Leita í fréttum mbl.is

Algerlega ósammála

er ég Birni Bjarnasyni um O3.

Hann er bara ekki með athugasemdadálk á heimasíðunni sinni fyrir gesti.

Hann skrifar:

EES í 25 ár

Ráðstefnan í dag staðfesti þá skoðun mína að ESA og EFTA-dómstóllinn eru lykilþættir í því að EES-samstarfið dafni.

Í dag sat ég fróðlega, vel heppnaða og vel sótta ráðstefnu á vegum ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, og EFTA-dómstólsins. Ég var einn ræðumanna en ræðu mína má lesa hér .

Ráðstefnan var haldin í Brussel í tilefni af 25 ára afmæli EES-samningsins. Tæplega 400 manns sóttu hana, þar á meðal margir frá Íslandi.

Ég tek undir með íslenskum ræðumönnum á fundinum sem kváðu svo fast að orði að EES-samningurinn væri mikilvægasti samningur sem gerður hefði verið af íslenska lýðveldinu. Ég hefði sett aðildina að NATO í sömu skúffu og varnarsamninginn við Bandaríkin.

Mér er óskiljanlegt að Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson, forsætisráðherra og utanríkisráðherra, á þeim tíma sem EES-samningurinn var gerður skuli grafa undan honum með því að styðja aðför miðflokksmanna að honum vegna þriðja orkupakkans.

IMG_8750Í panel eftir ræðu mína sátu: Hans-Christian Gabrielsen, leiðtogi norska alþýðusambandsins, Krystyna Kowalik-Banczyk, dómari í almennri deild ESB-dómstólsins, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, og Hildur Hjörvar, lögfræðingur við Mannréttindadómstól Evrópu,

Pakkinn er ekkert í stóra samhenginu. Hann breytir ekki öðru en því að Orkustofnun fær aukið vald til að tryggja hag neytenda.

Í ályktun alþingis er settur fyrirvari um innleiðingu varðandi sæstreng. Lögfræðingar sem halda því fram að samþykkt pakkans kalli yfir okkur lagningu sæstrengs horfa fram hjá þessum fyrirvara og eru enn meira utangátta en ef einhverjum dytti í hug að krefjast þess með vísan til innleiðingar EES-ákvæða um járnbrautir og vatnaleiðir að íslensk yfirvöld samþykktu járnbraut til Keflavíkur eða siglingaleið um Ölfusá.

Halda þessir lögfræðingar að einhverjir kvarti til ESA vegna þess að ekki séu járnbrautir eða skipaskurðir á Íslandi? Og ESA taki slíka kvörtun til meðferðar vegna brota á reglum um innri markaðinn?

Arnar Þór Jónsson héraðsdómari og aðrir sem lýst hafa lögfræðilegum skoðunum skulda okkur svar við spurningum af þessu tagi. Vissulega verður rétturinn til að kvarta til ESA ekki tekinn af neinum. ESA ber hins vegar ekki nein skylda til að segja skoðun á kvörtunum vegna innri markaðarins.

Ráðstefnan í dag staðfesti þá skoðun mína að ESA og EFTA-dómstóllinn eru lykilþættir í því að EES-samstarfið dafni. "

Algerlega finnast mér þetta vera ósannaðar fullyrðingar Björns og ekki rökstuddar og er því ósammála honum sem oftar áður í þessum Evrópumálum þar sem ég álít Íslendinga ekki síður eiga síður þýðingarmiklar rætur vestanhafs.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Enginn frír Birni Bjarna vits,en hann ræður ekki rétt í hugsanagang Davíðs Oddsonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar. Ég hlýt því að túlka betur það sem ég hef heyrt og lesið eftir þá og minni á hvað þessi EES samningur hefur gengið langt inn á svið sem aldrei voru nefnd og komu ekki til greina í frumgerðinni.Þessir heiðursmenn Jón og Davíð eru ærlegir og okkur svo dýrmætt; mitt í svikaflaumi bútanna úr Sjálfstæðisflokknum og gjörbreyttum Alþýðuflokki. -... eiginlega virkar Op,3-pakkinn eins og líkneski sem Esbésinnar trúa á,til að tryggja hag neytenda-hverra-íslenskra? Fágæt barátta peningaaflanna fyrir þá almennu,nýbúnir að samþykkja kjötinnflutning,þrátt fyrir fyrirvara.

Helga Kristjánsdóttir, 14.6.2019 kl. 23:05

2 identicon

Satt segið þið bæði. Ég hef verið að lesa bók Guðjóns Friðrikssonar um Alþýðuflokkinn. Á blaðsíðu 493 og áfram er fjallað um baráttu Jóns Baldvins við að innleiða EES-samninginn hér á landi. Þar kemur fram, að bæði Steingrímur Hermannsson og Ólafur Ragnar Grímsson höfðu miklar efasemdir um hann, og vildu láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um hann, þar sem í honum var fólgin krafa um valdaframsal, og því þyrfti að breyta stjórnarskránni þess vegna. Ólafur Ragnar sagðist ekki vilja kljúfa Alþýðubandalagið vegna þessa, og því lýsti hann sig og sinn þingflokk andvígan samningnum - þar á meðal var þá nýkominn inn á þing Steingrímur Jóhann nokkur, sem ætlar að samþykkja orkupakkana án þess að hiksta. Við stofnun Samfylkingarinnar klofnaði Alþýðubandalagið, og VG varð til - leyfarnar af Alþýðubandalaginu, sem vel að merkja var harðastai kjarninn úr flokknum. Takið eftir því. Hvar stendur það flokksbrot í dag? Ætlar hann ekki hikstalaust að fara að samþykkja orkupakkana?!!! Nokkuð, sem þeir hefðu ekki gert áður fyrr á árunum! Þessi viðsnúningur á Birni Bjarnasyni, sem ég er hissa á, eins og hann hefur verið mikill andstæðingur ESB og EES, er kannske skiljanlegur vegna tengdasonar hans, sem vill endilega fá að leggja sæstreng héðan og út til Englands eða ég veit ekki hvert. Raunar segir Guðjón í bók sinni, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi eins og aðrir flokkar verið klofnir í afstöðu sinni til EES. Þið ættuð að lesa þessa kafla frá bls. 493 og áfram um þessi mál, því að það er mjög fróðlegur lestur. Ég segi bara, eins og ég sagði í síðustu grein minni hér í blaðinu, að við hefðum þurft að hafa Ólaf Ragnar á Bessastöðum í dag eins og í Icesave-deilunni, því að hann hefði staðið á móti þinginu og ráðamönnum þar, og sent þetta til þjóðarinnar. Annað er líka ótækt, hefði ég sagt. Ég skil ekkert í þingheimi, svo og Birni. Bjarni frændi hans verður að standa vel í fæturna gagnvart þessu áreiti. Þetta er eitt alsherjar hneyksli, eins og það lítur út í dag. Ég bara dáist af Miðflokksmönnum fyrir úthald þeirra að verja lýðveldið. Verður valdaafsal gjöfin, sem þingheimur gefur þjóðinni í 75 ára afmælisgjöf lýðveldisins? Það gengur ekki. Þetta fólk verður að fara að nota heilann og láta stjórnarskrána njóta vafans, áður en þeir fara að svifta landið frelsi sínu. Ég vona, að það verði hlustað á kröfuna um þjóðaratkvæði. Annað væri glapræði. Ég segi ekki annað..

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.6.2019 kl. 10:56

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ég hnaut um þessi orð: "Orkustofnun fær aukið vald til að tryggja hag neytenda".  Stóð í þeirri trú að neytendur væru jafnframt eigendur þeirrar stofnunar. Er Björn Bjarnason að ýja að því að þessi "opinbera" stofnun hafi og sé að tryggja aðra hagsmuni en neytenda/eigenda?

Kolbrún Hilmars, 15.6.2019 kl. 12:19

4 identicon

Eru skrýtnir tímar á ÍSLANDI þessar vikurnar. Þekkt nöfn ESB landa heimsækja fámennt Landið okkar í "hópum"?. ÍSLAND er eins og hluti af götu borgar í Evrópu.

Er verið að vinna að inngöngu með "vinstri" sinnum að tjaldbaki á ALÞINGI varðandi samþykktir með ESB og sameiginlega ORKUNA-OKKAR.

Er þessi ríkisstjórn að þóknast "sjálfum sér" eða sýna "mátt" sinn, eða vinna fyrir 300 þúsund ÍSLENDINGA. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 15.6.2019 kl. 12:49

5 identicon

Engeyski ættarvitinn  ruglar Björn algjörlega í ríminu. Hann er ekki marktækur. 

Við sjálfstæðismenn tökum hins vegar mark á Reykjavíkurbréfi Davíðs, þar sem hann rassskellir þá Björn og Halldór beint á bera bossana.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.6.2019 kl. 14:28

6 identicon

Ég var að horfa á undur-fallega mynd frá ÞINGVÖLLUM 17.júní í sjónvarpinu.

Ég endurnýjaði ógleymanlegar minningarnar frá rigningardeginum 1944 við stofnun lýðveldisins, en þá var 8 ára gamall.

Hjartanlega til hamingju með sólar og ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 17.6.2019 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband