Leita í fréttum mbl.is

Ekki mátti Ágúst Ólafur

láta örla mikið á almennu viti hjá sér.

Alveg nú nýverið var hann farinn að tala með miklu rökfastari hætti en venjulega kratabullið sem hann hefur verið heltekinn af til þessa.  Ég var virkilega farinn að hlusta á hann í bankamálinu til dæmis.

Það var auðvitað að Logi Már þyldi þetta ekki og því er búið að kála þessum velmenntaða þingmanni.Hann lét auðvitað ekki bjóða sér fallsæti á þeim lista sem hann leiddi áður.

Ég er ánægður með þetta fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og vona að Ágúst Ólafur finni sér annað skip og annað föruneyti en þetta lekahrip Loga Más, Hafskips Helga  og Evrópusambandsins.

Ekki mátti nú Ágúst Ólafur mikið á Miðengi Samfylkingarinnar svo vitnað sé til gamalla sagna um kvennamál. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Sigurður Sigurðarson hefur þetta að segja um endalok Ágústar Ólafs:

"Ég hef ekki alltaf verið sammála Ágústi Ólafi Ágústssyni, þingmanni Samfylkingarinnar. En ég ber virðingu fyrir honum í pólitíkinni. Hann er dugandi þingmaður, harður í horn að taka og á stundum rökfastur. Dálítið „pópúlískur“ en ekki til mikils skaða. Sé engan hans líka í þingliði flokksins.

Nú er bara tími Ágústar liðinn. Hann hlaut ekki náð fyrir augum uppstillingarnefndar sem er handhafi lýðræðisins í Samfylkingunni.

Ég er alveg sammála nefndinni. Burtu með Ágúst. Og við andstæðingar flokksins fögnum víginu.

Nei, ég held að handhöfum lýðræðisins í Samfylkingunni sé ekki sjálfrátt þegar þeir vísa Ágústi út í ystu myrkur.

Líkast til heldur flokkseigendafélagið að nýkjörinn þingmaður öðlist daginn eftir kosningar allan heimsins vísdóm og þekkingu. Reynsla og þekking skiptir varla neinu í þeirra augum.

Aðferðafræðin minnir á verklagið í ríkisstjórninni sem Samfylkingin og Vinstri grænir kölluðu „skjaldborg heimilanna“. Að henni kom sautján manns. Sumir voru kallaðir ráðherrar en voru bara í starfsþjálfun, fengu að máta ráðherrastólinn í skamman tíma.

Svo ör var skiptingin að enginn náði að setja sig inn í verkefnin enda ekki til þess ætlast. Prófa og fara svo. Nú er fullt af fólki í þessum flokkum sem kallar sig „fyrrverandi ráðherra“.

Ráðuneyti stjórna þeim sem eru í starfsþjálfun sem ráðherra, ekki öfugt. Það vantaði hins vegar ekki að daginn sem nýgræðingur tók við ráðherrastöðu byrjaði hann að tala eins og valdsmaður, vissi allt, gat allt og kunni allt. 

Sama virðist eiga við núna hjá Samfylkingunni. Hún byggir á því að skipta út fólki. Sækja lið í starfsþjálfun, láta það að máta rassförin í þingstólnum í þeirri von að þeir endist þangað til þeir verða reknir.

Sagan segir kratar séu fljótir að draga upp hníf sjái þeir óvarið bak samherja. Þetta er ástæðan fyrir því að þeir ganga með veggjum.

Lýðræðið Samfylkingarinnar byggist á því að velja þingmenn á lista í „reykfylltum bakherbergjum“ því almenningi er ekki treystandi fyrir því."

 

Halldór Jónsson, 21.1.2021 kl. 15:00

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég held að Miðflokkurinn megi hrósa happi ef þeir landa Gústa því að hann dregur frá Loga. 

Halldór Jónsson, 22.1.2021 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband