Leita í fréttum mbl.is

Loftslagsvísindin

eru Katrínu Jakobsdóttur hugleikin fyrir hönd íslenska ríkisins.Hún er nýkomin frá ráðstefnu þar sem hún lofar að leggja álögur á Íslendinga til að gera Ísland kolefnishlutlaust eftir einhver ár.

Öll þessi vísindi eru byggð á stjórnmálalegu eðli IPCC fremur en vísindum eins og lesa má í nýrri ritgerð eftir Judith Curry,

https://judithcurry.com/2017/11/29/a-veneer-of-certainty-stoking-climate-alarm/

Ég held að Íslendingum væri hollara að taka undir með Donald Trump um að staðreyna þurfi betur vísindin sem að baki búa áður en heil þjóð rýkur til að elta mýrarljós IPCC sem standa uppi með ofáætlanir í módelum sínum fyrir alla öldina uppá 30 %.

Sérstaklega þegar þjóðin er jafn lítil og lítið mengandi eins og Íslendingar og skiptir engu teljandi máli í heimslosuninni.

Loftslagsvísindi IPCC eiga langt í land með að sanna sig og sóun af Íslendingum að leggja kostnað á þjóðina þess vegna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Helgi pírati bloggar að 300 milljarða syndaaflausnamengunarskatturinn muni bjarga heiminum...

GB (IP-tala skráð) 14.12.2017 kl. 12:11

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Mýtan, hnattræn hlýnun af mannavöldum er tilbúin í þeim tilgangi að blekkja fólk svo auðvelt verði að stjórna því.

Katrín Jakobsdóttir er búin að lýsa því yfir á Parísarráðstefnunni nú um daginn að eldsneytisknúin ökutæki verði ekki til á Íslandi árið 2040, báta- og skipaflotanum verði lagt til frambúðar, flugsamgöngur verði ekki til í eða frá og til Íslands, séð verði til þess að beljur geti ekki prumpað og svo mætti lengi telja. Þannig verður Ísland fyrirmynd allrar heimsbyggðarinnar og öllum ætlað að fara eftir fordæmi okkar.

Þvílíkt og annað eins!!!!! yell

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.12.2017 kl. 12:40

3 identicon

Þessu liði þykir skemmtilegt að fara í huggulegar aðventuferðir til Parísar undir yfirskini þessara gervivísinda.

Þorsteinn Jónsson (IP-tala skráð) 14.12.2017 kl. 16:33

4 identicon

Bíðið nú hægir, nu hänger jag inte med i svängarna.

Hver er þessi Jakóbína ... er þetta hið illræmda njósnakvendi, sem Villi Lygalubbur og Álfarnir eru að rægja í nýjust grein sinni um njósna um Íslenskar rollum fyrir Þriðja Musteri Salomóns?

Kreppuannáll (IP-tala skráð) 14.12.2017 kl. 17:47

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það gleymist ævinlega í þessari umræðu, að burtséð frá loftslagsvísindum mun olían ganga til þurrðar á þessari öld og að Íslendingar eiga allra þjóða auðveldast með það á þeim forsendum að skipta úr aðkeyptri orku í okkar eigin orku. 

Allur bílaflotinn þarf ekki nema um 3% af orkunni, sem við þegar eigum. 

Ómar Ragnarsson, 14.12.2017 kl. 23:52

6 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Umhugsunarvert afhverju hið opinbera framleiðir ekki tré upp í kolefnisjöfnunina og býr til framtíðarstörf í leiðinni, í stað þess að skattpína þegnana.

Annars er það ekkert skrítið, hið opinbera kann ekkert annað en að hirða aurinn og henda krónunni.

Sindri Karl Sigurðsson, 15.12.2017 kl. 00:07

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei Ómar, sem betur fer er nóg af olíu og hún er hvergi að klárast enda veitir mannkyninu ekki af orkunni

Halldór Jónsson, 15.12.2017 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband