17.4.2020 | 14:30
Ekki má láta ISAL loka !
Elías Elíasson ritaði grein í Morgunblaðið fyrir skömmu.
Grein has er svofelld:
"Ef ÍSAL verður lokað, hvað þá ?"
"En hvar stöndum við, ef álverinu verður lokað ?
Þó [að] móðurfyrirtæki álversins ábyrgist að greiða stóran hluta orkunnar þrátt fyrir rof á starfsemi, þá er ekki gefinn hlutur, að lögfræðingar þess finni ekki leið út úr þeim vanda. Alla vega er varla eðlilegt, að þessi orka verði látin óseld og ónotuð fram til 2036 og Landsvirkjun haldi áfram að reisa nýjar virkjanir, þegar eftirspurn vex, en Rio Tinto haldi áfram að borga allan þann tíma.
Það verða málaferli og óvissuástand, þar til sú deila leysist, og Landsvirkjun verður að leita nýrra viðskiptavina á meðan; ella veikist staða hennar í málinu. Með öðrum orðum: orkan fer á markað, hugsanlega brunaútsölu."
Þarna skýtur Bjarni Jónsson verkfræðingur inn athugasemd sem ég er mjög sammála:
"Þetta er afar mikilvæg ábending hjá Elíasi um atriði, sem Landsvirkjun virðist hafa flaskað á. Hún getur ekki komið fram, eins og bergþursi, og skákað í því skjólinu, að þótt ISAL verði lokað, hafi hún nánast allt sitt á þurru, þ.e. greiðslur fyrir 85 % forgangsorkunnar samkvæmt núverandi orkusamningi. Það væri rétt einn fingurbrjóturinn, framinn á þeim bæ, sem hefði mjög slæmar afleiðingar fyrir nærsamfélag Straumsvíkur og reyndar þjóðfélagið allt. Jafnframt myndu réttarhöld, sem allt stefnir í nú, setja Ísland í óæskilegt ljós í augum fjárfesta, og þurfum við sízt á því að halda nú. Stjórnvöld verða hér að koma vitinu fyrir stjórn Landsvirkjunar eða að skipta um stjórn. "
"Markaðshorfur með raforku eru allt aðrar nú en þegar samningar við ÍSAL voru undirritaðir 2011. Af er sú kenning, að orkuverð muni ekki breytast, nema til hækkunar; meira að segja gefa spár nú til kynna, að orkuverð kunni að lækka, ef tækniþróun verður ör.
Ljóst er orðið, að spár á fyrri hluta þessa áratugar um síhækkandi orkuverð byggðust á óskhyggju og oftrú á stefnuna í loftslagsmálum, en vaxandi vantrúar gætir nú á því, að þær baráttuaðferðir gegn hlýnun jarðar, sem þá var lagt upp með, skili árangri. Áhættumatið bak við orkuviðskiptin er gjörbreytt."
Enn gerir Bjarni athugasemd sem ég vil skrifa undir:
"Forstjóra og stjórn Landsvirkjunar hefur dagað uppi. Þeim varð á sú reginskissa að misskilja þróunina, að rangtúlka skammtímafyrirbæri sem langtíma þróun. Vestræn þjóðfélög hafa enga burði til að keppa á mörkuðum heimsins búandi við raforkuverð, sem er úr takti við raunkostnað frumorkunnar og raforkuverð í öðrum heimsálfum.
Þetta þýðir, að hin "klassíska" íslenzka orkunýtingarstefna, sem mótuð var á Viðreisnarárunum (7. áratug 20. aldar), stenzt tímans tönn, en viðvaningar á orkumálasviði, sem yfirtóku Landsvirkjun og að einhverju leyti stjórnsýslu orkumálanna á tímum hinnar mistæku "vinstri stjórnar" 2009-2013, gleyptu orkupakka ESB hráa og tóku upp einhvers konar spákaupmennsku með raforkuna, sem hefur reynzt atvinnulífi landsins og verðmætasköpun hin versta forsending. Ný orkulöggjöf frá 2003 og síðan orkupakkar 2 og 3 hafa síður en svo reynzt landinu hjálplegir, enda eru þessir ESB-orkupakkar eins og örverpi í íslenzku umhverfi, hvort sem litið er á orkukerfið eða orkumarkaðinn."
"Þegar endursamið var við ÍSAL snemma á áratugnum, spáðu sérfræðingar hækkandi orkuverði í Evrópu, sem þó var hátt. Á þessum tíma fór Landsvirkjun að mæla fyrir sæstreng og komst þar með í aðstöðu til að setja viðsemjendum úrslitakosti með hótunum. Nú hefur dæmið snúizt við. Orkuverð í Evrópu hefur lækkað, svo [að] sæstrengur er fjarlægur möguleiki, WOW lagði upp laupana, ferðaiðnaðurinn er í bakslagi og loðnan að bregðast í annað sinn. Eftir samningshörku sína á liðnum áratug getur Landsvirkjun ekki búizt við öðru en hörku á móti, nú þegar dæmið er annað.
Ekki er að efast um, að Rio Tinto leitar allra leiða til að losna undan verulegum hluta greiðsluskyldunnar með öllum ráðum. Málaferli skapa óvissu, sem kann að hafa áhrif á lánshæfismat Landsvirkjunar og jafnvel orðspor Íslands, þegar þau komast í fréttir. Þetta bætist ofan á vinnutap slíks fjölda manna, að um munar í hagkerfinu. Sú staða, sem nú er uppi, hefur greinilega ekki verið ein sviðsmyndin í áhættumati Landsvirkjunar eða stefnumörkun."
"Sú stefna, sem er ráðandi í orkupökkum ESB, að allar ákvarðanir fyrirtækja í raforkugeiranum skuli byggjast á markaðsverðum, er óheppileg fyrir Ísland. Markaðsverð raforku fyrir stóriðju ræðst á alþjóðamörkuðum, og annar markaður hér er lítill og myndar varla orkuverð, sem mark er á takandi.
Stefnumótun fyrirtækja tekur mið af reglum orkupakka ESB, en ekki þörfum þjóðfélagsins. Fyrirtæki orkugeirans leitast helzt við að styrkja stöðu sína hvort [hvert á e.t.v. betur við-innsk. BJo] gagnvart öðru og gagnvart stjórnvöldum, fulltrúum eigenda sinna. Þetta er ekki farsælt til lengdar, og stjórnvöld þurfa að vinna orkugeirann út úr þessari stöðu."
Getum við keypt hlut í álverinu sem hluta af björgunaraðgerðum sem yfir standa?
Getum við tekið ál sem greiðlu fyrir raforku og átt á þjóðarlager?
Er það nokkuð verra en að eiga hlutabréf í einhverjum Asíubanka eða þjóðarsjóði?
Það verður að afstýra því að álverinu í Straumsvík verði lokað.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.3.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 3420476
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
fiski
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
jvj
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Athugasemdir
Er hugsanlegt að ÍSLAND/LANDSVIRKJUN kaupi ÍSAL álverið?.
Baráttu menn á ALÞINGI gáfu bestu raforkuverð í upphafi til stórfyrirtækis erlendis. Þetta var AFREK á ALÞINGI.
Orkuverðin hækka innan Evrópu. Afrika er lág í verðum, en ekki treystandi?. ÍSLAND er BEST, TREYSTANDI og ÖRUGGT. Þetta snýst ekki um "orkuverðin á ÍSLANDI" heldur vandamál og skattamál margra álfyrirtækja undir sama hatti í mörgum löndum.
Ef allt bregst setjum við orkuna til gróðurhúsa í þúsundum fermetra á Suðurnesjum KEFAP og flytjum út með flugi til stórmarkaða erlendis.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 18.4.2020 kl. 13:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.