Leita í fréttum mbl.is

Stjórnarskrárdellan

ríður húsum. Allskyns vinstra lið vill fá nýja stjórnarskrá án þess að útskýra hversvegna.

Til þess að eiga auðveldara með að framselja fullveldið til ESB?

Jafna kosningarétt?

Auðvelda skrílræði með beinu lýðræði vinstri manna?

Katrín Oddsdóttir skrifar:

 

"Í dag tók einhver valdakarl kæruleysislega ákvörðun um að láta þvo burt glænýtt myndlistarverk af vegg í eigu ríkisins. Auðvitað var það frábær hugmynd hjá honum, enda varla hægt að finna skynsamlegri leið til að eyða opinberu fé í heimsfaraldi en í það að þvo eina vegginn á þessu svæði sem var þrifalega málaður, enda spurði verkið: „HVAR ER NÝJA STJÓRNARSKRÁIN?“.

Spurningu sem valdhafar vilja að hverfi, því þeir una ekki þjóðinni því valdi að vera stjórnarskrárgjafinn. Kjósendur launuðu þennan hvítþvott með þeim allra mest töff hætti sem ég hef á ævinni séð. ÞEIR EINFALDLEGA FLYKKTU SÉR Á BAK VIÐ KRÖFUNA UM NÝJU STJÓRNARSKRÁNA.Akkúrat núna sprakk 30.000 undirskrifta markmiðið okkar!

Skilaboðin eru kristalskýr: Sama hvað má segja um langlundargeð Íslendinga gagnvart spillingu og rugli í okkar stjórnkerfi þá ætlum við EKKI AÐ LÁTA ÞAGGA okkur niður í þessu máli.

Höldum áfram því undirskriftasöfnuninni lýkur ekki fyrr en 19. október og við þurfum að sýna valdhöfum okkar í eitt skipti fyrir öll að við eigum nýja stjórnarskrá og við ætlum að fá hana lögfesta! Þeir geta skrúbbað þar til þeim blæðir en við gefumst ALDREI upp!www.nystjornarskra.is"

Þetta lið heldur því fram að það sé tilbúið með nýja stjórnarskrá frá 2012 sem Þorvaldur Gylfason hafi  með öðrum skrifað.

Ég vil ekki sjá það plagg þar sem mér finnst það ekki gott og enda bara tillögur.

Við erum búin að vera með einhverja Stjórnarskrá síðan 1944 með breytingum. Stjórnmálamenn hafa sýnt að þeir fara sínu fram hvað sem henni líður.  Ég bý við skertan atkvæðisrétt alveg sama hvernig veltur?

Kvótakerfið og EES og Schengen er óumbreytanlegt hvað sem Stjórnarskrá líður. 

Ég þarf ekkert nýja Stjórnarskrá frá einhverjum litlum minnihluta kommúnista og Katrínar Oddsdóttur.

Meira en helmingi fleiri vildu viðhalda Reykjavíkurflugvelli. Dagur B.Eggertsson gaf ekki skít fyrir það álit og heldur áfram eyðileggingarstarfi sínu á flugvellinum. Þrengir götur og reynir að eyðileggja einkabílinn hvað sem fólki finnst annað.

Vandamálið er ekki Stjórnarskráin heldur stjórnmálamennirnir og allskyns þjóðmálaskúmar sem vilja neyða sínum vilja upp á aðra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég var svo heppinn að vera í lögfræðinámi hjá Ólafi Jóhannesssyni, einum helsta sérfræðingi landsins í stjórnarfars- og stórnskipunarrrétti. Síðan þá hefur mér verið það ljóst að það er ekkert að núverandi stjórnarskrá. Að halda öðru fram er bara bull, enda held ég að þau sem standa í þessu máli núna hafi fæst lesið hana. Hin sem hafa lesið hana hafa ekki fengið neina kennslu í henni.

Örn Johnson (IP-tala skráð) 13.10.2020 kl. 17:01

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Af hverju getur vinstra-pírata-samfó slektið

ekki skilið það að það var ALDREI ný stjórnarskrá

samþykkt. Þettar frat allt saman 2012 var dæmt ÓLÖLEGT.

Hvað er það sem það ekki skilur í stafsetningunni frá

Hæstarétti....ÓLÖGLEGT.

Það er bara nú svo Halldór að ekkert af þessu liði

verður ánægt fyrr en ALLIR hafa það jafn ömurlegt.

Með innflutningi á ÓLÖLEGUM hælisleitendum verður 

möguleiki á að ná þeirri fullnægingu fyrr þegar

velferðarkerfið er farið algjörlega á hliðina og

ekki til aur til að bjarga einum né neinum.

Þá fyrst munu einhverjir vakna, en þá bara of seint.

Sigurður Kristján Hjaltested, 13.10.2020 kl. 18:18

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Kommadótið heldur því fram að það eitt sé göfuglynt og gott og er tilbúið að gera góðverk á annar kostnað en sjálfs síns. Það hefur enga samúð með þeim sem eiga að borga góðmennskuna.

Halldór Jónsson, 13.10.2020 kl. 20:54

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Já líklega Örn

Halldór Jónsson, 13.10.2020 kl. 20:55

5 identicon

Samfylkingin lagði stjórnarskrána "á ís" 2013 vegna þess að Feneyjanefnd ESB hafnaði henn. Ástæðan: Of margir fyrirvarar á framsalsákvæðum.

Það er eina ástæðan fyrir þessu stjórnarskrármáli. Það er til að ryðja úr vegi hindrunum fyrir innlimun í ESB. Stjórnarskráin meinar það.

Þið hafið kannski tekið eftir því að Fylgjendur inngöngu og ESB aktívistar hafa legið í dvala síðan þá. Enda var umsóknin lögð til hliðar í nákvæmlega sama oennastriki. ESB aktívistar hafa verið þess háværari um nýja stjórnarskrá þennan tíma.

Umsóknin um inngöngu í esb og stjórnarskrármálið er sama málið og kom upp á sama degi og æða átti í bandalagið á 6 vikum.

Jón Steinar Ragnarsson (IP-tala skráð) 13.10.2020 kl. 22:55

6 identicon

https://www.visir.is/g/200938564492/stjornarskra-breytt-fyrir-esb-adild

Hér er frétt frá byrjun árs 2009, sem sýnir hvers vegna og hvernig þessi della rúllaði af stað. Skýrir líka raunar líka af hverju það gekk ekki að fullna inngönguna.

Jón Steinar Ragnarsson (IP-tala skráð) 13.10.2020 kl. 23:03

7 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Með ríkissjónvarpið í fararbroddi er pláss fyrir allskonar dellu.

Er ekki nokkur leið að loka þessari sjoppu? Öll veiðileyfagjöldin fara í ríkissjónvarpið.

Kristinn Bjarnason, 14.10.2020 kl. 08:37

8 identicon

Allt frekar slappir pennar hér sorry ykkur er ekki viðbjargandi

Hallgrimur Stefansson (IP-tala skráð) 14.10.2020 kl. 12:48

9 identicon

 Sæll Halldór.

Athyglisvert að skv. skoðanakönnunum eru
það ekki færri en 60% sem vilja nýja stjórnarskrá.
Trúir þessu nokkur maður?

Jón Steinar setur fram næsta skotheld rök
þegar kemur að efnislegum rökum.

En hvað um það sem er óáþreifanlegt í þessu máli og
skiptir jafvel enn meira máli?

Líkt og í DDR (ehemalige Deutsche Demokratische Republik)
þá hugsa vinstrimenn allmargir í hugtökum og þeir gera kröfu til sinna stjórnvalda sem þeir sjá svo að þau geri það ekki síður og að mark sé takandi á merkjakerfi þeirra í hugtökum.

Þeir sjá það margir hverjir sem drottinssvik ef ekki fara saman orð og gjörðir í jafn mikilvægu máli og stjórnarskrármálinu.

Sennilega er meira lím í samskiptamunstri vinstri mann en
einstaklinghyggjumanna hægri flokkanna.

Reikna má með að allt að 30% vinstri manna hafa litið svo til
að staðið yrði við loforð um nýja stjórnarskrá, trúðu því að
alvara væri að baki þessu.

Með því að hjarðhegðun er mun sterkari hjá vinstri mönnum
og sameiginleg pólitísk upplifun gengur næst stærstu
íþróttaviðburðum má reikna með því að óbreyttu að vinstri menn
eigi margt vantalað við þingmenn sína og flokkar þeir
bíði afhroð í næstu kosningum.

Líkur eru því á að sterkur hægri flokkur ásamt og með
einum eða tveimur miðjuflokkum myndi stjórn að loknum kosningum
eða villta vinstrið slái sér saman og dansi kónga!

Slappir Pennar, EHF. (IP-tala skráð) 14.10.2020 kl. 14:38

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Þessar 30 þúsund undirskrftir eru frá kommunum og góða fólkinu til vinstri. Hægri menn nenna ekki að taka þátt í svona könnun.

Hvað þýðir að skrifa undir svona?Við vorum 80 þúsund sem skrifuðum undir bæn um að Reykjavæikurflugvöllur yrði látinn í friði. Dagur B. og vinstra lið hans gaf skít í þetta og heldur ótrautt áfram að eyðileggja völlinn með salami aðferðinni, byggja hér og girða hér.

Stjórnarskrártillögur sem stjórnlagaklúbburinn með fanatíkerum og hálfkommum eins og Þorvaldi Gylfasyni skrifaði 2012 sem er fullt af göllum í allt of löngu máli og enginn heilvita maður vill sjá né heyra vegna þess hversu lélegt það er, það  er núna í umræðu kommanna og Péturs á Sögu jafngilt fullskapaðri stjórnarskrá sem þeir segja að hafi verið samþykkt í þjóðaratkvæði.Þvílíkt djöfuls bull. 

Stjórnarskrá verður ekki sett fram í tillöguformi nema af Alþingi en ekki skrílssamkomu eins og 2012.

Pétur á Sögu bullar daglega um eitthvað beint lýðræði. Sem leiðir ekki nema beint í skrílræði því að er bara heimskasti hluti þjóðarinnar sem nennir að hlaupa og taka þátt í svona skoðankönnunum eins og lítill minnihluti á að mega kveðja til við allskyns tækifæri. Í Sviss nennir meirihlutinn ekki á kjörstað.

Halldór Jónsson, 14.10.2020 kl. 23:53

11 identicon

Það þarf ekki nýja stjórnarskrá en hins vegar má ýmislegt lagfæra í núverandi stjórnarskrá. Þar á meðal að jafna kosningarétt og setja inn auðlindaákvæði.
Kvótakerfið er alls ekki óumbreytanlegt og því þarf að breyta svo við eigendurnir, íslendingar, njótum ávaxtanna. Allan kvóta á að leigja og leigugjaldið að renna í Ríkissjóð. Allur afli fari á markað.

Nonni (IP-tala skráð) 15.10.2020 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418432

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband