21.5.2019 | 10:12
Enn ein upptuggan um loftslagið
kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Þar þenur leiðtogi Samfylkingarinnar Logi Már Einarsson síbyljuna um hlýnun af mannavöldum vegna útblásturs gróðurhúsaloftegunda sem sé samstofna einangrunarhyggju og sundurlyndis.
Sem sé auðvitað andstæða skipulags og regluverks Evrópusambandsins,
"Í gær birtust andlit 272 ungmenna í opnuauglýsingu í Fréttablaðinu undir yfirskriftinni Ekki spila með framtíðina okkar!
Ungt fólk úr öllum áttum finnur sig knúið til að verja sig og sína framtíð gegn einangrunarhyggju og sundurlyndi. Þau eiga það sameiginlegt að telja opið, frjálst og alþjóðlegt samfélag líklegast til lausnar á aðsteðjandi vandamálum.
Undanfarna mánuði hefur ungt fólk einnig farið í loftslagsverkföll til að þrýsta á miklu róttækari aðgerðir í loftslagsmálum.
Þetta er kynslóðin sem mun bera uppi íslenskt samfélag næstu áratugina, fólkið sem þarf að taka til eftir okkur. Nýjustu rannsóknir sýna að á næstu árum ræðst hvort mannkyninu tekst að stemma stigu við loftslagsbreytingum eða við þurfum að fást við skelfilegar afleiðingar þeirra.
England og Skotland hafa þegar lýst yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og ljóst er að fleiri þjóðir fylgja í kjölfarið, Ísland líka. Yfirlýsing ein og sér dugar þó skammt.
Henni þarf að fylgja eftir með róttækri, skýrri stefnumótun, tímasettum aðgerðum, mælanlegum markmiðum og verulegu fjármagni.
Ísland á að vera fyrirmynd í loftslagsmálum. Við þurfum að ráðast í aðgerðir sem krefjast breytinga á samfélagsskipan og hegðun okkar til framtíðar í því felast vissulega áskoranir en líka tækifæri.
Við þurfum grænan samfélagssáttmála þar sem enginn getur skorast undan. Hvorki stjórnvöld, sveitarfélög, fyrirtæki eða einstaklingar.
Ungt fólk hefur fundið á eigin skinni hversu mikilvægt það er að eiga í náinni samvinnu við vinaþjóðir okkar í Evrópu og því finnst óhugsandi að vera án þeirra ómældu lífsgæða og tækifæra sem EES hefur fært okkur. Það áttar sig á að við þurfum á öðrum þjóðum að halda ef framtíðarsamfélag okkar á að vera spennandi og fjölbreytt.
Og að baráttan gegn loftslagsbreytingum krefst enn nánara alþjóðasamstarfs, eins og aðrar áskoranir nútímans.
Hlustum á ungt fólk og tökum þátt í því að tryggja þá framtíð sem það kallar eftir. Byggjum upp betra, opnara, frjálsara, grænna og alþjóðlegra samfélag."
Satt að segja gef ég almennt lítið fyrir stjórnmálaboðskap þessa leiðtoga Evrópusinna og fullveldissinna.
Öll umhverfismál eru bardagi við vindmyllur ef stjórnlaus mannfjölgun á að halda áfram sem hingað til.
Það sem fer hinsvegar í taugarnar á mér er að Logi Már sem er tæknimenntaður maður og ætti að hafa fengið þjálfun í rökrænni hugsun skuli láta svona gagnrýnislausa upptuggu trúarsetninga lofstlagshlýnunarsinna frá sér í þeim pólitíska tilgangi að koma Íslandi í Evrópusambandið.
Setning eins og þessi er að mínu viti rökleysa og áróður:
"Ungt fólk hefur fundið á eigin skinni hversu mikilvægt það er að eiga í náinni samvinnu við vinaþjóðir okkar í Evrópu og því finnst óhugsandi að vera án þeirra ómældu lífsgæða og tækifæra sem EES hefur fært okkur."
Ég var til fyrir EES, dvaldi í Evrópu árum saman og stundaði nám þar. og ferðaðist um Evrópu að vild. Átti viðskipti við Evrópuríki án hindrana.
Svona slagorðaruna þjónar engum tilgangi öðrum en að blekkja ungt fólk til fylgis við einhvern boðskap Loga og ESB sinna um það að ekkert líf hafi verið fyrir EES.
ESB er tollabandalag gegn afganginum af heiminum. Það á ekkert skylt við ómæld lífsgæði og tækifæri, hvað þá frelsishugsjónina sem er æðst hugsjóna margra frá Jóni Sigurðssyni talið til okkar daga.
Þarna er á ferðinni samsett blekking byggt á rakalausu trúboði hans um aðgerðir í loftslagsmálum þegar hann segir:
"Henni þarf að fylgja eftir með róttækri, skýrri stefnumótun, tímasettum aðgerðum, mælanlegum markmiðum og verulegu fjármagni. "
Skattlúkan er aldrei langt undan þegar kemur að sál kratismans. Skattleggjum og eyðum er alþjóðlegur boðskapur kratismans.
Auðvitað heldur Logi Már að hann nái atkvæðum frá þessum villuráfandi ungmennum sem mörgum finnst ganga gagnrýnislaust afturhaldinu og einangrunarsinnum ESB á hönd með birtingu þessarar auglýsingar.
Engin mótrök, engar efasemdir bara trúarkenningar um ósannaða hluti í pólitísku blekkingarskyni.
Logi er ágætur arkitekt það ég hef séð. Því sorglegra finnst mér það að hann skuli leggjast svona lágt í stjórnmálaáróðri sínum með málflutningi sem hvergi sæmir tæknimenntuðum manni eins og honum.
Enn ein upptuggan um hin ósönnuðu loftslagsvísindi sem í tísku eru á hinu pólitíska sviði er þessi grein Loga Más Einarssonar formanns Samfylkingarinnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Það var líka fyndið að hlusta á Þorgerði Katrínu tala um í sambandi við þessa auglýsingu að hún hefði áhyggjur af því að hversu auðvelt væri að skrumskæla og afvegaleiða umræðuna frá því sem henni finnst satt sem er nú allt sem kemur frá ESB og svo toppaði hún sjálfan sig með að vísa í að ef vitleysan er endurtekin nógu oft þá fer fólk að trúa því að það sé satt.
Í títtnefndri auglýsingu er sagt að þau hafi kostað auglýsinguna sjálf - afhverju ætti maður að trúa því?
Grímur (IP-tala skráð) 21.5.2019 kl. 10:56
Mér sýnist þú tuða einna mest um loftslagið og hefur greinlega fengið þetta lag á heilann ásamt öðrum öfgahægrikörlum, Halldór Jónsson.
Held að þú ættir að taka þátt í næstu Eurovision og gapa þar um Orkupakkann fyrir hönd Miðfótarflokksins og Fokks fólsins.
Þorsteinn Briem, 21.5.2019 kl. 13:59
Halldór þetta eru framtíðar kjósendur og það er slegist um á í öllum flokkum. semsagt þetta snýst ekki um loftslag heldur kjósendur ...No return...
Valdimar Samúelsson, 21.5.2019 kl. 16:12
Eftir sem áður mun olían og aðrar auðlindir rányrkju ganga til þurrðar á næstu áratugum. Þess vegna eru Norðmenn með olíusjóðinn stóra.
Hvaða leyfi höfum við til þess að spila með þeu verðmæti á kostnað komandi kynslóða?
Ómar Ragnarsson, 21.5.2019 kl. 21:21
Ómar þú ert ekkert barn. Hvað skipta þessi vermæti nokkru máli. Það eru til orka í milljónir ára svo hvaða sönnun hefir þú og líkt þenkjandi fyrir að framtíðar hópar manna fari að reyna að spara orkuna. Þú veist að við höfum thoríum og aðra orkugjafa svo jarðhitan þangað til að slokknar á jörðinni þá hita frá sólinni þangað til að það slökknar á henni. Hvesvegna sprettur upp svona -öfga öfga hópar upp á Íslandi. Við gætum keyrt alla bíla á repjuolíu og metangasi. Nei það má ekki. Segð mér hversvegna ekki.
Valdimar Samúelsson, 21.5.2019 kl. 23:15
Valdimar Samúels ályktar rétt með repjuolíuna og metangasið fyrir bíla og togaraflotann. ÍSRAEL notuðu repjuolíuna fyrir flugsveitina og herinn og enginn skyldi snylld Ísraelsmanna.
Loftslagsgrúppa AlGore á Alþingi og fylgifiskar í ríkisstjórn sitja við að "stjórna og leggja skatta á almenning"af þessari "loftslagsímind". Horfum BETUR og LÆRUM af Leiðtoga USA.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 23.5.2019 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.