19.9.2009 | 13:30
Full andstaða við ESB !
Ég var á fjölmennum fundi Sjálfstæðismanna rétt áðan. Þar spurði einn fundarmanna, hversu margir hér inni vilja ekki fara í ESB ? Nítíu og eitthvað prósent fundarmanna réttu upp hendur án þess að hugsa sig um. Einum líkaði ekki og sagði að hann vildi fara í viðræður. Enn var spurt hverjir vildu fara í viðræður. Ekki einu sinni tíu prósent vildu það. Hverjir vilja ekki fara í viðræður var spurt. Fjöldi tétti upp hendina. Þá var handauppréttingum hætt og umræður héldu áfram.
Fram kom í máli manna að þegar landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefði verið á móti ESB aðild gengi það ekki fyrir þingmann, hvað þá varaformann flokksins að greiða atkvæði á móti vilja landsfundar. Annaðhvort væru menn í Sjálfstæðisflokknum eða þeir væru ekki í honum. Sjálfstæðisflokkurinn mótar stefnu sína á landsfundi flokksins. Allir flokksmenn eru skyldir til að fylgja henni.
Annars verða þeir bara að fá sér nýjan flokk eins og þingmenn Borgarahreyfingarinnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:36 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.12.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 3419870
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Þakka þér þessa færslu Halldór, maður verður eilítið bjartsýnni á framhaldið við skilaboð af þessu tagi.
Páll Vilhjálmsson, 19.9.2009 kl. 13:58
Mikið afskaplega er ég sammála þessari færslu og hef reyndar lengi haldið henni fram sjálfur.
Vonandi áttar varaformaðurinn sig á því hvílík grundvallarmistök - mér liggur við að segja byrjendamistök - henni urðu á við afgreiðslu málsins á Alþingi.
En ég el þá von í brjósti að nú muni umræðan um ESB breytast, sérstaklega með tilliti til ritstjóraskipta á Morgunblaðinu og rödd okkar sem viljum alls ekki ganga í ESB hljóma oftar. Það væri þá til samræmis við meirihluta þjóðarinnar.
Sigurður Sigurðsson, 19.9.2009 kl. 14:12
Gott að halda þessu til haga, Halldór.....
Ómar Bjarki Smárason, 19.9.2009 kl. 15:38
ÁFRAM ÍSLAND - EKKERT ESB
Tómas Ibsen Halldórsson, 19.9.2009 kl. 15:58
Maður skilur ekki af hverju menn eru svona hræddir við að skoða hvað er í skjóðunni til að geta tekið upplýsta afstöðu.
Jón Sævar Jónsson, 19.9.2009 kl. 17:02
Tunglið snýr víst alltaf sömu hliðinni að jörðinni og við vitum vel hvað ESB stendur fyrir......
Ómar Bjarki Smárason, 19.9.2009 kl. 17:18
Þá er ég allavega sammála X-D um eitthvað . Takk fyrir þessa færslu :)
Eva , 19.9.2009 kl. 18:14
Halldór, maður þarf greinilega að fara mæta á laugardagsfundina að nýju í Kópavoginum til að efla baráttuandann.
Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fannst mér vera sami sjálfstæðisandi svífa yfir vötnum. Þó voru undantekningar frá þessu og t.d. hef ég síðan þá verið lagður í hálfgert einelti af einum landsfundargestinum en okkur lenti saman vegna ESB og ræðu Davíðs Oddssonar. Síðustu 2 sms skilaboðin hans til mín voru þessi:
Sá hinn sami skaut einnig föstum skotum með athugasemdum á blogginu mínu í kjölfar landsfundarins. Það er orðið spurning hvor eigi betur heima í Sjálfstæðisflokknum.
Jón Baldur Lorange, 19.9.2009 kl. 18:35
Kannski maður fari að styðja flokkinn ef þetta er stefna hans og hann ætli að standa við hana :)
Marteinn Unnar Heiðarsson, 19.9.2009 kl. 19:31
Jón Sævar, skjóðan er opin og innihaldið fyrir allra augum eins og við sjálfstæðissinnar höfum bent á um árabil og Olli Rehn staðfesti svo myndarlega á dögunum.
Hjörtur J. Guðmundsson, 19.9.2009 kl. 19:39
Gott að heyra þetta.
Sigurður Þórðarson, 19.9.2009 kl. 19:43
Halldór:
Mér þykir þú taka stórt upp í þig! Þú rekur mig ekki úr Sjálfstæðisflokknum, en þegar ég hlusta á orð þín þá langar mig næstum að segja mig úr flokknum eins og þúsundir annarra hafa gert!
Orð þín minna mig á Stalín, Hitler eða Maó - "Flokkurinn mótar stefnuna á landsfundi, allir eru skyldugir að fylgja þeirri stefnu, annars á að reka þá úr flokknum". Þvílík og önnur eins steypa!
Það er mikill misskilningur að svo stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins sé andsnúinn ESB aðildarviðræðum, þótt vissulega sé það mikill meirihluti flokksmanna.
Þetta sást vel í skoðanakönnun sem gerð fyrir stuttu síðan!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 19.9.2009 kl. 20:47
Góðar segirðu fréttirnar, Halldór Jónsson!
En Guðbjörn, yrði þér ekki hleypt inn í Samfylkinguna?
Jón Valur Jensson, 19.9.2009 kl. 21:01
Þú ert furðulegur flokksmaður Hr.Tenor Guðbjörn. Til hver ertu í flokki ef sérþarfir þínar bera þig ofurliði? Þá ertu mikið betur kominn einn útí horni. Raunar sagði eg ekki að ætti að reka þig úr flokknum heldur að þú þyrftir þá að fá þér annan flokk. Varaformaður verður að fá sér annan flokk ef hann getur ekki samvisku sinnar vegna fylgt stefnu landsfundar, alveg eins og Sari og hans menn verða að fá sér nýjan flokk ef landsfundur gamla flokksins vil fara aðra leið en þingmenn flokksins.
Ég held að þú verðir að velta fyrir þér hvað það er að vera í stjórnmálaflokki. Það verður aldrei jafngilt persónukjöri, kjósa Jóhönnu í 1. sæti, Bjarn ben í annað, Steingrím J í þriðja. Kerfið virkar ekki svona minn kæri.
Kannski ættirðu að hlusta á Jón Val ?
Halldór Jónsson, 19.9.2009 kl. 21:28
Jón Baldur,
Endilega komdu, það munar um manninn.
Halldór Jónsson, 19.9.2009 kl. 21:29
Já og Jón, taktu Evu Lind með þér.
Halldór Jónsson, 19.9.2009 kl. 21:30
Páll, það er allt í lagi fyrir þig að líta við. Það verður alltaf meiri fögnuður yfir týnda sauðinum en þeim tryggu...
Halldór Jónsson, 19.9.2009 kl. 21:32
Sigurður, það væri nú mjög gaman að fá þig í heimsókn á næsta laugardag kl 10.00 í Hlíðarsmára 10.Þú færð allavega kaffi og meððí.
Halldór Jónsson, 19.9.2009 kl. 21:34
Hlíðarsmára 19 ætlaði ég að skrifa
Halldór Jónsson, 19.9.2009 kl. 21:34
Þetta hljómar ískyggilega eins og George Bush jr.
"Annaðhvort væru menn í Sjálfstæðisflokknum eða þeir væru ekki í honum. Sjálfstæðisflokkurinn mótar stefnu sína á landsfundi flokksins. Allir flokksmenn eru skyldir til að fylgja henni."
Hvað með eigin sannfæringu þingmanna? Er hún réttlægri ákvörðun landsfundar? Hver haldið þið að eigin sannfæring formanns ykkar sé í ESB málinu, ef miðað er við orð hans áður en hann var kjörinn formaður (jan. 2009). Þið sem fagnið þessum já-kór manna (mest karlmanna væntanlega) sem voru á þessum fundi Sjálfstæðismanna sem vitnað er til ættuð að vita að ein ástæða þess andrúmslofts sem þar var getur verið að flokknum hefur tekist að hrista af sér ansi margt gott sjálfstæðisfólk sem einfaldlega getur ekki setið undir þeim kúgunum sem augljóslega viðgangast innan flokksins. Svona flokkur rotnar innan frá.
Og skjótið mig bara í kaf, Jón Valur og aðrir. ég ætla ekki að veita nein andsvör við því sem ég má búast við frá ykkur hér.
Karl Ólafsson, 20.9.2009 kl. 00:24
Bara á bólakaf með þig, Karl !
Jón Valur Jensson, 20.9.2009 kl. 00:54
Hvernig í ósköpunum getur það verið að allir séu skyldaðir til að fylgja stefnu landsfundarins?? Að viðlögðu hverju ef einhver gerir það ekki??
Þetta er farið að minna svolítið á Kim Jong Il hjá ykkur. Eða gamla Sovíet. Þú veist að Bolsévik þýðir meirihluti?
Ég er harður andstæðingur Evrópusambandsaðildar, en ég get ekki annað en undrast þessa tilhneigingu hægrimanna til þess að skerða skoðana og málfrelsi. Brottrekstur ritstjóra MBL var skýrður með því að hann væri heldur hallur undir evrópusambandsaðild fyrir smekk eigenda.
Ykkur finnst þetta bara allt í lagi? Eruð þið algerlega viti firrtir? Hafið þið enga hugmynd um hvað felst í hugtökunum lýðræði og fullveldi? Eru þau kannski þyrnir í augum ykkar?
Þú getur ekki verið með framhaldsmenntun. Er það rétt?
Jón Steinar Ragnarsson, 20.9.2009 kl. 03:14
Ég fagna þessari niðurstöðu, ESB er mun betra ríkjasamband án Íslands.
Nú ríður á að sýna samstöðu og eyða allri sjálfstæðri hugsun. Hvernig gengur annars með Rússalánið?
Guðjón I. Guðjónsson (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 08:45
Sæll aftur vinur minn Halldór Jónsson og ég þakka gott heimboð. Það væri vissulega gaman að hitta ykkur félagana, sem viljið vinna Íslandi vel. Ég er hlynntur sjálfstæðisstefnunni og að íslensk þjóð búi að sínu þar á ég samleið með ykkur eftir því sem mér heyrist á þér. Kýrin sem hnífurinn stendur í er fiskveiðistefnan, það er mál sem okkur hefur ekki auðnast að þoka til betri vegar og ég viðurkenni að vera hálfráðþrota gagnvart.
Sigurður Þórðarson, 20.9.2009 kl. 10:00
Guðbjörn, hvaða þúsundir eru þetta sem hafa sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum? Ertu með sannanir fyrir því?
Hjörtur J. Guðmundsson, 20.9.2009 kl. 10:07
Mér sýnast nú þúsundir vera að ganga til liðs við flokkinn - a.m.k. stuðningsmenn skv. nýjustu skoðanakönnunum !!!
Sigurður Sigurðsson, 20.9.2009 kl. 12:22
70% sjálfstæðismanna eru á móti ESB aðild. Samt vill fólk eins og Guðbjörn að flokkurinn einbeiti sér meira að Evrópumálunum. Það finnst mér öfugsnúið, þó svo að það séu nokkrir sauðir sem vilja hlaupa til austurs þá þýðir ekki að það verði að snúa allri hjörðinni í sömu átt þvert gegn sínu geði.
Guðbjörn verður að kyngja því að Sjálfstæðisflokkurinn mun seint berjast fyrir ESB aðild án þess að missa þá enn fleiri þúsundir úr floknum (leyfi mér þó að efast um að fullyrðingar hans um flótta úr flokknum vegna andstöðu eigi við rök að styðjast).
Guðbjörn ætti heldur að einbeita sér að því að stofna nýjan hægri flokk sem hefur ESB aðild að baráttumáli. Þá gætu þessar "þúsundir" sem hann talar um gengið í þann flokk án þess að þurfa beygja til vinstri.
70 - 75% ALLRA þingflokka eru á móti ESB aðild nema í tilfelli Samfylkingar þar sem 80% eru fylgjandi. Á þessu ætlar Samfylkingin að keyra inn í ESB með þjóðina þvert gegn vilja hennar. Eru þetta hinar margrómuðu lýðræðisumbætur sem boðaðar voru fyrir kosningar? Samfylkingin hefur hvað, 24% fylgi. 80% af þessum 24 prósentum gera hvað?????????
Samt töluðu þau um að lýðræðið hefði sigrað. Þvílíkir hræsnarar.
Hrafna (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 12:34
Það sem Guðbjörn Guðbjörns, virðist ekki átta sig á er að Flokkurinn er í eðli sínu Landsamtök klíkubandalaga. Þar sem gamlar skóla- ætta- kunningja- vina- eigna og aðrar sérhagsmuna- og forréttindaklíkur eiga sér sameiginlegt bakland. Stuðningsmenn eru síðan annars vegar þeir sem ekki gera sér grein fyrir tilganginum og hins vegar Wanabe-liðið sem áttar sig ekki almennilega á þjóðfélagsstöðu sinni og vonar í lengstu lög að njóta einhverra forréttinda þó síðar verði.
Það er því fráleitt að ætla að eiga eitthvað saman að sælda við Samtök sjálfstæðra lýðræðisríkja sem hefur jöfnuð,jafnræði og réttlæti að leiðarljósi... þetta fer ekki saman Guðbjörn.
Atli Hermannsson., 20.9.2009 kl. 12:41
Gott þú hefur þetta allt á hreinu Atli.
Við, þessir afvegaleiddu stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins ættum þá heldur að snúa okkur til Samfylkingarinnar, þeim "heiðarlega" og "lýðræðislega" flokki að þínu mati? Þar ku engin spylling ríkja og þar segir enginn ósatt, eða hvað???
Ert þú kannski alveg jafn blindur og þú telur okkur hin vera? Það skyldi þó ekki vera að þú sért heilaþveginn af einhverjum öðrum flokki? En er það skárra?
Hrafna (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 12:47
Vonandi er líka full andstaða við Ísklafa þann sem ríkisstjórnin hyggst í samvinnu við Breta leggja á afkvæmi okkar og gegnur undir sakleysislegu nafni, Æsseif.
Sigurður Þórðarson, 20.9.2009 kl. 23:50
Hvaða bull er þetta? Landsfundur leggur vissulega stefnuna í stefnumótun flokksins. Það er hinsvegar brot á stjórnarskrá að banna þingmönnum að kjósa eftir samvisku sinni. Þú gleymir því að vissulega er mikill meirihluti Sjálfstæðismanna mótfallinn ESB aðild en hvað um hina? Þeir eru kannski trúir sjálfstæðisstefnunni en hafa orðið undir varðandi niðurstöðu Landsfundar. Sjálfstæðisflokkurinn þolir alveg að einhverjir hafi aðra skoðun varðandi einhver einstök málefni. Þú gleymir því að kannski fékk varaformaðurinn heilmörg atkvæði út á skoðun sína varðandi ESB. Guðbjörn er alveg jafn sannur Sjálfstæðismaður og þú og ég þó hann hafi ekki skoðanir innprentaðar algjörlega 100% eftir stefnuskrá flokksins. Hvernig myndast stefnuskrá flokksins? - Jú eftir skoðanaskipti og rökræður þar sem meirihluti verður ofaná. Ekki endilega 100% fundarmanna.
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 21.9.2009 kl. 11:12
Adda
Flokkurinn er apparat sem kemur fram sem heild. Menn sem eru kosnir fyrir hann og á hans vegum verða að láta prívatskoðanir til hliðar þegar flokkurinn þarf að beita afli sínu í atkvæðagreiðslum. Það er svo sem allt í lagi ef einstaka þingmaður vill riskikéra trausti sínu meðal flokksmanna með því að greiða atkvæði móti flokknum þegar það skiptir engu máli fyrir útkomuna. En þú ert kosinn fyrir flokk og átt því að sýna honum trúnað. Allt hitt er bara bull í þér sem fávísrar konu. Annaðhvort ertu flokksmaður eða þú ert ekki flokksmaður. Ef þú ert ekki Sjálfstæðismaður þá skaltu bara halda þig annarsstaðar.
Halldór Jónsson, 22.9.2009 kl. 07:43
Halldór mér þykir þú æstur mjög. Það má vel vera að ég sé mjög fávís kona eins og þú segir en ég hef réttlætistilfinningu. Ég er sammála því að styrkur Sjálfstæðisflokksins hefur verið sá að rifist er á landsfundi og svo standa allir sem einn að baki niðurstöðunni. Ef ég væri þingmaður myndi ég kjósa eftir stefnuskrá flokksins í veigamestu atriðunum.Samkvæmt stjórnarskrá er hinsvegar þingmanni óheimilt að greiða atkvæði gegn samvisku sinni. Hitt er annað mál að Guðbjörn er ekki þingmaður og má því alveg lýsa skoðunum sínum. Ekki það að Guðbjörn er fullfær um að verja sig sjálfur. Ég sjálf er ekki hlynnt aðild að ESB og mér finnst að það sem sé að í Sjálfstæðisflokknum sé virðing við konur. Hvernig hlutfall mætir t.d. á fundi? Það er kannski ekki skrítið ef þær eiga von á því að vera kallaðar fávísar ef þær voga sér að halda fram sinni skoðun og eru þá kallaðar fávísar.
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 22.9.2009 kl. 08:33
Ja hérna ég biðst afsökunar fyrir orðasalatið í fyrra svari. Þetta kom út eins og ég væri í raun mjög fávís kona. Þetta átti að vera: Það sem vantar í Sjálfstæðisflokknum er að hann sé kvenvænni. Hvernig hlutfall kynja mætir t.d. á fundi? Kannski ekki skrítið að það sé svona ef þær mega eiga von á því að vera kallaðar fávísar konum í hvert sinn sem þær dirfast að láta skoðanir sínar í ljós. Eigðu góðan dag Halldór, rólegan og góðan.
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 22.9.2009 kl. 08:40
Góðir dagar eru ekki rólegir dagar og lognmolla. Átök er það sem þarf í lífið. Sjálfstæðisflokkurinn er kvenvænn. Það eru konur sem eru ekki nógu flokksvænar. þær eru bara miklu latari en kallar að mæta á fundum eða taka þátt í pólitísku starfi. Það hefur ekkert með flokkinn að gera, hann bíður með opna arma eftir fávísum konum til að leiða þær til þroska.
Halldór Jónsson, 22.9.2009 kl. 18:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.