Leita í fréttum mbl.is

Forspá

er sá  eiginleki sem Snorri Goði var sagður hafa haft. Það er það að sjá fyrir óorðna hluti og geta gert ráðstafanir.

Hafa okkar bestu menn þessa eiginleika? 

Nú er talið tímaspursmál hvenær Kórónaveiran hellist yfir okkur. Við eigum 6 pláss til að annast slíka sjúklinga en þyrftum þúsund.

Í spönsku veikinni var maður með lurk settur á vörð á þjóðbraut  sem aftraði mönnum samgang við héraðið. Vörður var á Þjórsárbrú þar sem enginn fór yfir austur.Veikin fór ekki þangað sem aðgangur var heftur.

Eigi að endurtaka slíkar ráðstafanir þá finnst manni að þurfi að undirbúa það aðeins ekki seinna en strax. Birgja upp þau svæði að olíu og matvöru með það fyrir augum að lokun geti tekið gildi á tilteknum degi, hugsanlega 1. marz. Eftir  þann tíma verður ekkert innanlandsflug eða samgöngur milli landssvæða. Fólk það sem slíkt getur sest hugsanlega að í sumarhúsum í einangrun af sjálfsdáðum í von um að bóluefni finnist.Veiran lifir utan líkama í sólarhring. Hún smýgur grímur og inn um augu. Hún getur borist með vindi. Það er ráðlegt að fólk láti bólusetja sig gegn lungnabólguvírus til varnar meiri veikindum auk inflúensubólusetningar. Að öðru leyti er útlitið skelfilegt og veikin breiðist út með veldisvísi.

Útlitið er ekki gott og ráðamenn þurfa nú á forspáreiginlekum að halda sem aldrei fyrr.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki svo að hægt sé að stöðva alla starfsemi og samgöngur í landinu svo mánuðum, eða árum, skipti. Og flestir geta ekki tekið sér frí úr vinnu og skroppið út í Bónus og verslað mat til 6 mánaða til að hafa með í sumarbústað.

Aðgerðir sem byggja á hræðslu og fáfræði frekar en skynsemi og þekkingu eru ekki til þess fallnar að hjálpa mikið. Dánartíðni sem er tvöföld miðað við hefðbundnar árlegar flensur er alvarlegt en enginn heimsendir. Sóttvarnir sem byggja á því að gæta hreinlætis og forðast samneiti við smitaða ættu að lágmarka hættuna og skaðann.

Í dag búa flestir Íslendinga í þéttbýli, 1918 bjuggu 60% Íslendinga í dreifbýli og samt var maðurinn með lurkinn á Þjórsárbrú ekki gagnlegri en svo að fólk austan Þjórsár smitaðist. Það var ófær Skeiðaráin og stöðvun strandsiglinga sem hefti smit til austurlands og smitvarnir auk landslags varði norðurland. 500 Íslendingar létust, hálft prósent þjóðarinnar. Hálft prósent þjóðarinnar eru um 1800 manns í dag.

1918 var heimsstyrjöld ný yfirstaðin og skortur á kolum, lyfjum og sumum matvörum. Þá var húsnæði ekki eins gott og nú, ekki spritt að fá vegna áfengisbanns og heilbrigðisþjónusta nær engin. Aðstæður 1918 eru engan vegin sambærilegar við nútímann.

Vagn (IP-tala skráð) 8.2.2020 kl. 18:55

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það þarf að banna kínakalla, loka Kópavogi, og stinga svo höfðinu djúpt í sandinn. En 1. marz er of seint, því þá verða allir orðnir lasnir, líka í Kópavogi.

Þorsteinn Siglaugsson, 8.2.2020 kl. 23:50

3 Smámynd: Halldór Jónsson

athyglisvert Vagn og sjálfsagt margt til í þessu sem þú segir. Þá voru hú köld í Reykjavík.

Afi minn átti kol og rauðakynti húsið sitt meðan öll fjölskyldan lá í veikinni og þau stigu öll upp heil meðan aðrir króknuðu í nágrenni.

Halldór Jónsson, 9.2.2020 kl. 02:26

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég og frænka mín fengu hitabeltissjúkdóminn "Gulu"innan við fermingu í smá þorpi Vestfjarðarkjálkans..Ágiskanir að smit hefði borst frá enskum togar/um, en skipverjar fóru jafnan á fund hreppstjóra pabba míns sem "klareraði"þau.

Helga Kristjánsdóttir, 9.2.2020 kl. 04:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband