Leita í fréttum mbl.is

Kauphækkanir?

er það sem kommatittunum í öllum  kjarafélögum er efst í huga. Gera verkföll til áherslu til að fá fram leiðréttingar til jafns við Kjararáðsúrskurði.

Svo segir í Mogga:

"Verðlagsþróun síðustu tveggja ára hefur einkennst af meiri verðstöðugleika en Íslendingar eiga að venjast, samkvæmt úttekt Alþýðusambands Íslands á verð- lagsþróun á matvörum, sem unnin er upp úr gögnum frá Hagstofunni um vísitölu neysluverðs frá janúar 2016 til janúar 2018. Í tilkynningu ASÍ segir að flestar vörur hafi lækkað í verði á tímabilinu og að neytendur njóti góðs af gengisstyrkingu krónunnar. Verð á innfluttum vörum hafi lækkað og það sama megi segja um innlendar vörur sem eru í samkeppni við innfluttar matvörur. Samkvæmt samantektinni hefur verð á matvöru í heildina lækkað um 1,9% á síðustu tveimur árum. Þó hafa ekki allir vöruflokkar lækkað í verði og mjólkurvörur skera sig þar sérstaklega úr, en þær hafa hækkað um 7,4%."

Munum við nokkurn tímann skilja það að það er kaupmáttur krómunnar sem skiptir meginmáli. Ekki fjöldi krónupeninganna eftir kauphækkun.

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Allir eru sem sagt kommúnistar nema nokkrir hægriöfgakarlar.

Þorsteinn Briem, 19.2.2018 kl. 16:22

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Menn eiga sem sagt ekki að krefjast hærri launa vegna þess að einhverjir aðrir geti tapað á því, til að mynda ríkið.

Flestir Íslendingar hafa fengið miklar launahækkanir undanfarið vegna þess að þeir hafa farið í verkföll eða hótað því að fara í verkfall.

Og vilji fyrirtæki hér á Íslandi ekki hækka laun eins og önnur fyrirtæki í landinu verður því einfaldlega lokað og starfsmennirnir fá sér vinnu í öðrum fyrirtækjum sem geta hækkað laun vegna þess að þau eru ekki rekin með tapi.

Starfsmennirnir eru ekki þrælar erlendra stórfyrirtækja eins og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn vilja greinilega að þeir verði.

Og álverið í Hafnarfirði hefur ekki verið rekið með tapi vegna launa starfsmannanna.

7.8.2015:

"Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto Alcan sendi starfsmönnum bréf í dag þar sem hún útskýrir afstöðu fyrirtækisins."

"Rannveig segir í bréfinu að ... fyrirtækið hafi tapað samtals sjö milljörðum árin 2012 og 2013 og að hagnaður fyrirtækisins aðeins verið 0,3% arðsemi eigin fjár."

Þorsteinn Briem, 19.2.2018 kl. 16:29

3 Smámynd: Halldór Jónsson

O santa simplicita sagði Bruno á bálinu þegar gamla konan lagði greinina í köstinn

Halldór Jónsson, 19.2.2018 kl. 16:46

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi krafa um að nota meira "verkfallsvopnið" ber vott um AFTURHALDSSEMI og hreinlega VANÞEKKINGU á því hvernig vinnumarkaðurinn hefur þróast og er að þróast.  Margir mætir menn og konur hafa bent á það að til lengri tíma hefur ENGINN hagnast á verkföllum og má þar helstan nefna Benjamín HJ Eiríksson (mesta og helsta hagfræðing sem Ísland hefur átt) en hann er með langan pistil um verkföll og skaðsemi þeirra í ævisögu sinni "Í stormum sinna tíða" (1996).  Eins og þú segir í þessari grein hefur orðið mikil og góð aukning  á lífskjörum okkar, hin síðari ár og nær væri að vinna út frá því vegna þess að ekki er sjálfgefið að einhverjar krónutöluhækkanir á launum skili nokkru þegar upp er staðið.

Jóhann Elíasson, 20.2.2018 kl. 09:07

5 identicon

Stöðugleiki fyrir suma, fyrir aðra er púra láglaunastefna og að euki er þetta dýrasta okursker í heimi...

DoctorE (IP-tala skráð) 20.2.2018 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418162

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband