Leita í fréttum mbl.is

34 milljónir

af skattfé var sett í áramótakaupið hjá Jóni Gnarr.

Skemmti það mér fyrir þá upphæð?

Hvað skilur það eftir sig? Kommatittirnir allir eru á einu máli að lofsyngja snilldina sem í því fólst. Ég kom ekki auga á hana.

Ég hló svolítið að leiknum hjá þeim sem lék Bergþór, hann var svo ári góður. 

Krafa Harðar Torfa um að fá að gefa blóð gegn einfaldri yfirlýsingu um undangengna kynlífshegðun(sem gagnkyn-eða tvíkynhneigðir þurfa ekki að að gefa) er spurning um rétt blóðþega til að neita blóði úr kommúnista eða blámanni. Er blóð blóð eða eitthvað annað?

Ég var sjálfur skíthræddur þegar læknir minn vildi endilega gefa mér blóð. Var þetta blóð úr Framsóknarmanni eða einhverjum ámóta? Hvaða upplýsingum á blóðþegi rétt á? Einhversstaðar las ég að sjór væri eiginlega jafngóður og blóð til inngjafar.

En fundurinn í Sjálfstæðisflokknum var auðvitað eins og við var að búast af þessum Jóni Gnarr sem mér hefur þótt frekar misfyndinn um dagana. En óneitanlega fannst mér hann fyndinn meðan hann var titlaður Borgarstjóri meðan Dagur rann.

En í heildina fékk ég ekki hlátursverki eins og þegar Flosi hneggjaði hér í gamla daga.

Ég þarf sjálfsagt að sjá þetta þrim sinnum ef ég á að sjá snilldina í þessu og sættast við kostnaðinn 34 milljónir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Hefur upplifun á húmor ekki eitthvað með aldur að gera??

Þegar maður flettir gömlum blöðum þá er ljóst að eldra fólk var ekki alveg að fíla hneggið í Flosa, en þá varst þú líklegast ekki "eldri".  Bara svona á góðum aldri.

Hins vegar er ábending þín réttmæt um eðli blóðs??  Hvað hefur til dæmis blátt íhald að gera við framsóknarblóð??  Kannski ekki mikil áhætta í Reykjavík, en áhætta engu að síður.

Hins vegar verður enginn verri af bláu íhaldsblóði, það hugsanlega flýtur fyrir ótímabæri öldrun æða í vinstra heilhveli, sérstaklega hjá körlum, en þeir hefðu hvort sem er orðið íhaldssamari með aldrinum.

En þér að segja er það verra ef þú hefðir fengið Píratablóð, sá ruglandi er bein ávísun á elliglöp hjá eldra fólki, að öll rökhugsun fari út og suður.

Megi bloggguðinn forða þér frá því Halldór.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.1.2019 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband