Leita í fréttum mbl.is

Silfrið

fór fram að venju.

Ragnar Þór útskýrði hugmyndir sínar um að endurvekja verkalýðshreyfinguna sem stjórnmálaafl og fjármagna hana úr sjóðum hennar sjálfrar. Þingmaður VG kom mér á óvart fyrir að að greina vitrænt á milli þátta Samherjamálsins sem eru meint glæpastarfsemi og skattamál. 

Katrín Odssdóttir óð reykinn með Austurvallarliði gærdagsins sem sér tengingu á milli þess að stjórnarskrár hennar félags hafi ekki tekið gildi. Auðvitað er það vegna þess að engin samstaða hefur náðst um hið ótæka uppkast sem stjórnlagaráðið skilaði af sér og hefur verið þulið í síbylju af fólki sem ekki hefur snefil af trausti meðal þjóðarinnar til slíkra vandaverka.

Jón Gunnarsson bar af í umræðunni fyrir rökrænan málflutning gegn upphlaupum Katrínar á glórulausum brigslyrðum í garð Sjálfstæðisflokksins.

Þó bar frammistaða Píratans Atla Fanndal eða Fannar eða hvað hann nú heitir, ræðumanns af Austurvelli gærdagsins sem ég heyrði nú ekki,  ægishjálm yfir allt sem ég hef til þessa séð af siðleysi og fíflaskap í sjónvarpi. Að svona maður skuli yfirleitt vera valinn til að koma fram í sjónvarpi yfirgengur mig. Hann fékk að lesa upp af blaði persónulegar árásir á Jón Gunnarsson og alla hans fjölskyldu undir auga stjórnandans Egils Helgasonar sem virtist eiginlega hálf miður sín yfir framkkomu mannsins.  Guð hjálpi Íslandi ef þarna er verið að boða nýja pólitíska tíma. Þessi maður sómir sér virkilega vel í flokki Þórhildar Sunnu, Björns Levís og Helga Hrafns.

Viðtalið við Svein Harald var hinsvegar frábært hjá Agli og virkilega upplýsandi til að hugleiða hrunið aftur i tímann. Hann var ekki eindregið fylgjandi því að einkavæða bankana að nýju sem ég held að margir hafi virkilegar efasemdir um í ljósi sögunnar. Það er ekki endilega víst að nýir Björgólfar og Ólavíusar sópi betur en þeir gömlu vendir gerðu.  Enda lýsti Svein Harald því mæta vel hvernig okkur tókst að látast ekki sjá spillinguna í krosseignatengslunum og ástarbréfunum fyrir hrunið. 

Og það að við skyldum ekki elta peningana eins og Eva Joly lagði áherslu á heldur að  láta banksterana halda öllu sínu eins og allir mega sjá í dag, ofbauð honum greinilega.

Í heild var Silfrið vel lukkað í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála og reikna með að kaupa og lesa bók norðmansins  Sveins

Það veldur manni hinsvega hugarangri að íslndingar séu svo grunnhyggnir að finnast málflutningur Píratans "flottur"

Katrín er þó bara með sömu ræpuna og hún byrjaði með í búsáhaldarbyltingunni - hún hefur ekkert þroskast síðan.

Grímur (IP-tala skráð) 24.11.2019 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband