Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2017

Fjarar undan flokki fólksins strax?

þegar maður sér að rúmlega bara almenn sæti fylltust í Háskólabíó í dag?

Menn verða að passa sig að panta aldrei stærri hús en þeir séu klárir á að fylla. Ljósmyndir eru annars svo leiðinlegar. 

Öðrum flokkum gekk betur. Samfó hafði bara smá kaffihorn til að kynna listann sinn og Píratar sömuleiðis í forstofu Hörpu.

Inga Sæland kann auðvitað næsta lítið í  pólitík hvað þá Halldór í Holti. Og Píratar hafa lítið lært að því er virðist.

Nýja brumið er fljótt að fjara undan nýjum fræknum flokkum.

 


xd.papaya.is

er það sem maður fær upp ef maður vill heimsækja xd.is.

Sjálfstæðisflokkurinn á alltaf í verulegum erfiðleikum með tæknimál. Á nánast öllum fundum er hljóðkerfi í ólagi og fundarmenn eiga í basli með að skilja ræðumenn.

Nú er netið í klessu.

D listans óhamingju virðist flest að vopni verða.


Sjálfstæðisstefnan

var sett á blað 1929. Henni hefur aldrei verið breytt síðan.

Flokkinn hefur stundum borið af leið fyrir tilverknað forystumanna. En hjartalagi Sjálfstæðismanna hefur aldrei verið breytt.

Sjálfstæðisstefnan er tvíþætt. Annars vegar lofar flokkurinn að standa ávallt vörð um sjálfstæði þjóðarinnar. Það hefur verið reynt oftar en einu sinni að sveigja flokkinn til fylgis við Evrópubandalagið og framselja fullveldið. Því hefur verið hrundið á Landsfundum flokksins.

Hinn þátturinn Sjálfstæðisstefnunnar er að flokkurinn ætlar "að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum."

Svo einfalt er það. Sjálfstæðismenn hafa vissulega orðið að þola það að forystumennirnir hafi reynt að sveigja flokkinn af leið. En það hefur aldrei tekist til lengdar né hefur flokkurinn tekið upp aðra stefnu, þurft að bæta við eða bjaga, mála yfir nafn og númer eins og margir aðrir flokkar hafa gert. Hann hefur staðið af sér alla storma og enginn framámaður hefur hrósað sigri með grundvallarstefnubreytingar frá stofnun flokksins fyrir 88 árum.

"Fara og koma frægðarmenn, fara út í buskann senn. Eitt er víst að er, ég er hér." Svo kvað maðurinn hennar Jónínu hans Jóns. Flokkurinn er íhaldsflokkur sem vill varðveita það góða sem við höfum en breyta því sem við getum breytt til batnaðar. 

Það hefur margt breyst í samfélaginu síðan 1929.Fátt af því jákvæða hefði gerst án þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki stuðlað að því.

Áróður andstæðinganna er á götustrákaplaninu eins og birtist greinilega í orðum Þorvaldar Gylfasonar:

"Ær og kýr Föðurlandssvikabrigzl og valdarán eru ær og kýr fasista enn sem fyrr. Ísland þarf að gæta sín á fárinu sem ríður nú yfir nálæg lönd. Framganga Sjálfstæðisflokksins og taglhnýtinga hans gagnvart nýju stjórnarskránni sem 67% kjósenda lýstu stuðningi við 2012 er skýr viðvörun."

Flokkur barnaníðinga, skattsvikara, Panamagreifa og þjófa eru svo orð sem heyrast daglega hjá mestu netsóðunum. Ég held samt að fólk muni átta sig á því að flokkar eru byggðir upp af heimspekilegum hugsjónum þar sem fólk sameinast um grunngildi en ekki vindhanasnúningi. Það er það sem sameinar en ekki dægurblaður eða heimskuleg slagorð.

40 % íslenskra kvenna trúir ekki á grunnstefnu flokksins og ætlar að kjósa arftaka ráðstjórnarflokkanna gömlu. Þetta er afleit niðurstaða fyrir talsmenn Sjálfstæðisflokksins og sannar að þá hefur borið af leið. Hagsmunir mæðra og barna þeirra haf vikið til hliðar og flokkurinn nær ekki til þeirra.Áherslur flokksins í málefnum eldri borgara hafa verið rangar því þeir trúa ekki lengur á flokkinn sinn sem þeir kusu lengst af. Forystumenn flokksins verða að hlusta á gagnrýnina en hætta að berja hausnum við steininn í upphafinni sjálfsánægju.

Nú á enn að gera tilraun til þess að láta fólk kjósa eitthvað annað. Síðasta ríkisstjórn var byggð á flokkum sem gáfu sig út fyrir að vera eitthvað annað.  Núna er Flokkur Fólksins eitthvað annað til að kjósa.Óskrifuð blöð með enga reynslu eða starfsferil um eitthvað annað. Eitthvað annað.

Eitthvað annað en Sjálfstæðisstefnuna?

 


Enn lýgur prófessor doktor Þorvaldur

um stjórnarskrárfrumvarpið sitt sem er aðeins að bestu manna yfirsýn einskis nýtur og fáránlegur langhundur þar sem hver mótsögnin rekur sig á aðra. Enginn óbrjálaður hefur treyst sér til að hafa vitræna umræðu um þennan óskapnað sem er algerlega ónothæfur sem grundvöllur um stjórnaskipuleg réttindi fólksins. Sem hljóta að vera einföld og auðskilin,stuttorð og gagnorð.

Í Fréttablaðinu í gaær skrifar þessi prófessor doktor Þorvaldur Gylfason svo:

"...Ær og kýr Föðurlandssvikabrigzl og valdarán eru ær og kýr fasista enn sem fyrr. Ísland þarf að gæta sín á fárinu sem ríður nú yfir nálæg lönd. Framganga Sjálfstæðisflokksins og taglhnýtinga hans gagnvart nýju stjórnarskránni sem 67% kjósenda lýstu stuðningi við 2012 er skýr viðvörun."

Er þetta ekki viðbjóðslegt mannhatur?  Ekkert er þessum lygalaup og leigupenna heilagt. 

Það er sama hversu oft þessi auglýsing Landskjörstjórnar er  er birt oft. Allraf kemur þessi kratavesalingur prófessor doktor Þorvaldur með sömu lygina aftur og aftur. Alveg eins og doktor Göbbels viðhafði. Munurinn á doktor Þorvaldi og doktor Göbbels er að menn hafa sagt mér sem hlustuðu að doktor Göbbels var svo skemmtilegur að göturnar tæmdust þegar vikulegur þáttur hans var á útvarpinu á laugardögum. Rétt eins og þegar Helgi Hjörvar las Bör Börsson. Doktor Þorvaldur á kannski eftir að sýna sín  skemmtilegheit og Samfylkingarinnar?

En svona var auglýsingin:

"Landskjörstjórn hefur tilkynnt innanríkisráðuneytinu um niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. október 2012 um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd sem lýst var á fundi landskjörstjórnar 29. október 2012. Auglýsing ráðuneytisins um niðurstöðurnar er svofelld:

Með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna nr. 91/2010 hefur landskjörstjórn tilkynnt innanríkisráðuneytinu um niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. október 2012 um tillögur stjórnlagaráðs landskjörstjórnar 29. október 2012. Engar kærur bárust um ólögmæti atkvæðagreiðslunnar. Að teknu tilliti til niðurstöðu landskjörstjórnar um ágreiningsatkvæði sem komu til úrskurðar hennar og endanlegra skýrslna yfirkjörstjórna varð niðurstaðan eftirfarandi:

Kjósendur á kjörskrá

236.911

Gild atkvæði

114.570

Ógild atkvæði

1.499

þar af auðir

661

þar af aðrir ógildir

838

 Gild atkvæði skiptust þannig eftir því hvernig kjósendur svöruðu einstökum spurningum:

  1. Vilt þú að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá?

Já, ég vil að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá.

       73.509

Nei, ég vil ekki að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá.

       36.302

  1. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu lýstar þjóðareign?

    84.760

Nei   17.470

  1. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?

    58.455

Nei   43.914

  1. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú er?         

     78.451

Nei    21.660 

  1. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt?

     66.653

Nei    33.590

  1. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu?

     72.633

Nei    26.440

Auglýst með vísan til 2. mgr. 10. gr. laga um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna nr. 91/2010.

Innanríkisráðuneytinu 30. október 2012"

Prófessor doktor Þorvaldur heldur áfram að ljúga blákalt og yfirvegað  þrátt fyrir þessa opinberu auglýsingu.

Ætlast þessi maður virkilega til þess að hann sé tekinn alvarlega?

 

 


Ver því ætíð var um þig

Brothætt ástand íslenskara efnahagsmála verður manni ljóst af því að lesa skarplegan leiðara Fréttablaðisins eftir Hörð Ægisson í dag. Hörður segir:

"Fordæmalaus vöxtur í ferðaþjónustu á undanförnum árum hefur umbylt íslensku efnahagslífi. Fátt bendir til annars en að þær breytingar sem hafa orðið á hagkerfinu með þessari nýju gjaldeyrisskapandi atvinnugrein verði varanlegar. Erlenda staðan hefur þannig tekið stakkaskiptum, sparnaðarstigið aldrei mælst hærra og vegna viðvarandi viðskiptaafgangs er Ísland orðið að fjármagnsútflytjanda.

Jafnvægisgengi krónunnar hefur því hækkað verulega og vextir af þeim sökum verið lægri en ella án þess að raska efnahagslegum stöðugleika. Allt hefur þetta stuðlað að stórbættum kaupmætti almennings. Staðan í efnahagsmálum væri því allt önnur og verri ef ekki hefði komið til uppgangur ferðaþjónustunnar.

Í nýrri greiningu hagfræðideildar Landsbankans er bent á að um 40 til 50 prósent af heildarhagvexti frá 2010 megi skýra beint og óbeint með auknum umsvifum í ferðaþjónustu. Þá skapar greinin orðið rúmlega 40 prósent af öllum útflutningstekjum þjóðarbúsins sem er um helmingi meira en sjávarútvegur og áliðnaður samanlagt. Á síðustu tveimur árum hefði verið umtalsverður halli á viðskiptum við útlönd, sem hefði þýtt gengisveikingu og meiri verð- bólgu, ef ekki hefði verið fyrir vaxandi útflutningsverð- mæti ferðaþjónustunnar.

+Við slíkar aðstæður hefði eitt stærsta verkefni stjórnvalda – afnám fjármagnshafta – reynst mun erfiðara viðfangs. Það kemur því ekki á óvart að nánast ekkert ríki á jafn mikið undir ferðaþjónustu og Ísland.

Óþarfi er að fjölyrða um mikilvægi þess að ráðist verði í stórfelldar fjárfestingar í hinum ýmsu innviðum landsins á komandi árum, en þar skiptir ekki hvað síst máli uppbygging Keflavíkurflugvallar. Sú staðreynd að rekstrarfélag flugvallarins er að fullu í eigu ríkisins hefur haldið aftur af nauðsynlegri stækkun. Ríkið hlýtur að skoða aðkomu einkafjárfesta í því skyni að flýta þar fyrir nauðsynlegri uppbyggingu.

Uppgangur ferðaþjónustunnar, eins og undirstrikað er í greiningu Landsbankans, ræðst að stórum hluta af framboði á flugferðum til og frá landinu. Þar munar langsamlega mest um Icelandair og WOW air, sem eru samanlagt með yfir 80 prósenta markaðshlutdeild, og því ljóst að Ísland á mikið undir því að ekki verði truflanir á starfsemi íslensku flugfélaganna. Færa má fyrir því rök, rétt eins og átti við um bankana í aðdraganda fjármálahrunsins, að flugfélögin séu orðin kerfislega mikilvæg fyrir efnahagslegan stöðugleika.

Það eru að verða vatnaskil í íslenskri ferðaþjónustu. Sá gríðarlegi vöxtur sem greinin hefur upplifað er að baki. Tugprósenta gengishækkun og miklar samningsbundnar launahækkanir hafa dregið úr samkeppnishæfni greinarinnar og valdið því að það er farið að hægja á fjölgun ferðamanna. Til lengri tíma er þetta jákvæð þróun. Gengisstyrking krónunnar hefur gegnt lykilhlutverki í að halda aftur af ósjálfbærum vexti ferðaþjónustunnar og um leið stuðlað að meira jafnvægi í þjóðarbúskapnum.

Fyrirtæki í ferðaþjónustu, sem mörg hver hafa spennt bogann of hátt og horfa upp á versnandi afkomu, þurfa að fást við breyttar aðstæður með því að leita leiða til hagræðingar. Augljósasta leiðin er veruleg samþjöppun enda má öllum vera ljóst að fyrirtækjum í greininni hefur fjölgað of mikið. Vísbendingar eru um að sú þróun sé hafin. Það er aðeins upphafið að því sem koma skal."

Það er dæmigert fyrir íslenska heimsku að umræðan um uppbyggingu flugþjónustu skuli beinast að bulli um að byggja nýjan flugvöll í Hvassahrauni í stað ágæts flugvallar í Reykjavík. Á meðan bíða nauðsynlegar úrbætur á Keflavíkurflugvelli. Þar að auki áformum um hraðlest til Keflavíkurflugvallar í stað uppbyggingar þar.

En miklu alvarlegra er sú staðreynd hversu brothætt ástandið í ferðamálum er. Maður þorir ekki að hugsa þá hugsun til enda hvað eitt hryðjuverk í sambandi við ferðamennsku á Íslandi gæti haft í för með sér. Ef ferðamenn fældust frá landinu væri það efnahagslegur jarðskjálfti upp á mörg Richterstig. Spurning er hvort okkar öryggismál séu eitthvað í líkingu við það sem þau þyrftu að vera?

Upptaka vegabréfaskyldu og áritana til landsins er mikið öryggisatriði sem þarf að hrinda i framkvæmd sem allra fyrst. Eins og er þá er landið galopið fyrir ISIS liðum í gegnum hælisleitendahliðið. Sprengiefna eru tiltölulega auðvalt að afla og ýmislegt annað er hriplekt auk almenns ræfildóms yfirvalda.

Ekkert þjóðvarðlið er hérlendis sem hægt er að grípa til.Lögregluliðið okkar virðist vera undirlagt af allskyns innbyrðis deilum um tittlingaskít. Spurning er hvort menn eigi ekki að velta því fyrir sér í alvöru hversvegna konum er yfirleitt ekki falin herstjórn hvorki nú né á fyrri tíð. Konur eru öðruvísi en karlmenn hvað sem þær annars segja og þeirra hæfileikar umfram þá henta kannski ekki allstaðar.  

Hægt í logni hreyfir sig

sú hin kalda

undiralda.

Ver því ætíð var um þig.


Ekkert svínakjöt

í íslenskum skólum hefur maður heyrt af því að múslímar vilja það ekki.

Þeir reyndu það í Canada og fengu þessi svör:

 

 

HURRAH FOR CANADA !!!!!A
BIG SALUTE TO OUR GOOD FRIENDS IN CANADA ............WE RESPECT A LEADER WITH BACKBONE, WISDOM & COMMON SENSE! 

Pork on Your Fork

Well Said Mayor/ Dorval , Québec. 

 

"PUT SOME
PORK ON YOUR FORK" 

A commercial promoting pork says: 

"PUT SOME PORK ON YOUR FORK" The
MAYOR REFUSES TO REMOVE PORK FROM SCHOOL CAFETERIA MENU AND EXPLAINS WHY:


 

Muslim parents demanded the abolition of pork in all the school canteens of a Montreal suburb. 

The mayor of the Montreal suburb of Dorval has refused, and the town clerk sent a note to all parents to explain why. 

"Muslims must understand that they have to adapt to Canada and Quebec , its customs, its traditions, and its way of life, because
that's where they
chose to immigrate. 

"Muslims must understand that they have to integrate and learn to live in Quebec . "They
must understand that it is for them to change their lifestyle, not the Canadians who, so generously, welcomed them. 

"Muslims must understand that Canadians are neither racist nor xenophobic. Canada
accepted many immigrants before Muslims showed up (whereas the reverse is not true, in that Muslim
states do not accept non-Muslim immigrants)."

"Just like other nations, Canadians are not willing to give up their identity or their culture.

"And, if Canada is a land of welcome, it's not the Mayor of Dorval who welcomes foreigners, but the Canadian-Quebecois people as a whole.

"Finally, they
must understand that in Canada ( Quebec ) with its Judeo-Christian roots, Christmas trees, churches and religious festivals, religion must remain in the private domain."

The municipality
of Dorval was right to refuse any concessions to Islam and Sharia.

"For Muslims who disagree with secularism and do not feel comfortable in Canada , there are 57 beautiful Muslim countries in the world, most of them
under-populated
and ready to receive them with open halal arms in accordance with Sharia. 

"If you left your
country for Canada , and not for other Muslim countries, it is because you have considered that life is better in Canada than elsewhere. We will not let you drag Canada down to the level
of those 57 countries. 

"Ask yourself
this question - just once: "Why is it better here in Canada than where you came
from?"


 

 

"A canteen with pork on the menu is part of theanswer." 

If you came to Canada with the idea that you will displace us with your prolific propagation and eventually take over the country, you
should pack up and go
back to the country you came from.  We have no room here for you and your ideology.

 

Étið svínakjöt vesgú eða snautið þið heim ef þið ekki viljið aðlagast okkur.


Ein gíslataka RÚV á dag

kemur skapinu í lag hjá okkur góða fólkinu.

Í kvöld er bætt á okkur mynd af fólki frá Afganistan sem eru hælisleitendur. Það kom ekki hingað á vegabréfi til að vinna heldur sem hælisleitendur til að lifa á okkur. Konan segir að gamli maðurinn sem hún átti að giftast samkvæmt sínum múslímska sið muni drepa hana ef Norðmenn, sem hún kom frá með sparki í afturendann, senda hana líklega til baka til Afganistan. Karlinn hennar, brúðarræninginn verður sjálfsagt drepinn í leiðinni þar sem ekki munar um einn í því landi heiðursmorða. En gamlinginn er náttúrlega fúll og vill uppreisn æru með blóði. 

Ekkert af þessu myndi æsa okkur góða fólkið upp ef þetta par væri ekki búið að eignast guðdómlega fallegan dreng. Getum við hugsað okkur að senda hann til Afganistan þar sem vondi kallinn drepur báða foreldrana. BÖÖH, BÚÚH. Það getum við ekki hugsað okkur.

Svona er okkur góða fólkinu stillt upp við vegg á hverjum degi. Ætlum við að stuðla að svona hræðilegheitum horfandi framan í engilsásjónu drengsins?

Allt þetta eigum við ræfildómi og verkleysi Útlendingastofnunar og annars embættalýðs okkar að þakka. Fólk sem ekki vinnur eins og þá á að vinna en slugsar með afsökunum um álag og fjárskort. Það er heldur ekki sanngjarnt að ætlast til að það vinni eins og kaupið er allt of lítið segir BHM og BSRB. Kaupið verður að stórhækka, sem er algert forgangsmál hjá því.

Þúsund hælisleitendur safnast upp og fylla mörg hótel meðan hjartabilaður Íslendingur með konu og barn verður að búa í tjaldi í bakgarði miskunnsams nágranna af því að hann fær hvergi húsmæði.Og það er að koma vetur. Honum vorkennum við ekki upphátt  enda er hann ekki stöðugt fréttaefni í RÚV sem er handhafi hinnar opinberu samúðar með flóttabörnunum. Börn hinna vinnandi farandverkamanna sem eru með passa eru heldur ekki fréttaefni þar sem foreldrarnir vinna fyrir þeim.

 Hvað eru margar milljónir engilfríðra barna í boði frá þriðja heiminum sem bíða bara eftir því að vekja samúð okkar góða fólksins og koma hingað?  Börn sem stórar fjölskyldur standa að baki og koma svo líka.  Sem geta sannarlega fjölgað þeim Íslendingum sem eru hættir að eiga nema 1.75 barn á fjölskyldu og kjósa ekki Samfylkinguna eða V.G.

Ein gíslastaka RÚV á dag kemur skapinu í lag.

 


Logi Már er bara úlfur

undir sauðargæru sem gerir út á tilfinningar minna gefins fólks í pólitísku eiginhagsmunaskyni. Og þingmenn okkar aðrir eru kiðlingar sem láta hann teyma sig í foraðið vegna þess að þeir eru svo hræddir við að góða fólkið taki frá þeim atkvæði. Hræddir menn geta aldrei hugsað rökrétt hvað þá eru þeir til stórræða.

Nú samþykkir Alþingi að tala um flóttabörn sem eigi að njóta sérstakra réttinda. Þessu börn eru bara farangur spekúlanta sem eru foreldrar barnanna sem eru hingað komin til að hafa af okkur fé og fyrirhöfn. Við báðum þau ekki að koma með börnin og þess vegna eru börnin ekki okkur viðkomandi þegar þau komu. Núna er sagt að þau hafi skotið hér rótum sem kann auðvitað að vera rétt og skipta máli.

Okkar sök á þessari stöðu sem þjóðar felst í ræfildómi þingmanna sem láta íslenska embættismenn, sem eru til margar verka tregir nema að gera verkföll og heimta hærra kaup, vinna ekki vinnuna sína og hafa ekki komið  þessu fólki úr landi strax án tafa samkvæmt alþjóða reglum. Búið til þetta vandamál sem þingið er að aulast með í kvöld.

Gerðir þessa skrípaþings sem yfir stendur i kvöld  munu hafa afleiðingar og mikil vandamál í för með sér. Logi Már er í hlutverki Faríseans og fer það vel en þjóðin er í hlutverki tollheimtumannsins sem verður að skaffa peningana fyrir atkvæði Samfylkingarkratana sem grenja yfir því hvað þeir séu rosalega góðir. 

 


Þingmenn lyppuðust niður

og opna landið fyrir aðstandendum tveggja telpna og stórfjölskyldum þeirra í framhaldi.

Auðvitað eru þessar stúlkur ekki á flótta heldur aðstandendur þeirra. Góðmennið frá Akureyri Logi Már, gæslumaður Guðleysis í skólum á Akureyri, slær þarna póliltíska keilu fyrir Samfylkinguna og fjölgar hér hælisleitendurm duglega. Kannski fjölgar þingmönnum Samfó í hlutfalli og enginn þorir auðvitað að vera á móti af ótta við áhrif á kosningarnar framundan.

Þannig er nú um sannfæringu þingmanna sem margir hafa sagt veitingu ríkisborgararéttar til Albaníufjölskyldunnar á sínum tíma hafa verið óheppilega og dregið dilk á eftrir sér. 

 


Vegabréfaáritanir til Íslands

sýnast vera nauðsynlegar til þess að stemma stigu við hælisleitendastraumnum.

Afgreiðsla þeirra stofnana sem eiga að sjá um móttöku og afgreiðslu hælisleitendamála er með þeim hætti að hér byggist fjöldi mála. Þegar fjölskyldum hefur tekist að vera hér í dvöl svo árum skiptir vegna verkleysisins, þá halda þær börnunum fyrir framan sig sem þau hafa komið með hingað eða jafnvel eignast hér og hóta að drepa sig ef við skepnurnar ekki hlýðum þeim og veitum þeim landvist.

Alþingi er tekið í gíslingu í dag af pópulistum Samfylkingarinnar og skírskota til aumasta blettsins í þjóðarsálinni sem er samúð góðs fólks. Ef við veitum ekki tveimur stelpum ríkisborgararétt þá verður ekkert afgreitt á þinginu fyrir kosningar og þeir flokkar sem dirfast að vera á móti eru fíbjökk sem tapa atkvæðum 28. október. Enginn þorir að taka sjens á því. Bráðum koma svo sjálfsagt stórir hópar af skyldmennum og vinum samkvæmt útlendingalöguunum til að styrkja þessar litlu stelpur sem Samfó segir að séu flóttamenn sem barnasáttmáli Sameinuðu þjóðamma nái yfir. Auðvitað eru þær það ekki heldur farangur einhvers spekúlantafólks sem er komið hingað til að lifa af landinu.

Vegabréfaáritanir til Íslands geta leyst starfsemi Rauða Krossinn af hólmi, sparað fé og auðveldað flugfélögunum að neita að flytja óæskilegt fólk til landsins sem allir hælisleitendur eru.

Íslendingar eiga að velja sína innflytjendur sjálfir. Vegabréfsáritanir til Íslands auðvelda slíkt val.


Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband