"Meiri­hluti fjár­laga­nefndar hefur gert til­lögu um að fram­lög til stjórn­mála­flokka verði hækkuð um 362 millj­ónir króna  á næsta ári. Fram­lögin verða þá 648 millj­ónir króna og vaxa 127 pró­sent frá því sem áður var ætlað að myndi renna til mála­flokks­ins. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar sem nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokk­anna þriggja skrifa und­ir þá vilja menn  að  framlög til stjórnmálaflokka verði aukin um 362 m króna

Í álit­inu kemur fram að til­lagan sé studd með yfir­lýs­ingu sex for­manna stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi. Þeir eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Fram­sókn­ar­flokk­ur, Vinstri græn, Sam­fylk­ing, Mið­flokkur og Við­reisn..."
 
Flokkur fólks­ins og Píratar eru ekki aðilar að til­lög­unni sem vekur auðvitað athygli. Með hjásetu vilja þeir vekja athygli á sjálfum sér þar sem þeir vita að peningarnir renna til þeirra alveg jafnt þó þeir sitji hjá opinberlega sem hreinþvegnir englar.Hræsnin blasir við.
 
"Í yfir­lýs­ingu for­mann­anna kemur meðal ann­ars fram að „til­gangur opin­berra fjár­fram­laga til stjórn­mála­sam­taka er að tryggja fjár­mögn­un, sjálf­stæði og lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð allra stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi. Virk starf­semi stjórn­mála­sam­taka er horn­steinar lýð­ræð­is­ins og er nauð­syn­legt að tryggja á hverjum tíma að þau geti sinnt hlut­verki sínu með eðli­legum hætti og án þess að þurfa að treysta um of á fjár­fram­lög einka­að­ila.
 
Er það ósk for­manna sem rita undir yfir­lýs­ing­una að for­sæt­is­ráð­herra setji af stað vinnu við end­ur­skoðun laga nr. 162/2006, um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda, með þátt­töku full­trúa allra stjórn­mála­sam­taka sem sæti eiga á Alþing­i. Í grein­­ar­­gerð sem fylgdi erind­inu segir að sú upp­­hæð sem stjórn­­­mála­­flokkum sé ætluð á fjár­­lögum hafi lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar full­­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­­­mála­­starf um allt land, jafnt á sviði lands­­mála og sveit­­ar­­stjórna, árið um kring. 

Til sam­an­­burðar má nefna að dóms­­mála­ráðu­­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­­kosn­­ing­anna á síð­­asta ári hafi verið rétt tæpar 350 millj­­ón­ir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár. Stjórn­­­mála­­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­­magn á við helstu hags­muna­­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­­trúa á Alþingi. 

Til sam­an­­burðar má 1 geta að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins eru með 30 starfs­­menn, Sam­tök iðn­­að­­ar­ins 16, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjá­v­­­ar­út­­­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­­ingur við nýsköp­un, þró­un, sér­­fræð­i­þekk­ingu og alþjóða­­tengsl eng­inn inni í stjórn­­­mála­­sam­tök­un­um; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­­­mála­­flokka og að upp­­­fylla mark­mið lag­anna. Lýð­ræðið á Íslandi á betra skil­ið.“