Leita í fréttum mbl.is

Drekkum saman sprungurnar

Árni heitinn brúarsmiður, stórsöngvari og höfuðsnillingur  lagði Reykjaæðina í steyptan stokk. Það komu fram sprungur í steypunni frá mér þegar hann byrjaði að steypa lokin ofan á stokkinn. Hitaveitan gerði röfl úr þessu og fundahöld urðu. Svo datt málið niður og þegar ég spurði Árna hvernig málið hefði endað." Ja, sagði Árni, við drukkum eiginlega sprungurnar saman eftir einn fundinn." 

Og það tókst að steypa lokin áfram vandræðalaust.

Nú ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að beita sama bragðinu og hann Árni Framsóknarmaður. Drekka sprungurnar útaf O3 saman:

"Ágæti flokksmaður.

 

Stjórn flokksráðs hefur ákveðið boða til kvöldskemmtunar í kjölfar flokksráðs- og formannafundar laugardagskvöldið 14. september næstkomandi.

 

Búast má við dúndurfjöri á kvöldskemmtuninni en þar mun m.a. hin goðsagnakennda hljómsveit Stjórnin spila fyrir balli ásamt gestasöngvurum auk þess sem grínistinn Bergur Ebbi verður með uppistand. Veglegar veitingar verða í boði.

 

Kvöldskemmtunin er hluti af glæsilegri afmælisdagskrá flokksins í tilefni af 90 ára afmæli hans.

 

Við hvetjum þig eindregið til að taka þessa dagsetningu frá.

 

Miðaverði verður stillt í hóf. Upplýsingar um miðakaup mun birtast á xd.is eftir helgi.

 

 

Með kveðju,

Starfsfólk Sjálfstæðisflokksins"

Auðvitað. Nema hvað. Árni Jóhannsson var höfuðsnillingur og lét sig ekki muna um að keyra ókeypis fyllingu á bílum sínum í grunninn á Albert-Hall, sem svo hét þá og varð síðan að Valhöll.

Það fennir í sporin sagði gamli Sveinn stundum. Auðvitað er langt í landsfund og kosningar og gott fyllerí getur hreinsað loftið og þétt raðirnar eftir þennan Orkupakka3.

Drekkum saman sprungurnar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja Halldór vinur. 

Ég vissi að þér hefur verið margt til lista lagt, en ég vissi ekki um að þú læsir í spákúlu eins og Sigga Klink.  Þetta er öfundsverður hæfileiki að geta þar séð fyrir hversu langt verði í næstu kosningar. 

Um landsfundinn þarf ekki að líta í spákúlu.  Leiðtogar sjálfstæðisflokksins hafa ekkert við einhverja gamla vanvita grasrótarmenn að tala.  Væntanlega eftir afgreiðslu sjalla á Op3 verða fáir sem hafa vilja til að borga sig inn á landsfund.

Árni skagfirðingur brúarsrsmiður og söngvari, bjargaði sér frá sprungnum hitaveitustokkslokum með því að taka tappa úr flösku og hellti upp á eftirlitsaðilana.  Sprungumálið dautt.

"Auðvitað er langt í landsfund og kosningar og gott fyllerí getur hreinsað loftið og þétt raðirnar eftir þennan Orkupakka3 segir vinur vor Halldór,en=========

Ekki er líklegt að raðir sjallana þéttist eftir samþykkt á Op3  er móðgandi fyrir grasrótarmeðlimi að svona sé um þá talað þegar búið er að vanvirða og hunsa sjónarmið þeirra.  Grasrótarmeðlimir sjallana verða ekki eins og barðir rakkar sem sleikja fætur misgjörðarmanna sinna, þeir ganga á brott. Þetta ætti að vera hægt að sjá hjá þeim sem getur lesið í spákúlu eins og Sigga Klink.

Eðvarð L.Árnason (IP-tala skráð) 29.8.2019 kl. 22:29

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Það held ég nafni, að bylti sér nú í gröfum sínum gengnir foringjar og stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins. Gústi í Tollvörugeymslunni og allir þeir sem af brennandi hugsjón og elju reistu Valhöll, hefðu sennilega aldrei getað látið sér í hug detta, að einn góðan veðurdag næðu kratar þar lyklavöldum og gengju af hugsjón og markmiðum flokksins, með þeim hætti sem núverandi forysta hefur vogað sér að gera. Vona að forystunni svelgist illilega á veitingunum í partíinu þann fjórtánda. Megi hún helst hiksta um ókomin ár og verða bolað burt hið fyrsta, fyrir svik sín. Valhöll var ekki reist fyrir forystuna. Valhöll var reist á grunni hugsjónarinnar um sjálfstætt Ísland, um aldur og ævi, um öll sín mál, en ekki leiguþý erlendra reglugerðaburgeisa og ömurlega embættismannaelítu og reglugerðakverúlanta. 

 Lyklavöldin af forystunni sem fyrst!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 30.8.2019 kl. 22:23

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ef orkan okkar myndi boða til fagnaðar sama dag, þá mætti sjá vinsældir forystunnar af mætingarhlutfallinu.

Halldór Jónsson, 1.9.2019 kl. 17:25

4 identicon

Þú mælir rétt HALLDÓR Egill Guðnason með kveðju að sunnan.

HALLDÓR Jónsson Baráttumaður Sjálfstæðis og Fullveldis fyrir ÍSLAND. Það er enginn undanskilinn með ykkar skoðun á Landinu OKKAR. Verum stoltir af "SÖGUNNI" og Landafundum.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 2.9.2019 kl. 08:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband