Leita í fréttum mbl.is

Bjarni Benediktsson

var á fundi hjá gamlingjadeildinni í Valhöll sem Blöndal frændi hans stýrir með miklum ágætum og heldur fjölsótta fundi í hádeginu á miðvikudögum yfir veturinn.

Bjarni fór yfir fjárlagafrumvarpið en þau hefur hann  nú flutt ár hvert frá 2013. Hann sagði að þetta frumvarp væri sérstakt að því leyti að aldrei hefði verið gert betur í heilbrigðismálum en nú ásamt því að búið væri að borga niður skuldir sem aldrei fyrr og lækka vaxtakostnað um milljarða.  Auk þess hefði verið greiddir 7 milljarðar inná 660 milljarða skuld ríkisins við LSR sem þyrfti að gera ár hvert í næstu 40 árin. Margt fleira kom til skoðunar og sýndi Bjarni margar glærur sem undirstrikuðu staðreyndir í frumvarpinu.

Bjarni benti á að aldrei hefðu lífskjör á Íslandi verið betri en núna og sér fyndist það vera árangurinn fyrir fólkið í landinu sem skipti meira máli en einhverjar skoðanakannanir sem endurspegluðu aðeins stemninguna milli kosninga.

Það væru allt aðrar aðstæður í stjórnmálum nútímans. Það væri miklu auðveldara að stofna stjórnmálaflokka nú en áður enda 8 flokkar á þingi  þar sem 4 þeirra hefðu ekki  verið til fyrir fáum árum. Fjölmiðlun væri gerbreytt og nú gætu menn gert margt annað en að skrifa grein í blað til að reka áróður.

Fundarmenn höfðu áhyggjur af flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins og tók Bjarni undir það að þar væri verk að vinna. Hinsvegar væru allir flokksmenn flokkurinn og þeir yrðu að reka áróður hver og einn hvar sem þeir væru staddir. Fundarmenn vildu samt ræða fylgiskannanir og hvað ylli slöku gengi flokksins sem væri bara um 20 % sem væri langt frá því sem áður var.  Einn spurði Bjarna hvort honum leiddist á þinginu þar sem hann væri svo alvarlegur í ræðustól. Bjarni tók þessu vel og lofaði að reyna að verða glaðlegri. Aðrir skömmuðust út í slakt flokkstarf í sjálfstæðisfélögunum sem er þó aðeins þeirra sjálfra að bæta ef grannt er skoðað.

Bjarni fór vítt og breitt yfir ríkisfjármálin og skattkerfið og þróun þess frá 1990 og það sem að almenningi snéri hvað varðarði persónuafslátt og fleira. Hann bæri þá öldruðu einstaklinga fyrir brjósti sem byggju við hvað verstu kjörin sem hefðu engar tekjur úr lífeyrissjóðum né fjármagnstekjur hvað þá aðrar tekjur og gætu ekki aflað sér viðbóta. Það sem ríkið færði þessum einstaklingum yrði það að skerða aðra um sem ekki tækju því fagnandi sem vonlegt væri.

Undirritaðan langaði til að láta í sér heyra en sleppti því. Hann hefði viljað minna Bjarna á orð Winston Churchill á sínum tíma þegar hann sagði að þjóðin hefði átt ljónshjartað í styrjöldinni. Honum hefði aðeins verið falið að stjórna öskrinu. Og formaður flokksins mætti ekki gleyma þýðingu öskursins í flokksstarfinu þó að verkefni væru ærin í ráðuneytinu. En sú ræða bíður betri tíma þegar svo mörgum lá svona mikið á hjarta eins og fram kom á fundinum. 

Í heild var þetta góður fundur og flokksmenn  greinilega ánægðir með að fá tækifæri til að ræða við formann sinn Bjarna Benediktsson.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sem sagt Halldór. Leiðtogi flokksins vill að flokksmenn leiði hann og flokkinn áfram fyrir hann. Hann ætlar þá að koma í humátt á eftir. Eða, kannski og kannski ekki.

Það versta er að þetta gildir um allt annað sem tosar í formanninn. Hann getur varla farið í gegnum eina hruð án þess að tapa þeirri skoðun sem hann hafði áður en hann opnaði hurðina.

Eftir þennan fund voru auðvitað öngvir Sjálfstæðismenn neinu nær um það hver Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er. Hann vinnur bara þarna.

Þvílíkt og annað eins. Þetta er alveg glatað. Alveg glatað.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.9.2018 kl. 16:26

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hafðu þökk fyrir fréttirnar.

Gunnar Rögnvaldsson, 19.9.2018 kl. 16:29

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í fyrsta þættinum "Á líðandi stundu" 1986 var Davíð Oddsson borgarstjóri spurður, hvort hann myndi verða í báráttusætinu, 8. sæti listans. 

Hann svaraði:  "Nei, það er betra að leiða hjörðina en að reka hana." 

Ómar Ragnarsson, 19.9.2018 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband