Bloggfærslur mánaðarins, maí 2018
25.5.2018 | 13:25
Kínverjar eru á bak við
ákvörðun Trump um að fresta fundinum með Kim.
Útþenslustefna Kínverja sem sjóveldis blasir við Bandríkjamönnum. Þeir eru að byggja upp hernaðarveldi í Suður Kínahafi. Þessi blánka þjóð sem er stórskuldug til ríkisins, bæjarfélaga og sveita og hefur ekki stærri þjóðarframleiðslu á mann en Dóminíska Lýðveldið sem enginn telur til stórvelda.Styrkur þeirra er margfalt minni en Bandaríkjanna hvað sem menn segja annað.
Fyrrum yfirmaður Njósnadeildar Kyrrahafsflota Bandaríkjanna James Fanell telur hættu á að Kínverjar muni byggja mun fleiri herskip en Bandaríkjamenn á næstu árum. Margir telja hættu á að Kínverja dreymi um að taka Taiwan með hervaldi á árunum 2020-2030 þar sem þeim tekst illa áróðurslega inn á við sbr. HongKong þar sem fyrirlitningarfýla er á milli meginlandsins og Borgríkisins.
Alþýðulýðveldið er hinsvegar hvarvetna að verki í Kínahafi að byggja upp kínverskar gervieyjar og þenja þannig út efnahagslögsögu sína. Fanell hvetur til að Bandaríkjamenn endurreisi flotaveldi sitt til þess að hafa svör við útþenslu Kínverja.
En Xi Jinping, lífstíðarforseti Kína, sem er sðeins 65 ára gamall hefur ekki sömu vígstöðu og á Tiananmen-torgi þegar kommúnistar gátu verslað við Vesturlönd í blóði kínverskrar æsku og komust upp með það.
Það er ekki líklegt að Norður-Kóreu menn aðhafist nokkuð án vitundar Kínverja sem hafa landið í efnahagslegu kverkataki. Hinsvegar er komin fram undiralda í báðum ríkjum um að lífskjör þurfi að batna og almenningur sé ekki jafn ginkeyptur fyrir alþjóðlegri Machtpolitík á kostnað lífskjara.Nú sé komið að maganum en ekki hnefanum.
Bættur efnahagur er líklega besti hvatinn til friðar. Og það veit Donald Trump. Þess vegna talar hann mildri röddu um leið og hann sveiflar stóra lurkinum eins og Teddy Roosewelt ráðlagði.
Búast má við frekari tíðindum af Donald Trump og heimsfriðarstefnu hans innan tíðar hvað sem 101 Reykjavík segir.En það tekur alltaf tíma þegar tala þarf við Kínverja þar sem þeir nálgast málin ávallt frá hlið en aldrei beint.
25.5.2018 | 02:31
Fallegt bréf frá Trump
til KimJongUn er það sem athygli mína vekur.
Maður veit ekki hvernig sá karl hugsar. En tónninn í bréfinu skilur hann eftir lítandi ekki vel út. Heldur mörgum dyrum opnum ef hann vill byrja upp á nýtt.
Trump karlinn er ólíkindatól og skákin virðist standa á Kim eftir lestur bréfsins.
23.5.2018 | 14:35
Geldinganesið blasir við
hverjum þeim sem vill auka lóðaframboð á höfurðborgarsvæðinu.
Tillaga Mörtu Guðjónsdóttur Borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins var felld með atkvæðum kommúnista-kraðaksflokkanna á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í fyrrasumar.
Tillagan var felld með 9 atkvæðum meirihlutaflokkanna í borgarstjórn: Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og flugvallarvina sem greiddu atkvæði með tillögunni.
Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem var flutningsmaður tillögunnar, sagði að mikilvæg forsenda þess að lækka húsnæðiskostnað væri að auka framboð á lóðum í eigu borgarinnar. Úthlutun lóða í Geldinganesi myndi stórauka framboð á byggingarlóðum í Reykjavík á hagstæðu verði og þannig hafa afgerandi, jákvæð áhrif á íbúða- og leigumarkaðinn.
Fulltrúar meirihlutaflokkanna sögðu hins vegar að í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar væri ekki gert ráð fyrir íbúðabyggð í Geldinganesi vegna áhrifa slíkrar byggðar á umhverfi og umferð, samgöngukostnað og fleira. Gerð skipulags í Geldinganesi sé engin lausn á núverandi ástandi á húsnæðismarkaði."
Það blasir við að lóðaskorturinn getur verið úr sögunni á nokkrum vikum ef tillaga Mörtu væri tekin fyrir í alvöru. Hvað halda menn að Davíð hefði verið lengi að úthluta þarna hundruðum lóða?
Ætlar Eyþór að verða nokkur eftirbátur?
Eða vilja menn ekki byggingalóðir? Er þetta bara blöff og þykjustuleikur?
Það hlýtur bara að vera úr því að kommaliðið ætlar að endurkjósa Dag.B.og Holu-Hjálmar. Það er líklega of langt að hjóla úr Geldinganesi niður í 101 þar sem Borgaralínan á að liggja annarsstaðar, bla-bla,bla.
En Geldinganesið virðist blasa við þeim sem vilja sjá.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.5.2018 | 12:21
Robotic Parking
er það hugsanlega sem vantar við Hringbraut og Háskólasjúkrahúsið til þess að bægja burt fyrirsjáanlegum umferðarvanda?
Myndin hér til hliðar er frá Kuwait. Þar hefur Robotic Parking reist þessa fallegu byggingu. Hún hýsir 2314 bíla. Það tekur 177 sekúndur að sækja bíl og hún afgreiðir 425 bíla á klukkustund.Það eru 12 afgreiðslustaðir alls.
Byggingin uppfyllir eldvarnarstaðla NFPA 88A.
Grunnflötur fótspors er 100 m x 51 m eða 5000 m2. Hæðir eru 11 og heildarhæð byggingar er 35 m.
Þessi bygging er úr steinsteypu með Robotic Parking System ofan á gólfunum. Þessi lausn leggur 3.5 sinnum fleiri bílum á fermetra en venjuleg bílastæðabygging.
Byggingin getur verið sjálfbær með stæðagjöldum.En auðvitað er þetta dýrt, kannski mörg hundruð krónur á klukkustund. Hleðslustöð fyrir rafbíla getur fylgt hverju stæði.
Ég hef reynt að vekja athygli byggingarstjórnar nýja Landspítalans á þessari lausn en ekki fengið neinar undirtektir enda ekki tengdur málinu. Og kannski er þetta of dýrt í byrjun.
Til viðbótar virðist yfirleitt vera álitið að nægt land sé allsstaðar undir bílastæði. En 2314 bílastæði taka aðeins eina 51.000 m2, af landi í í stað tíunda hluta af fótspori byggingarinnar. En tíminn sem það tekur að finna bílastæðið á fletinum og ganga til og frá hvernig sem viðrar ætti líka að skipta máli í þessu sambandi. Kannski 200 metrar í slagveðri gætu glatt einhvern?
Það er auðvitað gott til þess að vita að við Íslendingar skulum vera svo landríkir við Hringbraut að 5 ha. af Vatnsmýrarlandi skipti ekki máli.
En skaðar virkilega nokkuð að kanna svona mál.
Mr. Royce Monteverdi er stofnandi Robotic Parking Systems sem hefur aðsetur í Clearwater í Florda. Af honum þekki ég ekki haus né sporð nema að hann er úr sama skóla í Stuttgart og ég. Hann hefur langa sögu að baki í hönnun og byggingu slíkra húsa og kerfa og hefur mörg einkaleyfi í því sambandi. Kannski að bygginganefndin ætti að hafa samband við hann og heyra hvað hann leggur til varðandi umferðarmálin við Hringbraut?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.5.2018 | 15:17
Tími til að breyta
segir Eyþór Laxdal Arnalds.
Hann setur fram ákveðin skilaboð á bloggi sínu sem ég vil henda á lofti:
"Um næstu helgi er tækifæri til breytinga.
Valið er skýrt: Óbreytt ástand húsnæðiskreppu og samgönguvanda eða aukið framboð á hagstæðum byggingarsvæðum og stórátak í samgöngumálum. Höfuðborgin hefur sofið á verðinum og verið aðal gerandi í húsnæðisskorti með því að útvega ekki lóðir. Það litla sem hefur verið byggt hefur fyrst og fremst verið á lóðum bankanna.
Borgin hefur verið með fyrirætlanir sem hafa ekki gengið eftir. Þessu viljum við breyta strax að loknum kosningum.
Einfalda stjórnkerfið og spara þar fjármuni sem nýtast í þjónustu við íbúana.
Húsnæðisverð hefur hækkað um 50%. Það er mikil kjaraskerðing fyrir þá sem kaupa eða þurfa að leigja íbúð. Leggst þyngst á láglaunafólk.
Útsvarið er hæst í Reykjavík af sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Það leggst á laun fólks. - Fasteignaskattar hafa hækkað um 50%. Það vegur þungt.
Þessu ætlum við að breyta á fyrstu 100 dögum eftir kosningar.
Það er mikilvægt að nýta kosningaréttinn.
X við D er öruggasta leiðin til að breytt verði um kúrs.
Það er kominn tími til að breyta í borginni. "
Ég tek undir þetta með Eyþóri. Það væri skelfilegt fyrir kjósendur í Reykjavík að sitja uppi með sinn Madúró eins og þeir í Venesúela þrátt fyrir það sem við blasir að aflaga hefur farið.
Er ekki annars kominn tími til að breyta?
21.5.2018 | 14:50
Sjálfstæðismenn
sem eru búnir að tapa trú á því að flokkurinn rétti einhvern tímann við hafa gott af að hlusta og horfa á viðtal Páls Magnússonar við ritstjórann Davíð Oddsson. Það er á K100 á www.mbl.is
Þar kemur margt fram hvað þarf til forystu í stjórnmálaflokki.Það er ekkert eitt og sér á parti. Það er iðni, ástríða og yfirlega ef menn ætla að sannfæra annað fólk.
Við eigum bara ekki að una því Sjálfstæðismenn að flokkurinn sé bara 25 % flokkur. Við gátum betur með Davíð. Við getum betur Sjálfstæðismenn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2018 | 14:37
Biskupstungnabraut
er búin að vera um þessar mundir.Eftir Reykholt er stórhættulegt að lenda ofan í djúpum holum sem geta brotið bílbeyglur.
Það verður að setja í lágadrifið til að fara gömlu Tungufljótsbrúna. En samt eru holurnar í malarveginum niður á Flúðaveg skárri en Biskupstungnabrautarholurnar af því að það er alls staðar botn í þeim og mýkri barmar.
Allt þetta er vegna rútuumferðarinnar sem þembir veginn sínkt og heilagt. Með farþega af skemmtiferðaskipunum sem koma dag hvern í Reykjavíkurhöfn. Blása út megawöttum af mengun og borga varla neitt fyrir að koma.Rúturnar niðurpíndar í verði af milliliðunum svo að þær opna ekki klósettin fyrir fólki í spreng. Háskólaborgarar sem gædar píndir niður úr verkamannatöxtum til að tala við farþegana útlensku á Gullhringnum. Farþegarnir mest blánkir alþýðuljónar sem gefa ekkert þjórfé.
Þessu þarf að breyta.
Viðgerðaflokka verður að senda strax í dag að gera við. Komugjöld verður að leggja á skipin svo að peningar fáist fyrir vegaskemmdunum.
Landrafmagn skulu þau öll kaupa. Athuga þarf skilyrði hverjir megi selja í Gullhringi og það vantar samkeppni í greiðasölu við þessa staði þjóðarinnar.
En eins og venjulega þá gerist ekki neitt á Biskupstungnabraut eða Gullhringnum hvort sem ríkið kaupir land eða ekki.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2018 | 12:40
Enginn má við Trump
í alþjóðlegum stjórnmálum.
Páll Vilhjálmsson tekur þetta saman á bloggsíðu sinni í dag:
"Evrópusambandið er miður sín yfir þróun alþjóðamála síðustu missera. Á fundi leiðtoga ESB á Balkanskaga í vikunni kom fram það sjónarmið að Bandaríkin undir forystu Trump væru Evrópu jafn hættuleg og Rússland og Kína.
ESB telur sig standa fyrir alþjóðlegt frjálslyndi sem ættað er úr handbókum síðustu aldar. Trump starfar ekki samkvæmt áður viðurkenndum reglum. Hann velur sér skotmörk (Norður-Kóreu, Kína og núna síðast Íran) og þvingar fram niðurstöðu í þágu bandarískra hagsmuna. Evrópa valhoppar á eftir, meira af taugaveiklun en sannfæringu.
Eina von Evrópu, segir New Republic, er að Trump sitji ekki nema eitt kjörtímabil. En allar líkur eru á að þau verði tvö. Evrópa, skrifar franskur ESB-sinni, á engan valkost við Bandaríkin og verður að láta sér lynda við Trump.
Gangi það eftir að Kína beygi sig undir vilja Trump eru engar líkur á að Íran standist áhlaupið í kjölfar uppsagnar Trump á kjarnorkuvopnasamningi sem Obama forveri hans gerði. Íran er þegar í vandræðum eftir að Írakar gáfu út skýra yfirlýsingu í nýafstöðnum kosningum um að landið ætlaði ekki að verða skjólstæðingur klerkanna í Teheran.
Evrópsk fyrirtæki munu ekki eiga viðskipti að óbreyttu við Íran af ótta við refsiaðgerðir Bandaríkjanna. Án viðskipta við evrópsk og bandarísk fyrirtæki blasir við stöðnun í Íran, sem gæti leitt til innanlandsófriðar.
Haldi Trump áfram að vinna pólitíska sigra með refsivönd viðskiptaþvingana að vopni verða til nýjar leikreglur í alþjóðamálum. Rússland og Kína gæta auðveldlega sætt sig við þær reglur en Evrópa hlekkjuð í ESB miklu síður."
1.3 milljón þýskra bíla var seld í Bandaríkjunum síðasta ár eða 10 % allrar framleiðslunnar.Einhverjum myndi þykja þetta ískyggilegt ef þetta væri um hluta íslenskar þjóðarframleiðslu að ræða.
"Við munum leggja tolla á Mercedes Benz og við munum leggja tolla á BMW ef þið í Evrópu opnið ekki markaði ykkar fyrir okkur" segir Trump blátt áfram. Hann er að segja að það verði enginn einstefnuakstur meira í alþjóðaverslun eins og menn hafa komsit upp með gagnvart Bandaríkjunum um langan aldur.
Óttaslegin Evrópsk fyrirtæki fara frá Íran á hverjum degi því þau vita að Trump meinar það sem hann segir.
Og Pútín á mikið undir því að halda vinfengi við Trump vegna gassins hans sem heldur Þýskalandi í gangi, Trump á nefnilega plentí gas.
Kína var að lenda sprengjuflugvélum á manngerðum eyjum sínum í S-Kínahafi. Ætli Trump láti sig það eitthvað varða í komandi viðræðum? Hver annar ætlar að gera athugasemdir við Kínverja? Merkel eða Macron?
Trump er farinn að stjórna heiminum í meira mæli hvað sem 101 liðinu og Agli Helgasyni kann að finnast um það.
21.5.2018 | 09:29
Af hverju?
ætlum við Íslendingar enn að rýra lífskjör okkar verst settu með þ´vi að elta mýrarljós Algore og hinna fjörtíuþúsund fífla í París með CO2 drauginn?
Af hverju fylgjum við ekki Donald Trump og skynseminni varðandi loftslagsmálin?
Á Íslandi þar sem allri mengun er sópað á haf út í næsta roki sem kemur örugglega innan viku verður allt vitlaust yfir einstakri svifryksmælingu í Kvosinni? Það er rokið til og kallað eftir banni á nagladekk í miðri snjókomunni í stað þess að hætta að nota ónýtt malbik í stað steyptra slitlaga.
CO2 hefur ekki verið lægra í andrúmsloftinu í 600 milljón ár. CO2 er undirstaða lífsins. Við þurfum að auka það en ekki minnka til að auka gróður jarðar.
Að skattleggja okkar minnstu bræður til að elta þessa vitleysu Evrópusambandsins og EES samningsins er dæmi um fákænsku okkar stjórnmálamanna og skorts á sjálfstæðri þjóðarhugsun.
Af hverju?
20.5.2018 | 17:11
Trump trompar út
eins og hendi sé veifað snýr hann mestu samningamönnum heims á punktinum.
Hverju ætli þeir hafi lofað á móti varðandi KimJongUn?
Blómstrandi verslun og viðskipti en ekki viðskiptastríð eða hernaður.
Hvað getur 101 lýðurinn nú sagt þegar kommúnistarnir eiga í hlut?
Trump karlinn er ekkert venjuilegur spilamaður með trompin sín.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko