Leita í fréttum mbl.is

Íslensk hringtorg

fjallar sá vísi maður Ólafur Guðmundsson um í Morgunblaðinu í dag. Hann segir:

"Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur varar við því að hugbúnaður í sjálfkeyrandi bílum sé ekki hannaður fyrir „íslensku leiðina“ í hringtorgum og segir að Íslendingar ættu að bíta í það súra epli að breyta reglunum hérlendis. Þetta segir hann í samtali við Morgunblaðið um ný umferðarlög, sem áætlað er að verði samþykkt á næstunni og taki gildi 1. janúar á næsta ári.

Með þeim á m.a. að lögfesta þá reglu, sem hefur hingað til byggst á venju, að ökumaður á ytri hring í tveggja akreina hringtorgi skuli veita þeim sem ekur á innri hring forgang út úr torginu. Þó að ýmsar útfærslur séu á þessari reglu um heiminn er „íslenska leiðin“ öfug við það sem almennt gengur og gerist í nágrannalöndum okkar, þar sem sá sem ekur á ytri hring á forgang út úr hringtorgi

. „Ég var varaður við“ Athugasemdir hafa verið gerðar við það að nú eigi að lögfesta „íslensku leiðina“, m.a. vegna þess að margir erlendir ferðamenn þekki einungis regluna um að sá á ytri hring eigi forgang. „Þetta virkaði hér á Íslandi á meðan það voru ekki útlendingar að keyra hér.

Það hefur bara breyst svo mikið á síðustu fimm-sex árum. Mín skoðun er sú að það sé minna mál að aðlaga Íslendinga að breyttum aðferðum í hringtorgum en útlendinga,“ segir Ólafur og bætir við: „Það væri hægt að kenna okkur þetta. Við keyrum líka erlendis og þá veldur þetta okkur vandræðum.“

Eins og áður segir nefnir Ólafur einnig að hugbúnaður í sjálfkeyrandi bílum sé ekki endilega búinn fyrir íslenskar hringtorgareglur. „Tæknin er að breytast svo mikið. Ég veit til dæmis að Tesla er í vandræðum í íslenskum hringtorgum. Ég fékk lánaðan svoleiðis bíl og var varaður við því,“ segir Ólafur. „Hann keyrir nánast sjálfur en ræður ekki við íslensk hringtorg.“ 

Mikið af þessu mætti spara ef Íslendingar tækju upp háttu siðaðs fólks sem gefur stefnuljósi aftan á bíl forgang í umferðinni, hvort sem er í hringtorgum eða á akreinum. Ef menn gera svo eins og til dæmis er reglan í USA þá eru engin vandamál.Hvorki í hringstorgum eða annarsstaðar

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Nú er spennandi að sjá hvort athugasemd birtist eftir að ég setti upp Steinavarnir.

Halldór Jónsson, 3.6.2019 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418264

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband