Leita í fréttum mbl.is

Hengja eða skjóta?

Þegar AlCapone lét drepa fjölda annarra glæpamanna en sinna á Valentínusardaginn með vélbyssum upp við vegg sagði einn böðullinn við heyrnarskertan mann sem bar sig illa:

"Ég skal vera góður við þig, Þú sleppur við að heyra það" Að svo mæltu sleit hann heyrnartækið úr eyra mannsins.

Einn var ekki talinn dræpur vegna synda sinna. Þá sagði Þórður Sturluson: "Hengið þér hann þá fyrst".

Við höfum víst ekki gert mikið í að reisa neyðarspítala ef sóttin versnar. Það sem fyrir Þórólfi vakir er að yfirlesta ekki heilbrigðiskerfið sem var í mínus fyrir.

Þá verður nú aldeilis grenjað allsstaðar, bæði í Valhöll og Ráðhúsinu og Íhaldinu kennt um en VG sleppur.

Þetta er óttalegt ástand sem Hildur lýsir:

 

"Er ekki komið nóg af þessum tilhæfulausa hræðsluáróðri?
Jarðhræringar, inflúensa og RS-vírus eru ekki, og hafa aldrei verið, málefnalegar ástæður til takmörkunar á athafnafrelsi almennings. Þátttaka í lífinu hefur alltaf verið hættuspil, en stærsta aðsteðjandi ógnin við líf og heilsu fólks er ekki farsótt, nú þegar 90% fullorðinna hafa verið bólusettir gegn kórónaveirunni. Það er ómögulegt að greina nokkurn ávinning eða ábata af áframhaldandi takmörkunum - hins vegar er miklu til kostað og mörgu fórnað.
Veitingamenn, listamenn og fjölmargir aðrir hafa orðið fyrir óbætanlegu tjóni af völdum takmarkana sem þjóna ekki lengur almannahagsmunum. Atvinnurekendur um alla borg berjast í bökkum vegna heimatilbúinna skilyrða stjórnvalda, sem eiga sér ekki hliðstæðu í nágrannalöndum. Það er löngu tímabært að endurheimta takmarkalaust samfélag og eðlilegt líf. Afléttingar strax."
 
Hvað ætli hún segi ef Landsinn lokar á hennar fjölskyldu?
 
Allir út í sleik á næsta bar af því að veitingamenn eru blankir?
 
 
Afléttingar þýða útbreiðslu allsstaðar, meiri dauða og meiri veikindi.
 
Þórólfur er að sinna skyldu sinni af prúðmennsku og trúmennsku.
 
"Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir hugsanlegt að RS-veira og inflúensa setji strik í reikninginn við afléttingar á sóttvarnatakmörkunum. Hann vill að áfram verði takmarkanir rýmkaðar smám saman og segir mikilvægt að draga lærdóm af bakslaginu sem varð í kjölfar hraðra afléttinga í sumar.
 

„Við þurfum að hugsa það að við erum að fara inn í vetur núna og við megum búast við meiri sýkingum en áður. Í fyrra sáum við ekkert af RS, faraldri sem kemur á hverjum vetri, og við sáum ekki inflúensuna, sennilega vegna þeirra takmarkana sem voru í gangi,“ segir hann.

RS-veiran hafi verið alvarlegur faraldur hjá börnum bæði í Danmörku og í Svíþjóð um þessar mundir. „Við þurfum að sjá hvað gerist hér,“ segir Þórólfur. „Svo eru menn að spá því jafnvel að inflúensan geti orðið alvarlegri en áður, af því að hún gekk ekki í fyrra. Og við þurfum að hafa það í huga þegar við erum að hugsa um að vernda heilbrigðiskerfið,“ bætir Þórólfur við. Langtímamarkmiðið sé tvímælalaust að hér á landi verði engar sóttvarnatakmarkanir."

"Sauve qui peut" voru síðustu heilræði Þýska Útvarpsins til þegnanna þegar ríki Hitlers  hrundi í maí 1945.

"Bjargi sér hver sem betur getur" Ekki verða fleiri hengdir eða skotnir í bili.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

    • Halldór. Ísland var, og virðist enn vera hertekið af öflum sem tengjast trúlega New World Order, og þeirra glóbal-kúgunarverkum. Mengunarskatturinn er glæpsamlegur.

    • Ég ætla engum svo illt að vilja heimsveldis-skattapíninga-loftslags-blekkingunum, nokkra velgengni.

    • Við þurfum víst öll að læra að vera hreinskilin, og segja jafn satt og rétt frá, sem við best vitum og skiljum hverju sinni.

    • Þetta er mín skoðun. En ég veit nú bara mína sýn hverju sinni.

    • M.b.kv.

    Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2021 kl. 19:55

    2 identicon

    Eitthvað sem men eru að kalla Loftlagsverkfall var haldið fyrir loftslagið, í dag föstudag 22. október og jafnframt hélt þríeyki frá Loftlagsráði, skölluðu, upplýsingafund og ræddu framtíðarsýn sýna.

    Þetta Loftslagsráð sinnir verkefnum í anda laga um loftslagsmál sem hafa að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka bindingu kolefnis úr andrúmslofti, stuðla að aðlögun að afleiðingum loftslagsbreytinga og skapa skilyrði fyrir stjórnvöld til þess að standa við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum.

    Nú er okkur boðað nýtt fagnaðarerindi og sagt að gera eins konar iðrun. Allt þurfi að breytast til þess að Paradís verði aftur á jörðinni. Það er að vísu að nokkru leiti rétt, en það er rangt, að það þurfi að frelsa heiminn í nafni loftlagsins. Hér talar Falskristur. Jesús Kristur er hinn raunverulegi frelsari heimsins. Iðrun í Anda Hans er, að við látum af drápum barna okkar í móðurkviði.

    Antikristur vill stjórna öllum þáttum í mannlegu lífi á jörðinni: Fundurinn lagði áhersla á að við öll tökum til hendinni við breytingarnar með honum. Verkefnið sé ekki afmarkað, það þurfi að horfa á loftslagsvandann í samhengi við aðra þætti, álagið á lífríkið og fæðukerfi jarðar sem standi ógn af fleiri þáttum en loftslagsbreytingum.

    Margir leiðtogar eru fyrst og fremst fylgjendur sem duga ekki. Það þarf sterkan leiðtoga, Antikrist sjálfan. Undir honum þurfa að vera andlegir leiðtogar, leiðtogar meðal ungs fólks, leiðtogar í atvinnulífinu og meðal fjárfesta. Sagt er að við þurfum öll að rísa upp, jafnvel með verkfalli, því við getum ekki treyst því að stjórnvöld nái utan um þetta, við getum ekki treyst því að atvinnulífið nái utan um þetta, getum ekki treyst vísindamönnunum eingöngu, við þurfum öll að rísa upp og berjast fyrir þessari framtíð undir Antikristi.

    Notuð er upphrópun, sem er síendurtekin: Við þurfum sjálfbæra þróun.

    Páll postuli: En það, sem ég gjöri, mun ég og gjöra til þess að svipta þá tækifærinu, sem færis leita til þess að vera jafnokar vorir í því, sem þeir stæra sig af. Því að slíkir menn eru falspostular, svikulir verkamenn, er taka á sig mynd postula Krists. Og ekki er það undur, því að Satan sjálfur tekur á sig ljósengilsmynd. Það er því ekki mikið, þótt þjónar hans taki á sig mynd réttlætisþjóna. Afdrif þeirra munu verða samkvæmt verkum þeirra. 2. Korintubréf versin 12-15

    Guðmundur Örn Ragnarsson (IP-tala skráð) 22.10.2021 kl. 22:56

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Halldór Jónsson
    Halldór Jónsson

    verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

    -ekki góður í neinu af þessu-

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (3.5.): 9
    • Sl. sólarhring: 11
    • Sl. viku: 67
    • Frá upphafi: 3418286

    Annað

    • Innlit í dag: 9
    • Innlit sl. viku: 67
    • Gestir í dag: 9
    • IP-tölur í dag: 9

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Eldri færslur

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband