan EES sem þér þóknast.
Þá má geta þess að bankinn ráðlagði henni að hún gæti fengið með einfaldri beiðni til skattstjóra fengið að sleppa öllum skattgreiðslum af fjárhæðinni fyrsta árið, en það vildi hún ekki og greiddi af þessum fjármunum fullan skatt frá þeim degi sem hún eignaðist féð.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.8.2017 kl. 17:16
Halldór. Satt og logið sitt á hvað, sönnu er verst að trúa.
Þessi setning hefur líklega aldrei átt betur við í heiminum jarðneska, heldur en þessa dagana og árin.
Við ættum kannski að hætta að níða hvert annað niður í spillingardrulluna í boði heimsbanka aftökustjóranna hauspokaklæddu, nafnlausu, hættulegu og óábyrgu?
Rakst í gær á fjögra ára myndband sem ég hafði ekki séð áður, á frelsitv.
youtube:
hljóðlaus vopn fyrir þögul stríð
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.8.2017 kl. 17:30
Ekki veit ég hvort SDG og kona hans hafa brotið lög, þykir það reyndar ósennilegt.
Mistök hans fólust í viðbrögðum eða viðbragðaleysi. Eftir að sjónvarpsviðtalið var tekið upp liðu nokkrar vikur þar til það var birt. Í millitíðinni hefði hann getað sýnt eitthvert frumkvæði, t.d. birt yfirlýsingu eða skýrt sína hlið á málinu á einhvern hátt, en það gerði hann ekki.
Við það bættist klaufaleg framkoma eftir að viðtalið var birt, og einnig með ferð sinni til Bessastaða.
Sigmundi Davíð er margt vel gefið, en hann virðist eiga erfitt með að bregðast rétt við gagnrýni og öðru mótlæti, en það er stjórnmálamönnum bráðnauðsynlegt.
Sem dæmi um stjórnmálamann sem það kunni snúa andstöðu sér í vil má t.d. nefna Ólaf Thors.
Hörður Þormar (IP-tala skráð) 7.8.2017 kl. 17:54
linkurinn sem Axel setti inn fyrir neðan myndbandið er eiginlega það sem allir ættu að smella á, og lesa þessar 44 síður af aftökuplaninu.
Sorglegt að enginn geti gert neitt í málunum lengur.
Ja, nema kannski umbeðna og góða viskualmættið algóða í karma alheiminum. En það er víst búið heilaþvo alla frá almættisviskunni og bænarmættinum til þeirrar lífsins heilunarorku. "Þökk" sé trúarbragðastríðsfylkingunum, sem hafa innleitt heimsveldi illra afla á jörðinni.
Það er bara að taka því sem kemur, og biðja viskualmættið alvitra og algóða um að taka við stjórninni, í þeirri veiku von að það virki.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.8.2017 kl. 18:05
Mætti þá ekki segja að Panamaskjölin hafi verið staðreyndafrétt
=(Að X miklir fjármunir hans konu hafi verið á reikningum Wintris í þessum skattaskjólum)
en það voru engin lög brotin?
Jón Þórhallsson, 7.8.2017 kl. 18:07
Ef Panamaskjölin voru með lygafrétt hefði SDG einfaldlega getað neitað öllu sem kom fram um eignir hans og konu hans. David Cameron hefði ekki farið að játa efnir lygafréttar, er það?
Ómar Ragnarsson, 7.8.2017 kl. 18:57
Merkilegt samt hvernig BB og Ólof heitin sluppu.
Reikningarnir voru stofnadir til einhvers brúks
thótt ekkert hafi verid inná theim.
Thad er greinilega ekki sama hvort thad er séra Jón
eda Jón.
Sigurður Kristján Hjaltested, 7.8.2017 kl. 19:37
Ekki má gleyma ráðuneytisstjórnendum, endurskoðendum og ekki síst ráðgjöfunum lagaskáldandi og löglærðu hjá dómsstólum, sem sjá um allt heila helfararhandritaplanið fyrir heimsveldishertökubankana.
Ekki eru dómarar og fjöldi lögmanna neinir kórdrengir á ódýrum reiðhjólaklúbbaferðalögum? Ábyrgðarlaus hauspokadýrahjörð, sem stjórnar öllum kúgunum og hvítflibbaofbeldinu fyrir bankaræningjana?
Um hvað er raunverulega verið að ræða hér?
Startup Iceland skattaskjólin í Svíþjóð og Skotlandi?
Fólk ætti að googla: "start up Iceland" og kynna sér hvernig Georg Soros þeysist um alla jörðina í boði heimsvaldníðsluránabankans glæpsamlega. Man ekki hvaða ár "startup Iceland" var haldið í Hörpunni um þetta skattafelusjóða-atriði. Fólk ætti að leita að upplýsingunum, og kynna sér málið. Ef ekki er búið að fjarlægja það af netinu.
Sé ekki tilgang í að þráhyggjast við sekt eða sakleysi eins mafíuhandvalins manns, sem aldrei verður mál hjá Íslandsins gerspilltu lögmannavörðu dómstóladópmafíuverjendunum bankakúguðu!
Allir sem vilja vita, þekkja það að einn maður ræður engu og hefur stóran lögmannaflokk sér til varnar/lögráðgjafar og svo til aftöku ef það hentar mafíunni.
Þetta er Ísland í dag. Og ekki bara Ísland í dag.
Ekkert land er eyland í fjármálaheimi dagsins í dag. Svo hvers vegna er fólk að velta sér uppúr eins manns spillingarmáli, og sleppa öllum hinum rúmlega 300.000 einstaklingunum?
Allir eru saklausir af ásökunun um glæp, uns sekt er siðmenntaðra lögmanna/dómara sönnuð. Allir!
En það gildir víst því miður ekki í löglausum löndum/ríkjum eins og t.d. landamæraeftirlitslausu mafíu-Íslandi, sem er orðið löglausara en sum lönd austur Evrópa voru fyrir 20 árum síðan!
Og þá er mikið sagt!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.8.2017 kl. 19:56
Aðal-spurningin ætti að vera hvernig sitjandi skattastjóri íslands vilji hafa þessi mál í FRAMTÍÐINNI?
=Hver var lærdómurinn af þessu öllu?
Jón Þórhallsson, 7.8.2017 kl. 20:10
Nokkrar spurningar sem gott er að velta fyrir sér:
Af hverju seldi Sigmundur konunni sinni helming í félaginu á 1 dollar? Eða var það króna?
Af hverju í ósköpunum átti kona hans eða á hún peninga á Tortola? Ef það er ekki skattahagræði eða skattleysi af hverju þá?
Ef það er svona bara allt í lagi að líta svo á að hjón séu algjörlega með aðskilda hagsmuni. Af hverju er þá almennt að fólk sé samskattað?
Ef að það svona sjálfsagt og þá eftirsóknarvert að geyma sparifé sitt í skattaskjólum, af hverju gera það þá ekki allir?
P.s. og sænski þátturinn sem vann þessa frétt með RUV er jú tilnefndur til EMMY verðlauna skilst mér skv. fréttum í dag fyrir þennan þátt akkúrat.
Magnús Helgi Björgvinsson, 7.8.2017 kl. 20:27
Hann hefur væntanlega selt henni sinn hlut til að geta sagt með hreinni samvisku við fjölmiðla að hann (sem æðsti toppur landsins í stjórnsýslunni)
ætti enga fjármuni í þessu skattaskjóli.
Jón Þórhallsson, 7.8.2017 kl. 20:58
Sumir halda að landsmenn séu almennt fífl, og setja fram allkonar rugl þvert á allar upplýsingar og dómgreind. Sumir þeirra koma við sögu hér í þessum þræði.
Jón Ingi Cæsarsson, 7.8.2017 kl. 21:11
Forsætisráðherra Pakistan var að segja af sér vegna þess að hann kom við sögu í Panamaskjölunum. Halldór common...við erum ekki asnar ;-)
Jón Ingi Cæsarsson, 7.8.2017 kl. 21:12
Það er eins og það komist ekki í gegn að Pall kóngur er að vekja athygli á RUV hafði engin gögn í höndunum til að bakka upp fréttina heldur voru þeir með getsakir sem eru kallaðar falsfréttir.
Ég var ekkert að meta stöðu Sigmundar og konu hans. Það er allt upplýst með það og það var ekkert ólöglegt við þetta. Hún fékk sinn hlut frá föður sínum og Simmi átti ekkert í því, þau virðast vera með aðskilinn fjárhag þó að Magnús Helgi hafi kannski aldrei heyrt um að slíkt viðgangist löglega.
En mér finnst samt að RÚV hafi svikist að Simma með spurningum um allt annað en átti að vera í þessu viðtali, hann fór á límingunum og fór úr viðtalinu. Ef hann hefði gefið drullusokknum alþýðlega á lúðurinn að sjómannasið eins og Árni Johnsen frekar en að fara út, hefði hann kannski sloppið betur frá þessu eða hvað? Og svo spilaði hann afleitlega úr stöðunni með Bessastaði og allt það karlkvölim og því fór sem fór.
Það þýðir nú ekkert að vera að stjórna fortíðinni með þetta. Spurningin er hvort Simmi nái sér upp aftur eða framsóknarflokkurinn, það veit maður ekki. Við þurfum meira á Framsókn að halda heldur en Samfó og Pírata til þess að fá eitthvað stabílitet í pólitíkina sem manni finnst oft mest stödd í leikhúsi fáránleikans. Það þarf þjóðarinnar vegna að losna við þetta vinstriflokkakraðak sem veit ekki neitt hvað það vill og alömurlegast að vitiborið fólk þurfi að borga fyrir þetta með sköttum. Þröskuldurinn inn á Alþingi þyrfti þessvegna að hækka úr 5% til að einfalda þetta.
Halldór Jónsson, 7.8.2017 kl. 21:39
Líklega erum við flest of mikil fífl til að skilja alvöru heimsmálanna, og alvöru spillingarinnar sem enginn hefur lengur taumhald á. En politíkusar eru látnir halda að þeir hafi eitthvert taumhald á ferlinu.
Við trúum því líklega raunverulega að söguhönnunar lausnir bjargi einhverjum spilltum flokks-"björgunarsveitum" svartamarkaðarins? Bankanna svartamarkaðsbrask mun líklega heppnast áfram eins og hingað til?
Og sumir ætla líklega að sleppa framhjá heimsstyrjaldaráhrifum bankaræningjanna? Með hjálp glæpaverjandi lögmanna og spilltra dómsstólanna.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.8.2017 kl. 23:38
Það er alltaf sama ruglið á þessu bloggi, eru menn nokkuð að gleyma lyfjunum sínum? Falsfréttir hahahaha maðurinn er sekur það er ekki neinn vafi nema menn séu hreint bilaðir í hausnum
DoctorE (IP-tala skráð) 8.8.2017 kl. 11:14
Sem betur fer til fólk sem hugsar á allt annan hátt en Halldór !
JR (IP-tala skráð) 8.8.2017 kl. 13:11
Skilja menn ekki lengur íslensku?!
Að hafa ekki heimild fyrir frétt er ekki það sama og að liggja ekki með afrit af gögnum/skriflegum heimildum.
Það voru vissulega heimildir fyrir fréttinni, mikil ósköp. Fleiri milljónir skjala. Og Þóra Arnórsdóttir fréttakona RÚV kom að undirbúningi þessa þáttar og ég reikna með að hún hafi sjálf séð flest þau gögn sem máli skipti í þessum fréttum RÚV.
Skeggi Skaftason, 8.8.2017 kl. 14:45
Sé það rétt sem Össur Skarphéðinsson (Skeggi Skaftason) segir hér að ofan, að Þóra Arnórsdóttir sé með "flest þau gögn sem máli skipti í þessum fréttum RÚV", þá vaknar óneitanlega upp spurningin um það af hverju hún birti þau ekki?
Er það ekki sjálfsögð krafa til ríkisrekinnar stofnunar að hún og umfram allt sú sem "kom að undirbúningi þessa þáttar" birti gögnin? Þ.e.a.s. ef tilgáta Össurar sé rétt að hún liggi á gögnunum, afriti þeirra/eða skriflegum heimildum?
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 8.8.2017 kl. 15:08
Kratalógíkk."og ég reikna með að hún hafi sjálf séð flest þau gögn sem máli skipti í þessum fréttum RÚV." QED
Halldór Jónsson, 8.8.2017 kl. 18:21
Það er alltaf sama ruglið á þessu bloggi, eru menn nokkuð að gleyma lyfjunum sínum? Falsfréttir hahahaha maðurinn er sekur það er ekki neinn vafi nema menn séu hreint bilaðir í hausnum
DoctorE (IP-tala skráð) 8.8.2017 kl. 11:14
Doktorinn áttiað athug að verið er að fjalla um það á þessu bloggi sem Pall Vihjálms er að skrifa um málið fremur en að þessi ruglbloggari sé að skrifa sínar meiningar. Doktor E varður að vanda sig og lesa fyrst vegna stótrrar akademískrar gráðu sinnar. Slíkt mætti líka doktor Skeggi athuga.
Halldór Jónsson, 8.8.2017 kl. 18:27
Pétur Örn Björnsson:
Ég sagði ekki að Þóra væri MEÐ gögn, ég sagði að Þóra hafi SÉÐ gögn. Gögnin eru væntanlega á tölvu hjá Süddeutsche Zeitung.
Gögnin eru til. Hvernig getur einhver efast um það?? Sigmundi Davíð voru m.a. sýnd AFRIT af nokkrum þessara skjal í þættinum fræga.
Skeggi Skaftason, 8.8.2017 kl. 21:16
Getsakir að hætti krata hjá Skeggja Skarphéðinssyni.
"Langi þig til að meiða mann
manst þó ekkert að segja um hann,
kveiktu grun að gömlum sið,
Gróa á leiti tekur við"
Akkúrat lýsandi fyrir Kratismann
Halldór Jónsson, 8.8.2017 kl. 21:49
Össur (Skeggi Skaftason),
af hverju sýnir þá ekki Þóra afritin sem þú segir að hún hafi verið MEÐ?
Ég ítreka svo enn og aftur spurninguna:
Er það ekki sjálfsögð krafa til ríkisrekinnar stofnunar að hún og umfram allt sú (þ.e.a.s. Þóra Arnórsdóttir) sem "kom að undirbúningi þessa þáttar" birti gögnin? Þ.e.a.s. ef tilgáta Össurar sé rétt að hún liggi á gögnunum, afriti þeirra/eða skriflegum heimildum?
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 9.8.2017 kl. 00:28
Eða SÉÐ?
MEÐ eða SÉÐ? Hver er þá MEÐ það sem Simmi er sagður hafa SÉÐ?
Hafi Þóra séð það sem Simmi er sagður hafa séð,
þá hlýtur einhver að hafa verið MEÐ það sem Þóra sá.
Þetta er súrrealískur farsi.
Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann?
Með eða séð? Séð eða með?
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 9.8.2017 kl. 00:34
Pétur Örn Björnsson, hættu að stríða Össuri bróður. Hann er búinn að svara þér og það þýðir ekkert að þráspyrja okkur Skaftasyni:
Hafi hún séð´ða
hver var þá með´ða?
Varðandi Ríkisútvarpið, þá er enginn með´ða þó þar hafi séð´ða. Það er pólitískur möguleiki ómöguleikans að afritið sé´ðar, jafnvel þó allir þar hafi séð´ða.
Dr. Símon Skaftason (IP-tala skráð) 9.8.2017 kl. 00:50
Mikið svakalega er málflutningur Skeggja Skaftasonar orðinn holur. Trúir hann sjálfur einhverju sem hann er að skrifa?
Fyrir mér er þetta eins og "Kona í vesturbænum sagði mér...."
Benedikt V. Warén, 9.8.2017 kl. 20:00
Þið eruð nú meiri jólakallarnir! Um hvað efist þið? Að Panamaksjölin hafi í alvörunni verið til? Haldið þið að þetta sé allt uppskáldað?!
Hér getið þið sjálfir dundað við að leita SJÁLFIR í gagnrunninum með öllum milljón skjalanna.
https://www.icij.org/offshore/search-offshore-leaks-data
Skeggi Skaftason, 9.8.2017 kl. 21:19
Skeggi Saftason
Hver hefur efast um að skjölin séu til?
Það sannar hins vegar EKKI að einhvar tiltekin persóna sé nefnd þar né að glæpur hafi verið framinn.
Fáráðsgangur þinn verður algjör, með því að segja þeim sjálfum sem efast, að leita af sér allan grun. Þér hefur ítrekað verið bent á að það er öfug sönnunarbyrgði.
Er þú að leggja til þannig samfélag fyrir mig og þig?
Sá sem hylmir yfir glæp er sjálfur glæpamaður. Verri eru þeir sem úthrópa náunga sinn án þess að hafa vilja eða getu til að sanna sitt mál.
Þessir einstaklingar eru mestu aumingjarnir.
Benedikt V. Warén, 10.8.2017 kl. 07:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.