Leita í fréttum mbl.is

Bretar aftur í ESB

samkvæmt tilkynningu RÚV í fréttum í gær. 

Það er nánast formsatriði að Bretar gangi aftur inn að því að RÚV tilkynnir hlustendum.Þjóðaratkvæðagreiðslan var greinilega byggð á misskilningi að mati fréttastofunnar og hlýtur að verða endurtekin vegna fjölda áskorana.

Bretar fara aftur í ESB á notime með aðstoð RÚV!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Bretar fara aftur í ESB ..."

Bretland er ennþá í Evrópusambandinu og RÚV veit ekki frekar en aðrir hvort ríkið verður áfram í sambandinu eða fengi aftur aðild að því.

Ekki heldur hvers konar samning Bretland fengi við Evrópusambandið og RÚV hefur ekki fullyrt um það hvernig þessum málum verður háttað frekar en aðrir.

Hins vegar er hægt að upplýsa hvort stuðningur í Bretlandi við aðild ríkisins að Evrópusambandinu hefur minnkað eða aukist samkvæmt skoðanakönnunum og það hefur RÚV gert eins og fleiri.

En það þola hægriöfgakarlar í Kópavogi að sjálfsögðu ekki.

Þorsteinn Briem, 13.8.2018 kl. 17:39

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sömu mennirnir og hamast gegn því að farið sé eftir afgerandi þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi vilja láta fara eftir þjóðaratkvæðagreiðslum í öðrum löndum. Athyglisvert. 

Ómar Ragnarsson, 13.8.2018 kl. 17:57

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Á RÚV.is í gær, 12.8.2018:

"Meirihluti kjósenda í meira en eitt hundrað kjördæmum í Bretlandi hefur skipt um skoðun og vill ekki lengur að Bretland gangi úr Evrópusambandinu.

Breska dagblaðið The Observer birti í dag niðurstöður viðamikillar könnunar um afstöðu Breta til Evrópusambandsins.

Meirihlutinn í 341 kjördæmi vill nú vera áfram í Evrópusambandinu en kjósendur í 288 kjördæmum vilja yfirgefa ESB.

Þetta eru róttækar breytingar frá því að kosið var um ESB sumarið 2016.

Þá vildi meirihlutinn í 403 kjördæmum yfirgefa ESB en 229 kjördæmi vildu áfram tilheyra sambandinu.

Afstaða kjósenda í meira en 100 kjördæmum hefur því breyst á tveimur árum og nú er svo komið að meirihluti Breta myndi styðja áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu ef kosið yrði í dag."

Þorsteinn Briem, 13.8.2018 kl. 18:10

4 Smámynd: Egill Vondi

Fjölmiðlar í Bretlandi hafa linnulaust unnið að því að grafa undan Brexit kosningunum, annars vegar með því að ala á hræðsluáróðri um að sllt myndi hrynja til grunna, og hins vegar með því að heimta aðrar kosningar um það sem var búið að kjósa um. Og Theresa May hefur viljandi dregið lappirnar í þeirri sömu viðleitni.

Eigendur samfélagsins sjá hag sinn í því að stöðva Brexit og því skal það gert. Dæmalaust er að sjá yfirlýsta vinstrimenn styðja slíka tilburði, þar til að menn átta sig á því að ESB er að breytast í gerræðisveldi sem hentar þeirra gildum mætavel. Svo er hitt að þeir geta ekki stutt það sem hægrimenn styðja, þeir verða að vera á móti því. Þannig virkar pólitíkin.

.

Hvað snertir kosninguna sem Ómar er að vísa til, var hún eins og menn vita ekki lagalega bindandi, ólíkt Brexit. Aukinheldur var stjórnlagaþingið ekki lögmætt sem slíkt. En auðvitað átti að notfæra sér krísu til að troða þessu í gegn, hvort sem það myndi kljúfa samfélagið eða ekki - og einmitt þegar menn þurftu á samstöðu að halda. Það má ekki láta krísur fara til spillis, eða hvað?

Egill Vondi, 13.8.2018 kl. 18:40

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég var einmitt að hlusta á þetta í morgunsárið og svo í fréttum en það er alveg augljóst að RÚV er hlutdrægt á móti Brexit og lætur það vel í ljós. 

Ég held að ég fari fram á að skoða skattaskýrsluna hans Steina Briem en mér skilst að þær séu opinber gögn sem allir geta fengið að skoða. Hann hlýtur að vera á málum beint frá Soros sjálfum því ekki hefir ESB efni lengur að halda uppi blaðamönnum.Jók Steini. 

Valdimar Samúelsson, 13.8.2018 kl. 19:50

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Egill gott hjá þér en þetta er einmitt málið þeir nýta sér krísur eins og þeir gata.

Valdimar Samúelsson, 13.8.2018 kl. 19:54

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar, hvenær var afgerandi þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi nema í Icesave? Stjórnlagaþingsdellan ykkar Þorvaldar Gylfasonar var ekki marktæk.

Halldór Jónsson, 13.8.2018 kl. 20:11

8 identicon

Það vita allir sem fylgjast með gangi mála að Brexit er forsenda þess að íslenskir vesalingar, þ.e.a.s. íslenskir stjórnmálamenn með hinn svokallaða Sjálfstæðisflokk í broddi Brussel beiningamanna og krypplinga, myndu hafa dug til að standa uppréttir.  Þetta vita allir og þess vegna hamra hinir svokölluðu fréttamenn Rúv., ESB sonnar ir, s.s. Jóhann Hlíðar, Bogi og Jóhanna Vigdís endalaust á því að Brexit verði aldrei (enda muni þá Bjarni Ben og Gulli gullrass sameinast með smástelpunum sem Bjarni hefur gert að ráðherrum, allt veikt fyrir hinu ljúfa lífi á kostnað skattborgaranna og safna flugpunktum til Brussel). 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.8.2018 kl. 21:00

9 identicon

Breska þjóðin kaus útgöngu úr ESB, og breska þingið staðfesti þennan vilja þjóðarinnar.

Engar líkur eru á öðrum kosningum, þó svo að Independent og Guardian (sem á Observer snepilinn), ásamt ríku klíkunni í Bretlandi séu orðin örvæntingarfull, og beiti öllum áróðursbrögðum. 
Því er ekkert sem kemur í veg fyrir útgöngu.

Það eina sem menn geta mögulega spáð fyrir er að kosið verði um væntanlegan samning, ef hann næst.
Kosið yrði þá um hvort Bretar samþykki samninginn, og ef þeir gera það ekki, þá verður Brexit án samninga.

Ofangreint gerist þrátt fyrir vilja og óskir ESB sjúklinga á borð við þá tvo fyrstu hér að ofan í athugasemdum, og Ríkisútvarps allra ESB vinstrimanna.

Hilmar (IP-tala skráð) 13.8.2018 kl. 21:15

10 identicon

Allt í sjálfu sér rétt sem Hilmar segir hér að ofan, en Ríkisútvarpið er reyndar óskabarn hinna svokölluðu Sjálfstæðismanna, nómenklatúru pilsfaldakommanna, sem lifa sem óværa á þjóðinni og hafa forgöngu um að skammta sér launahækkanir langt umfram þann almenning sem þeir ræna alla daga.  En þeir hafa búið sér til óvin, Rúv ohf., sem þeir skylmast við geggjaðri en Don Quicote í sínum villtustu órum.  Þetta hyski, fretstofa Rúv og nómenklatúrukommar Sjálfstæðisflokksins gæru ekki þrifist án leikritsins um að þeir séu í sitt hvoru liði, en eru þó í reynd í sama afætuliðinu.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.8.2018 kl. 21:30

11 identicon

Af hverju afnema ekki hinir svokölluðu Sjálfstæðismenn Rúv nefskattinn?  Af því þeir eru nómenklatúru kommar báknsins.  Þeir þrífast á blekkingum til að fela sitt neysluskatta og gjalda æði.  Þeir eru afætur, en ekki þjóðlegir íhaldsmenn eins og við Halldór minn.  Ríkisútvarpið hefur alltaf verið afdrep nómenklatúru komma, sama hvar í flokki þeir þykjast standa. Bjarni Ben er fjármálaráðherra Rúv liðanna.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.8.2018 kl. 22:07

12 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þessir svokölluðu urðu "Viðreisn" og settu nefskattinn á(Þorgerður Katrín?)held að það sé rétt munað. Bretar ganga úr ESB svo sannarlega því það samræmist ekki æru þeirra að ganga gegn þjóðaratkvæðagreiðslu sinnar eigin þjóðar sem samþykkti útgönguna.- Hvað þá að kjósa aftur! Theresa getur þess vegna rennt sér í skriðtæklingu,eða hvað segir Egill,farin að draga lappirnar í málinu. Við Íslendingar ættum nú virkilega að krefja stjórnmálamenn okkar um hvort þeir vindi sér ekki í að efna til kosninga varðandi úrsögn okkar úr EES.það er afar aðkallandi.      

Helga Kristjánsdóttir, 14.8.2018 kl. 00:41

13 identicon

Frú Helga, hafa Sjálfstæðismenn afnumið nefskattinn?

Er Bjarni Ben ekki fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins?

Sem leiðir hugann að harmi lands og þjóðar:

Steingrímur J. Sigfússon, Bjarni Benediktsson, Benedikt Jóhannesson og nú aftur Bjarni Benediktsson.  Fjármálaráðherrar eftirhrunsáranna.

Fjármálaráðherrar ESB og Rúv liða.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.8.2018 kl. 01:21

14 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Nú skulum við ryfja upp hr Símon! Hvaða ár var þessi skattur settur á,ég hef enga kunnáttu  til að finna það núna. Hvenær byrjuðu háværar kröfur um að fela RÚV-skattinn niður? Hjá  mér(hljóðlaust)u.þ.b.ári eftir hrun,en ég var farin að taka eftir vinstra öfgafréttafutningi en lengi hélt ég það vera "truflun"vegna efnahagshamfaranna. Svo 10 árum seinna,eftir djöfulganginn gegn ESB,var Rúv orðið áberandi,sannfærandi fjandsamlegt þjóðinni. Hvað nú!Sit dæmd hér? Skítt með það,en þjóðin borgar vissulega fyrir þann áróður sem flæðir yfir okkur úr frétta ranni m.a. Okkur væri nær að sameinast algjörlega laus við gamla flokka sem hafa leikið okkur svo grátt. Ekki veit eg hvernig þetta kemur út með extra stafastærð sem eru allt í einu í þröngum ramma svo greinar skrifin gera mér erfitt. Ætla því að láta þetta fara svo skilaboðin fáir þú,reni að lagfæra á meðan.  

Helga Kristjánsdóttir, 14.8.2018 kl. 02:10

15 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ieiðrétt;greinar-skilin,m.kv.til Óskar,s

Helga Kristjánsdóttir, 14.8.2018 kl. 03:43

16 identicon

Eins og Styrmir bendir á í pistli dagsins, þá skrifaði formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, grein fyrir nokkrum árum ásamt Illuga Gunnarssyni þar sem þeir mæltu með að krónunni yrði kastað og tekin upp evra í staðinn, ergo sum, gengum í ESB.

2018 var sá sami Bjarni Benediktsson kosinn kremlískri kosningu, 97% atkvæða, af landsfundarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins.

Styrmir bendir og á að varaformaður flokksins, einhver brusselsk puntudúkka, bimbógörrl eins og Kristján heiti ég Ólafsson gæti hafa orðað það, skrifi nú viðlíka ESB hliðholla grein og formaðurinn gerði með Illuga.

Eru sjálfstæðissinnar sterkir í Sjálfstæðisflokknum?

Ekki bendir kremlískt val landsfundar á formanni og varaformanni til þess að svo sé. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.8.2018 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband