5.7.2015 | 18:56
Oxi-Nai?
er valkostur frænda okkar Grikkja í dag. Þeir eru ættaðir frá Hallstad í Austurríki og því Indo-Germanir eins og við. Þeir komu í kjölfar falls Mínóanna sem drukknuðu þegar Thera eða Santorini sprakk með Atlantis borginni frægu og syndaflóðið kom eitthvað 1560 árum fyrir Krist.
Líklega segja þeir Nai en ekki Oxi. Hvað þá?
Ég held að Grikkir muni gefa út Euro-Greco fljótlega. Notenbank ESB mun taka að sér að halda uppi einhverju gengi á nýja seðlinum, eitthvað sem Grikkir þarfnast þegar Evrurnar eru búnar. Kannsi 1 : 0.7.
Þá getum við farið að ferðast og hafa það gott í Grikklandi. Grikkland er heillandi land og fólkið gott. Við skulum styrkja þá eftir föngum hvort þeir segja Oxi eða Nai.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.7.2015 | 18:28
Stjórnarskrársíbyljan
er á sinninu á vinstra liðinu. Maður heyrir ekki viðtal við neinn af þeim öðru vísi en að hann fari að tala um stjórnarskrá, hversu heitt við þráum nýja stjórnarskrá, sem tryggi okkur til dæmis þjóðareign á auðlindum landsins og leyfi sérviskupúkum að kalla fyrirhafnarlítið á þjóðaratkvæðagreiðslur.
Núverandi stjórnarskrá er samin á grundvelli þrautprófaðra stjórnarskráa evrópskra. Hún var lögtekin á 17.júní 1944. Gerðar hafa verið breytingar á henni í gegn um tíðina sem voru óhjákvæmilegar vegna búsetubreytinga í landinu. Annað hefur ekki þurft að gera, svo vel er fyrir öllu séð.
Það er áberandi að varla nokkur hægri maður talar um nauðsyn nýrrar stjórnarskrár. Umræðan er nær einvörðungu bundin við vinstra fólkið. Líklega er því ávallt meiri prettir og valdbeiting í huga en venjulegu fólki. Það býst við svikum og illvilja af náunganum, það hatar hann vegna þess að að hann gæti verið haldinn græðgi, verið með bíla-og bensíndellu, verið á móti því að láta Carbon Recycling fá einkaleyfi á að gera bensínið dýrara vegna EES tilskipana, gefið ekki neitt fyrir auknar hjólreiðar og EES, verið fylgjandi kirkju og kristni og biflíugjöfum í skólum og trúir jafnvel á jólasveininn og álfa.
Aldrei hefur mér til hugar komið að stjórnarskráin hafi eitthvað haft með að gera mitt gengi í ævisögunni. Mér finnst hún þvert á móti hafa dugað afbragðs vel og að kvótakerfið sé ekki henni að kenna.
Ég las moðsuðuna sem kom frá stjórnlagaþinginu frá upphafi til enda. Mér fannst það álíka skýrt og skiljanlegt eins og langhundar eftir suma vinstri sinnaða prófessora sem skrifa í blöðin til að hafa vit fyrir okkur sauðsvörtum. Vífilengjur um ekki neitt sem má alveg vera án.
Ekki sá ég kostina eða nauðsyn þess að býtta á henni og því sem við höfum. Mér finnst að núverandi stjórnarskrá rúmi allt það sem við þurfum að hafa, við getum gert allt þetta sem mest er þvælt um eins og beinu lýðræðisvitleysuna sem örsmár minnihluti tönnlast á, án þess að höggva í stjórnarskrána. Alþingi hefur klárað sig af öðru eins.Og Forsetinn er alltaf til staðar með 63.greinina.
Það er ekki stjórnarskráin sem veldur vantrú fólks á Alþingi. Það er miklu fremur hversu margir furðulegir dónar og bjálfar hafa flotið þangað inn. Það sama fólk sem kaus þá getur varla við aðra sakast en sjálft sig þegar það vill ræða virðingu Alþingis.
Þingmenn hægri flokkanna virðast hafa hlotið mun betra uppeldi sem endurspeglast yfirleitt í framkomu þeirra.Stjórnarskrársíbyljan þjáir þá að minnsta kosti ekki til jafns við hina.
5.7.2015 | 09:59
Hannes Hólmsteinn
er með snjallari mönnum að finna vinkla á málum sem menn gleyma oft í erli dagsins.
Háskóladella ríður húsum í þessu þjóðfélagi. Í og með með með sívaxandi útþenslu ríkisballarins sem er búinn að meta óflokkaðar háskólagráður til launaprósenta. Hjúkrun á háskólastigi í stað umönnunar, leikskólakennsla á háskólastigi, háskólastig á þetta og hitt.
Hannes var viðstaddur rektorsskipti og fór að hugsa út fyrir kassann:
" Ég var viðstaddur rektorsskiptin, þegar Jón Atli Benediktsson tók við af Kristínu Ingólfsdóttur. Þau eru bæði sómafólk, frambærileg og góðviljuð.
Ég velti því hins vegar stundum fyrir mér á háskólahátíðum, hvort eftirsóknarvert sé, að svo margir stundi háskólanám, sérstaklega í hugvísindum.
Þurfum við ekki frekar meiri hagnýta þekkingu? Fleiri rafvirkja, smiði, pípulagningamenn, vélvirkja? Og eiga ýmsar umönnunargreinar heima í háskóla?
Er ekki betra að þjálfa fólkið á staðnum, á sjúkrahúsum, dagheimilum og í skólum?
Er þessi háskólavitleysa ekki komin út í öfgar? Þurfum við endilega 8 ára lækna til að gera við beinbrot eða sauma saman skurði á fyllibyttum? Af hverju ekki paramedics á iðnskólastigi?
Það var og Hannes Hólmsteinn.
4.7.2015 | 09:19
Eitruðu tengslin
milli Samfylkingarinnar og hrunstjóranna verða Helga Hjörvar hugstæð. Svo segir í Mogga:
"Í eldhúsdagsræðu sinni í vikunni kom Helgi Hjörvar víða við. Eitt af því sem hann nefndi var að meðal þess sem setti okkur á hausinn fyrir nokkrum árum hafi verið eitruð tengsl stjórnmála og viðskiptalífs.
Frá þingmanni Samfylkingarinnar er þetta sérstaklega athyglisverð athugasemd.
Og hún hlýtur að vekja spurningar um hvort hann ætlar að upplýsa nánar um þessi eitruðu tengsl.
Eftir því hefur verið beðið að þingmenn og aðrir forystumenn
Samfylkingarinnar frá þeim tíma sem tengslin við helstu
útrásarvíkingana voru sem nánust veiti frekari innsýn í þau
tengsl.
Þeir hafa enn ekki útskýrt Borgarnesræðurnar og aðra þjónkun við þá sem taldir voru eiga mest undir sér í íslensku við-
skiptalífi á þeim tíma.

Nú, þegar viðurkennt hefur verið að um eitruð tengsl stjórnmála og viðskiptalífs hafi verið að ræða á þessum árum, hlýtur að mega búast við frekari upplýsingum um hin eitruðu tengsl og afleiðingar þeirra fyrir störf og stefnu stjórnmálaflokksins.
Samfylkingin gerðist gagnrýnislaus klappstýra tiltekinna
afla á árunum fyrir fall bankanna.
Hún hefur liðið fyrir það síðan og ætti að gera þau mál"
Ég man ekki betur en að framlögin frá hrunameisturunum til kosningasjóða Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hafi verið álíka há. Þau voru hisvegar lögleg í baðum tilvikum.
En hafði Samfylkingin ekki líka milligöngu um fjármögnun óeirðanna í búsáhaldabyltingunni frá hrunmeisturunum?
Bjarni Benediktsson valdi það að veðsetja Valhöll upp fyrir rjáfur til að skila þessum "eitruðu" peningum aftur. Sjálfstæðisflokkurinn er nánast gjaldþrota eftir þetta. Hann hefur hinsvegar ekki étið þessa þjófstolnu peninga enda all mjósleginn orðinn greyið.
Hvað skilaði Samfylkingin miklu af þessum eitruðu peningum? Á hverju lifir hún?
Vill Helgi Hjörvar, eða þá Árni Páll ekki vinsamlegast gera okkur grein fyrir eiturlyjafíkn Samfylkingarinnar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.7.2015 | 08:54
Hvað vilja Píratar?
eiginlega?
Svo segir í Morgunlaðinu:
"Alþingi samþykkti undir lok seinasta þingfundarins fyrir þingslit í gær lög um 39% stöðugleikaskatt og nauðasamninga fjármálafyrirtækja, svonefnd haftafrumvörp. Var þverpólitísk samstaða um afgreiðslu þeirra.
Frumvarpið um stöðugleikaskatt var samþykkt með 55 atkvæðum en einn þingmaður, Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, greiddi ekki atkvæði. Frumvarpið um fjármálafyrirtæki og nauðasamninga var sam- þykkt með 53 atkvæðum.
Einn þingmaður, Ögmundur Jónasson í Vg, greiddi atkvæði á móti og tveir þingmenn sátu hjá, Andrés Ingi Jónsson, Vg, og Jón Þór Ólafsson, Pírati.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði við lokaumræðu um málið að þingið væri að samþykkja leið til þess að leysa stærsta efnahagsvandamál sem þjóðin hefði staðið frammi fyrir undanfarin ár.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vg, sagði að réttlæting skattsins væri vandasöm og það væri vel gert í greinargerð frumvarpsins. Stöðugleikaskatturinn væri fyllilega réttlætanlegur og stæðist ákvæði stjórnarskrárinnar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, tók í sama streng og sagði að mikilvægasti þáttur framhaldsins væri að tryggja að farið yrði þannig með þá fjármuni sem renna til ríkissjóðs að þeir valdi ekki efnahagslegum óstöðugleika. Þá mætti heldur ekki valda pólitískum óstöðugleika með loforðaflaumi í aðdraganda kosninga. Það er verkefni okkar allra að standa við þá pólitísku samstöðu sem fram hefur komið í nefndinni að við ætlum öll að verjast þeirri freistingu, sagði hann.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, þakkaði fyrir samstöðu þingsins. Um ráðstöfun fjármunanna sem um ræðir sagði Bjarni skýrt að þeim bæri að ráð- stafa til að lækka skuldir ríkissjóðs. Hér kemur fram heildstæð áætlun um það hvernig á að leysa vandann. Það er mjög mikilvægt fyrir íslenska þjóð að finna fyrir þeirri samstöðu sem er hér á þinginu um aðferðafræðina við að ná því markmiði, sagði Bjarni. Skatturinn verður einskiptisskattur sem lagður verður á 15. apríl 2016 og verða gjalddagar fjórir á árinu: 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst 2016.
Hverju mun það þing koma frá sér sem verður undir forystu Pírata með Jón Þór Ólafsson sem forsætisráðherra?
Skyldi hann kaupa sér slifsi daginn sem hann þarf að útskýra hvað stærsti flokkur þjóðarinnar Píratar vill í raun og veru?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2015 | 23:07
Eldhúsdagur
á Alþingi var fróðlegur að vanda. Ég dáðist að því hversu margir þingmenn höfðu vandað til klæðaburðar við þennan viðburð. Pírataskammirnar skáru sig að sjálfsögðu úr með að karlar voru slifsislausir eins og Borgarahreyfingin sáluga.
En málflutningur sumra stjórnarandstöðuþingmanna kom mér á ovart. Ég vissi ekki að hagsmunir gangandi og hjólandi skiptu svona miklu meginmáli í hugarheimi prúðbúins þingmanns bjartrar framtíðar.
Og væntanleg ný stjórnarskrá virtist verða staðreynd í hugum pírata á næsta ári sem verður kosið um þegar við kjósum til Forseta hvort eð er ? Ný stjórnarskrá sem samin verður á grundvelli heiðarleika eftir tillögum á stjórnlagaþingi fyrir margt löngu mun tryggja að hér geti verið reglubundnar þjóðaratkvæðagreiðslur, sem tryggja þetta beina lýðræði sem kallað er.
Og ég sem var kominn að þeirri niðurstöðu hvað mig varðar að mér finnist núverandi stjórnarskrá alveg nógu góð fyrir mig að minnsta kosti. Nei, þetta fólk þarf nýja stjórnarskrá til að geta andað.
Mikið dáðist ég að steinrunnu andliti Einar K. Guðfinnssonar í baksýn þegar stjórnarandstöðufólkið fór hamförum í pontunni.
Einn minntist þó á möguleika sem ég varð ánægður með. Hann væri að stjórnarandstaðan færi heim til sín af þinginu þegar búið er að mynda meirihluta og kæmi þar ekki meir. Þetta fannst mér skynsamlegur möguleiki sem myndi spara okkur mikið málæði og dýran tíma. Þetta fólk væri bara heima í sínu gersamlega áhrifaleysi. Það gæti kannski fengið að koma á eldhúsdaginn og þylja bölbænir sínar án takmarkana með nákvæmlega sömu áhrifum nema þingið hefði verið búið svona tveimur mánuðum fyrr.
Er ekki hægt að útfæra þessa bráðgóðu tillögu betur fyrir næsta eldhúsdag?
1.7.2015 | 22:42
Er hún ekki einlæg?
blessunin hún Katrín í Vinstri Grænum?
Hún vekur alltaf aðdáun mína fyrir sitt barnslega opna andlit og augnaráð. Hún meinar það sem hún segir um viðleitni flokksins hennar um að varðveita stöðu lítilmagnanna og stuðla að jöfnuði meðal manna. Sama gat mér aldrei fundist um forvera hennar í formennsku flokks vinstri grænna. Ég hef aldrei séð neitt til hans sem gefur til kynna að þar fari maður sem ber hagsmuni lítilmagnans fyrir brjósti. Það svigna ávallt einhverjir feiknstafir í andlitinu og einhver óútskýrð heift til þeirra óverðugra brennur úr augnaráðinu sem gætu hugsanlega haft eitthvað til að vera ánægðir með. Hann vill líklega fremur dvelja í hátimbruðum höllum hins alþjólega fjármagnsveldis þar sem hann yfirhafna vizka getur notið sín heldur en meðal undirmálsfólks. Enda fór sjálfsálit og hróður hans víða og svo sagði hann sjálfur að hann hefði á tímabili verið orðaður við að verða einskonar landsstjóri á Grikklandi. Skyldu þeir vera í betri málum núna ef..?
Ég saknaði þess að Katrín Jakobsdóttir talaði ekki í eldhúsdagsumræðunum og gæfi okkur einhverjar vísbendingar um hvort við megum eiga von á að sjá hana á leið til Bessastaða á næsta ár. Um fátt er talað af meiri áhuga meðal fólks um það hvort hún ætli, hvort hún ætli ekki?
Englasvipur hennar myndi svo sannarlega njóta sín á Bessastöðum þar sem hún myndi boða okkur frið og jöfnuð af sinni einlægni sérstaklega ef ný stjórnarskrá bjartrar framtíðar og pírata sæi dagsins ljós?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.6.2015 | 12:07
Árni Páll
er heldur bljúgur til að byrja með á Sprengisandi gegn nærgöngulum spurningum Sigurjóns. Árni á í raun ósköp bágt sem formaður með einu atkvæði.
Verandi með þetta ótrygga kommadót innanborðs í flokki sem er búinn að týna uppruna símun, sem var að sameina alla vinstri menn undir stjórn eðalkrata. Sjálfur er hann auðvitað gamall rauðliði að öllu uppeldi og gerð og því umdeildur sem forystumaður í því fæðingarfatlaða fyrirbæri sem Samfylkingin er auðvitað. Hörðu kommarnir fóru sem kunnugt er í VG þannig að engin sameining varð. Og gömlu kommarnir geta aldrei á sárshöfði setið við gömlu kratana. En sameining vinstri manna var aldrei möguleg sem sést best eftir af skaplyndi forystuúlfsins í klofningnum sem síðan hefur marg opinberað einræðiseðli og fláttskap sitt þar sem Stalín er hin mikla fyrirmynd.
Það sem Samfylkingin þarf að gera er að sparka kommunum eins og Árna Páli sjálfum, Össuri og fleirum út og verða aftur að stjórnmálaflokki eðalkrata.
Árni gerir mikið með hvað hvað hann hefur góð tengsli við verkalýðshreyfinguna og segir að kröfurnar hafi ekki verið nógu ákveðnar gegn íhaldinu frekar en hjá Möggu Thatcher sem hafi verið farin að setja verkalýðshreyfingunni fyrir hvað hún mætti biðja um. Helst var að skilja að Gylfi Arnbjörns sækti fyrirmæli á flokkskontórinn hjá Samfylkingunni. Óbeint er þetta viðurkenning Árna Páls á því að kauphækkanir eigi að vera sem mestar og hann muni að því hafa unnið. Hann skilur hinsvegar alls ekki af hverju Samfylkingin eykur ekki fylgið en fólkið streymi til Pírata. Hann vill gera gott í störfum sínum en fólkið virðist bara ekki kunna að meta það.
Árni fimbulfambar um beint lýðræði eins og þjóðaratkvæði og bullar um breytingar á rammaáætlun kommanna frá fyrra þingi sem lögbrot. Þarna er ástæðan fyrir því hversu mislukkaður hann er sem pólitíkus, hann sér ekki út fyrir augnspeldin frekar en gömlu kommarnir gerðu og gera enn. Talar um nauðsyn á friði á Alþingi. Hann skilur ekki að kosningar fóru fram 2014 og þjóðin vill framkvæmdir strax en ekki málþóf um fundarstjórn forseta. Árni segir að málþófið sé það sem helst þarf til þess að stjórnarandstaðan hafi áhrif?
Í fylgi Pírata skilur hann auðvitað ekkert í.
Ástæðan fyrir Píratafylginu blasir hugsanlega betur við Sjálfstæðismönnum en mörgum öðrum.
Ástæðan fyrir velgengni Pírata er hugsanlega helst að leita í tímabundnu brotthvarfi Sjálfstæðisflokksins úr stjórnmálum. Flokkurinn virðist halda að hann geti keyrt áfram eftir kvótaheimspeki Hólmsteins þegar þjóðin er ekki sammála í grunninum, sbr. afstöðuna til makrílsins.
Flokkurinn virðist ekki lengur hafa trú prentmiðlum eða skrifuðum áróðri þó að Reykavík Grapewine og fleiri útgáfur ungs fólks sanni það að unga fólkið les það sem það vill lesa. Vandamál Sjálfstæðisflokksins er helst það að hann hefur glatað öllu sambandi við ungt fólk undir þrítugu. Facebook er ekki að gera síg í pólitík hans þó sumir haldi því fram. Unga fólkið hlustar ekki á síbylju um kvótaheimspekina og aukna kerfismennsku í stofnun jafnréttissjóða. Það leggur ekki leið sína í grafhýsið við Háaleitisbraut þó að það væri hugsanlega móttækilegt fyrir prédikunum um framtíðarsýnir þess sjálfs og bætta möguleika.
Árni Páll má eiga að hann ver skattlagningu þrotabúanna. Skattlagningin er lögleg eins og hann hafi verið búinn að undirbúa að sjálfsögðu. Læknaverkfallið var það hægt að leysa öðruvísi spyr Sigurjón, án þes að þetta færi holt og bolt. Nei nei segir árni Páll, læknar fengu bætur vegna afleiðingar ónýtrar krónu. Ríkisstjórnina skortir heildstæða stefnu í kjaramálum segir Árni Páll því hún var áður búin að semja sérfræðilækna, einn hópur fékk bætur fyrir ógeðslega ósanngjörnu krónuna okkar segir Árni og þá hafa menn það.
Nú mega þeir taka erlend lán sem eru með erlendar tekjur, forréttindi með dollara eins rúblur í Sovét. Þinn flokkur var í ríkisstjórn þá þegar svona ástand var hér segir Sigurjón. Árni svara því ekki en hamrar enn að ríkisstjórnin hafi enga heildstæða kjaramalastefnu, né gefi fyrirheit um að losna úr gengisfellingum.
Þrátt fyrir vaxandi mælsku þegar líður á þáttinn þá er greinilegt að gamli komminn hefur ekkert lært og engu gleymt. Árni skilur ekki efnahagslegt samspil launa og gengis, skilur ekki málið um samhengi innlendra launahækkana við þann gjaldmiðil sem í notkun er , sbr. Grikkland.
Það eru hættu merki segir Árni eftir 20 % kauphækkanir. Ríkisstjórnin var með dauðafæri á stöðugleika en gróf undan hækkunum fyrir láglaunafólk. Framlag ríkisstjórnar var að lækka gjaldskrár sem hún dró fram í júní. Ríkisstjórnin gróf þannig undan samvinnu, skapaði reiði, klúðraði og hafnar því að skattleggja vel stæða eins og við gerðum segir Árni.
Sigurjón segir jafnt á komið með stöðugleikasáttmálann þeirra sem fór í vaskinn. Við unnum kraftverk í atvinnumálum segir Árni Páll. Það er ekki sama stemning fyrir ESB segir Sigurjón. Það eru vandræði á evrusvæðinu segir Sigurjón. Er ekki rétt að að þar séu vandræði víða?
Víðast hvar er verið að ná ákveðinni viðspyrnu segir Árni Páll, það er víða uppsveifla. Hér munu óverðtryggðir vextir hækka og við verðum berskjölduð fyrir sveiflum ef við ekki veljum stöðug lífskjör með lágum vöxtum og þess vegna verður ESB áfran mikilvægt í umræðunni. En við erum ekki ekki eins máls flokkur segir Árni Páll. Trúi því hver sem má.
Í tíð þessarar ríkisstjórnar hefur stöðugleikinn verið lengur og meiri en áður segir Sigurjón. Við skiluðum góðu búi segir Árni Páll, fjármálin eru í góðu lagi vegna okkar starfs í fyrri stjórn. Nú þolir ekki þessi stjórn góða daga.
Eru bjartir tímar framundan spyr Sigurjón? Það er margt jákvætt segir Árni Páll, við náðum samstöðu um meðferð erlendu kröfuhafanna eins og við vildum alltaf og Sigmundur er að gera núna og við þurfum að bæta opinbera þjónustu þar sem enginn verðu skilinn eftir segir Árni Páll að lokum.
Þátturinn skildi mig eftir með fleiri spurningar um Samfylkinguna og formann hennar en ég hafði fyrir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.6.2015 | 10:17
Hvað ætla Vesturlönd að gera?
þegar ISIS er búið að eyðileggja efnahag enn eins landsins, Túnis? Land sem á gríðarlega mikið undir ferðamannaiðnaði? Er líklegt að nokkur láti sjá sig þar í langan tíma?
Hvaða afleiðingar myndi árás á Íslandi hafa? Hvað gætum við gert?Búnir að afþakka hríðskotabyssurnar norsku.
Þessi samtök eru að fara að stjórna heiminum. Stýra efnahag heimshluta. Með liðsmönnum frá Vesturlöndum vaða þau um heiminn og skera af hausa að vild. Reka fólk til Vesturlanda sem flóttamenn sem þau hafa ekki ráð á að framfæra?
Til hvers eru Vesturlönd með þessa heri og drápstól? Ætla þeir að láta þessa villimenn bara hafa frítt spil? Láta Írana styðja þetta með olíupeningum?
Hvað ætla Vesturlönd að gera?
28.6.2015 | 09:48
Hvassahraun er gamalt grín
ef litið er til baka til ársins 2001. Þá birtist eftirfarandi í Vísi:
"
Grétar H. Óskarsson, fulltrúi í fiugöryggisráði Alþjóða flugmálastofnunarinnar, telur að Reykjavikurflugvöllur muni duga eins og hann er í Vatnsmýrinni næstu 15 árin. Ef þörf verður á að flytja hann þá telur Grétar að besti kosturinn verði að flytja hann til Keflavíkur.
Eftir 2016, þegar margt verður breytt og mikið vatn runnið til sjávar, held ég að byggðin verði orðin þannig að Keflavik verði ekkert fjær miðborginni heldur en eitthvað annað," segir Grétar. Byggðin teygirsig þarna suður eftir og flugvöllurinn er þarna og þetta eru engar veglengdir miðað við í öðrum löndum."
Grétar segir það vera óraunhæfan kost að setja Reykjavíkurflugvöll í Hvassahraun.
Það er algjörlega óraunhæft að fara að byggja flugvöll einhvers staðar [í Hvassahrauni], hálfa leið til Kefiavíkur, það er bara bull. Þú hefur ekki tvo flugvelli í 10 mínútna akstri hvorn frá öðrum," segir Grétar.
Jafnframt segir hann það að setja flugvöllinn allan eða að hluta til í Skerjafjörðinn vera lakan kostvegna sjóroks og veðragangs.
Hið sama telur Grétar vera að segja um styttingu flugbrautanna eins og fram kemur í hugmyndum Gísla Halldórssonar arkitekts um breytt skipulag Reykjavíkurflugvallar. Ástæðan er sú að fáar flugvélar geta notað styttri flugbrautir og telur Grétar þróunina í flugmálum ekki stefna i þá átt að spara pláss í flugbrautum.
Flugvöllurinn í Reykjavík þarf ekkert að vera stærri en flugvöllurinn á Akureyri, á Egilsstöðum eða á ísafirði. Það eru nákvæmlega sömu flugvélar sem fljúga þarna á milli. Út af fyrir sig er Reykjavíkurflugvöllur ekki varaflugvöllur fyrir alþjóðaflugið, hann er svo nærri Keflavík og því ekki nothæfur sem slíkur. Á Egilsstöðum er varaflugvöllur því hann er á öðru veðursvæði," segir Grétar.
Reykvíkingar munu ganga til kosninga í næsta mánuði um það hvort flytja skuli völlinn
Vísir 16. febrúar 2001"
Líklega er það ólíklegt að menn sjái sérstaka hagkvæmni í því að fara að byggja flugvöll á einkalandi í Hvassahrauni. Líklega eru þau atriði sem Grétar nefnir þau rök sem þyngst vega í sambandi við niðurstöðu Rögnunefndar. Byggðin er á leið suður eftir.
Eigi að leggja Reykjavíkurflugvöll niður er þá ekki ódýrast á þessum tímapunkti að byggja nýtt Háskólasjúkrahús þar suðurfrá? Er eitthvað sérstakt að því að flytja sjúka Reykvíkinga suður eftir en landsbyggðarfólk beint með flugi?
Hver þarf Reykjavík sem höfuðborg ef hún vill ekki vera það?
27.6.2015 | 20:21
"Þá hló Marbendill
hið þriðja sinn er bóndi barði fjársjóðaþúfuna." Hafði þá Marbendill þrívegis orðið vitni að óvitaskap sjávarbóndans við (Vatnsleysu?)ströndina.
Út af þessu leggur höfundur Reykjavíkurbréfs í dag. Hvetur hann menn til að hlýða á Kastljósviðtal Helga Seljan við frú Rögnu Árnadóttur fyrrverandi dómsmálaráðherra í norrænu velferðarstjórninni og nú aðstoðraforsjóra Landsvirkjunar.
Ég gerði það rétt í þessu og ég sé að ég þarf hvergi að breyta fullyrðingum mínum um að fluggögn þurfi ekki að vera samhljóða niðurstöðum úr tölvuforritum ef dæma skal flugskilyrði. En formaðurinn viðurkenndi að nefndin hefði ekki skoðað fyrri mælingar, bæði frá 2001 og frá fyrri tíð, og hefðu þau því ekki áhrif á fyrirliggjandi niðurstöðu nefndarinnar.
Áður hafði ég heyrt út undan mér Þorgerði Katrínu Gunnarasdóttur tala um nauðsyn þess að ég og mínir líkur myndum nú halda okkur á mottunni og fara ekki aftur í gömlu skotgrafirnar.
En þangað er ég nú kominn og skal nú hvergi hörfa heldur trúa áfram á málstaðinn og gæta þess að láta ekki púðrið blotna eins og gamli Cromwell ráðlagði sínum hermönnum.
Það styður að sönnu við áframhald Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri að ólíklegt má telja að opinberar fjárveitingar fáist til að halda áfram undirbúningi að flugvelli i Hvassahrauni. Jafnvel Dagur Bé. myndi verða í vandræðum að láta Borgarfulltrúa styðja við gerð flugvallar í öðrum sveitarfélögum.
Nú getum við séð nokkuð skýrt af niðurstöðu þessarar nefndar, að það var ekki endilega verið að leita einhverra sátta um flugmál höfuðborgarsvæðisins heldur því að finna eftir pólitískum geðþótta einhver haldbær rök fyrir því að loka Reykjavíkurflugvelli sem Dagur Bé. hefur löngu ákveðið að gera.
Sú staðreynd að Dagur Bergþóruson skuli hafa sest í nefndina og hver er pólitískur bakgrunnur formannsins Rögnu, var eitt og sér nóg til í upphafi til að gera nefndina eða stýrihóp eins og hún kallar sig, ótrúverðuga í mínum augum. Ég benti á ítrekað að þessi nefndarskipun væri pólitísk kosningabrella Dags Bé.til að drepa flugvallarumræðu á dreif í kosningunum 2013.
Opinberlega var nefndin sögð stýrihópur ríkis og Reykjavíkurborgar. Alger þversögn á stjórnarsáttmálann eins og Reykjavíkurbréfið greinir. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir úr Hafnarfirði var skipuð í hópinn. Og svo einn flugreyndur maður Matthías Sveinbjörnsson af hálfu Icelandair. Þorsteinn Hermannsson frá Mannviti varð verkefnisstjóri. Meiri voru ekki tengslin við flugið sjálft.
En snúum að Reykjavíkurbréfinu:
"...Hér í hinu sólríka norðri var á hinn bóginn allt fremur kyrrlátt, og það jafnvel þótt stríðið um fundarstjórn forseta sé talið með.
Í lok vikunnar kynnti að vísu nefnd um flugvallarmál á höfuðborgarsvæðinu tillögur sínar. Formaður nefndarinnar mætti í Kastljós, þar sem Helgi Seljan ræddi við hann. Sá umsjónarmaður vill gjarnan þjarma að viðmælendum sínum, a.m.k. þeim sem eiga slíkt meira en skilið af pólitískum ástæðum, eftir frjálsu mati hans. Þó virtist í byrjun að Helgi vildi í einlægni fá það út úr viðmælanda sínum út á hvað þessar óvæntu tillögur gengju eiginlega. En það varð fljótlega ljóst að honum yrði ekki kápan úr því klæðinu.
Samtalið var næsta einstætt og er þeim sem af því misstu eindregið ráðlagt að láta eftir sér að hlusta á það í endurspilun. Það minnti helst á gamla grínþætti þar sem flutt voru tilbúin viðtöl við sérfræðinga eða sýslunarmenn.
Niðurstaðan í slíkum þáttum varð jafnan sú að hvorki spyrjandinn, viðmælandinn eða áheyrendur vissu hvort þeir væru að koma eða fara. Formaður staðsetningarnefndarinnar minnti helst á flugmann sem fljúgandi í svarta þoku hafði ákveðið að slökkva á blindflugskerfinu til öryggis.
Í Útvarpi Matthildi var einu sinni flutt svona viðtal við sérfræðing í málefnum eyrnasnepla. Vafalítið hafa stjórnendur Matthildar, í stjórnlausri sjálfumgleði sinni, talið að það viðtal yrði ekki slegið út, en þeir hljóta nú að vera nærri því að játa sig sigraða.
Núverandi stjórnarflokkar kusu að hafa stjórnarsáttmála sinn bæði langan og óljósan. Hann birtist sem blanda af vægt orðuðum viljayfirlýsingum, vangaveltum og eins konar tilmælum til þeirra sem væru að taka við landstjórninni. Þannig er auðvitað hægt að hafa stjórnarsáttmála. Muna má eftir löngum og efnismiklum stjórnarsáttmálum þar sem reynt var að bútasauma stefnu um allt, stórt og smátt. Það undirstrikaði hins vegar að rík tortryggni væri til staðar hjá þeim sem voru að skipta með sér verkum. Slíkt samstarf stóð sjaldan lengi og endaði oftast illa.
En í núgildandi stjórnarsáttmála var þó eitt ákvæði sem virtist sæmilega afgerandi, a.m.k. ef miðað er við önnur ákvæði hans:
Reykjavíkurflugvöllur er grundvallarþáttur í samgöngum landsins. Til þess að hann geti áfram gegnt því mikilvæga þjónustuhlutverki sem hann hefur gert gagnvart landinu öllu þarf að tryggja framtíðarstaðsetningu hans í nálægð við stjórnsýslu og aðra þjónustu.
(Var mikil fylgni Hönnu Birnu við þetta ákvæði þegar hún hóf leikinn? Hví gerði hún Degi og Gnarr þennan greiða? INNSK. BLOGGARA)
Þetta virðist allt þokkaleg ljóst. Reykjavíkurflugvöllur er sagður grundvallarþáttur í samgöngum landsins. Þeir sem hefðu kosið knappan og hnitmiðaðan stjórnarsáttmála hefðu látið þessi orð duga. En framhaldið virtist ekki skaðlegt.
Ekki leið þó á löngu áður en farið var að gefa í skyn að einhverjir hefðu samþykkt þessa yfirlýsingu með lygamerki fyrir aftan bak. Þeir gætu leyft sér að túlka niðurlag yfirlýsingarinnar þannig að tryggja mætti tilveru og mikilvægt þjónustuhlutverk Reykjavíkurflugvallar með því að flytja hann eitthvert! Það minnir óneitanlega á gamalkunna klisju krata um að eina leiðin til að tryggja fullveldið sé að deila því með öðrum.
Engum datt í hug að klisja af því tagi yrði yfirfærð yfir á flugvelli af núverandi ríkisstjórn.
Ekki leið þó á löngu þar til fréttist að innanríkisráðherrann og varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefði ákveðið að gera samning við Jón Gnarr og Dag B. Eggertsson sem tryggði þeim að flugvallarmálið yrði þeim ekki erfitt kosningamál vorið 2014 og hafa þar með yfirlýsinguna í stjórnarsáttmálanum að engu. Allt var þetta kynnt á blaðamannafundi og í lokin kjassaði innanríkisráðherrann þá tvo svo myndarlega í útsendingunni að ósanngjarnt var að gera kröfur um að það yrði betur gert. Nú hefur nefnd ríkisins og Reykjavíkurborgar skyndilega gert tillögu um að flytja Reykjavíkurflugvöll suður fyrir Straumsvík.
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík virtist koma af fjöllum þegar þetta var tilkynnt en gaf þó strax til kynna að hann myndi algjörlega skoðanalaus taka á móti þessum hugmyndum. Virtist hann dulítið stoltur yfir þeim viðbrögðum. Og auðvitað má segja að þau séu ekki stílbrot á framgöngu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í öðrum málum síðustu árin. Flokkurinn hefur reynt að slá um sig skjaldborg gegn hættu á vaxandi fylgi og hefur árangurinn orðið betri en nokkur þar á bæ hefði getað þorað að vona.
Frægasta vera sem tengist nágrenni umrædds flugvallarstæðis er sennilega Marbendill sá sem hló svo frægt varð. Ekki skal spáð til um það nú hvort Marbendli sé hlátur í huga eða hvort fjársjóður finnist í þúfum Hvassahrauns, en land þar mun þó nú fáanlegt til kaups. Það er skemmtileg tilviljun og ástæðulaust að bendla Marbendil við hana."
Og þegar svo er komið að framtíð flugs frá Reykjavík er búið að vísa á slóðir Stapadraugsins, þá er það í stíl að hafa samband við aðrar huldar vættir.
Morgunblaðið greinir einnig svo frá í sambandi við þetta mál:
"Ragnhildur Jónsdóttir í Álfagarðinum í Hellisgerði segir mikla byggð álfa og huldufólks vera á því svæði Hvassahrauns sem stýrihópur ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelandair telur henta einna best fyrir nýjan innanlandsflugvöll. Segir hún það alveg ljóst að álfar vilji ekki flugvöll inn á sitt byggðasvæði.
Hvað álfa snertir þá er þessi hugmynd alveg hræðileg, segir Ragnhildur í samtali við mbl.is og bendir á að í Hvassahrauni sé blómleg byggð álfa og huldufólks. En á því svæði sem stýrinefnd telur henta vel undir nýjan innanlandsflugvöll segir Ragnhildur álfa stunda atvinnustarfsemi, landbúnað og sjósókn auk þess sem fjölmargir álfar eigi þar fasta búsetu árið um kring."
Er ekki við hæfi eftir efninu að gleyma ekki hinum huldu sjósóknurum landsins, utan kvótakerfis, þegar flugmál eru annars vegar? Veit nokkur nema álfar nýti sér flug líka?
Eru ekki endalausar deilur um nauðsyn flugvalla og flugs ekki að valda því að við gleymum honum Marbendli og hinum huldu vættum landsins? Yrði leiðsögn þeirra í grunninum nokkuð óskynsamlegri en þeirra Dags Bé. EssBjarnar og Halldórs Pírata í flugmálum þjóðarinnar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.6.2015 kl. 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2015 | 19:00
Rögnunefndarskýrslan
liggur nú frammi upp á þó nokkrar blaðsíður.
Ég er nú búinn að glugga lauslega í skýrsluna. Þar koma "flugkvikureikningar" í stað aðflugsprófana sem er búið að marg-gera vegna Kapelluhrauns. Þær niðurstöður voru ótvíræðar. Því miður eru flugmennirnir sem þær gerðu líklega ekki margir meðal vor lengur og því koma "verkfræðistofuútreikningar" væntanlega í stað flugsins sjálfs.En þær gömlu athuganir gáfu margfalt verri niðurstöðu en Reykjavíkurflugvöllur i Vatnsmýri.
Þessi skýrsla er í alla staði mjög ótrúverðug. Pólitíkusar í meirihluta og held ég enginn flugreyndur.Ég er sérlega á varðbergi eftir að verkfræðistofan Efla lét kaupa sig til að skrifa skýrsluna síðustu þar sem allar staðreyndir um leyfilega vinda voru talaðar niður eftir því sem mér skildist á andsvari Leifs Magnússonar, til þess að hlaða í bálköst Dags Bé undir Reykjavíkurflugvöll. Ég sé enga ástæðu til að taka tölur nefndarinnar öðruvísi en með fyrirvara.
Ég gef akkúrat ekkert fyrir þessa skýrslu eða kostnaðaráætlanir í henni um að byggja flugvelli hér og þar, eins og Lönguskerjum þar sem allt er á huldu um verklagið og umhverfisálagið á flugstarfsemi.
Ég minni á að byggingakostnaður Hörpu fór pí sinnum fram úr áætlunum hinna vönduðustu verkfræðistofa og mér dettur í hug að það megi setja einhverja öryggisstuðla inn í talanaturna Rögnu og Dags Bé. Og áætlanir verkfræðistofa eru auðvitað ekki með neinni ábyrgð eða tryggingu ef útreikningarnir stemma ekki við raunveruleikann frekar en flugstöðin í Berlín rða óperan í Hamburg. Aðeins skattþegninn á hverjum stað fær að greiða. Pólitíkusinn ber ekki hina minnstgu ábyrgð aðra en að verða að gerast sendiherra að afloknum vinnudegi.
Og niðurstaðan er skondin: 22 milljarða byggingakostnaður(sinnum pí?) fyrir að vegalengdin úr Fossvogi að Hvassahraunsflugvelli er aðeins 21 km í stað ?. Þá eru eftir 29 km til Keflavíkur en kannski um 20 að Patterson. Bíll á 90 km hraða er 12 mínútur frá Hvassahrauni að Patterson eða 19 mínútur til Keflavíkur. Finnst einhverjum það vera andvirði milljarðanna? Í alvöru?
Og þessu til viðbótar er auðvitað sá kostnaður að taka upp allan búnað og byggingar sem er á BIRK í dag?. Mér þætti merkilegt ef 22 milljarðar til viðbótar dygðu í það eitt? Horfið bara yfir völlinn og reynið að reikna? Auðvitað er þetta ekkert mál fyrir kostnaðarblinda stjórnmálamenn. Aðeins þrautþjálfað fólk í gersamlegri fyrirlitningu á verðmæti, drápi eða annarri meðferð skattfjár getur komið með svona tillögur fyrir almenning.
22 milljarðar, án allrar ábyrgðar um áreiðanleikann, út í loftið fyrir svona tillögur er að mínu litla viti bara galskapur sem ég á eftir að sjá fólkið dansa og klappa fyrir á kosningavökum Dags Bé.
Rögnunefndarskýrslan fer að mínu viti fljótlega út á ruslahaug flugsögu Íslands.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.8.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko