Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2017
21.4.2017 | 08:59
Marine Le Pen
hugsa ég að muni sigra í Frakklandi á sunnudag.
Af hverju?
Ég held að það sé af sömu ástæðum og Trump sigraði í Bandaríkjunum.Fólk er búið að fá nóg af að láta kerfiskurfana ljúga að sér. Allt talið um ESB og lausnir þaðan sýnir sig að skila 10 % atvinnuleysi meðal unga fólksins sérstaklega, sem ætlar nærri 40 % að kjósa Le Pen.
Marine boðar ákveðnar og harðar lausnir. Hún vill fá lyklana að Frakklandi aftur. Hún vill segja skilið við Evruna sem verður þó áreiðanlega ekki einfalt mál. En hún sér að eigin mynt getur leyst atvinnumál Frakka eins og þau gerðu það á Íslandi eftir hrunið.
Grikkland er vitinn sem blasir við á hinn veginn.Fólkið er hætt að trúa því sem er haldið fram opinberlega. Litli maðurinn hefur gleymst í Frakklandi eins og í Bandaríkjunum. Trump og Le Pen höfða líka til þjóðerniskenndarinnar sem kratastóðið hefur verið að selja á útsölu áratugum saman. Evrópusambandsflaggið verður aldrei sama og Tricoleur Napóleons. Frakkar eru ekki búnir að gleyma allri sögu sinni frekar en Bandaríkjamenn.Þeir sætta sig ekki lengur við að spila 2.fiðlu með Þjóðverjum.
Le Pen er orðin jafn leið og við Íslendingar á hælisleitenda-og múslímadekrinu og sífellda kratabullinu um að þjóðernið sé einskis virði.Hún ætlar að gera eitthvað í því þó við Íslendingar gerum ekkert nema að ræflast áfram í aðgerðaleysinu og aumingjahætti embættismannanna sem Brüssel stjórnar.
Marine Le Pen mun verða Forseti Frakklands að mínu viti.
20.4.2017 | 16:09
Aufúsu-Gestur
Ólafsson arkitekt skrifar þarflega grein í Mogga í dag. Fyrir kommatittina sem ekki lesa Mogga af trúarástæðum þá er ástæða til að vekja athygli á því hvert aulastefna Borgarstjórnarmeirihlutans er að leiða höfuðborg landsins í boði Píratans Halldórs Auðars Svandssonar sem heldur skipulagsstefnu Hjálmars Sveinssonar Highschool-Graduate frá USA og aðalskipulagsfræðings Reykjavíkurborgar og Dags Bergþórusonar í gildi.En eyðibýlastefna þeirra kumpána er að rústa höfuðborgarhlutverki Reykjavíkur sem mun taka langan tíma að endurheimta.
Gestur Ólafsson skrifar:
"Undanfarna áratugi hefur þróun höfuðborgarinnar okkar verið með dálítið sérstökum hætti. Þau atriði sem áður gerðu Reykjavík að óumdeildri höfuðborg landsins voru meðal annars gott stofnbrauta-, samgöngu- og flutningakerfi auk þess sem helstu sérfræðingar landsins, stofnanir, stjórnsýsla og höfuðstöðvar fyrirtækja áttu þar heimili. Upp úr því var lagt að hjá Reykjavíkurborg störfuðu helstu sérfræðingar landsins og þar var líka helsta miðstöð sérhæfðrar verslunar og þjónustu.
Síðan fór að fjara undan þessari stöðu borgarinnar bæði vegna aðgerða og aðgerðaleysis ráðamanna borgarinnar og Alþingis. Sem dæmi má nefna að Suðurlandsvegur, sem átti að tengjast bæði Reykjanesbraut og Kringlumýrarbraut, var sveigður niður á Vesturlandsveg og Ártúnsbrekku án þess að nokkuð kæmi í staðinn. Sundabraut, sem hefði opnað fyrir þróun borgarinnar til norðurs og hefði átt að hafa verið lögð fyrir mörgum áratugum, var einfaldlega ekki lögð þótt hún hefði opnað fjölbreytta möguleika borgarinnar og gert hana aðgengilegri fyrir sveitarfélög á Vesturlandi. Afleiðingin hefur ekki látið á sér standa. Það er ástæða fyrir því að forráðamenn IKEA ákváðu að flytja starfsemi sína úr Reykjavík í Garðabæ. Fyrirtækið Costco vill líka vera þar og nýverið flutti Íslandsbanki líka höfuðstöðvar sínar úr Reykjavík í Kópavog, svo nokkur dæmi séu nefnd. Mörgum ungum og öldnum Reykvíkingum finnst líka vænlegra þessi árin að reyna að koma sér upp þaki yfir höfuðið í aðliggjandi sveitarfélögum en í Reykjavík.
Nú kann vel að vera að stefna ráðamanna í Reykjavík sé að reyna að hemja anda framkvæmda og framfara í flösku þráhyggju og þröngsýni, eins og anda Aladdíns, en viðbúið er að fólk og fyrirtæki sem finnst að sér þrengt leiti þá bara á gjöfulli slóðir.
Um þetta hafa Reykvíkingar lítið að segja því skipulagsvaldið er jú í höndum sveitarstjórnarmanna, a.m.k. í orði kveðnu. Íbúar Reykjavíkur fá bara að borga reikningana sína og bíða í umferðarteppunum og fara á mis við þá möguleika sem gott, faglegt skipulag hefði getað opnað. Við Íslendingar erum þó rukkaðir fyrir hátt á fjórða hundrað milljónir í skipulagsgjald á ári og fyrir þá upphæð gætum við fengið talsverða vinnu fyrir vel menntaða sérfræðinga í skipulagsmálum, þótt brjóstvitið sé líka alltaf yndislegt.
Nútímaskipulag er orðið, ef vel á að vera, talsvert viðameira og flóknara en fallegar teikningar af marglitum húsum með grasþökum - að þeim annars ólöstuðum. Vel meinandi ráðamönnum er auðvitað frjálst að trúa hverju sem þeir vilja en kannski átta Reykvíkingar sig á því þegar lengra verður liðið á 21. öldina og þegar þeir fá reikninginn hvaða tækifæri hafa farið í súginn. Við ættum samt ekki að þurfa mörg Vaðlaheiðargöng til þess.
Í grundvallaratriðum snúast þessi mál um það hvernig við sem samfélag getum sett okkur skynsamleg, framkvæmanleg markmið og hvernig við getum best notað takmarkaða fjármuni, þekkingu og tíma til þess að ná þeim. Þannig raunhæf stefna eða skipulag verður samt ekki til af sjálfu sér og hún á lítið skylt við þau villuljós sem margir ráðamenn hafa elt undanfarna áratugi.
Við getum samt ennþá í sameiningu losað um tappann í þróun Reykjavíkur, bæði til norðurs og suðurs yfir Skerjafjörð, og horft á þessi mál með opnum, ferskum augum. Mikilvægur þáttur í þannig stefnu gæti verið að leggja Sundabraut sem fyrst og þar með grunn að fyrirtækjum framtíðarinnar og stórkostlegri íbúðarbyggð með útivistarmöguleikum bæði til lands og sjávar. Með þessu væri líka hamin hækkun íbúðaverðs í grónum hverfum borgarinnar. En þannig stefnubreyting vex ekki á trjánum og hugsanlega er þessi tappi ekki bara efnislegur heldur líka huglægur.
Það er allt of auðvelt fyrir ráðamenn að hengja sjálfa sig og okkur í áratugagamlar vondar ákvarðanir sem fullyrt er að séu óumbreytanlegar, en svona fersk, fagleg stefnumörkun er algerlega nauðsynleg ef við viljum nýta þá möguleika vel sem Reykjavík og reyndar Ísland allt hafa enn upp á að bjóða."
Það þvælist fyrir mér hvort það sé virkilega fræðilegur möguleiki á því að Reykvíkingar muni endurkjósa meirihlutann sem nú ræður Reykjavík? Ef það gerðist þá verður það aðeins Sjálfstæðisflokknum að kenna. Hann hefur þá ekki boðið upp á neinn sannfærandi valkost annan.
Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða upp á í komandi kosningunum í Reykjavík? Ætlar flokkurinn að verða aufúsugestur í kjörklefanum?
20.4.2017 | 12:51
Ungur maður byggir
Ungur maður byggir
Ungur maður með 4 manna fjölskyldu, nýbúinn að læra rafvirkjun, þarf einhvers staðar að búa. Hvað getur hann gert?
Leigt íbúð á 200.000 kr? Borga skatta. Vinna myrkrana á milli. Kaupa allt sem ung fjölskylda þarfnast og börnin og konan vinnur úti.Gott heimilislíf en enginn afgangur. Er þetta framtíðin spyr hann sig?
Greiðslumatið fleygði honum umsvifalaust á dyr. Eignalaus ræfill sem enga vexti getur borgað. Farðu út og komdu aldrei aftur. Þú getur ekkert keypt .Aldrei!
Ertu bara ekki alveg vonlaus spyr hann sjálfan sig í þunglyndi .
Er til leið?
Hann á pabba sem á fyrirtæki sem hann vinnur hjá. Gott lítið en traust fyrirtæki með hreina kennitölu getur fengið lán eins og það vill hjá fjármálafyrirtækjum sem lána út lífeyrissjóðspeninga.Ekkert greiðslumat fyrir fyrirtæki.
Hann á afa sem kann eitthvað að teikna. Hann á tvær vinnufúsar hendur og vilja til að koma sér áfram. Hann á fjölskyldu sem vill rétta fram hjálparhönd. Hann á tengdapabba sem er þaulreyndur húsasmíðameistari. Ungi maðurinn fær inni í gamalli íbúð hjá honum til bráðabirgða.
Lóð?
Eru til lóðir að byggja á. Jú, kosta víst hátt í 20 milljónir víðast á höfuðborgarsvæðinu. Engar til í Reykjavík, það er þó einfalt. Og verða ekki samkvæmt stefnu Dags Bergþórusonar.
Er það stefna sveitarfélaganna til þess að laða til sín skattgreiðendur framtíðarinnar að hafa lóðirnar svo dýrar að unga fólkið geti ekki keypt þær? En stóru verktakafyrirtækin sitja ein að lóðunum með aðgang að fjármagni. Ókeypis lóðir eru í hinsvegar í boði á Hornafirði. þar skilja menn á hverju framtíðin byggist.
Nógar íbúðir ef þú átt pening. Þú átt hann bara ekki og færð hann heldur ekki að láni af þvi að þú átt hann ekki segja stúlkurnar í greiðslumatinu.
Smáíbúðahverfi fyrir sjálfbyggjara eru hvergi til. Enginn sveitarstjórnamaður virðist þekkja söguna frá í gamla daga. Mannvirkjastofnun bætir svo við kröfum ofan á kröfur til að þóknast EES. Gerir allt þriðjungi dýrara vegna kratabullsins sem tröllríður þjóðfélaginu. Allt til aðauka ánægjuna fyrir unga fólkið heima á Hótel Mömmu.
Gámahús má hvergi hafa. Starlight Ranch í Orlando væri fljótur að seljast hér þar sem einbýlishúsin kosta minna en 10 milljónir í fullbúni grónu og malbikuðu hverfi. Húsin frá Stólpa-Gámum eru betri en þau hús og ekkert dýrari. Er ekki um að gera fyrir ungt og ástfangið fólk að geta byrjað einhversstaðar.
Það finnst loks fyrirheitna landið í gamalli illseljanlegri lóð í Mosfellsbæ. Fyrirtæki pabba slær lán fyrir fylltri byggingarklárri lóð í Mosfellsbæ á 8 miljónir. Afi teiknar hús með unga fólkinu. Það er samþykkt timburhús og það er byrjað um vorið 2016. Fjölskyldan vinnur um helgar og kvöld. Engin vinna borguð út.
Hvernig er húsið núna, ári eftir að framkvæmdir hófust? 217 m2 með nógu framtíðarplássi þó fjölskyldan stækki.Helgar-og kvöldvinna fjölskyldunnar.
Og hvað kostar það svo vill einhver vita? Það er verið að vona að það verði ekki búið að leggja út meira og skulda en hundraðþúsundkall á fermetrann þegar flutt verður inn.
Viðráðanlegt ef vinnuþrekið helst. Það er ýmislegt hægt ef viljinn er fyrir hendi? -
19.4.2017 | 09:49
Fyrir hverja er Landsbankinn?
Fyrir starfsfólkið sem stundar sjálftöku á bónusum?
Eru þeir ekki núna að hesthúsa hagnað af sölu hlutabréfa sem þeir gáfu sjálfum sér af þjóðareigninni sem er bankinn með hurðum og gluggum?
Ég átti þennan banka áður en ríkið stal honum af mér á þeim forsendum að hann væri kominn á hausinn. Var hann nokkurn tímann settur í skiptameðferð samkvæmt lögum? Hanga ekki málverkin enn á sínum stað? Af hverju eiga starfsmennirnir þau en ég ekki neitt?
Fyrir mér er þetta bara þjófnaður um hábjartan dag?Svona svipað og að ræna Apótek án þess að brúka exi?
Sveiattan. Virðast Landsbankinn og aðrar fjármálastofnanir ekki bara vera til fyrir sjálftöku-bónusa handa einhverju starfsfólki? Ekki stundum kallað fjárdráttur annarsstaðar í viðskiptalífinu?
Svo tala þeir um að það þurfi að byggja upp traust á fjármálasviðinu?
Traust á hverju? Sjálftöku-Bónusum?
Hvar verður traustið á Arion-banka í eigu mútugreiðenda og Afríku-reyfara?
Fyrir hverja er samfélagsbankinn Landsbankinn?
17.4.2017 | 17:28
Hrikaleg mynd
var í sjónvarpinu hér áðan.
Hún sýnir hvert umhverfisfasisminn er að leiða mannkynið.Fólk sveltur um allan heim vegna dellu sem hefur heltekið pólitíska þrýstihópa og sértrúarsöfnuði á umhverfissviði um víða veröld.
Einn þekktasti spámaður þeirra er Al Gore sem þeysir um heiminn á sótspúandi einkaþotu að boða umhverfisvernd og minni losun gróðurhúsaloftegunda. Um leið og hann mokar fé í sína sjóði. Undantekningarlítið er góða fólkið í þessum söfnuði með Gore og heldur að að það sé að vinna mannkyninu gagn með því að berjast fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum eins og lífdísel og etanól framleiddum úr maís.
Þessu gleypum við Íslendingar við og leggjum píslir á okkar minnstu bræður með óheyrilegum kostnaði við eldsneytisíblöndun á grundvelli þessa trúarofstækis. Þetta fólk sér ekki samhengið á milli hungursins í Afríku, Carbon Recycling og lífdísilsins eða andstöðunnar við náttúrlega gasvinnslu og frakking.
Í stað þess að nota gnægðir olíunnar í jörðunni þá kemur það á fót styrkjakerfi sem veldur hungri og hörmungum um víða veröld. Hellisheiðarvirkjun er ein birtingarmynd dellunnar þegar heimskingjar fá of mikil völd til áhrifa á sviðum sem þeir hafa ekki hundsvit á. En þar kostar hvert selt kílówatt þrjú í kostnað fyrir skattgreiðendur.Og dýrð sé Ingibjörgu Sólrúnu og R-listanum um aldir alda og arftakanum Degi Bergþórusyni sem heldur ótrauður áfram á braut vitleysunnar.
Útblástursdellan og kolefnishryllingurinn er búið og á eftir að kosta mannkynið milljarða áður en það rennur upp fyrir því að orsakanna fyrir hnattrænni hlýnun er líklega allt annarsstaðar að leita en í mannlegri hegðun. Og mestar hörmungar vegna þessa eru sem fyrr lagðar á þá aumustu af aumum. Það er miklu líklegra að það sé sólin sjálf sem sé hinn stóri örlagavaldur mannkyns, það sé hún sem ræður örlögum okkar mannskyns til syvende og sidst og veðurfari um víða veröld.
Offjölgun frumstæðasta hluta mannskynsins og vesöld þess í framhaldi er hinsvegar sú ógn sem er mest um þessar mundir. Örfáir spekingar leyfa sér að halda því fram sem sannleika að mannkynið skuli endilega verða ellefu milljarðar áður en lýkur. Gegn því megi ekki berjast á neinn hátt.
Umhverfisfasisminn gengur samt þvert á þessa kenningu þar sem hann vinnur að því öllum árum að auka hungur og harðræði í heiminum og auka á fátækt og hörmungar.
Því miður er heimskan og forstokkunin enn í framrás í heiminum og býr vandamál í stað þess að leysa þau. Vonandi hefur þessi hrikalega mynd opnað augun á einhverjum sem vilja hugsa út fyrir hinn forskrifaða ramma.
16.4.2017 | 11:43
Hversvegna er maður ekki vinstri maður?
Það er auðskilið þegar maður virðir fyrir sér innbúðarástandið hjá vinstri mönnum.þar er alltaf hver höndin upp á móti annarri og hver kennir öðrum um ástandið. Öllum nema sjálfum sér.
Svona gerir Karl Th.Birgisson upp við sína samstarfsmenn:
Gott á pakkið
Súrrealískt. Það er eina orðið sem nær utan um þetta.
Nei, ekki að Samfylkingunni hafi tekizt að koma fylgi sínu niður fyrir sex prósent. Ekki bara það.
Heldur hitt, að allir þingmenn flokksins koma úr landsbyggðarkjördæmum.
Jú, ég veit að ´allir´ er heldur rausnarlegt fyrir þrjá, en þessi er nú staðreyndin samt.
Flokkurinn sem hefur alltaf átt undir högg að sækja í landsbyggðunum hann á núna bara þingmenn þaðan.
Það er ekki bara súrrealískt, heldur eitthvað svo viðeigandi líka.
Einn af þykkustu þráðunum í örlagavef Samfylkingarinnar spann nefnilega Reykjavíkurpakkið.
(Jájá, ég veit líka að þetta er ekki fallegt orð. Það er samt svo skemmtilega lýsandi. Súkkat-bræður sungu um þetta fólk og voru langt á undan sinni samtíð. Og ef ykkur þykir orðið dónalegt, þakkið þá bara fyrir að ég nota ekki skítapakk eins og Vilmundur kallaði suma samflokksmenn sína hér um árið.)
Hvernig er Reykjavíkurpakkið? Það er til dæmis af þeirri tegund sem hafði alltaf illan bifur á Kristjáni Möller, af því að hann skildi að jafnaðarstefnan á að ná til byggðanna líka, ekki bara kynjanna eða skattbyrðarinnar. Þau fussuðu og frussuðu, þótt gegnheilli jafnaðarmaður en Kristján sé vandfundinn. Hann var ekki nógu fínn fyrir pakkið.
Þetta er líka fólkið sem fór á taugum í Hruninu. Þau görguðu hæst einmitt þegar yfirvegunar var þörf. Þau voru enn í taugaáfalli þegar endurreisnin átti sér stað 2009-2013.
Í stað þess að standa hnarreist, finna til ábyrgðar sinnar og ganga til verka lögðust þau í naflaskoðun. Skrifuðu skýrslur þar sem mátti eiginlega lesa að Samfylkingin hefði valdið Hruninu. Skipulag hennar og vinnubrögð.
Þegar mest þurfti við var þetta fólk til einskis gagns. Það var of upptekið með hausinn í klofinu á sér, að finna sökudólga þar sem enga var að finna, að loka flokknum þegar mest reið á að opna hann, að stunda mea culpa sjálfspíslir þegar nauðsyn var á fólki til verka.
Á meðan aðrir stóðu sótugir upp í hársrætur í brunarústabjörgun kyntu þau undir aðför að Steinunni Valdísi Óskarsdóttur. Þau lyftu ekki litlafingri henni til varnar þegar setið var um heimili hennar. Þau lögðu Björgvin G. Sigurðsson í einelti og gera enn, eina manninn sem axlaði ítrekað pólitíska ábyrgð á atburðum sem hann tók engar ákvarðanir um. Þau töldu líka landsdómsmálið vera meðal stærstu réttlætisverka jafnaðarmanna á seinni árum.
Þegar fylgi flokksins var loks farið að hjarna við þótti þeim tímabært að reyna að steypa forystunni með sólarhrings fyrirvara á landsfundi, þvert á hina merku lýðræðishefð um að formann skuli kjósa í almennri kosningu allra félagsmanna. Sú aðgerð ein segir allt um dómgreind Reykjavíkurpakksins.
Smám saman tókst þeim að fæla æ fleiri frá flokknum, með lokuðum prófkjörum, kvótum og girðingum sem allur almenningur hló að. Og þeim tókst færa flokkinn svo langt til vinstri að hann gleymdi erindi sínu. Þegar öllu er á botninn hvolft líkar þeim betur við hið þrönga erindi Vinstri grænna en sitt eigið.
Þegar pakkið tekur síðan að sér að reka kosningabaráttu er útkoman fyrirsjáanleg. Erindið er ekkert, utan loforðið um að greiða fyrirfram skaðabætur fyrir krónuna. Annars almennt hjal um gott samfélag og réttlæti. Ekkert sem hönd á festi. Enginn baráttuandi, ekkert pönk, engin uppreisn gegn Panamastjórninni. Og enginn sem kunni til verka svo að séð yrði.
Helzt að látin væri í ljós mjóróma bón um að fá að vera aftursætisfarþegi með öðrum flokkum í bíl sem enginn vissi hvert var að fara.
Kjarninn í sjálfsmynd pakksins er þessi: Við erum æðisleg, aðallega þó svo gott fólk, en samt alveg ómöguleg. Við þurfum að breyta skipulaginu. Lögunum. Reisa fleiri girðingar. Finna sökudólga. Við fáum ekkert fylgi án þess að taka til í eigin ranni. Um þetta hafa þau talað látlaust í átta ár. Með þessum líka árangrinum.
Og einmitt þar liggur stóri misskilningurinn. Samfylkingunni gekk bara bærilega, takk fyrir, áður en taugahrúgurnar sem eru uppistaðan í Reykjavíkurpakkinu náðu tökum á umræðu innan flokksins. Þið flettið bara fylgistölunum upp.
Fallega kaldhæðnin er þó sú, að Kristján Möller öðrum fremur tryggði flokknum það fylgi á landsbyggðinni sem hann hjarir nú á. Kristján kann nefnilega að vinna kosningar.
Og reykvíska sjálfsásakanainnantökusökudólgaleitandi liðið er þingmannslaust.
Hversu póetískt getur réttlætið orðið?
Fyrirsögn þessa kurteislega pistils var lífsmottó Dags Sigurðarsonar. Hann var líka langt á undan sinni samtíð.
Rétt eins og Súkkat.
Karl Th. Birgisson
Og að hugsa sér að nú ætlar Gunnar Smári Egilsson að fara að stofna kommúnistaflokk til vinstri við Þorvald og hálfhring fyrir aftan Samfylkinguna sem átti að sameina allt réttlætið í einum flokki.Flokki sem fyrirleit okkur íhaldsmennina sem voru svo vitlausir að láta teyma okkur áfram í þágu sérhagsmunanna og finnast ranglætið rétt.Eftir gjaldþrotasögu og peningabetl Gunnars Smára þá er þetta þvílíkur kjarkur sem þessi maður sýnir að maður hlýtur að taka ofan.
Hvar er þetta skelfilega ónýta Ísland sem þetta lið ætlar að berjast fyrir? Viðreisn landsins í ESB og upptaka Evru? Afnám kvótakerfisins og útgerð fyrir alla? Hengja alla Panamaþrjóta. Öfund, hatur og tortryggni til æðstu metorða? Fleiri múslíma til landsins, niður með þjóðernið, tunguna og menninguna. Niður með allt sem við áður þekktum.
Er það þess vegna sem maður er ekki vinstri maður?
15.4.2017 | 17:02
Hver á að borga?
skemmdirnar á veginum frá Geysi að Gullfossi?
Þarna eru ferðatrukkarnir búnir að gereyðileggja veginn þannig að hann er nánast ófær nema að keyra í fyrsta í lága eins og það var kallað í gamla daga. Þetta eru bara katlar og hvörf og eiginlega ætti þessi wegur að vera lokaður og merktur ófær.
Ferðamálafrömuðurnir sem ekkert vilja borga í virðisaukaskatt eru búnir að eyðileggja veginn. Og þykjast bara að vera að hjálpa þjóðinni.
En er nú ekki rétt að spyrja hver á að borga? Bara þjóðin, ekki ferðamálafyrirtækin? Bara setja allt á fjárlög en ekki taka neinstaðar gjald?
Spekingar segja að það sé bannað með lögum að taka gjald fyrir aðgang að þjóðareign og vísa í Hæstarétt. Er þá ekki kominn tími til að breyta því og fara að rukka inn fyrir kostnaði?
Þarna blasir við milljónatuga tjón á vegakerfinu. Er ekki rétt að einhverjir fái rukkun aðrir en ég og þú?
Hver á að borga fyrir átroðninginn á þessum ferðmannastöðum? Allir nema bara ekki ferðamálafantarnir?
14.4.2017 | 18:14
Vilja Íslendingar flóttamenn?
frá Mið-Austurlöndum og Afríku til landsins?
Fréttir frá Póllandi herma að Pólverjar séu eindregið andsnúnir slíkri viðurtöku. Afstaða þeirra sé þó mun jákvæðari þegar kemur til kaukasísks fólks, það er að segja hvíts fólks.Pólverjar hafa enda ekki tekið við neinum flóttamönnum frá þessum löndum þó að ESB krefjist þess.
Skyldi vera bannað að spyrja Íslendinga um afstöðu þeirra til samskonar spurninga? Er forboðið að hafa skoðanir á tegundum flóttamanna og hælisleitenda?
Hafa Íslendingar yfirhöfuð verið spurðir um afstöðu til þessara innflytjendamála? Eru einhverjir hópar fólks hérlendis sem annast alla afgreiðslu slíkra mála fyrir okkur án þess að þjóðin hafi nokkuð um það að segja?
Vilja Íslendingar flóttamenn yfirhöfuð?
14.4.2017 | 15:41
Til hvers var Geysisvæðið keypt?
ef ekki á að selja inn?
Á virkilega að hafa svæðið gjaldfrítt enn eitt árið?
Ríkið á svæðið allt núna og ber því þá ekki skylda til að sinna því? þarf ekki að binda enda á hirðuleysið? Reyna að gera eitthvað til að lyfta því?
Þarf ekki að selja inn um hliðið, hvort sem maðurinn heitir Ögmundur eða eitthvað annað? Er ekki rétt að allir verði að borga inn til viðhalds svæðisins? Er það ekki nægilegt jafnrétti?
Til hvers var Geysissvæðið annars keypt?
12.4.2017 | 13:18
Bókmenntir
Á sínum tíma var mikið ritað og rætt um hlutabréfasölu í DeCode á gráa markaðnum hérlendis um fyrsta áratug aldarinnar. Margir græddu en líklega fleiri töpuðu.
En maður heyrði að margt hefði aldrei verið upplýst varðandi viðskipti dr. Kára og Hannesar Smárasonar varðandi meðferð umboðslauna af hlutabréfasölunni. Maður heyrði að RSK hefði elt þá í gegn um mörg lönd en slóðin hefði að lokum gufað upp í Panama, heimalandi Mosseck Fontesa.
Nú er dr. Kári í upplýsingarherferð gegn Engeyingum og Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins. Hann er greinilega að reyna að gera Bjarna tortryggilegan vegna viðskipta fjölskyldu hans. Það er eiginlega í gangi bókmenntaleg samkeppni í stílbrögðum þar sem dr. Kári á síðasta innslagið í Fréttó í dag í samkeppni við frábæran stíl Bjarna Einarssonar lögmanns.
En hefur dr. Kári einhvern tímann gert hreint fyrir sínum dyrum sjálfur fjármálalega varðandi DeCode á sínum tíma? Mér er svo sem slétt sama og ætla ekki þar að að koma. En eiga þeir sem búa í glerhúsi að kasta grjóti?
Þetta rakst ég á á netinu:
HUGARFYLGSNI dr.Kjartans:
Eftir að hafa lesið þessa frétt, þá fór ég að forvitnast um skattalega meðhöndlun í Panama. Smá gúggl leiddi mig inn á þessa síðu.
Þetta er nokkuð kostulegur vefur sökum þess að hann upplýsir fólk hvernig það á að framkvæma skattsvik með því að segja fólki nákvæmlega hvað það má alls ekki gera. Væntanlega er þetta skrifað í þessum stíl til að forðast hugsanlegar lögsóknir, en þeir mega eiga það að þessir fjármálamenn sýna ótrúlega hugkvæmni. Creative accounting er greinilega listform :)
Hér er til dæmis útskýring á því hvernig menn geta tekið peninga út úr offshore reikningum án þess að borga skatta með því að 'lána' sér peninga, en hætta svo að borga af láninu eftir 5-6 ár, þegar skylda til að geyma bókhaldsgögn rennur út. Þannig er hægt að má út sönnunargögnin, og varla ferð þú sjálfur að innheimta lánið sem þú gafst sjálfum þér:
Is there any way to bring money onshore and pay taxes later or never? How about a loan or mortgage? What if an offshore corporation was to lend you money, or give you a mortgage? To be a valid mortgage, you would have to pay interest payments of course just like a normal mortgage (or loan). The following is an illegal loophole we do NOT recommend to anyone. In fact, this is a good example of where tax planning can become tax evasion: After 6 or 7 years, depending on the jurisdiction, records can be destroyed legally (and should be!). After that period one could theoretically stop making payments and default on the mortgage. At that point the only person that would know would be the offshore corporation since it ceased to received payments. If the offshore corporation doesn't come after you for the money, who would? Your records would all be destroyed after 6 or 7 years so nobody would know.
POSTED BY KJARTAN AT 17:39
6 COMMENTS:
Nafnlaus said...
Mars 2004 (RÚV og DV):
Fé sem félagið Biotek Invest, frá Lúxemborg, fékk fyrir að selja hlutabréf í deCode rann til fyrirtækis í Panama sem nú er rannsakað vegna peningaþvættis. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Hannes Smárason aðstoðarforstjóri keyptu bréf í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins í gegnum félag sem var skráð á sama stað og Biotek Invest og er upprunnið í Panama. Þetta kemur fram í DV í dag. Kári Stefánsson segir þetta skáldskap sem hann svari ekki.
Upphaf málsins er að greint var frá því í DV í byrjun febrúar að deCode hefði borgað óþekktu fyrirtæki 400 miljónir króna í þóknun vegna sölu á 17%% hlut í deCode til Íslendinga. Þetta fyrirtæki, Biotek invest, var stofnað hálfum mánuði eftir að skrifað var undir samningana hér á landi. Annað fyrirtæki, Damato Enterprises í Panama, leysti Biotek invest síðan upp. Ekki hefur komið fram hvert hlutverk Biotek invest var við sölu á bréfunum í deCode hér á landi. Kári Stefánsson forstjóri neitaði því að nokkuð af þeim peningum hefði runnið til sín eða Hannesar aðstoðarforstjóra.
Skömmu eftir að Biotek invest var stofnað var nýtt félag stofnað á sama stað í Lúxemborg. Félagið heitir Lisfield Holding og notuðu Kári og Hannes félagið til að kaupa 3,5% hlut í Fjárfestingabanka atvinnulífsins fyrir um 800 miljónir króna, haustið 1999.
Aðstandendur og endurskoðendur Biotek og Lisfield eru sömu einstaklingar. Eigendur Lisfield eru tvö panamísk fyrirtæki. Damato Enterprises, sem leysti Biotek upp, er skráð til heimilis hjá Lögfræðifyrirtæki í Panama en lögfræðifyrirtækið er flækt í rannsókn á peningaþvætti í fjórum löndum. Þá eru stjórnarmenn í þeim félögum sem eiga Damato rannsakaðir vegna fjársvikamála í Perú og Nikarakúa.
Ekki hefur verið sýnt fram á bein tengsl milli Damato Enterprises, sem tengist rannsóknum á fjársvikamálum og peningaþvætti, og félaginu Lisfield Holding sem keypti hlut Kára og Hannesar í fjárfestingabankanum.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sendi frá sér yfirlýsingu í morgun. Þar segir hann fréttir af þessu máli líklega hafa verið skrifaðar til að gefa í skyn að þeir Hannes hefðu stundað vafasöm viðskipti með hlutabréf í deCode. Það sé skáldskapur sem hann svari ekki. Hann segir rétt að þeir Hannes hafi keypt hlut í Fjárfestingabankanaum en fjárfestingabankinn sjálfur hafi fjármagnað kaupin og þau hafi ekkert með suður-amerísk ríki að gera.
Kári segir að kaup á hlutabréfum í bankanum hafi verið gerð í gegnum fyrirtæki í Lúxemborg sem hafi haft þann einn tilgang að eiga bréfin enda hafi verið alsiða á þeim tíma að hýsa hlutabréfaeign í slíkum fyrirtækjum. - Rúv greinir frá.
Nafnlaus said...
Mikilvægt atriði er varðar Biotek Invest sem sjaldan er rætt er eftirfarandi:
Þegar Kári, Hannes, Bjarni Ármannsson og aðrir bankamenn sögðu þjóðinni frá markaðssetningunni á deCODE hlutabréfunum þá sögðu þeir að íslenskir bankar hefðu keypt bréfin, og að verðið hefði verið $15 á bréf. Frá þessu var greint í fjölmiðlum sumarið 1999, og á þennan hátt skýrðu bankarnir þetta fyrir viðskiptavinum sínum.
SEC skjölin sýna hins vegar að þeir voru að villa um fyrir almenningi. Þeir voru að ljúga að fólkinu sem þeir voru að markaðssetja bréfin til á s.k. gráum markaði.
Í fyrsta lagi voru bréfin ekki keypt af íslensku bönkunum; þau voru keypt af Biotek Invest. Í öðru lagi var verðið ekki $15; það var $7.50. Þetta kemur fram í S1 skjölunum sem eru aðgengileg hjá SEC.
Hins vegar var klausa í samningnum við Biotek Invest sem sagði að ef það tækist að halda hlutabréfaverðinu á gráa markaðnum yfir $15 til ársloka 1999, og Biotek Invest tækist að koma a.m.k. helming bréfanna til almennings, þá myndi Biotek Invest greiða deCODE $15 fyrir bréfið (samtals 5 milljón bréf). Tækist þetta allt þá fengi Biotek Invest 7% í þóknun sem eru umræddar 400 milljónir króna, sem fjallað er um í athugasemdinni hér að ofan.
Augljóslega var hér verið að svindla á skattinum og öðru, m.a. með hjálp ríkisbankanna. En grófasta svindlið er hins vegar þessi skilyrðisbundni samningur við Biotek Invest.
Með því að ljúga að almenningi að deCODE hefði selt bönkunum bréfin á $15 (þegar raunin var $7.50) beitti deCODE lygum til að pumpa upp verðið á gráa markaðnum sumarið 1999.
Og þar sem gífurlegir hagsmunir voru fyrir deCODE að fá $15 fyrir bréfin en ekki $7.50 er augljóst að öll PR starfsemi þeirra í gegnum fjölmiðla og sölustarfsemi bankanna frá sumri til enda 1999 beindist að því að halda verði bréfanna á gráa markaðnum yfir $15. Þetta tókst með miklum "ágætum".
Þessi skilyrðisbundni samningur var falinn gagnvart almenningi og því annað dæmi um blekkingar sem deCODE beitti til að hækka verð bréfanna, sem fór úr öllum böndum seinni hluta árs 1999.
Nú voru á þessum tíma í gildi almenn lög um góða viðskiptahætti, sem lögðu bann við því að hagnast í viðskiptum með því að veita misvísandi upplýsingar. Auk þess hafa allar þessar upplýsingar um svik deCODE legið fyrir frá þeim tíma sem deCODE var skráð hjá NASDAQ. Þess utan er ljóst að almenningur tapaði stórum fjármunum út af þessu svindli. Samt hafa stjórnvöld aldrei sýnt því áhuga að rannsaka eða kæra þetta mál.
Af hverju?
Var ekki verið að sakfella menn fyrir markaðsmisnotkun hér hægir og vinstri? Halda uppi röngu gengi á hlutafé?
Hvað gengur dr. Kára til að leggja núna upp í herferð gegn Sjálfstæðisflokknum og formanni hans? Hvaða hagsmunum er hann að berjast fyrir núna?
Þessi nýbyrjaða bókmnenntasaga er sjálfsagt ótengd hinni gömlu sem hér er rifjuð upp því hún er með öllu löngu fyrnd.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.4.2017 kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko