"Loftslagsváin er stóra málið á okkar tímum. Þegar mér var trúað fyrir því að verða umhverfis- og auðlindaráðherra setti ég loftslagsmálin í algjöran forgang, enda hafði ég í fyrra starfi mínu hjá Landvernd lengi kallað eftir aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum.
Þegar ég kom inn í ráðuneytið var ekki til aðgerðaáætlun í loftslagsmálum hér á landi. Það breyttist og nokkrum mánuðum síðar leit fyrsta fjármagnaða loftslagsáætlun Íslands dagsins ljós, kynnt af sjö ráðherrum ríkisstjórnarinnar.
Meginþáttum loftslagsáætlunarinnar hefur nú verið hrint í framkvæmd, bæði hvað varðar orkuskipti í samgöngum og aðgerðir vegna kolefnisbindingar og endurheimtar votlendis. Einnig hefur fjölmargt annað verið gert. Hér fylgja nokkur dæmi um aðgerðir:
- Hraðhleðslustöðvum sem settar eru upp með fjárfestingarstyrk frá ríkinu fjölgar á næstunni um 40%. Nýju stöðvarnar verða þrisvar sinnum aflmeiri en þær öflugustu sem fyrir eru. Þetta var tilkynnt fyrir skemmstu.
- Verið er að koma upp neti hleðslustöðva við gististaði vítt og breitt um landið.
- Frumvarp liggur fyrir Alþingi um afslætti (niðurfellingu á virðisaukaskatti) af rafhjólum, reiðhjólum, vistvænni strætisvögnum, hleðslustöðvum fyrir heimahús og fleira. Þetta bætist við margvíslegar ívilnanir til kaupa á vistvænni bifreiðum.
- Stjórnvöld hafa lagt stóraukna áherslu á breyttar ferðavenjur og má þar nefna viðamikla áætlun um uppbyggingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu með sveitarfélögum á svæðinu.
- Þegar er unnið eftir afar umfangsmikilli áætlun um kolefnisbindingu sem hefur áhrif langt inn í framtíðina. Umfang landgræðslu og skógræktar verður tvöfaldað og endurheimt votlendis tífölduð á næstu fjórum árum. Áætlað er að það muni skila um 50% meiri árlegum loftslagsávinningi árið 2030 en núverandi binding og 110% meiri ávinningi árið 2050.
Nýsköpun og grænir skattar
Gripið hefur verið til fjölmargra annarra aðgerða. Hér eru nokkur dæmi:
- Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Loftslagssjóð en í gegnum hann verður hálfum milljarði króna varið á fimm árum til nýsköpunar, s.s. vegna nýrra loftslagsvænni tæknilausna, og til fræðslu um loftslagsmál.
- Kolefnisgjald hefur verið hækkað í áföngum og nýir grænir skattar verið kynntir til sögunnar til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
- Gripið hefur verið til aðgerða til að draga úr matarsóun.
- Gert hefur verið að skyldu að gera ráð fyrir hleðslu rafbíla við allt nýbyggt húsnæði á landinu.
- Loftslagsráð hefur verið stofnað og lögfest.
- Stóraukið hefur verið við vöktun á súrnun sjávar, jöklum, skriðuföllum og fleiri þáttum hér á landi.
- Fest hefur verið í lög að unnar skuli vísindaskýrslur um áhrif loftslagsbreytinga á náttúrufar og samfélag á Íslandi og að þær skuli m.a. taka mið af skýrslum IPCC.
- Stofnaður hefur verið samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir. Þar verður m.a. unnið að aðgerðum í samræmi við markmið um kolefnishlutleysi Íslands árið 2040.
- Stjórnvöld hafa fengið öll stóriðjufyrirtæki á Íslandi og Orkuveitu Reykjavíkur til að þróa og rannsaka hvort og hvernig megi draga úr losun frá verksmiðjum stóriðjufyrirtækja með niðurdælingu CO2 í berglög.
- Lögð hefur verið sú skylda á Stjórnarráð Íslands, stofnanir ríkisins, fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins og sveitarfélög að setja sér loftslagsstefnu og markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
- Þann 1. janúar taka gildi stórlega hertar kröfur varðandi eldsneyti í íslenskri landhelgi sem banna í raun notkun svartolíu hér við land. Ég undirritaði reglugerðina nú fyrir helgi.
Upptalningin hér að ofan er langt í frá tæmandi. Endurskoðun aðgerðaáætlunarinnar er í fullum gangi og vítt og breitt um stjórnkerfið er unnið hörðum höndum að loftslagsmálunum.
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna stendur nú yfir í Madrid. Skilaboð Íslands til ríkja heims og stórfyrirtækja eru að orðum verði að fylgja aðgerðir. Það er mikilvægt"
Svo mörg eru þau orð. Svo margar verða þær krónur sem við eigum að borga svo að ráðmenn geti andskotast um háloftin á reykspúandi þotum til að sitja kokkteilboð í kristalssölum kújónanna sem kunna að græða peninga á petroleumiðnaðnum en prédika píslir fyrir öðrum.
Athugasemdir
"Flestir bestu loftslagsvísindamenn heims"? Þetta eru alls 700 vísindamenn, sem þú átt líklega við. Miðað við fólksfjölda á Vesturlöndum samsvara þessir 700 einum íslenskum vísindamanni.
Ómar Ragnarsson, 11.12.2019 kl. 19:45
Halldór, en hvernig líst þér á "mömmu Uschi"? Press statement by President Ursula von der Leyen on the European Green Deal
Hörður Þormar (IP-tala skráð) 11.12.2019 kl. 21:12
Hver kaus Markús Örn Antonsson sem borgarstjóra og oddvita Sjálfstæðismanna í borgarstjórn á árunum 1991-1994?
Ómar Ragnarsson, 11.12.2019 kl. 22:58
Þetta er nú meiri dómadags ráðherrann!
Mikil landhreinsun verður að þessari hrossakaupa- og spillingar-ríkissjórn, þegar hún hrökklast frá völdum.
Jón Valur Jensson, 12.12.2019 kl. 06:11
Þetta er bráðfalleg kona sem engin kaus samt Hörður minn fremur en okkar Gunnar.
Markús markaði upphaf ósigurs Sjálfstæðismanna í Borginni því þeir virtu ekki reglurnar gagnvart kjósendunum.
Halldór Jónsson, 12.12.2019 kl. 09:35
FALSSPÁMENN og ofríki kvenna,skattar og Loftslagshótanir er nú mótmælt af hugsandi vísindamönnum.
Hugsandi þingkona Vestan Hafs þakkaði framfarir kvenna á ÖLLUM sviðum á atvinnumarkaði og á þingi. "Eilífðarpex" um samanburð getur haft öfug áhrif í baráttu okkar. SAMSTARF Karla og Kvenna er mikilvægt, en ekki kynjakvótinn.
STÓRSIGUR BREXIT SINNA í UK og brottför frá REGLUFARGANI ESB. STÓRSIGUR LEIÐTOGA TRUMPS á pólutískum lygum DEMOKRATA VESTANHAFS er mikilvægt fyrir VESTURHEIM, EVRÓPU og NORÐURLÖND. Karlinn ber af öðrum Leiðtogum fyrir skarpa sýn fjármála og viðakipta.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 13.12.2019 kl. 13:08
NÝSKÖPUN,GRÆNIR SKATTAR,GRÓÐURHÚSAMÁL og LOFTSLAGSHUGMYNDIR eru ríkjandi hjá núverandi ríkisstjórn, sem glaðir leggja hundruð miljóna af skattfé almennings á erlenda sjóði.
Gamlir tímar undirstryka ágæti og hugvit ÍSLENDINGA varðandi bæjarlækinn, sem enn duga vel og skila rafmagni á jörðinni. NÝJASTI bæjarlækurinn var útbúinn af eigandum í ÞAKGILI, sem skilar fullum afköstum.
Rafskip voru útbúin Norðanlands,sem sigldu til Grænlands?. Hvað með verksmiðjuskip og stórskip,sem gætu notað SEGL til siglinga á úthöfum með því að "lyfta mastri og seglum"?.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 14.12.2019 kl. 01:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.