Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2019

Enn bréf frá Gísla

Holgerssyni:

Ég er í þeim minnihluta hóp á ÍSLANDI, sem dái hugsanir President Donald J.TRUMP.

Þetta er sá forseti, sem hefur ótrúlegt vinnu þrek og „alheims“ kjark til samninga við einstaklinga og fjarlægar þjóðir.

Hann hefur umbylt atvinnutækifærum í Ameriku og vantar enn fleiri til vinnu,sem koma löglega til landsins.

Made in U S A, er hans lífssýn.


Hann berst við „stjórnleysi“ fjármála innan og utan þings.

Hann krefst ÖRUGGRA landamæra við Mexico vegna innflutnings á eiturlyfjum og glæpasamtökum, sem streyma inn til
Bandaríkjanna. Landamæra VEGGURINN kemur til lausnar og varnar á öllum vanda málum BANDARÍKJANNA. The WALL undirstrikar ÖRYGGI og VARNIR USA.


NÚ ER MÁLUM LOKIÐ HJÁ ransóknarmanninum ROBERT MUELLER VARÐANDI PRESIDENT DONALD J. TRUMP og lognu SAMNEYTI VIÐ RÚSSLAND, sem borgað var af Crooked HILLARY Clinton fyrir nokkrum árum.


Stundum finnst mér, að ROBERT MUELLER standi fyrir Pontiusi Pilatus þar sem hann segir JESUS EKKI vera sekann.

DEMOKRATAR væla enn um að hann sé SEKUR, þrátt fyrir sakleysið og það verði að krossfesta hann?.

Donald J.TRUMP er fæddur undir BLOOD MOON og stendur fyrir
„sannleika“ og KRISTNUM siðum.


Gísli Holgersson."

Ýlfrið í blóðhundum Demmanna hefur lítið minnnkað og þeir leita eftir einhverjum stráum til að toga í.

Fyrir liggur að mér skilst að ekki verður um frekari ákærur að ræða eftir þessa miklu rannsókn Muellers. Samt skal haldið áfram með galdramálin af hálfu Demmanna.

Ég hallast að því að taka undir með Gísla Holgerssyni.Hef aldrei trúað neinu af þessum þvættingi um að Rússar hafi kosið hann að einhverju leyti.

Hinsvegar er það svo að hann er mun meiri friðarsinni heldur en illfyglið Hillary Clinton sem er blóðug upp að öxlum eftir sína valdatíð.

  Donald J. Trump er mikill forseti, friðarsinni og vill vel.

 


Hugsjónamanni kálað

af góða fólkinu og hræsnurum.

Radovan Karadzic er dæmdur fyrir að styrjöld stóð yfir í Bosníu sem hann ber ekki einn ábyrgð á. Dreginn fyrir hlutdrægan rétt eins og Geir H. Haarde en dæmdur frá lífinu. Var á flótta í 13 ár þar til að hann var svikinn.

Hugsjónamanni er enn einu sinni kálað af góða fólkinu og pópúlistum  á altari hræsninnar.


Verkleysið heldur áfram

hjá Útlendingastofnun.

Hælisleitendum stórfjölgar frá fyrra ári þrátt fyrir að þeim megi flestum sópa í burtu án tafa á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar til þess Evrópulands sem þeir koma hingað frá.

Nú segja fréttir að það vanti húsnæði og félagslegan stuðning fyrir svona þúsund manns þetta árið til viðbótar uppsöfnuðum milljarðakostnaði og fólki frá fyrri árum.

Verkleysið hjá útlendingastofnun heldur áfram.


Ef þú borgar ekki þá..

verður það verst fyrir þig. Þá fær Ísland skell því að svo margir missa vinnuna. Mig vantar pening og þú verður að koma með hann.

WoW lætur ráðgjafafyrirtæki kanna áhrif af gjaldþroti fyrir efnahaginn - Væntanlega til að rökstyðja aðkomu ríkisins til björgunar - 

 
 
 
 
Var ekki Chrysler og General Motors bjargað í Bandaríkjunum? Skúli lítur greinilega stórt á sig þegar hann dreifir fréttum af mikilvægi sínu.
Var það nokkurn tímann svona mikið? Keypti Jón Ásgeir ekki líka fyrst banka og svo flugfélag án þess að kunna mikið að fljúga?
 
En það er klárt að Icelandair vantar starfhæfar flugvélar í stað B737Max.og það strax.
 
Hræðsluskýrsla sem Skúli Mogensen keypti hagfræðing til að skrifa um atvinnumissi 4000 manna er brosleg. Það var ekki Skúli  sem fann Ísland sem ferðamannanaland heldur ferðamennirnir sjálfir vegna augljósra kosta landsins sjálfs.
 
Og hverfa störfin þótt aðrir húsbændur taki við búinu ef þú ekki borgar?

Konungsbók

eftir Arnald var ég að leggja frá mér.

Ég er nú yfirleitt ekki að lesa mikið bullusögur sem ég kalla allt annað en staðreyndabækur.En af því maður er lausbeislaður þessa daga þá datt ég í að lesa þetta í sólinni.

Satt að segja varð ég alveg klumsa yfir því hversu rosalega þekkingu höfundurinn hefur á fornbókmenntum alveg áður en hann fer að semja þessa ferlegu spennusögu sem fer víða um lönd og fléttast raunverulegum atburðum og persónum.

Ef þetta er ekki efni í spennumynd hjá Baltasar þá er ég illa svikinn. Ég fór svo að byrja að lesa Reykjavíkurnætur á eftir og finnst hún hundleiðinleg það sem af er í samanburði við Konungsbók sem líklega enginn leggur frá sér ókláraða.


Að vera formaður

Sjálfstæðisflokksins er algerlega miskunnarlaust starf-, sagði Bjarni Beneddiktsson eldri. Það er ekki við öðru að búast en að gusti um þann sem því gegnir.

Gunnar Rögnvaldsson er ómyrkur í máli í hverju sem er. Hann veltir stöðu Sjálfstæðisflokssins tíðum fyrir sér og hefur af henni áhyggjur þó að mér vitanlega hafi hann ekki starfað margt á þeim vettvangi.

Hann skrifar svo á bloggsíðu sinni:

"....

Samhliða þessu áhlaupi á raforkumálin reyna íslenskir stjórnmála- og smásölumenn allt hvað þeir geta að fórna íslenskum landbúnaði á altari ríkisstyrkts ESB-landbúnaðar, og gengur þriðji-flokkur Framsóknarflokksins þar hve harðast fram. Ofan í þetta tvennt bætist svo sú staðreynd, að við Íslendingar ráðum varla lengur því hver býr í landinu okkar eða ekki; og svo því hverjum erlendum er verið að selja landið undan þjóðinni í skömmtum, eða ekki

Þegar ég hugsa um núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins þá sé ég fyrir mér sennilega lélegasta formann flokksins frá upphafi, og sem fyrir aðeins nokkrum árum ætlaði sér að setja íslensku þjóðina í skuldafangelsi vegna skulda einkafyrirtækja. Við hverju má þá ekki búast þegar að íslensku olíunni kemur; raforkunni? Hvar er dómgreind hans? Formenn flokksins hafa verið þessir:

  1. Jón Þorláksson
  2. Ólafur Thors
  3. Bjarni Benediktsson
  4. Jóhann Hafstein
  5. Geir Hallgrímsson
  6. Þorsteinn Pálsson
  7. Davíð Oddsson
  8. Geir H. Haarde
  9. Bjarni Benediktsson

Traust mitt á forystunni í flokki mínum er því miður ekki til staðar í þessum efnum. Það hefur þurft að mata hana eins og hvítvoðung með teskeið á fullveldis-staðreyndum lífsins í næstum því 10 ár, bara til þess eins að flokkurinn rétt næði að lifa forystuna af.

Og aðeins eru nokkrir dagar liðnir frá síðasta mannfalli í flokknum. Þá vegna Evrópudómstóla sem fylgja uppskriftinni að einræði æ nánar. Evrópumálin eru að eyðileggja flokkinn, eins og þau mál hafa gert og gera út um alla Evrópu.

Er ekki kominn tími til að ranka úr EES-rotinu, sem breyttist í bankarotið vegna eins EES-samnings. Á kannski að eyðileggja enn meira?

Þjóðaröryggisstefna getur aldrei byggst á því að vona það besta. Slík stefna er og verður alltaf þjóðar-óöryggisstefna"

Já, Gunnar er ófeiminn við að segja sína skoðun eins og Styrmir Gunnarsson, sem deilir áhyggjum af gengisleysi Sjálfstæðisflokksins með Gunnari en talar kannski oftar "subrosa".

En það er ekki nóg að vera bara gagnrýninn. Maður verður að benda á leiðir út.

Ég var heldur ekki sammála Bjarna Ben þegar hann kynnti sitt "ískalda mat" á því að skynsamlegast væri að semja við ESB og borga leifarnar af Icesave. Hann mat það að áhættan væri meiri en að vera  þess virði að borga ekki afganginn. Við vorum svo sýknaðir Íslendingar en Bjarni sakfelldur fyrir afstöðu sína.

Ég var líka mjög ósáttur við Bjarna þegar hann hrærði í prófkjörinu í Kraganum með þeim afleiðingum að Villi Bjarna datt út af þingi og lækkaði þar með greindarvísitölu þingsins.Ég er algerlega á móti svona vinnubrögðum.

En býður Gunnar nokkurn annan fram til að taka við af Bjarna? Hvað eru flokksmenn óánægðastir með í Bjarna sem formann?

Ég skal vera hreinskilinn þegar um þetta er rætt enda orðinn hundgamall og hef úr engum söðli að detta, burtrækur úr flokknum í Kópavogi.

Bjarni ber höfuð og herðar yfir alla aðra þingmenn í málflutningi á Alþingi. Í samanburði við hann eru þar inni menn sem eru eiginlega zombíur í ræðu og riti. Að maður tali ekki um glæsileika íþróttamannsins. Hvað vantar þá?

Bjarni er fjölskyldumaður með ung börn.Hann hefur ekki fórnað allri lífshamingjunni fyrir þennan miskunnarlausa flokk.Lái honum hver sem vill. En Ólafur Thors vitnaði einhvern tímann í Tedda Roosewelt sem sagði að "life is a matter of appearance" Maður yrði að leika hlutverk sitt hvað sem manni fyndist sjálfum.

Sú saga var mér sögð af Grími heitnum í Íspan að Geir í Eskihlíð sagði honum að hann hefði aldrei treyst sér til að vera nótt að heiman frá búi sínu. "Ég fór eitt sinn einn dag austur fyrir fjall. Og það get ég sagt þér Grímur að það var allt komið í vitleysu þegar ég kom heim um kvöldið".

Það var sagt um Davíð Oddsson þegar hann fór fyrir ríkisstjórn að það lengsta sem hann treysti sér að fara frá voru örfáir dagar til London. Þá flýtti hann sér heim aftur því hann var svo logandi hræddur um að hinir ráðherrarnir myndu gera einhverja bölvaða vitleysu á meðan.

Davíð lagði sig allan fram í leiðtogahlutverkinu og skaphöfn og húmor hans sópaði til sín aðdáun hvar sem hann fór og gerir í raun enn þegar menn lesa skrifin hans.

Bjarni hefur alveg hæfileika til að sinna leiðtogahlutverkinu mun meira en hann gerir. Hann beinir hinsvegar orkunni meira inná við í skrifstofustörf. Hann getur heillað fólk ef svo ber undir. Og flest flókin mál liggja vel fyrir honum. En hann virðist ekki vera sérlega næmur á að hlusta á þytinn í laufinu. Hugsanlega hefur hann ekki nægilega góða ráðgjafa skorti hann næmið sjálfan.Hvað finnst honum um skoðanir flokksmanna á 3. orkupakkanum? Heyrir hann ekki?

 

Davíð þurfti ekki ráðgjafa því hann lagði aðeins eyrað að jörðinni.Húmor og léttleika þurfa leiðtogar að sýna út á við.

Geir Haarde söng umbarabassa á góðum stundum.

Jóhann Hafstein kunni vel að kætast.

 

Ólafur Thors gat verið hinn mesti æringi, fullur eða ófullur.

Bjarna Ben eldri gat vissulega sleppt fram af sér beislinu í góðum hópi og sopið vel á.

Þorsteinn Pálsson féll ekki í kramið hjá Bryndísi Schram fyrir að detta ekki í það með strákunum og varð ekki langlífur á formannsstóli frekar en í stjórninni með Jóni Baldvin og Steingrími Hermannsyni.

Davíð fór til Keflavíkur að taka á móti Bermúdaskálinni og lenti óvart í beinni útsendingu.

Skömmu síðar var ég í opinberu samkvæmi hjá virðulegum samtökum. Þar flutti Davíð alvarlegt ávarp um þjóðfélagsmál.

Svo bætti hann við að samtökin hefðu beðið hann um að gjöra sér gott af veitingunum. Ennfremur bætti hann við, að hann ætti nú líklega ekki að hvetja menn til drykkjar af öllum mönnum og kímdu þá margir. Svo bætti Davíð við að Dean Martin hefði samt sagt að eiginlega væri enginn fullur sem gæti legið óstuddur í gólfinu. Og enginn sá Davíð nokkru sinni hreifan opinberlega síðan í Keflavík svo ég viti til.

En sprellað gat hann Davíð fyrirvaralaust eins og þegar hann byrjaði stóra fundinn í Garðabæ með því að fara með vísu sem endaði svona "....bláa höndin blessi þig, í bak og fyrir vinur. Hef ég sjaldan heyrt jafn marga hlæja eins mikið.

 

Þessi vísa var kveðin um séra Arnljót , sem var þingskörungur á liðinni öld:

Mér er um og ó um Ljót

ætla hann bæði dreng og þrjót,

Í honum er gull og grjót,

getur unnið mein og bót.

 

Svo er líklega um alla menn að þeim eru mislagðar hendur. Bjarna Benediktssyni líka. En menn geta alltaf bætt sig ef þeir reyna virkilega.

En það er nú svo að enginn getur bent á neinn Sjálfstæðisþingmann sem er í standi til að taka við af Bjarna ef með þyrfti. Þetta lið sem búið er að raða pópúlískt á toppinn í flokknum hefur enga burði til þess eins og stendur eða hvað finnst mönnum?

Svo verðum við ekki að styðja formann okkar Bjarna Benediktsson og þá góðu hæfileika sem hann hefur og vona að hann taki við aðfinnslum og geri okkur og sjálfan sig ánægðari með að vera formaður Sjálfstæðisflokksins? 

  


Hvað á að þola hælisleitendum?

Páll Vilhjálmsson skrifar:

"Þingmenn Pírata og Samfylkingar nota vald sitt yfir nefndum alþingis til að ofsækja lögreglumenn sem sinna skyldum sínum.

Ofsóknirnar birtast í því að lögreglumenn eru kallaðir á teppið af þingmönnum sem unnu eið að stjórnarskrá lýðveldisins en starfa í þágu útlendra hagsmuna.

Þingmenn sem grafa undan lögum og rétti í landinu eiga ekki heima á málstofu þjóðarinnar. "

Hver bað þetta fólk að koma hingað og heimta af okkur?

Kemur það ekki frá öðrum Evrópulöndum og á að fara umsvifalaust til baka skv. Dyflinarreglugerðinni?

Þess í stað heimta þeir að hún gildi ekki fyrir þá svo þeir geti sest að hjá okkur en ekki í fyrsta landinu?

Svo ráðast þeir á lögreglu og berja hana. Er ekki Lögreglan i fyllsta rétti að verja hendur sínar.

Þingmennirnir í stjórnarandstöðunni eru því greinilega ekki sammála og kalla Lögregluna á teppið hjá sér til að gera sig breiða í góðmennskunni og eyða almannafé í áróðursskyni fyrir sig?.

Svo svívirða hælisleitendur styttu Jóns Sigurðssonar og hengja sínar kröfur um hálsinn á honum. Tjalda á Austurvelli í boði Samfylkingarinnar í Borgarstjórn og fara sínu fram. Og góða fólkið á þingi og annarsstaðar heimtar að þeir fái allt sem þeir heimta. 

Hversu miklir ræflar getum við Íslendingar orðið?

Hversu mikið á að þola þessum hælisleitendum af yfirgangi og frekju?


Róbert Spanó

og vinur hans Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lagaprófasnillingur standa saman að dómi ME gegn íslenska ríkinu. Aðeins þess vegna er rétt að skjóta málinu til yfirréttarins til að útiloka áhrif þessara þjóðhollu  kumpána.

Við verðum að reyna að halda föður yngra Vilhjálms H. í fullri virðingu í Landsréttinum og því gerum við auðvitað ekkert með niðurstöður þessa dómstóls frekar en okkur passar. Ég hef þá trú að Sigríður verði aftur ráðherra þegar eftir þann úrskurð svo vitlaus sem sá fyrri er að flestra dómi nema pírata.

Við skulum muna  eftir nafninu Róbert Spanó þegar honum liggur lítið við.


Verksviptingar strax

látum ekki verkalýðsfantana hafa allt frumkvæði.

Stöðvum þjóðfélagið á öðrum forsendum en að bara þeir stjórni aðgerðum.Látumþá finna til tevatnsins einu sinni.

Verksviptingarheimildir strax.


Kjaraviðræðurnar

er greinilega óleysanlegar.

Þessi leiksýning sem nú fer fram á Íslandi gæti ekki farið fram hér í Ameríku þar sem félagafrelsi ríkir.

Einokun svonefndra verkalýðsfélaga á starfsgreinum og landssvæðum væri ekki möguleg í því þjóðfélagi frelsins sem Bandaríkin eru.

Samningsslit starfsgreinasambandsins sem eru tilkynnt á Íslandi í þessu eru tilkynnt sem undirbúningur einskonar Ragnaraka fyrir fórnardýrin sem eru aðrir borgar landsins.

Er þetta allt saman ekki endileysa?

Af hverju mega þessi félög eins og Efling eða Samiðn ekki  fá sjálfdæmi um það að auglýsa þá taxta sína sem þeirra félagar muni vinna eftir.

Taxtar okkar félagsmanna eru svohljóðandi: Enginn félagsmaður má vinna undir þeim.

SA segi sig á móti frá öllum samningum um forgangsrétt einhverra félaga um vinnu og ráði það fólk sem þeir kæra sig um á þeim töxtum sem viðkomandi vill vinna eftir? Til hvers að vera að þessari leiksýningu í húsi fáránleikans?

Þá eru eftir samningar ríkisins við opinbera starfsmenn þar sem menntun verður metin til launa að því að þeir segja.

Má ekki hafa sama hátt á? Störf séu auglýst og hvaða laun séu í boði? Enginn forgangur einhverra félaga verði við hafður? Ráðuneytisstjóri óskast. Launin eru þessi:

Kennarar óskast:  Launin eru þessi:

Eins og nú stefnir er þjóðfélagið á hraðri leið til andskotans eftir einhverjum leikreglum sem voru samdar löngu fyrir seinna  stríð.Með tilheyrandi sviptingum á gengi krónunnar.Samt hafa hér orðið fordæmalausar framfarir í lífskjörum almennings. Hugsanlega má rekja það til þess að forystumenn launþegafélaganna á fyrri tíð hafi verið skynsamari en þeir sem nú hafa risið til valda.Núna eru bara stálin stinn í boði og stefnt að því fyrirfram að vopnin tali.

Hvernig á að semja þegar opinberir starfsmenn ætla greinilega að koma á eftir og hirða það sem hinir fá og svo gott betur vegna menntunar og sérstöðu?

Það er líka algerlega fáránlegt að ríkisvaldið eigi að koma að kjarasamningum. Það á auðvitað að hafa allan rétt til að gera þær skattalagabreytingar sem þarf til að stjórna efnahagsmálum þjóðarannar.

Ríkisvaldið átti að sjá það af sjálfu sér að byggingakostnaður er svo löngu farinn úr böndunum að það átti að hafa gripið til ráðstafana og skyldað um leið  sveitarfélögin til að gera slíkt hið sama.

Hvernig í veröldinni á þetta að leysast nema eftir allsherjarverkfall og verksviptingu þar sem öllu  verður lokað og byltingarástand hefur ríkt nægilega lengi.

Hugsanlega verður að flytja inn pakistanskar bardagasveitir til að halda uppi aga og til að forða frekari manndrápum þegar lögleysið hefur tekið yfir.

En hvaða stjórnmálamenn okkar munu ráða við þær ákvarðanir sem þarf að taka í óreiðunni  nema að Sólveig Anna og Fjögurrablaða Smári hafi þá náð nægilega traustu taki á stjórn landsins að til þessa þurfi ekki að koma. Þau geta náð í liðssveitir frá Maduro til þess að taka íhaldið þeim steinbítstökum sem þau stefna leynt og ljóst að.

Kjaraviðræðuvitleysan er hvort eð er aðeins tæki sem kommúnistar ætla að nota til að taka þjóðfélagið yfir og stofna hér hinn fullkomna jöfnuð og félagslegt réttlæti undir sinni stjórn. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband