7.5.2009 | 13:47
Er sama hvernig er spurt ?
Eðalkratinn vinur minn var hróðugur í sundlaugunum í morgun. Þarna sérðu, meirihlutinn vill fara í aðildarviðræður. Til hvers spurði ég ? Til þess að vita hvað er í boði sagði hann. Já en liggur það ekki fyrir spurði ég. Nei sagði hann.
Ef spurt væri:
1. Viltu fara í aðildarviðræður í þeim einlæga tilgangi að ganga inní Evrópusambandið með þeim kostum og göllum sem bjóðast ?
en ekki
2 Viltu fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið ?
Þá held ég að svarhlutfallið yrði ekki það sama og nú var um spurt.
Ef spurt væri :
3. Viltu fara í Evrópusamabandið og taka upp evru ?
4. Viltu fara í Evrópusambandið og hafa krónuna ?
5. Viltu ekki fara í Evrópusambandið en taka upp Evru ?
6. Viltu ekki fara í Evrópusambandið og hafa krónuna ?
7. Viltu ekki fara í Evrópusambandið en taka upp dollar ?
Hvernig myndi fólk svara ?
Ég held að margt fólk sé svo langþreytt á getuleysi íslenzkra stjórnmálamanna að það taki hvert hálmstrá sem býðst til þess að fá aðra stjórnendur að borðinu. Það skýrir afstöðu margra.
Aðrir vilja fara í viðræður eins og eðalkratinn minn til þess að sjá hvað er í boði.
Enn aðrir segja að heyra megi maður erkibiskups boðskap og eru ákveðnir að hafa hann að engu ef svo beri undir. Fara í viðræður í ábyrgðarlausum hálfkæringi að því er mér finnst.
Svo eru hinir sannfærðu og ákveðnu.
Verðum við ekki að byrja á því að vera heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og Evrópubandalaginu ?
Enn er spurt.
1. Viltu afnema kvótann ?
Margir segja nei.
2. Viltu innkalla kvótann í áföngum ?
Færri segja nei.
Útgerðarmenn segjast fara á hausinn ef þeir missa 5 % árlega af kvótanum. Líklega reikna þeir þá með því að þurfa að borga ríkinu fullt leiguverð fyrir hver 5 %.
En ef þeir þurfa ekki að borga neitt fyrir leiguna á fyriningartímanum og mega veiða sama hlutfall og þeir höfðu í 20 ár. ? Er þá ekki jafnstaða fyrir þá og var þegar kvótakerfið var sett á ? Þjóðin á fiskinn og þeir veiða.
Hver hefur tapað ? Bankarnir hafa tapað veðunum sínum í þorskinum sem syndir í sjónum. Þorskurinn verður frjáls þorskur og veðbandalaus.
Bankarnir hafa þá 20 ár til að rukka inn skuldir útgerðarinnar. Skyldi það verða hægt ?
Ef ég spyrði Reynir Traustason ritstjóra : Reynir , ertu hættur að smygla kókaíni ? Svaraðu já eða nei.
Ertu hættur að berja konuna þína ? Svaraðu já eða nei.
Það er eki sama hvernig er spurt ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Vonandi hafið þið félagarnir farið sáttir úr heita pottinum. Hárrétt mat hjá þér að það er ekki sama epli og appelsína. Þessa vegna skiptir öllu hvernig spurningin er orðuð þegar kemur að því að þjóðin segi álit sitt eða þingið.
Jón Baldur Lorange, 7.5.2009 kl. 20:29
Hversu margir þeirra 64% sem sögðust styðja aðildarviðræður vita að til þess að hefja þær viðræður þarf fyrst að vera búið að sækja um aðild?
Árni Gunnarsson, 7.5.2009 kl. 22:03
Jón Baldur, ég vissi ekki það sem Árni Gunnarsson segir að maður sæki um aðildina fyrst. Ég held að það hljóti að vera margir jafnvitlausir og ég. Ég hélt að maður væri að biðja um að fara inn í leikhúsið sem áhorfandi með viðræðum, ekki að kaupa miða.
Ég segi nú fyrir mig, að laglega hef ég misskilið þetta með aðildarviðræðurnar. Er þetta örugglega rétt Árni ?
Halldór Jónsson, 7.5.2009 kl. 22:11
Það er alveg ljóst að til þess að hefja aðildarviðræður við ESB þá þarf að leggja inn umsókn um aðild að sambandinu. Það er þetta ,,blað" sem Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur og helsti sérfræðingur fjölmiðla um ESB, sagði að sendiherra okkar í Brussel gæti skotist með yfir torgið í Brussel og afhent framkvæmdastjórn ESB.
Þetta er ástæðan fyrir því að Heimsýn hefur lagt til að hafnar verði fyrst könnunarviðræður við ESB áður en lögð er inn umsókn um formleg aðild að ESB. Það virðast nefnilega ekki allir átta sig á að þessu atriði þ.e.a.s. að það er ábyrgðarhlutur að sækja um aðild að ESB sem er sem sagt við leggja inn aðildarumsókn frá ríkisstjórn Íslands. Þá fyrst getur framkvæmdastjórnin hafið viðræður við fulltrúa íslenskra stjórnvalda að því gefnu að við uppfyllum Kaupmannarhafnarskilyrðin svokölluðu.
Jón Baldur Lorange, 7.5.2009 kl. 23:05
Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki þessa áráttu fjölmiðla og Samfylkingar, að sannfæra okkur um að við verðum að ganga í ESB. Það vita allir að við höfum alla kosti ESB með EES samningnum, nema stöðugan gjaldeyri, og þar með lægri vexti. Þetta er kjarni málsinns og því ætti að spyrja í skoðanakönnunum. "Hvort viltu ganga í ESB og taka upp evru eða halda EES samningnum og taka upp stöðugan gjaldeyri" Mig grunar að flestir velji seinni kostinn.
Sigurjón Jónsson, 8.5.2009 kl. 09:59
Er ekki svolítið skondið að á sama tíma og þetta ESB rugl á sér stað, er Island að undirrita viðskiptasamband við Kanada sem EFTA land. Getur það verið byrjun á aðild EFTA að NAFTA, eða upptöku dollars?
Ég bið vísa menn að ræða málið og upplýsa fólk hvað hér er á ferð.Hvet menn til umræðna.
Norður Atlantshafið og norður slóðir eru tvímælalaust verðmætasta landssvæði í heiminum. Þegar komið fram að er það svæði sem hrakað mannkyn kemur til með að lifa af breytingar sem eru að eiga sér stað. Ekki að furða að hnignandi ESB veldi líti með ágirndaraugum í norðurátt.
Björn Emilsson, 8.5.2009 kl. 13:37
Sælir Jón Baldur, Sigurbjörn og Björn Emilsson
Ég vil elska mitt land sungu þeir í gamla daga. Ég held að Íslandi sé best borgið sem frjálsu og fullvalda ríki eins og Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður til. Þannig hef ég skilð þann flokk og þannig kom hann mér fyrir sjónir á síðasta landsfundi. Benedikt Jóhannesson sætti sig ekki við það að verða undir og er genginn í lið með Hallgrími Helgasyni í Sammála.is.
Stöðugur gjaldmiðill er hugarástand og sjálfsagi. Það eru tilræði innlendra spellvirkjahópa sem hafa farið svona með krónuna okkar. Við hinir gefum alltaf eftir. Héldu þeir uppteknum hætti í evrusamfélagi yrði afleiðingin evrópskar atvinnuleysistölur, 10-20 %- VIÐVARANDI.
Við Íslendingar stöndum Evrópubúum miklu framar. Við erum miklu dýnamiskari, framfarasinnaðri og fríþenkjandi en evrópskir bjór-og vínþambarar. Sjáið bara hversu miklu fljótari við vorum að tileinka okkur nýja tækni eins og gsm,tölvur og netið. Það var ekki til ein jarðýta í Danmörku 1945 að ég hef best frétt. Við erum miklu líkari Ameríkönum en Evrópubúum, þá meina ég ekki þann hluta sem Jay-walking sýnir okkur.
Evrópubúinn er upp til hópa hunduþúfulið, sem rennur aldrei saman í eitt þjóðríki. Látum þá eiga sig. Við erum miklu betur settir án þeirra.
Halldór Jónsson, 8.5.2009 kl. 21:09
Blessaður Halldór,
Sammála. Það er kerfið í Evrópu sem dregur allt niður. Eg hef búið beggja megin Atlantsála mest allt mitt líf. Get því
gert samanburð. Það er eins og íslendingar haldi að þeirra bíði eilíft sæluríki í ESB, þar sem menn sitja bara á gangstéttar veitingahúsum og njóta góðra veiga áhyggjulausir, ´kerfið borgar fyrir mig.´
Bandaríkin eru öðruvísi. Ef þú stendur þig, kemstu þangað sem þú vilt. Íslendingar hafa sýnt það í verki hverjir þeir eru, að byggja upp velferðarríki á örfáum árum, með öllum stofnunum tilheyrandi, meir að segja sinfóníuhljómsveit. Það hefur engin þjóð gert betur.
Auðvitað með Sjálfstæðiðsflokkinn í broddi fylkingar.
Björn Emilsson, 8.5.2009 kl. 23:28
Takk fyrir Björn, það er hressandi að hitta mann sem ekki skammast sín fyrir flokkinn sinn. Sendu mér póst á halldorj@vortex.is og segðu mér deili á þér, ég þekki nefnilega alnafna þinn og ég held að þú sért ekki hann eða hvað ?
Halldór Jónsson, 8.5.2009 kl. 23:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.