Bloggfærslur mánaðarins, mars 2019
18.3.2019 | 15:46
Umhverfisfasisminn
blómstrar í grein Hjörleifs Guttormssonar. Við sem eldri erum munum vel glórulausar öfgar þessa manns frá dögum hans sem kommúnista og stóriðjuböðuls.
Niðurlagið er í samræmi við fyrripartinn þar sem hann boðar skattlagningu og píslir sem íslenskur almenningur eigi að leggja á sig píslir í þágu bullsins sem hann er heltekinn af.
Við þessu er auðvitað að búast af slíkum ofstækismanni skoðana sem hann var þekktur fyrir á sínum velmektardögum.
Hann boðar heilaþvott á æsku landsins með innrætingu trúarofstækis umhverfisfasismans eins og kommúnisminn var boðaður í gamla Sovét.
Hann lýkur með þessu:
"Fátt er brýnna en að upplýsa almenning um þá erfiðu glímu sem er framundan vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum. Í því efni á sjónvarp RÚV lof skilið fyrir þá þáttaröð sem hófst fyrir viku.
Afar brýnt er að skólakerfið verði búið undir staðgóða fræðslu um þetta flókna samspil, ekki síst grunnskólastigið. Þar skiptir miklu að kennsla í náttúrufræði og vistfræði verði traust og beinist ekki síst að íslenskum aðstæðum.
Boðað átak menntamálaráðherra til að lyfta skólastarfi er mikilvægt í þessu samhengi, með áherslu sérstaklega á kennarastarfið.
Mikill samdráttur í losun gróðurhúsalofts er óhjákvæmilegur hér sem annars staðar og honum verða að fylgja breytingar í atvinnu og viðskiptalífi sem og í heimilishaldi og neyslu. Sem tegund er mannkynið komið í miklar ógöngur og verður héðan í frá að virða takmörk plánetunnar til að eiga hér trygga framtíð.
Við Íslendingar erum þar hluti af heild og verðum að leggjast á árar með ungu kynslóðina í stafni reiðubúna að moka flórinn."
Þetta endemis kjaftæði um hættuna af losun koltvísýrings er gagnrýnilaust farið að gegnsýra alla umræðu á grunvelli múgæsinga en ekki vísindalegra forsendna.
Koltvísýringur hefur ekki verið lægri í andrúmsloftinu í 600milljón ár.
Skellt er skollaeyrum við rökum vísindamanna um að hlýnum loftslags sé af völdum sólarinnar fyrst og fremst og út í hött sé að verja skattfé til að berjast við afl hennar.
Prédikarar á borð við Hjörleif Guttormsson eru hættulegir í allri umræðu.Þeir eru með lokuð eyru við öllum mótrökum en hafa ofstækið og ritfærnina sér til styrktar til að útbreiða falskenningar sínar í umhverfisfasisma rétt eins og var á mektardögum kommúnismans.
18.3.2019 | 00:56
Mamelúkar
voru síðbúið svar Vesturlandabúa gegn árásarsveitum Húnakonunga með hraðskreiðum riddurum með boga.Þetta voru þungbrynjaðir riddarar sem voru ónæmir fyrir örvum Húnanna.
Hér í Florídu eru menn að ræða hvort kennarar í skólunum eigi að vera vopnaðir til að geta brugðist við vitleysingum sem gera skotárásir. Það virðist ekki vera meirihluti fyrir því.Sjálfagt geta kennarar samt fengið að ganga vopnaðir ef þeir svo óska og það myndu margir hiklaust gera í þeirra sporum.
Ég hef velt því fyrir mér hversvegna ekki sé settur Mamelúki í hvern skóla sem sé á vakt á skólatíma. Komi vitleysingur og byrji að skjóta þá labbi Mamelúkinn skotheldur að gaurnum og stúti honum án þess að vera í hættu sjálfur.
Alþjóðalög finnst mér líka að ættu að vera í gildi um að hryðjuverkamenn séu undantekningarlaust ekki teknir lifandi heldur sé skylda að drepa þá á staðnum. Að vera að eyða skattfé í að geyma kvikindi eins og til dæmis Breivik sem er betur kominn dauður allra hluta vegna finnst mér ekki ganga upp.Fáránlegt kjaftæði um mannúð og mildi á ekki við þetta fólk.
Memelúki á að afgreiða drápara á einn hátt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.3.2019 kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.3.2019 | 16:30
Lífsþor
Árni Grétar Finnsson var lögmaður og bjó í Hafnarfirði. Hann orti eftirfarandi ljóð, sem sannar að Sjálfstæðismenn geta líka verið heimspekingar þó vinstra liðið eins og spekingurinn Helgi Hrafn haldi því fram að við séum bara til einskis nýtir miðað við það sjálft.
"LÍFSÞOR
Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun.
Það þarf viljastyrk til að lifa eigin ævi,
einurð til að forðast heimsins lævi,
vizku til að kunna að velja og hafna,
velvild, ef að andinn á að dafna.
Þörf er á varúð víðar en margur skeytir.
Víxlspor eitt oft öllu lífi breytir.
Þá áhættu samt allir verða að taka
og enginn tekur mistök sín til baka.
Því þarf magnað þor til að vera sannur maður,
meta sinn vilja fremur en fjöldans daður,
fylgja í verki sannfæringu sinni,
sigurviss, þó freistingarnar ginni."
Píratar hefðu kannski gott af að lesa þetta ljóð áður en þeir tala um hvernig aðrir þori að lifa?.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.3.2019 | 16:09
KAT6
blokkarar eru í nýjum krabbameinslyfjum sem Fei Huang við Lyfjavísindadeild Nanjing Háskóla í Kína fjallar um í grein,sem í úrdrætti fylgir hér með.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2019 | 15:33
Frá Guði?
hlýtur umboð eftirtaldra einstaklinga að kom úr því að val þeirra á umsækjendum um dómaraembætti er æðra en fyrirmæli stjórnarskrárinnar um hver eigi að skipa dómara.
Gunnlaugur Claessen, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Halldór Halldórsson, Ingibjörg Pálmadóttir og Valtýr Sigurðsson.
Róbert Spanó dómari við Mannréttindadómstólinn úrskurðar um kæru vinar síns uppi á Íslandi til þess dómstóls að Íslendingar megi ekki ganga framhjá mati þessara fimmmenninga hvað sem stjórnarskrá Íslands segir. Ráðherrar og Alþingi séu þeim undirorpnir.
Hverskonar bull er eiginlega í gangi á þessu landi?
Eru svona Guðleg excel-umboð frá handvöldum nefndum og stofnunum úti í heimi hið æðsta vald í innanríkismálum Íslendinga sem stofnuðu lýðveldi undir stjórnarskrá 1944 á Þingvöllum?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2019 | 21:34
"Þó við séum vondir
þá eru aðrir verri".
Þessari setningu Bjarna heitins Benediktssonar gleymi ég aldrei. Hún kemur auðveldlega í hugann þegar ég les eftirfarandi texta eftir pírataþingmann, Helga Hrafn Gunnarsson.
"Ef mér tekst ekki að sannfæra þig um að kjósa Pírata, þá langar mig a.m.k. að sannfæra þig um að kjósa eitthvað annað en Sjálfstæðisflokkinn. Þannig hefst Facebook-færsla Helga Hrafn Gunnarssonar, þingmanns Pírata, þar sem hann gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega.
Hann segir að stefna Sjálfstæðisflokksins sé ekki slæm, og fólk eigi ekki að kjósa hann þess vegna, heldur sé flokkurinn orðinn svo heimakær valdinu að meðferð hans á því einkennist af ábyrgðarleysi.
Það er ekkert sterkara einkenni Sjálfstæðisflokksins heldur en ábyrgðarleysi í öllum skilningi, á öllum sviðum og öllum stundum. Þessi flokkur er með fullkomið ofnæmi fyrir ábyrgð og gerir ennfremur allt sem hann getur til að grafa undan væntingum fólks til ábyrgðar í stjórnmálum, skrifar Helgi Hrafn.
Hann segir það, hvað Sjálfstæðisflokkurinn sé rótgróinn hluti af stjórnmálasögunni og stjórnsýslunni, sé viðviðvarandi, sjálfstætt vandamál.
Hann verður að fá pásu, þó það væri ekki nema til að hann troði því inn í hausinn á sér að það sé ekki sjálfsagt að hann sé við völd.
Ég hef aldrei séð eða heyrt nokkurn skapaðan hlut af viti koma frá þessum pírataflokki eða þingmönnum hans. Þvílíkur afspyrnu vanþroski og ruglandi kemur frá þessum manni í þessum orðum. Hvernig færi með þjóðfélagið ef svona fólk kæmist til einhverra áhrifa?
Við sauðsvartir Sjálfstæðismenn erum ekki yfir okkur ánægðir meðmargt sem okkar þingmenn lát frá sér fara. En samanborið við Pírataliðið þá verður maður að rifja upp gömlu spakmælin hans Bjarna Ben til að minna sig á að hjálpræðið mun aldrei koma úr þeirri átt. Frá flokki sem hefur enga stefnu, enga afrekaskrá og kunnastur fyrir afstöðuleysi í flestu málum.
Guð blessi Ísland ef leita þarf einhvern tímann til Pírata um lausn aðsteðjandi vandamála.
Þó við séum vondir þá eru aðrir verri, jafnvel miklu verri.
15.3.2019 | 23:32
Ides Mars
er í dag. Skuldaskiladagur í gömlu Róm.
Þennan dag árið 44 fKr.,var merkismaðurinn Júlíus Cesar, Pontifex Maximus, og æðsti prestur, hershöfðingi sem byggði brú yfir Rín á liðlegri viku eins og Patton nærri 2000 árum seinna, stunginn niður í öldungaráðinu af mönnum sem hann hafði hlíft og hossað.Sjaldan launa kálfar ofeldið sannaðist á Brútusi.
Oktavíus lét drepa 300 Öldungaráðsþingmenn 4 árum seinna svona til að launa þeim fyrir að láta þetta gerast.
Ides Mars er merkisdagur
15.3.2019 | 22:15
Only a good guy with a gun
can stop a bad guy with a gun segja Kanar.
Geta sérsveitir ekki farið fyrirvaralaust með þyrlum á staði í borgum til að drepa árásarmenn eins og Christchurch?
Að hugsa sér að kvikindi eins og Breivik sé haldið uppi í lúxus og sé jafnvel með tölvusamband við aðra morðingja er ekki auðvelt. Norðmenn fóru út með Quisling og lóguðu honum þannig að aðferðin er þekkt þar í landi.
Það er spurning hvaða tilgang það hafi að taka svona úrþvætti lifandi eins og gert er?
15.3.2019 | 19:53
James D. Watson
er einn makalausasti vísindamaður okkar tíma. Ég hef verið að berjast í bók hans ,DNA, sem er frá byrjun aldarinnar. 404 síður og má segja að maður geti ekki sleppt einni línu án þess að bíða tjón á skilningi sínum.
Maðurinn er sá sem setti fram kenninguna um tvöfalda gorminn sem lýsir erfðasamsetningunni.Nú er ég svo vitlaus í líffræði að ég þekki ekki einu sinni réttu íslensku nöfnin á þessum hlutum
Rosalind Franklin kom honum og Grick á sporið með ljósmynd af þverskurði litnings. En þessi frábæra vísindakona lést fyrir aldur fram 37 ára gömul úr krabbameini.
En hver frumukjarni í líkama okkar inniheldur 2x 23 litninga, eitt sett frá hverju foreldri. Sá sem fæðist með 3 litninga númer 21 fær Downs Heilkenni til dæmis og önnur afbrigði valda öðrum vandamálum.. Hver 23 krómosómaröð(er þetta rétt orð?) röð kallast genome lífverunnar sem ég veit ekki hvað kallast á íslensku:
Myndin sýnir þverskurð af litningi og sýnir hvernig genin tengjast við tvöfalda gorminn.
Hver 23 litninga röðin inniheldur 3 milljarða af mismunandi samsetningum af 4 einingum sem ráða öllu um erfðir okkar.
Ég á auðvitað ekki að vera að skrifa um þetta þar sem ég hef ekki hundsvit á þessum vísindum. En bók Watsons er svo ótrúlega massív og áhugaverð að það er ekki áhlaupaverk að lesa hana fyrir venjulegan bjána eins og mig.Og ég hef alls ekki klárað hana né skilið til hlítar.
Okkar dr. Kári Stefánsson fær 2 loflegar síður í bókinni sem sannar að hann hefur alþjóðlega stöðu með fremstu vísindamönnum heims.Fyllti mig stolti að lesa það þó heimska landsmanna hafi stórspillt árangrinum sem hefði verið hægt að ná í okkar sérstöku aðstæðum ef elítan og sérvitringarnir hefðu ekki eyðilagt það sem að var stefnt.
En það er eitt sem knúði mig til að minnast á þetta. Það er hvernig farið var með þennan einstaka nú níræða vísindamann.
Mann sem aðeins stjórnast af rannsóknum og vísindalegum niðurstöðum. Hann sagðist hafa komið auga á tengsli milli kynþátta og eiginleika eins og gáfna og fleira. Upp risu fávitar og stimpluðu hann kynþáttahatara. Réðust á hann og reyndu að skaða orðstír hans á allan hátt, kölluðu hann rasista og nasista. Sem hann er auðvitað ekki. En þeir sviptu hann öllu sem þeir gátu fyrir að standa við skoðanir sínar nú síðast í janúar.
Góða fólkið, demókratar og elítufólk þóttist vita allt og níðskrifin eru endalaus.
Watson sem er trúleysingi lýkur bók sinni á grein Páls Postula um kærleikann sem sé sitt manifesto og vonar að einhvern tímann verði hægt að rækta illskuna úr manninum eins og aðrar raunir hans og sjúkdóma.Samt stimplar pakkið hann með verstu ónefnum sem er sorglegt þar sem mannkynið á þessum tuttugufalda doktor og Nóbelsmanni, mikla skuld að gjalda.
James D. Watson er í mínum augum mikilmenni sem menn eiga að virða fyrir það sem hann er og kynna sér það sem hann hefur gert og hefur verið.
Myndin sýnir hvernig krómósómin eru í hverri frumu í líkamanum(450 milljón frumur í okkur skipta sér á hverri sekúndu)Hvert par af 23(í kassanum)er genomið okkar)Það inniheldur 3.1 milljarð af grunnþáttum A,T,G og C.Geta menn ímyndað sér við hvað erfðaverkfræðin er að fást? Þarna liggja orsakir allra sjúkdóma. Ef maður getur fitlað við þetta á réttan hátt þá er hægt að gerbreyta lífi manna? Downs heilkenninu má forða, brjóstakrabbahættunni sem Kári getur greint. Endalausir möguleikar opnast fyrir störf manna eins og James D. Watson og slíkra vísindamanna.Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.3.2019 kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.3.2019 | 18:16
Sprell
skólanema sem krefjast aðgerða í loftslagsmálum er skemmtun til þess fallin að skrópa í skólanum án viðurlaga.
Skólayfirvöld eiga að setja kynningu á vísindamönnum eins og Judith Curry og fleiri í skólunum ef skólar eiga að standa undir nafni sem menntastofnanir en ekki bolsévískar sprellistofnanir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko