Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2017
31.8.2017 | 23:02
Áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum ??!!
sem ég á að vera virðist vera aðalatriðið í athugasemdum nafnlausu kommatittanna sem kalla sig virka í athugasemdum í netheimum og sjá ástæðu til að senda mér athugasemdir á mitt ómerkilega blogg. Hringja meira að segja í dóttur mína sem er í opinberu stjórnmálastarfi öfugt við mig og hóta henni pólitískum eldi og brennisteini ef kallinn sé að skrifa þetta sem þeim ekki líkar. Góða fólkið er virkilega að sanna sig að víðsýni sinni, góðvild og rökvísi.
Það þykist vera þess siðferðislega umkomið að geta dæmt Róbert Árna í ævilanga útlegð og starfsbann fyrir brot sem hann er búinn að afplána ýtrustu fengelsisirefsingu fyrir. Það er sallað á mig í DV og athugasemdum fyrir meinta siðferðisbresti að mati þessara stórmenna.
Þeim til upplýsingar er mér er slétt sama um svona gelt í hugleysingjum bak við dulnefni hvað þá það sem skrifað er í þetta DV. Ég hef bara sagt það sem mér finnst um málið og stend við það. Af umræðunni má ráða að Róberti Árna virðist ekkert hæfa nema dauðinn einn að mati þessa Góða fólks. Virkilega blóðþyrstur hópur er þetta lið. Engin fyrirgefning, ekkert vopnahlé, eilíf útskúfun, til andskotans með manninn og lengra ef hann kemst. Hvers á þessi dæmdi maður úrkosti? Verður hann ekki að fara af landi brott í ævilanga útlegð eins og var á Sturlungaöld?
Það er svo eftir öðru hjá þessu liði að auðvitað skal reynt að sverta Sjálfstæðisflokkinn af því að ég, af öllu fólki, leyfi mér að ræða um Róbert Árna þegar svo margir sækja að honum. Ég virðist til dæmis skipta miklu minna máli hjá DV og það sem ég skrifa heldur en að ég muni vera einhver áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum.
Aldrei hef ég upplifað það að mínar skoðanir hafi verið mikils metnar í þeim flokki enda á ég víst Íslandsmetið í því að falla í miðstjórnarkosningum á mörgum Landsfundum þess flokks. Áhrifamaður!. Tjui! Það var þá helst!
Þessi miðstjórnarkjör sýna auðvitað hvað þessi flokkur er greindur á Landsfundi. Enda er ég steinhættur að bjóða mig fram til starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrir löngu og horfi bara á sýninguna sem einhverjir aðrir áhrifamenn stjórna en ég.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
31.8.2017 | 10:58
Hvar er ættjarðarástin?
á hjá kommatittunum á Fréttablaðinu?
Svo skrifar Kjartan Hreinn Njálsson í blaðið það:
"Það fellur í skaut komandi kynslóða að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga.
Eftir rúmlega tvö hundruð ár af framförum og tilheyrandi losun gróðurhúsalofttegunda finnum við nú fyrir fyrstu hrinu áfalla sem rekja má til hnattrænna breytinga á veðrakerfum Jarðarinnar. Á komandi áratugum munu þessi áhrif magnast og verða sífellt skelfilegri fyrir samfélag mannanna og náttúruna sem við eigum tilvist okkar að þakka. Að óbreyttu mun hitastig plánetunnar halda áfram að hækka, með þurrkum, skógareldum og hitabylgjum. Fellibyljir verða öflugri og sjávarstaða mun hækka um 30 til 120 sentímetra fyrir árið 2100.
Þjóðir heims hafa sameinast um sögulegt samkomulag sem felur í sér að halda hnattrænni hlýnun vel undir tveimur gráðum (hlýnun miðað við tíma fyrir iðnbyltinguna er í kringum eina gráðu núna). Þó svo að lítið bóli á róttækum aðgerðum og óstöðugt stjórnmálaástand í nokkrum af helstu iðnríkjum heims ógni þessu markmiði, þá er ekki öll von úti.
Breytingar á loftslagi Jarðarinnar eru óumflýjanlegar, það eina sem við getum gert er að berjast fyrir því að halda þeim í lágmarki. Börnin okkar þurfa að heyja þessa baráttu á sama tíma og þau takast á við breyttan veruleika. Framlag einstaklingsins til að stemma stigu við losun gróðurhúsalofttegunda er takmarkað, en þó mikilvægt. Þjóðríkin, borgaryfirvöld og einkafyrirtækin verða að axla sína ábyrgð. Einstaklingarnir, ég og þú, getum með okkar litla framlagi mótað nauðsynlegan tíðaranda breytinga. Gjörðir okkar geta hraðað orkuskiptum og breytingum á þjóðmálastefnum sem annars tæki áratugi að ná í gegn.
Þannig þurfum við að hefja undirbúning unga fólksins fyrir þessa baráttu og útskýra fyrir því að gamlar og skynsamlegar hugmyndir eins og að flokka rusl eru ekki til þess fallnar að hafa mikil áhrif.
Til þess að hafa raunveruleg áhrif þarf komandi kynslóð að taka upp bíllausan lífsstíl, eignast færri börn, draga úr flugferðum og leggja meiri áherslu mataræði sem byggir á grænmeti. Sá sem neytir fyrst og fremst grænmetisfæðis leggur fjórum sinnum meira af mörkum til minnkunar losunar en sá sem aðeins flokkar og endurvinnur rusl. Þetta eru þær aðferðir sem skila mestu, bæði þegar horft er til losunar og áhrifa á stefnumörkun.
Þetta er þekking sem börnin okkar fá ekki á skoðanasíðum Fréttablaðsins. Þetta er þekking sem fæst með uppeldi og kennslu. Þar sem við gefum komandi kynslóðum breytt heimili í vöggugjöf, þá ættum við einnig að gefa þeim þekkinguna og viðhorfið sem þarf til að hafa áhrif á þann heim."
Á sama tíma vill þetta lið flytja inn fleiri hælisleitendur og flóttamenn frá óskyldum óþjóðum og skipta þannig u þjóð í landinu. Talar svo umm menningararf Íslendinga þess á milli!
Það fer ekki mikið fyrir ættjarðarástinni á Baugsmiðlinum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.8.2017 | 10:49
Hófsemi og yfirvegun
kemur fram í bréfi Gunnars Heiðarssonar til mín. Hann skrifar:
" Það er undarleg lenska sjálfskipuðu fræðimannanna á svið loftlagsfræða, að vilja alltaf miða við hvernig loftslagið var hér á jörðu í byrjun 20 aldar, undir lok litlu ísaldar.
Vill virkilega fólk hafa slíkt veðurfar á jörðinni? Þar sem uppskerubrestur var nánast árlegur, sökum kulda og siglingaleiðir lokaðar stórann hluta árs. Vilja Íslendingar fá aftur slíkt veðurfar, þegar hægt var að fara gangandi milli Akraness og Reykjavíkur á ís?
Það er engum blöðum um að flétta að veðurfar á jörðinni hefur batnað, frá lokum litlu ísaldar. Er það svo slæmt?
Hvert hið "rétta" hitastig jarðar skuli vera hefur enginn getað svarað, enda sennilega alltaf rétt hitastig á jörðinni, bara mis hátt.
Um ástæður þess hvers vegna hitastig hefur hækkað, frá lokum litlu ísaldar eru menn hins vegar ekki sammála.
Gróðapungar halda sínu fram og hafa keypt til sín fjölda "fræðinga" til að halda upp sínum málstað. Alvöru loftlagsfræðingar halda hins vegar fram að þetta skapist af náttúrulegum orsökum, að orsakavaldurinn sé fyrst og fremst sólin.
Hvað um það, þá má maður þakka fyrir að lifa svona góðæri. Hversu lengi það varir veit enginn, en vonandi að börn manns og barnabörn fá sem lengst að njóta þessa góða loftlags. Það mun kólna aftur."
Vilja okkar loftslagsspekingar úr röðum vinstri manna, aðallega úr VG, virkilega að við fáum aftur harðindaár með grasleysi?Vilja menn fá litlu ísöldina aftur þegar Ísland var nær óbyggilegt til landsins ár eftir ár?. Vilja menn hafís á Húnaflóa og túnakal ár eftir ár eins og var upp úr 1960?
Það væri gaman að vita hvað þeir telja eðlilegt árferði kommatittirnir? Þeir þekkja víst ekki hófsemi eða yfirvegun í loftslagsumræðum frekar en í þjóðfélagsréttlætinu, kjaramálum eða þessháttar.
31.8.2017 | 08:50
Sama króna notuð oft?
er hagfræði vinstri manna þegar kemur að góðverkum. Þeir virðast halda að getan til góðverka sé endalaus og sama krónan verði notuð að vild þeirra og óskhyggju.
Einar S. Hálfdánarson skrifar svo í Mogga dagsins:
"Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, segir það bull og lýðskrum að tengja aðstoð við flóttafólk og hælisleitendur við stöðu fátækra Íslendinga. Hættiði þessu rugli. Þetta er mannfjandsamleg skoðun og stórhættuleg, því hún gerir ekkert nema viðhalda fátækt, segir þingmaðurinn. Það tengist því jafn mikið og því sem stjórnarráðið eyði[r] í ljósritunarvél og malbikun í Berufjarðarbotni.
Af framansögðu má ljóst vera að þingmaðurinn er greindur vel og rökfastur eftir því. Hver lætur ekki sannfærast eftir lesturinn? Þjóðin á að hlusta þegar Kolbeinn tjáir sig um fjármál; þar er hann á heimavelli. Kolbeinn er ekki einn um þessa skoðun og málflutningur á borð við þennan er engan veginn einsdæmi. Þvert á móti býst ég við að meirihluti vinstrimanna deili svipuðum skoðunum.
Þjóðarkakan
Hið rétta er auðvitað að það sem stjórnarráðið eyðir í ljósritunarvél og malbikun í Berufjarðarbotni tengist. Fjármunir sem notaðir voru í Vaðlaheiðargöng eru farnir, sokknir. Landspítalinn eða eitthvert annað verkefni varð af þeim. Þeir sex milljarðar sem í ár fara í raunverulega flóttamenn og svo hina sem hingað koma í frítt fæði, þjónustu og uppihald verða ekki notaðir til annars.
Hver þjóð hefur nefnilega bara svonefndar þjóðartekjur til ráðstöfunar líkt og heimili ráðstöfunartekjur sínar. Þess vegna fer sá sem segir að fjármunina mætti nota til aðstoðar þurfandi hvorki með bull né lýðskrum. Og þeir sem átta sig ekki á samhenginu eru í slæmum málum.
Raunar er málflutningur Kolbeins talandi dæmi. Hann er rökþrota og grípur því til þvílíks málflutnings.
Almenningur áttar sig
Kona sem starfar við leigubifreiðaakstur greindi frá því um daginn á facebook að hún hefði nýlokið að keyra mann frá NorðurAfríku í læknisskoðun. Hann lét vel af sér. Þetta var þriðja landið sem hann gat þess við komuna að hann væri á flótta í. Þá opnast allar dyr og ekki síst á Íslandi. Hann er með frítt upphald, húsnæði, drjúga vasapeninga og heilbrigðisþjónustu (enginn biðlisti þar). Meira að segja tannlæknirinn er til reiðu. Með öðrum orðum þá er hann tekinn fram fyrir innfædda. Segi menn svo að hér sé ekki lengur gestrisni! Hvort ætli flóttamennirnir líti svo á að við séum virðingarverðir eða blábjánar?
Hvað finnst flóttamönnum?
Mér var sagt frá flóttamönnum sem hingað komu ekki alls fyrir löngu við illan leik. Þeir höfðu lent upp á kant við stjórnvöld í föðurlandi sínu. Þar er slíkt ekki tekið út með sældinni þar sem sjaríalögin eru í hávegum höfð. Á Íslandi sæta slík ríki ekki miklum ávirðingum; við geymum gagnrýnina handa Trump forseta. Það undraði þessa ungu menn að félagar þeirra í bústaðnum fyrir hælisleitendur virtust geta verið akandi og þar að auki stundað ýmsa svarta atvinnustarfsemi. Einhvern tíma þótti það ekki góð latína á vinstri bæjum. En eins og svo oft á Íslandi þá er mælikvarðinn lagaður að viðfangsefninu.
Sveinbjörg Birna
Hún Sveinbjörg Birna vandaði sig ekki um daginn þegar hún vék gagnrýnisorðum að málefnum flóttamann og fékk makleg málagjöld. Norðmenn afgreiða Albani og slíka á einum degi. Oft þegar maður kemur á Fornebu frá Austur-Evrópu fer enginn frá borði nema sýna vegabréf. (Norðmenn eru í Schengen, það stoppar ekki almenna skynsemi þar). Lögreglan afgreiðir svo málið. Enginn dómari og Rauði krossinn að sinna öðru.
Málgagnið mbl.is fékk vitnisburð um hversu miklu betur við stæðum okkur. Hér stæði þeim allt til boða. Nema hvað? Hér er Unnur Brá gerð að forseta Alþingis fyrir gott fordæmi. "
Sokkinn kostnaður er hugtak sem vinstri menn skilja ekki. Þeir halda að það sé bara nóg að benda á vandamálin og þá sé hægt að leysa þau með sömu krónunni.
31.8.2017 | 08:01
Heimsendaspámenn
rjúka upp og segja:
QED, allt vegna losunar á gróðurhúsalofti!
Í fréttunum í gær kom fram að eigg skemmtiferðaskip í tómagangi í Sundahöfn losar jafnmikið og allir bílafloti landsmann á einni viku. Hvað losar það þegar það fer í gang að sigla? Iðullega 3 í einu í höfninni allt sumarið.
Aðeins 17 stóru gámaskipin á höfunum losa jafnmikið og allur bílafloti jarðarinnar. Okkar túrismi lifir mikið á fluginu. Þar uppi er losunin mun skilvirkari og áhrifameiri. Bílarnir okkar mælast varla í þeim samanburði
En eins og þetta línurit segir er engin ástæða til að draga þá ályktun að Harvey í Texas sé einhver birtingarmynd losunar manna á CO2. Þetta er náttúrlegt fyrirbrigði þar sem óheppilegar aðstæður raðast saman.
Trump mun ekki láta heimsendaspámennina trufla sig eða fara að hlusta meira á fjörtíuþúsund fífl gróðapungsins AlGore frá París.
30.8.2017 | 19:41
Er ekki komið að Íslendingum
að senda Bandaríkjamönnum aðstoð vegna flóðana í Texas?
Ekki stóð á þeim að hjálpa okkur þegar gaus í Vestmannaeyjum svo dæmi sé tekið.
Er ekki rétt að við gerum eitthvað núna Íslendingar?
30.8.2017 | 08:49
Berufsverbot?
eða svipting atvinnuþekkingar virðist vera efst á baugi hjá þeim sem djöflast á Róberti Árna.
Maður þessi beitti engan ofbeldi, nauðgaði engum heldur keypti sér það sem hann gat keypt.Sem ekki var sjálfsagt við hæfi.
Hann er stöðugt milli tannanna á góða fólkinu vegna þess að hann er lærður lögfræðingur og má aftur vinna á þeim vettvangi. Hann mætti til dæmis rukka alveg eins og að dæma í sakamálum. Nei, hann skal skila ærunni aftur og vera hrakinn allstaðar.
Annar maður nauðgaði fósturdóttur sinni nær daglega til fullorðinsára. Hann fékk líka uppreisn æru um leið og Róbert Árni. Hans nafns er hvergi getið. Fæstir vita hver hann er eða hvað hann má gera og ekki gera. Öllu góða fólkinu virðist sama um það. Er hann betri eða verri en Róbert Árni?
Gyðingar sættu Berfufsverbot(sviptingu atvinnuréttinda) í þriðja ríkinu. Er góða fólkið hér eitthvað betra?
30.8.2017 | 08:37
Skurðstofur eða skemmtiskokk
á Vestfjörðum?
Tveir læknar, Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson og skrifa í Fréttó um alla fossana sem þeir vilja hafa ósnerta á Vestfjörðum.
Geta þeir hugsað sér að standa uppi straumlausir á skurðstofum á Ísafirði ef þeir þyrftu að fara að vinna á Vestfjörðum í stað þessa að skemmtiskokka?
Eiga Vestfirðingar ekki að að fá rafmagn til nauðsynlegrar starfsemi vegna þess að einhverjir spéfuglar að sunnan vilja glápa á einhverja fossa á Vestfjörðum? Ætlum við ekki að búa í þessu landi öllu með því sem nútíminn krefst?
Til þess þarf rafmagn í skurðstofur sem aðra starfsemi nútíma samfélags, ekki bara skemmtiskokk með bakpoka.
30.8.2017 | 08:25
Hvað gerir Sue Ellen næst?
mun J.R. jafna um Clive?
Katrín Jakobs skrifar í Fréttó um framtíðina í stjórnmálunum:
"Heilbrigðisráðherra var á vorþingi þráspurður um það hvert hann hygðist stefna hvað varðar einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Ráðherrann margítrekaði að ekki stæði til að fara í neinar grundvallarbreytingar á heilbrigðiskerfinu eða að auka stórkostlega við einkarekstur í kerfinu. Nú lítur hins vegar út fyrir að flokkur heilbrigðisráðherra, Björt framtíð, sem talaði mjög fyrir kerfisbreytingum á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar fyrir kosningar, ætli sér fyrst og fremst kerfisbreytingar í átt til aukins einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu.
Aðrar kerfisbreytingar hafa gufað upp. Þannig bárust í síðustu viku fréttir af því að Sjúkratryggingar Íslands hygðust semja við Klíníkina við Ármúlann um brjóstnám og brjóstauppbyggingu á konum sem greinast með BRCA-genið.
Hingað til hafa þessar aðgerðir sem krefjast innlagnar og kalla á sérhæfða þjónustu eingöngu verið gerðar á Landspítalanum en Klíníkin hefur lengi sóst eftir samningi um þessar aðgerðir eins og fjallað hefur verið um á opinberum vettvangi og vísað til langra biðlista á spítalanum. Því var hafnað af síðasta heilbrigðisráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni. En nú er ákveðið á vakt Bjartrar framtíðar að semja við einkaaðila og opna þar með á enn frekari einkavæðingu í heilbrigðisþjónustunni.
Fram undan eru fleiri stórar ákvarðanir. Hvað mun heilbrigðisráðherra gera þegar kemur að ákvörðun um rekstur sjúkrahótels sem nú er verið að reisa á lóð Landspítalans við Hringbraut?
Mun hann fela Landspítalanum rekstur þess eins og spítalinn hefur sjálfur óskað eftir?
Eða bjóða reksturinn út til að færa enn stærri hluta heilbrigðiskerfisins í hendur einkaaðila sem greiða sér svo arð úr rekstrinum?
Sveltistefna gagnvart almannaþjónustu virðist vera helsta lím þessarar ríkisstjórnar. Í stað þess að fylgja vilja meirihluta landsmanna sem vill sjá meira fé renna til heilbrigðiskerfisins og enn fremur að það sé félagslega rekið á að viðhalda sveltistefnunni sem birtist kýrskýrt í nýsamþykktri fimm ára fjármálaáætlun og standa fyrir enn frekari einkavæðingu á almannaþjónustu.
Um það snýst þessi ríkisstjórn, þetta eru einu kerfisbreytingarnar sem hún stendur fyrir. Það þarf líklega ekki að leita annarra skýringa á því hvers vegna hún er að loknu hálfu ári enn óvinsælli en sjálfur Donald Trump."
Hvað gerir Michael og Miss Elly næst?
Skyldi þetta vera dæmi um framtíðarsýnir V.G.? Er þetta allt sem formaður V.G. hefur til málanna að leggja? Getraunastíll um skuggaleg áform ríkisstjórnarinnar? Er þetta stefnan? Eru þetta tillögurnar? Eiga kjósendur að meta þetta sem gott og gilt?
Enda þorði Katrín (mik-eða lit-) la ekki að taka þátt í ríkisstjórn þegar henni bauðst það. Hún vill heldur stunda svona svona skeytasendingar í Dallas-stíl á síðum Kratamálgagnsins. Þar vildi hún jú helst vera með Steingrími J. á sínum tíma. Man einhver ráðherratíð hennar eða helstu afrek?
Eru ekki margir sem sakna hennar Sue Ellen og vildu vita hvað hún gerir næst?
29.8.2017 | 22:17
Eigum við að láta kúga okkur til samúðar?
til samúðar?
Svo segir Moggi:
" Kærunefnd útlendingamála hefur synjað nígerísku hjónunum Sunday Iserien og Joy Lucky um endurupptöku á máli þeirra og þar með staðfest ákvörðun um að senda þau og átta ára gamla dóttur þeirra Mary úr landi og til Nígeríu.
Frétt mbl.is: Segja dauðann bíða sín í heimalandinu
Gengur í skóla í fyrsta sinn á ævinni
Hjónunum barst synjunin í dag, en þau hafa búið hér á landi í eitt og hálft ár. Hingað kom fjölskyldan í leit að betra lífi eftir að hafa upplifað ofbeldi, fátækt, hótanir og gríðarleg áföll í heimalandinu og á Ítalíu þangað sem þau flúðu fyrir níu árum. Þar var Joy fórnarlamb mansals, en Sunday hafði upplifað pólitískar ofsóknir í heimalandinu.
Hér á landi líður þeim vel, eins og fram kom í viðtali við þau á mbl.is í síðasta mánuði, þar sem þau sögðust jafnframt upplifa öryggi í fyrsta sinn í áratug. Sunday hefur starfað hjá sama byggingafyrirtæki síðastliðið eitt og hálft ár, og Joy hefur sótt íslenskunámskeið og kirkju hér á landi. Þá gengur Mary í skóla í fyrsta sinn á ævinni. Hér líður henni vel og hefur náð góðum tökum á íslensku. Hún er fædd á Ítalíu og hefur aldrei búið í Nígeríu.
Frétt mbl.is: Stúlkurnar sviptar sínum rétti
Biðluðu til almennings
Hjónin biðluðu fyrr í sumar til almennings og stjórnvalda að skoða málið og leyfa þeim að vera áfram hér á landi, en þau segja dauðann bíða sín í heimalandinu. Þá voru undirskriftir 2.500 Íslendinga afhentar fulltrúa dómsmálaráðuneytisins fyrr í mánuðinum, þar sem þess var krafist að mál fjölskyldunnar yrði endurskoðað.
Þeir sem hafa kynnst hjónum við nám og starfi bera þeim góða söguna, og segja þau standa sig afburða vel.
Joy er þó illa farin á sál og líkama vegna reynslu sinnar. Hún glímir við undirliggjandi andleg veikindi og hefur hrakað mjög mikið á seinustu vikum og mánuðum. Nú nýlega var henni vísað á bráðadeild og hefur hún hlotið aðhlynningu þar, og er í áframhaldandi meðferð.
Frétt mbl.is: Vita ekki hvenær brottvísun fer fram
Réttur barna oft brotinn
Þá hefur fjölskyldan fundað með umboðsmanni barna þar sem fram kom að embættið teldi að í málum sem þessum væru réttindi barna oft brotin þegar réttur þeirra til að tjá sig væri sniðgenginn. Ekki væri hægt að ákvarða um hagsmuni barna eða hafa þá að leiðarljósi ef sjónarmið þeirra væru ekki tekin til greina.
Í nýjum útlendingalögum segir í 25. gr. að hagsmunir barns skuli hafðir að leiðarljósi. Barni sem myndað getur eigin skoðanir skuli tryggður réttur til að tjá sig í máli sem það varðar og tekið skuli tillit til skoðana þess í samræmi við aldur og þroska.
Við málsmeðferð fjölskyldunnar er því haldið fram af hálfu stjórnvalda að þau hafi það sem bestu [sic] fyrir Mary að leiðarljósi en það getur ekki staðist skoðun að það sé barni fyrir bestu að vera rifið upp með rótum og flutt til lands þar sem það hefur aldrei búið, og framtíð þess er ekki tryggð. Fjölskyldan átti fund með embætti umboðsmanns barna sem hefur lýst yfir áhyggjum sínum af málefnum barna sem óska eftir vernd hér á landi, segir í tilkynningu frá No Borders Iceland vegna málsins.
Tengsl við landið virt að vettugi
Segir þar jafnframt að litið hafi verið fram hjá því með öllu að Joy og fjölskylda hennar eigi enn þá á hættu að sæta ofsóknum af hálfu þeirra sem seldu hana í vændi fyrir hartnær áratug. Vísað er til þess að hún geti leitað til yfirvalda þar í landi en margvíslegar skýrslur benda til þess að yfirvöld séu ýmist ekki hæf eða of spillt til að takast á við slík mál og að íbúar landsins treysti ekki yfirvöldum fyrir slíkum málum. Þá hafa tengsl fjölskyldunnar við landið einnig verið virt að vettugi.
Fjölskyldan var með gilt dvalarleyfi á Ítalíu þegar þau komu hingað, vegna reynslu Joy og aðstæðna þeirra. Þau ákváðu að yfirgefa Ítalíu vegna stöðugra hótana samlanda Joy sem standa að baki mansali og vonuðust til að Ísland yrði friðsælli staður."
Konan er ekki nígerísk heldur Ítali. Hver segir að hún segi satt?
Það eru milljónir manna sem geta sagt okkur sögur og vælt í okkur. Þau eru bara búin að fá að vera hér allt og lengi vegna okkar eoigin ræfildóms. Auðvitað má vorkenna öllum sem eiga bágt. En á þetta fólk svo bágara en allt annað að það megi kúga okkur til samúðar?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko