Leita í fréttum mbl.is

Umskurn grundvallaratriði gyðingdóms

og meiriháttar atrið Islam.

Ef þetta lið vill ekki fara eftir nútímalegum lögum Íslands sem banna limlestingar á sveinbörnum jafnt sem á stúlkubörnum, sem múslímar gera yfirleitt lítið með, þá getur það bara pillað sig og verið annarsstaðar. Ekki sakna ég þess. Né heldur bispunnar ef hún kýs að fara með þeim í samúðarskyni ef hún vill ekki taka afstöðu gegn umskurn meybarna.

Íslendingar eiga ekki að láta erlendan fordæðuskap stjórna sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi"

Páll postuli krafðist þess að kristnir menn þyrftu ekki að láta umskerast.

Skipti það ekki sköpum fyrir tilveru kristninnar?

Þetta eru nú reyndar bara mínar vangaveltur.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 21.2.2018 kl. 15:11

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Í gyðingdómi eru drengir umskornir átta daga gamlir og vegna þessa unga aldurs eru þeir fljótir að jafna sig. Ekki hefur umskurnin áhrif á getu eða nautnar þeirra við kynlíf þegar þeir hafa náð kynþroskaaldri. Umskurnin er mun minna mál en að láta fjarlægja botnlanga.

Þeir sem býsnast yfir umskurði drengja sjá ekkert athugavert við að göt eru sett á eyru barna, nef þeirra eða jafnvel í gegnum varir þeirra eða tungu. Ekki virðist nokkur heldur gera athugasemdir við það þó nálum sé stungið í börn og það jafnvel meðan þau eru enn ómálga og dælt inn í líkama þeirra einhverri óáran. Ýmsir vilja meina að ADHD t.d. sé bein afleiðing af svo kallaðri bólusetningum sem troðið er uppá börn að þeim óspurðum.

Umskurn meybarna er allt annað mál en þar er um alvarlega limlestingu að ræða sem veldur mjög oft langvarandi ígerð og annarri líkamlegri og andlegri vanlíðan.

Páll postuli var umskorinn þar sem hann var gyðingur, en hann leit svo á að umskurn heiðingja sem gerðust kristnir (þ.e. þeirra sem ekki voru gyðingar) væri óþörf, því þeir væru undir náð, en ekki lögmáli.

Tómas Ibsen Halldórsson, 21.2.2018 kl. 15:36

3 identicon

Õttalegur vanviti er þessi Tthomas.  Skilur ekki munin ã afturkrfri aðgerð og óafturkræfri og ekki heldur munin á aðgerð í lækningaskyni og õþarfa skaðlegri aðgerð sem þjõnar engum tilgangi.

En sumir kjósa að veltast um í eigin fãfræði frekar en að afla sér þekkingar, jafnvel þó af veikum mætti væri.

Bjarni (IP-tala skráð) 21.2.2018 kl. 16:08

4 identicon

Gyðingar hafa löngum þótt frekir til fjárins og voru skv. gamla testamentinu tilbúnir að "fórna" forhúð vikugamalla sona sinna fyrir loforð svokallaðs "Guðs" um auðævi og völd, en hvað ætli þessi "Guð" hafi ætlað að gera við forhúðina? Kannski var þetta bara prófsteinn á trúgirni.


Fyrsta Mósebók, 17. kafli

Sjá, það er ég, sem hefi gjört við þig sáttmála, og þú skalt verða faðir margra þjóða. Því skalt þú eigi lengur nefnast Abram, heldur skalt þú heita Abraham, því að föður margra þjóða gjöri ég þig. Og ég mun gjöra þig mjög frjósaman og gjöra þig að þjóðum, og af þér skulu konungar koma. Og ég gjöri sáttmála milli mín og þín og þinna niðja eftir þig, frá einum ættlið til annars, ævinlegan sáttmála: að vera þinn Guð og þinna niðja eftir þig. Og ég mun gefa þér og niðjum þínum eftir þig það land, sem þú nú býr í sem útlendingur, allt Kanaanland til ævinlegrar eignar, og ég skal vera Guð þeirra."


Á móti átti Abraham að gangast undir þetta:
"Þú skalt halda minn sáttmála, þú og niðjar þínir eftir þig, frá einum ættlið til annars. Þetta er minn sáttmáli, sem þér skuluð halda, milli mín og yðar og niðja þinna eftir þig:
Allt karlkyn meðal yðar skal umskera".

Eygló (IP-tala skráð) 21.2.2018 kl. 17:30

5 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Halldór
Þar sem búið er að tengja vissa hefð aukalega við þessa umskurn frá því sem áður var, þá þurfa menn að athuga það sérstaklega með tillit til Herpes- STD smits osfrv. 


       Image result for rabbis circumcision hiv, std herpes

How 11 New York City Babies Contracted Herpes Through Circumcision

Baby Dies of Herpes in Ritual Circumcision By Orthodox Jews

Two more babies stricken with HERPES after ritual oral blood sucking .

New York Baby Infected With Herpes After Metzitza..

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 21.2.2018 kl. 17:41

6 identicon

Ég vil ítreka fyrir þá sem hafa áhuga, að samkv. Shaye J.D. Cohen, próf. við Harvard, þá var umskurður drengja fyrst tekinn upp hjá Gyðingum í útlegðinni í Babýlon, í því skyni að aðgreina þá frá öðrum.

Þetta var sem sagt skipun frá prestunum og hefur ásamt mörgum öðrum hefðum, sem þá voru teknar upp, tíðkast meðal Gyðinga allt til dagsins í dag.

Herleiðingin til Babýlon árið 586 f. Kr. markar þáttaskil í sögu trúarbragða heimsins. Þar varð gyðingdómur til í núverandi mynd. 

Samkv. fornleifafundum tíðkaðist fjölgyðistrú meðal Gyðinga fram að herleiðingunni, en eftir heimkomuna er hún algerlega horfin.

Heimild: "The Bible´s buried Secrets" á Youtube.

Svo er það allt annað mál, hvort Íslendingar eigi að vera að ráðsmennskast með þessa hluti, það eru víst framin mörg verri mannréttindabrot í heiminum.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 21.2.2018 kl. 19:13

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Eigum við þá að gefa skít í mannréttinfabrot á ómálga stúlkubörnum Hörður?

Halldór Jónsson, 21.2.2018 kl. 19:47

8 identicon

Ég skil ekki spurninguna, líttu á fyrri ummmli mín, Halldór!

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 21.2.2018 kl. 21:02

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Svo er það allt annað mál, hvort Íslendingar eigi að vera að ráðsmennskast með þessa hluti, það eru víst framin mörg verri mannréttindabrot í heiminum.

Þessi orð þín eru spurningin

Halldór Jónsson, 22.2.2018 kl. 00:36

10 identicon

Halldór.

Ég get fullvissað þig um að ég er algerlega sammála þér varðandi "umskurn" á stúlkubörnum. Eins og við báðir vitum, þá hefur hún aldrei tíðkast meðal gyðinga, og hún er heldur engin kvöð hjá múslimum. Mér skilst reyndar að þessi siður tíðkist helst í Afríku, en veit svo sem ósköp lítið um það.

Varðandi umskurn drengja, sem umræðan hefur snúist um, þá er ég heldur alls ekki hrifinn af þeirri aðgerð. Hef sem betur fer ósköp litla reynslu eða þekkingu á áhrifum hennar.

Ég set hins vegar spurningamerki um framkvæmd þessara laga, ef samþykkt verða, og er í miklum vafa um að dæma beri foreldra drengs í sex ára fangelsi, ef upp kemst að hann sé umskorinn. Ég efast líka um að þessi lög hafi mikil áhrif á hátt í tvo milljarða jarðarbúa sem stunda þennan sið.

En sitt sýnist hverjum.

Með kveðju, Hörður.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 22.2.2018 kl. 10:46

11 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Gaman að sjá í umræðunni, að sumir geta dregið línur

á milli umskurð stúlkubarna og drengja.

Umskurður, hverjum sem hann er stunadður á, er ekkert

annað en ofbeldi af verstu gráðu. Þá skipta ekki hefðir

eða trú neinu máli. Þegar kemur að réttindum þeirra sem

ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér, þá

myndi maður ætla, að þeir, drengir, í þessu tilfelli,

hefðu einhern rétt á því að fá um það að segja hvort

þeir vildu umskurð eða ekki.

Trú eða siðir, geta ALDREI, og eiga EKKI að taka þau mannréttindi

sem hvert barn hér í heimi fær í vöggugjöf.

Það er,frelsi til lífs og sjálfstæðis.

Þeir sem reyna að réttlæta þennan viðbjóð, geta alveg

eins tekið undir giftingu stúlkubarna, vegna þess að það er

hefð í "sumum trúarbrigðum" að gifta ungar stúlkur

eldri mönnum, og þar með er hægt að réttlæta

það vegna siða og túrar.

Það er ekkert annað hvort, eða.

Annað hvort ertu fylgjandi lim-lestingum og ungbarnakvæni,

eða með þeim lífsrétti sem hver einstaklingur á að

fá og hafa um sjálfan sig.

Svo einfallt er það.

Sigurður Kristján Hjaltested, 22.2.2018 kl. 22:24

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Siggi vinur af Vatnsenda

Ég er sammála þér. Það er útúrsnúningur að líkja þessu við bólusetningar gegn sjúkdómum eins og sumir eru að reyna a' gera. Gersamlega allt annað.

Halldór Jónsson, 22.2.2018 kl. 23:30

13 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Takk fyrir það Halldór.

Kveðjur ti Florida.

Sigurður Kristján Hjaltested, 23.2.2018 kl. 00:20

14 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll aftur Halldór

Ég er á þeirri skoðun að þeir sem að segjast vera Kristnir eigi að fara eftir Nýja Testamentinu og í því sambandi hérna Títusarbréfi 1: 10-14, en þeir sem að mæla með og styðja umskurn drengja eigi hins vegar EKKI heima í kirkju, heldur í Synagogu eða einhverjum öðrum söfnuði.

"Því að margir eru þverbrotnir og fara með hégómamál og leiða í villu, allra helst eru það þeir sem halda fram umskurn, og verður að þagga niður í þeim. Það eru mennirnir, sem kollvarpa heilum heimilum, er þeir kenna það, sem eigi á að kenna, fyrir svívirðilegs gróða sakir. Einhver af þeim, eigin spámaður þeirra, hefur svo að orði komist: "Krítarmenn eru síljúgandi, óargadýr og letimagar." Þessi vitnisburður er sannur. Fyrir þá sök skalt þú vanda harðlega um við þá, til þess að þeir verði heilbrigðir í trúnni,
og gefi sig ekki að gyðingaævintýrum og boðum manna, sem fráhverfir eru sannleikanum" (Titusarbréf 1:10-14).

Menn spyrja hvort ætli sé nú meiri synd, að benda á þessa áhættu varðandi Herpes- og STD smit eftir umskurnina eða hitt að styðja  og mæla með umskurninni án þess að minnast einu orði á þessar lífshættulegu áhættur?

How 11 New York City Babies Contracted Herpes Through Circumcision

Two more babies stricken with HERPES after ritual oral blood sucking ...

Baby Dies of Herpes in Ritual Circumcision By Orthodox Jews

New York Baby Infected With Herpes After Metzitza...

KV.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 24.2.2018 kl. 21:47

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Þorsteinn

Þú hefur lög að mæla og rökstyður það vel hversvegna við eigum ekki að leyfa svona fordæðuskap

Halldór Jónsson, 25.2.2018 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 3417884

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband