Leita í fréttum mbl.is

Samúðarframleiðsla

fer fram hjá Helga Magnússyni fjölmiðlamógúl og glóbalistum á Hringbraut.

Þar er langur þáttur um flóttamenn frá Afganistan  í Grikklandi. Einn segist ekki vera kominn til að borða eða vinna heldur að mennta börn sín. Annar segist hafa verið í læknanámi heima og  móðir hans sé læknir og bróðirinn verkfræðingur.

Spyrillinn leggur sig fram að lýsa eymdinni sem fólkið býr við.Það vill komast til Evrópu segir það. Einn viðmælandinn spyr af hverju af hverju Íslendingar taki ekki við þessu fóki? Þetta sé venjulegt fólk. Eru erlendir múslímar venjulegt fólk á Íslandi? Smellpassar fjöldi þess inn í íslenskt samfélag?

Enginn spyr hversvegna það kom yfir fjöllin hingað? Hvað er það að flýja sem var svo slæmt að 39 milljónir Afgana eru kyrrir heima.Virðast geta menntað sig þar og lifað mannsæmandi lífi. Auðvitað vill þetta fólk komast til Íslands. En höfum við einhver ráð á að taka við því?

Flóttafólkið hlýtur að vita það áður en það leggur af stað hvaða lífskjör bíða þess í flóttamannabúðum í boði Erdogans og Mitsotakis.  Hvað það er að yfirgefa með saklaus börn sín og bjóða þeim upp á sýndar hörmungar? 

Ber Evrópu einhver skylda til að leysa vanda þessa fólks? Af hverju fer það ekki bara heim aftur? Varla getur það verið verra en það helvíti sem Samúðarframleiðsluþáttur glóbalista hjá Helga er að sýna okkur?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stjórn, skipulagsleysi og "varnir" Evrópumanna eru á núlli, ef til átaka kemur vegna yfirtöku stjórnlausrar Austurevrópu og Afriku þjóða í Kristinni Evrópu. Enn og aftur er AMERIKA eina leiðin til hjálpar. Þessar línur passa vel fyrir ÍSLAND.

ÍSLAND og allur HEIMURINN er "gjaldþrota" vegna "veirunnar". Glórulaust er fyrir fámenni ÍSLENDINGA í ofuratvinnuleysi að flytja inn vandamál austur-evrópu og hælisleitendur. Það er ekki hægt að bæta þessu ofaná Loftslagsmálin hjá Vinstri Grænum.   

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 30.5.2020 kl. 23:29

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Fyrst þessi fyrrum ólíku flokksbrot eru svo samstíga í að ganga frá þjóðríkinu Íslandi að það líkist verbúð (þrátt fyrir skýskafana); Mættu þeir vita að í stærri hluta þeirra flokka er kjarni þess besta sem í boði er til að rétta íslensku þjóðina af eftir eyðileggingu seinustu ára.
það er einlæg ósk mjög margra að þeir sameinist og er ekki í minnsta vafa um hug þeirra til Íslands.  

Helga Kristjánsdóttir, 31.5.2020 kl. 05:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 3417882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband