7.9.2009 | 21:18
2x10 ráðherravit !
Ég sagði um daginn að Margrét Þorbjörg kona Thors Jensen hefði haft tíu ráðherravit af þeirri tegund sem nú væra í boði. Hún kunni nefnilega að bíða. Þetta var eftir að ég hlustaði á Árna Pál í sjónvarpinu lýsa því sem hann vildi gera til að létta vanda heimilanna.
Í kvöld varð ég vitni að viðtali við Katrínu Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
Hún var spurð hvort hún ætlaði að virkja neðri Þjórsá. Hún svaraði að hún ætlaði ekki að virkja þar fyrir álver. Hvort hún ætlaði að virkja þar yfirleitt? Nei hún var ekki reiðubúin að svara því þar sem hún væri í viðræðum við heimamenn fyrir norðaustan hvernig ætti að nota orku þar til atvinnuuppbyggingar í heimabyggð. Öll orka sem þar væri skyldi fara til framkvæmda í heimabyggð. Atvinnuuppbygging í heimabyggð gæti til dæmis verið efnalaug sem yrði orkukaupandi sem hún getur hugsað sér sem orkukaupendur og væntanlega styður Steingrímur það form iðnaðar úr því hann vill ekki álver.
En orka úr Þjórsá færi ekki í álver, ef hún yrði virkjuð. Katrín vildi ekki svara hvort Þjórsá yrði þá yfirleitt virkjuð. En það væri einhugur í ríkisstjórninni varðandi virkjanir. Hvort hún styddi álver á Bakka sem Steingrímur er á móti ? Það fékkst ekki svar við því en það er einhugur í ríkisstjórninni.
En hinsvegar var það upplýst að hún ætlar að taka þátt í markaði ESB árið 2012 með losunarkvóta O2 og það væri ekkert vitað um hvað við þyrftum að kaupa af kvóta ef við ætluðum að byggja álver.
Ég dreg ályktanir fyrir mig varðandi álver á Bakka og virkjanir í neðri Þjórsá:
Steingrímur er á móti álveri á Bakka og það er einhugur í ríkisstjórninni= Katrín Júlíusdóttir er þá líka á móti álveri á Bakka. Það er einhugur í ríkisstjórninni og því gildir sama með Jóhönnu. Árna Pál, Katrínu hina, og Hóla-Jón og hvað þeir nú heita sem hér eru ótaldir ráðherrar.= ríkisstjórnin er á móti álveri á Bakka.
Katrín er á móti því að virkja í Neðri Þjórsá fyrir álver. Það er einhugur í ríkisstjórninni= Ríkisstjórnin er á móti því að virkja í neðri Þjórsá fyrir álver=Ríkisstjórnin er á móti álverum.
Og þá er spurningin hvernig verður með rafmagn fyrir álver í Helguvík og stækkun í Straumsvík?Ríkisstjórn Íslands ætlar ekki að virkja fyrir álver. En hún er í viðræðum og ferli með það mál allt.
Er þetta ekki akkúrat vinstristjórn eins og við hinir eldri munum þær best? Veit nokkur hvert þær eru að fara?
Ég hugsa til hans Tryggva Ófeigssonar sem sagði: "Kratar eru verstir"
Við erum komin á losunarkvótamarkað ESB án þess að ég hafi heyrt á það minnst fyrr. Við töpuðum milljarði á kratabröltinu í framboðinu til öryggisráðsins. Utanríkisráuneytiskostnaðurinn hefur nær tvöfaldast á skömmum tíma undir stjórn krata. Verðum við ekki komin inn í ESB án þess að vita af því ? Undir stjórn krata.
Stiglitz spyr hvort við þurfum lánin sem Steingrímur krefst af AGS. Mér fannst hann draga það í efa og að krónan okkar væri bara besta skinn. Ég spyr er ekki líka best að ganga úr EES og stjórna ferðinni í innflytjendamálum til þess að hefta aðsókn A-Evrópubúa í yfirfulla spítalana okkar? Ögmundur ætlar í stórfelldan niðurskurð þar á næsta ári og þarnæsta. Og það er einhugur í ríkisstjórninni. Er ekki nærtæk sparnaðaraðgerð að fækka sjúklingunum ? Létta á aðsókninni ? Þarf þá ekki að hækka skatta minna?
Þurfum við nokkuð á AGS að halda ?
Vantar okkur ekki aðkallandi svona 2x10 ráðherravit?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Svandís hafnaði að endunýja íslenska ákvæðið, sem þýðir að við erum undir sama hatti með okkar álver og ríki sem brenna kolum til álframleiðslu.
Stuttu seinna splæsti Svavar (fyrir hönd ríkisins) kapmavíni á erlenda og innlenda samninganefndarmenn, til að skála fyrir Æsseif samningnum sem hann var nýbúinn að skrifa undir.
Sigurður Þórðarson, 8.9.2009 kl. 10:40
Sá eimitt þetta viðtal við Katríunu. Varð fyrir miklum vonbrigðum með hana líkt og með Árna Pál. Kratar virðast allir vera sammála um að koma stjórn landsins í hendurnar á einhverjum öðrum en sjálfum sér.....þeir þekkja ekki aðra leið en að sigla í faðminn á ESB....''ignorance is bliss'' sagði einhver. Þau virðast alla vega vera voða ánægð með að þurfa ekki að taka ákvarðanir af neinu tagi.
Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 9.9.2009 kl. 19:29
Sæll Halldór. þegar verið er að velta fyrir sér gróða af álútflutningi velti ég því fyrir mér hvort talað er bara um hvað við fáum fyrir útflutninginn, án tillits til tilkostnaðar.
Fyrst þarf að flytja allt álið hingað og vinna úr því. Ég er ekki á móti álbræðslu hér á landi en velti því stundum fyrir mér hver sé nettó gróðinn af þessu brambolti í hreinasta og ómengaðasta landi í veröldinni. En þróaðasta álbræðslan er í Straumsvík og kaus ég með stækkun þar. (Held ég sé ekki að fara með rangt mál í því að það sé þróaðast).
Eru ekki auðæfi landsins einmitt fólgin í þeim ómetanlega hreinleika sem Ísland hefur? Væri það ekki hagur veraldarinnar og okkar, að vernda það sem er hreint og ómengað?
Fólk hefur misst heilsuna nálægt Mongtad oljeraffeneri (olíuhrinsunarstöð) í Noregi þar sem eru úrgangstankar, vegna hættulegs úrgangs sem var landað þar í úrgangstanka í óleyfi af erlendu skipi sem laug um hvað þeir losuðu.
það komst upp vegna bilunar á tankinum, sem var ekki til þess gerður að taka á móti svona hættulegum og mengandi úrgangi, sem lak út í andrúmsloftið við bilunina.
Við höfum í raun svo litla hugmynd um hvað mengun heimsins er orðin tortímandi og alvarleg. Margir eru öryrkjar í byggðinni þarna út af þessu mengunarslysi. Það eru ekki mörg ár síðan þetta gerðist. þetta hefur hvorki með krata né aðra flokka Íslands að gera heldur hættulegu alheims pólitíkina. Kv. Anna.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.9.2009 kl. 00:49
Það er hætt við því, Halldór, að við verðum komin inn í ESB áður en við og Vg vitum af því.
Fyrsta spurningin á lista stækkunarstjórans hefði átt að lúta að því hvort við hefðum mannskap til að sinna því sem þarf að sinna í regluverki ESB.
Svarið við þeirri spurningu er NEI. Og þá væri hægt að spara sér að svara hinum 2499 spurningunum......
Ég kom aðeins nálægt nefndarstarfi þar sem verið er að fjalla um jafn einfalt mál og staðla fyrir grjót í brimvarnir. Þessi nefnd hefur verið að störfum a.m.k. í 6 ár og maður fær senda pappíra mánaðarlega eða svo og svo eru haldnir fundir líklega 3svar á ári eða jafnvel oftar. Ef tekið er á öllum málum innan ESB með þessum hætti, þá er morgunljóst að við höfum ekki mannskap til að sinna nema broti af því sem þarf að sinna í samskiptunum við ESB. Við getum heldur ekki sinnt því sem þarf að sinna í regluverki EES og það er væntanlega hluti af því sem leiddi okkur í þann vanda sem við erum í nú. Við þekktum ekki reglurnar og höfðum heldur ekki tíma til að kynna okkur okkar eigin lög, t.d. varðandi lögmæti myntkörfulána.
Ómar Bjarki Smárason, 10.9.2009 kl. 12:19
Ómar
Kratarnir eru þegar farnir að sækja ráðstefnur og heimboð í ESB um alla Evrópu. Gaman gaman.
Þetta er rétt hjá þér, það fer öll orkan í kraterí og pappír.
Anna mín,
Hvað hefur sveltandi fólk að gera við hreint grjót í Kringilsárrima ?
Verðum við ekki að reyna að virkja og bjarga þjóðinni em er í neyð?
Sigurður: Svandís afsalaði sér íslenzka ákvæðinu. Mætti eg fá meira að heyra.?
Halldór Jónsson, 10.9.2009 kl. 13:59
Hafi Svandís afsalað sér-íslenska ákvæðinu getur hún tæpast verið að vinna fyrir þjóðina. Það á ekki að líðast að ráðherrar reki þau ráðuneyti sem þeir stýra sem einhver einkafyrirtæki og séu í eigin sérhagsmunagæslu fyrir sjálfa sig.....
Ómar Bjarki Smárason, 10.9.2009 kl. 14:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.