26.6.2015 | 08:55
Rögnunefndin kveður
með afskaplega fallegum upplestri formannsins fagra á niðurstöðunum. Skeggjað fés frumkvöðulsins var hvergi í augsýn þó hann sé yfirleitt fremstur þegar myndavélar eru í boði.
Dagur B. Eggertsson lét setja þessa nefnd saman til þess að taka flugvallarmálið af herðum sér fyrir kosningarnar þar sem flokkur hans stóð höllum fæti og raunar tapaði duglega eins og hann hafði til unnið. En tilviljunin færði Degi kauptækifæri með fjármunum borgarbúa sem hann notaði til að kaupa Pírata til liðs við borgarstjórastól sinn og vegtyllur fyrir kumpáninn EssBjörn, sem þó heldur sig meira til hlés í seinni tíð.
Og Dagur er óspar á peninga fólksins eins og fyrri daginn og flestir af hans sauðahúsi. Hann mokaði því hiklaust í Rögnunefndina þar sem hann var svo líka einn launaþiggjendanna og tryggði þar með þá niðurstöðu fyrirfram að endurbætur á Vatnsmýrarflugvelli kæmu ekki á dagskrá.
Í Morgunblaðinu stendur þetta:
" Það er verið að vekja upp gamlan draug,« sagði Ómar Ragnarsson, einkaflugmaður og fyrrverandi fréttamaður, við mbl.is..Hann rifjaði upp að fyrir 55 árum hefðu verið uppi hugmyndir um flugvöll í Kapelluhrauni, skammt frá Hvassahruni.
Sú hugmynd hefði verið slegin út af borðinu eftir að prófað hefði verið að fljúga vélum til skiptist að og frá Reykjavíkurflugvelli í hvassri aust-suðaustanátt, sem væri algengasta vindáttin á höfuðborgarsvæðinu, og jafnframt að og frá hugsanlegu flugvallarstæði í Kapelluhrauni. »Hefur Reykjanesfjallgarðurinn fjarlægst og lækkað síðustu 55 árin og hefur vindurinn minnkað,« spurði Ómar.
Framsókn og flugvallarvinir segja í fréttatilkynningu miður að hlutverk Rögnunefndarinnar hafi ekki verið að leggja mat á hagkvæmni þess að halda Reykjavíkurflugvelli í núverandi mynd, heldur aðeins að athuga hvort önnur flugvallarstæði kæmu til greina fyrir rekstur innanlandsflugs. Ítrekar flokkurinn stuðning sinn við óbreyttan Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri."
Frá þessu nýfundna flugvallarstæði er til þess að gera stutt til Pattersons flugvallar þar sem langar undirbyggðar flugbrautir bíða lagfæringa fyrir einkaflug og öllu því tengdu. Mun styttra en á Stóra Kropp. Lagfæring Patterson kostar brot af milljarðatugunum sem þeir Dagur Bé eru búnir að finna legstað fyrir í Hvassahrauni. Frá Patterson er svo hægt að taxéra upp á Keflavíkurflugvöll ef svo ber undir. Sameiginlega flugstjórn fyrir báða velli í Keflavík er hægt að viðhafa auðveldlega.
Fjallið hefur sem sagt tekið jóðsótt og músin er fædd. Nú flautar Dagur Bé. á jarðýturnar og byrjar framkvæmdir við að gefa hinum og þessum lönd í Vatnsmýri þá hann hafi ekki getað sannað eignarhald sitt ennþá á neinu á því svæði.
Rögnunefndin kveður og heldur af stað í skýstrók til himna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.6.2015 | 08:57
Burt með verkfallsrétt opinberra starfsmanna
sem hafa sýnt það og sannað að þeir kunna ekki með að fara.
Þeir eru 20 % af þjóðinni og eru ábyrgir fyrir 45 % af öllum verkfallsdögum. Þetta bætist ofan á þau sérréttindi sem þeir njóta umfram alla aðra landsmenn í verðtryggðum lífeyri.
Þetta eru ofaldir kálfar sem eru auðvitað ekki að launa offóðrið sitt frekar en aðrir og eru til viðbótar allt of margir. Það þarf hið fyrsta að skoða einhverskonar ráðningarbann á þessar stéttir í því skyni að fækka í þeim.Þjóðfélagið stendur ekki undir fjöldanum nema að stórhækka skatta á almenning.
Þessari verkfallagleði þarf að linna eigi þetta þjóðfélag að geta þróast áfram svipað og í öðrum löndum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.6.2015 | 09:02
Kjarasamningar úreltir?
Því veltir Ágeir Ingvarsson fyrir sér í Mbl.í dag.
"Daglega berast fréttir af harðvítugum kjaradeilum þar sem viðræðurnar eru komnar í hnút. Verkföllum er hótað og samfélagið í uppnámi. Allir virðast fá rangt borgað og enginn er sáttur. Vöfflujárnin safna ryki.
Við þessar aðstæður er ágætt að staldra við og spyrja hvort mögulega væri farsælast fyrir alla að segja skilið við kjarasamningafyrirkomulagið en leyfa frekar hverjum og einum að semja um kaup sitt og kjör.
Það er verðugt rannsóknarefni að skoða hvort kjarasamningar eru launafólki mögulega meira til ógagns en gagns. Nokkrar grundvallarstaðreyndir hagfræðinnar ættu að gefa okkur tilefni til að halda að svo sé.
Fyrst verður að nefna að í kjarasamningum felst miðstýrð ákvarðanataka um laun. Þökk sé innsýn manna á borð við Friedrich Hayek getum við verið þess nokkuð viss að miðstýrðir samningar skila lakari niðurstöðu, heilt á litið, en ef ákvarðanatakan væri dreifð og hver og einn semdi fyrir sig.
Kjarasamningarnir taka nefnilega mið af meðaltölum fjöldans en skapa lítið svigrúm fyrir einstaklinginn með sínar sérþarfir og einstöku hæfileika. Kjarasamningar skapa um leið undarlega hvata og rjúfa tengslin milli umbunar og verðmætasköpunar einstaklingsins.
Ímyndum okkur vinnustað með tveimur starfsmönnum. Annar er röskur og hefur mikla hæfileika í starfi. Hinn er latur og áhugalaus, og skortir hæfileikana. Launin sem samið hefur verið um fyrir þá báða eru meðaltalið af verðmætasköpun þeirra beggja. Sá fyrrnefndi hefur minni hvata til að bæta sig og gera enn betur því ekki fær hann ávinninginn allan í eigin vasa. Sá síðarnefndi fær borgað meira en hann á skilið og missir af mikilvægum skilaboðum sem hann annars fengi með lægri launum: að hann ætti að standa sig betur eða finna sér aðra og hentugri vinnu.
Í kjarasamningum ákvarðast launahækkanir ekki af bættum afköstum og auknum gæðum, heldur af starfsaldri og fjölda háskólagráða, sem hafa lítið að segja um getuna til verðmætasköpunar.
Kjarasamningar letja launþegann til að meta raunverulegt markaðsvirði sitt á raunsæjan hátt, taka málin í eigin hendur og finna hugvitssamlegar leiðir til að áorka enn meiru fyrir vinnuveitandann og viðskiptavininn. Af hverju að sýna frumkvæði ef nefnd í fjarlægu fundarherbergi hefur ákveðið innan hvaða ramma launin verða?"
Kjarasamningarnir eiga að skapa lágmarksviðmið en verða oft að ankeri sem heldur stórum hluta launafólks niðri. Eða hversu margir taka það einfaldlega sem náttúrulögmál að fá greitt eftir taxta og telja sig hafa samið agalega vel með því að kría út bílastyrk?
Áhrifin magnast svo upp ár eftir ár, áratug eftir áratug, og til verður þjóð þar sem framleiðni er lítil, vinnuvikan löng og þeir sem það geta leita til annarra landa þar sem má fá betur borgað fyrir streðið."
Oft er talað um nauðsyn Lágmarkslauna og að þau geti stuðlað að betri kjörum launþega.Yfirborganir þekkjast á almennum markaði og mætingarbónusar líka. Seint verður hægt að beita þeim á BHM ef þeir sumir hverjir nota veikindadaga sem kjarabót.
Kjartan Örn Kjartansson lýkur góðri grein í Mbl. í dag svo:
"...Verkalýðsforystan, sem gjarnan styður vinstri flokkana, ætti frekar að ræða við félaga sína á Alþingi og fá þá til þess að styðja iðnaðaruppbyggingu á Íslandi með tilheyrandi arðbærum vatnsaflsvirkjunum og greiða götu þess að skapa hér aukin verðmæti til að styrkja almannaþjónustuna og svo hægt sé að greiða sem flestum sem bestar launatekjur, en þar er líka reynt að rífa allt niður í hundasúrur og átök.
En e.t.v. er verkalýðsforystan hrifin af neikvæðninni þar líka?
Ég hef ekki þekkingu til þess að benda á hvernig, en ítreka áður fram bornar skoðanir mínar um að það sé lífsspursmál fyrir þjóðina að koma á nýrri skipan vinnulöggjafar og kjaraviðræðna, sem m.a. að útlokar að fáir geti haldið öllum öðrum í gíslingu í tíma og ótíma, enda hefur það sem verið hefur og er enn við lýði algjörlega gengið sér til húðar svo sem dæmin og sanna."
Ég held að Kjartan mæli fyrir munn margra, En það er víst borin von að nokkru fáist breytt í þessum málum. Ísland verður áfram "veiki maðurinn í Evrópu" sem getur ekki stjórnað sínum innri málum nema til "fuglsminnistíma" í einu.
Eina ráðið til að bæta "kjörin" hjá opinberum starfsmönnum er aukin einkavæðing. Það er langt síðan að Jónas Haralz benti mönnum á þetta.
En Svíar hafa með einkavæðingu náð árangri til dæmis í sínu skólakerfi. Fólk fer yfirleitt betur með það sem það hefur hagsmuni af að vel gangi heldur en það sem enginn á.
Þessvegna eru breiðir "Kjarasamningar " eins og við þekkjum þá áreiðanlega úreltir og tilheyra öðrum tíma.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.6.2015 | 08:39
Hversu mikið er þau Árni Páll
Össur, Sigríður Ingibjörg,dr.Eiríkur Bergmann,og Benedikt Jóhannesarson gáfaðri en Bretar sem hafa þó nokkuð langa reynslu af Evrópusambandinu?
Svo segir í leiðara Morgunblaðsins um framtíð Breta eftir að Cameron ætlar að endurskoða stefnuna:
"Ný þúsund blaðsíðna skýrsla leiðtoga og sérfræðinga úr atvinnulífinu gerir þó Cameron erfiðara að sækjast einungis eftir málamyndabreytingum á samskiptum Bretlands og ESB, ekki síst vegna þess að hingað til hefur áherslan verið á að bresku atvinnulífi sé nauðsnlegt að Bretland sé í ESB.
Skýrslan, sem ber yfirskriftina <ská>Breytingu, eða brottför, dregur fram það mikla óhagræði og kostnað sem breskt atvinnulíf hefur af verunni í ESB eins og málum er háttað nú og niðurstaðan er ótvírætt sú, að náist ekki fram veruleg breyting á tengslum Bretlands og ESB séu Bretar mun betur settir utan ESB en innan.
Í skýrslunni er einnig bent á að ástandið fari stöðugt versnandi. Haldið sé aftur af breska hagkerfinu með kröfum ESB sem horfi æ meira inn á við og þrengi að samkeppnishæfni. Stefna ESB, ekki síst hið gallaða sameiginlega myntkerfi, hafi skapað viðvarandi efnahagsvanda.
Því fari fjarri að neytendur og fyrirtæki séu betur sett eftir 40 ára aðild að ESB. Innan við 5% breskra fyrirtækja flytji út beint til Evrópusambandsins en samt séu þau öll neydd til að bera byrðarnar af regluverki sambandsins. Evrópusambandið sé ekki bandalag um viðskiptafrelsi heldur tollabandalag og því hafi mistekist herfilega að gera viðskiptasamninga við rísandi viðskiptaveldi á borð við Kína. Í skýrslunni, sem <ská>Telegraph segir ýtarlega frá, er nefnt sem dæmi að Ísland og Sviss hafi tryggt sér fríverslunarsamninga við Kína, ólíkt ESB.
Verst af öllu sé þó, að í meira en fjóra áratugi hafi breskur almenningur mátt þola stefnu ESB um sífellt meiri samruna, sem hann kæri sig ekki um. Þessi stefna hafi leitt til mikillar tilfærslu valds til stofnana sem séu í senn fjarlægar og ógagnsæjar. Og innan þessara stofnana sé orðið æ líklegra að fulltrúar Bretlands verði undir í atkvæðagreiðslum gegn ríkjum evrusvæðisins. Ákvarðanir um framtíð Bretlands hafi því horfið úr höndum Breta.
Skýrsluhöfundar setja fram tíu skilyrði sem uppfylla verði eigi Bretland að vera áfram í Evrópusambandinu. Undanskilja verði Bretland frá stefnunni um sífellt meiri samruna. Einhverjir núverandi og fyrrverandi forystumanna ESB hafa ekki tekið ólíklega í að þetta kunni að vera mögulegt, þó að efasemdir hljóti að vera uppi um hvort slík undanþága haldi til lengdar.
Þá vilja skýrsluhöfundar að dregið verði úr reglubyrði á fyrirtæki, einkum þau sem ekki flytji út til ESB. Yfirráð yfir félagsmála- og vinnumálalöggjöf verði að færast aftur til aðildarríkjanna og snúa verði við skaðlegri lagasetningu á sviði fjármálageirans. Ennfremur þurfi að tryggja að þau ríki sem ekki séu með evruna séu ekki ofurseld ákvörðunum hinna ríkjanna og ESB verði að sýna að það geti tryggt alþjóðlega viðskiptasamninga.
Skýrsluhöfundar vilja einnig ná fram varanlegum samdrætti í útgjöldum sambandsins, en framlag Breta til sambandsins hafi margfaldast síðasta áratuginn. Sömuleiðis vilja þeir gagnsæi í fjármál sambandsins, sem séu ógagnsæ og leynileg, sem bjóði upp á misnotkun.
Frjáls för fólks, sem ESB lítur á sem einn grundvallarþátt sambandsins, er einnig á listanum yfir það sem skýrsluhöfundar vilja breyta, með því að aðildarríkin fái vald yfir því hverjir flytji til landsins.
Loks segja þeir að Bretland verði að hafa neitunarvald gagnvart framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í stað þess sem nú sé að ESB geti neytt löggjöf upp á aðildarríkin."
Og þetta eru ekki einu sinni hugleiðingar ritstjóra Morgunblaðsins heldur komi beint frá Bretlandi.
Eftir að hafa hlustað talsvert á útvarp Alþingis og rýnt í aðra fjölmiðla þá hugsar maður meira um hvaða dulda afstöðu Píratar kunni að hafa til ESB?
22.6.2015 | 18:36
"Menntun metin til launa!"
hljómar kunnuglega?
Svo segir í Morgunblaðinu:
Viðskiptaráð Íslands greindi á dögunum frá því að kostnaður vegna umframveikinda opinberra starfsmanna væri um 11 milljarðar króna á ári. Niðurstaðan byggist á þróunarverkefni VIRK-starfsendurhæfingarsjóðs sem kynnt var í maí sl. Í verkefninu fólst úttekt á fjarveru starfsfólks vegna veikinda á 25 vinnustöðum með 1.400 starfsmenn. Áætluð fjarvera starfsfólks vegna veikinda er tvöfalt meiri á opinberum vinnustöðum en á almennum vinnustöðum.",,
»Opinberir starfsmenn eru frá vinnu vegna veikinda í 20 vinnudaga á ári, samanborið við 10 vinnudaga á almennum vinnumarkaði. Mismunurinn nemur um 4 prósentum af árlegum vinnudögum. Launaútgjöld ríkis og sveitarfélaga námu 276 milljörðum króna árið 2014 og má út frá því áætla að kostnaður vegna umframveikinda opinberra starfsmanna nemi um 11 milljörðum króna á ári,« segir Björn. Viðskiptaráð kallar eftir því að ástæður mismunarins verði kannaðar nánar...."
"»Eftir sex mánuði í starfi hjá hinu opinbera eiga starfsmenn rétt á 119 veikindadögum. Það er tæplega tíu sinnum meira en starfsmaður á almennum markaði þar sem starfsmenn fá tvo daga fyrir hvern unninn mánuð,« segir Björn...."
Moralen er: Menntun er heilspillandi!
B
22.6.2015 | 15:07
Hneyksli
er það alfarið þegar 26 % félagsmanna í stærsta verkalýðsfélagi landsmanna tekur ákvörðun um að fullgilda eða fella kjarasamning sem gildir fyrir alla félagsmenn.
Hvað eftir annað verða landsmenn vitni að því að tíundi hluti félagsmanna tekur ákvörðun um verkföll. Er þetta viðunandi fyrir okkur hin sem verðum að taka afleiðingunum. Borga fyrir með lífinu ef svo ber undir?
Af hverju verndar löggjafinn okkur ekki með því að gera kröfur um að meirihluti gildra félagsmanna verði að taka þátt í svona ákvörðun sem getur verið upp á líf eða dauða? Af hverju viðgengst svona ræfildómur ár eftir ár?
Þetta er bara hneyksli.
21.6.2015 | 12:10
Kristján Þór Júlíusson
er á Sprengisandi með Sigurjóni.
Það vekur athygli mína hversu rólegur og yfirvegaður Kristján skipstjóri er. Það er vandfundinn sá spyrill sem ekki ræðst að Kristjáni eins og allar syndir séu honum að kenna. Verkföllin,uppsagnirnar, peningaskorturinn, 70 ára fyrirsjáanlegur byggingartími nýs spítala og þar fram eftir götunum.
Kristján líkir þessu við að hann sé á siglingu á miklu skipi. Auðvitað viti hann að það séu aðskiljanleg vandamál innanborðs. En skipið haldi sinni stefnu þrátt fyrir það.
Sigurjón vill gera lítið úr lækkun tiltekins kostnaðar úr 19,2 í 18,9 vegna skattalækkana. Kristján spyr á móti hvort sjómaðurinn Sigurjón viti ekki að hver gráða í 360 gráðu hringnum skipti ekki máli þegar siglt sé?
Kristján segir að milljarður verði lagður í nýja spítalann nú sem fyrri stjórn gerði ekki. Af hverju þarf þá Sigurjón að reikna strax út 70 ára byggingatíma og af hverju við Hringbraut? Kristján segist hafa þeu fyrirmæli frá sínum útgerðarmanni að halda þeirri stefnu að byggja spítalann við Hringbraut og muni halda henni nema að hann fái fyrirmæli um annað.
Kristján hefur fágaðan stíl sem stjórnmálamaður líkt og Bjarni Benediktsson og skera þeir tveir sig þó nokkuð úr meðal íslenskra stjórnmálamanna. Hann getur rætt málin eins og þau séu í hinum besta mögulega farvegi án þess að gefa vísbendingar um að hann sé ekki endilega fyr og flamme fyrir því sem um er rætt. Hann er hinsvegar sjómaður sem veit að það dugir ekki að fimm formenn ræði ákvörðun sem taka skuli í brimlendingu.
Borið saman við marga fyrri ráðherra,já og marga flokksmenn líka(inclusive undirritaður), þá er þetta gott fordæmi. Í ríkisstjórn og stjórnmálaflokki þarf að vera eining út á við og ákveðin stefna, þó hún kunni að vera vitlaus. Og stefnum má breyta af gefnu tilefni. Undirrituðum er í minni fundaferð Kristjáns um allt Ísland til að ræða ESB. Aldrei komust menn að því hvort Kristján hefði sannfæringu í málinu þrátt fyrir langar ræður. Svo hlutlægur var hann í málflutningnum. Fyrr en að lokinni ferðinni þegar hann kvað upp úr með sína skoðun.
Kristján Þór er einn af þeim forystumönnum Sjálfstæðisflokksin sem ég hef mesta trú á til lengri tíma. Landsbyggðarstaða hans frá Akureyri hefur verið notuð grimmt gegn honum innan flokksins og dregið árangur hans niður sunnan heiða. Þannig er það bara. Hefði hann búið sunnan í móti hefði hans vegur hugsanlega orðið beinni.
En hvað um það mun ég hiklaust styðja Kristján Þór til allra góðra verka. Og það án þess að ég sé honum mjög persónulega kunnugur-, veit ekki einu sinni hvort hann smakkar það. En ég hef tilhneigingu til að treysta manni sem segir satt, yfirvegað, æsingalaust og lausnamiðað óháð búsetu. Og svo vil ég bæta við að á fésbók hef ég séð að hann hefur greinilega listrænt auga og tekur margar afburðagóðar ljósmyndir.
Starfi Kristjáns er ekki auðveldur um þessar mundir. Það er þó ástæðulaust að fara á límingunum þó að einhverjir fýlupokar séu að skrifa uppsagnarbréf og tala um stjórnarskrárvarinn rétt sjúklinga til þjónustu. Ég legg nú til að þetta fólk hætti þeirri röksemdafærslum og hugleiði stöðu okkar aldraðra. Við verðum bara að taka við því sem í okkur er fleygt og vona að við veikjumst ekki fyrr en við dettum niður dauðir. Við höfum ekkert að fara, getum ekki sagt upp né yfirleitt gert nokkurn skapaðan hlut. Við getum bara vonað að einhverjir eins og til dæmis Kristján Þór muni eftir okkur þegar um hægist.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2015 | 21:43
Múslímar og við hin
er eitthvað sem þvælist fyrir okkur Vesturlandabúum um þessar mundir. Indvandrerespörgsmålet sem dönsk pólitík gengur út á er billegur flótti frá grundvallarspurningunni um að þola Islam og að sem því fylgir eða þola að ekki.
Við Vesturlandamenn erum komnir nokkrum öldum á undan hinum frumstæðu Arabaþjóðum í Mið-Austrinu í allri hugsun. Við erum ekki lengur fjötraðir í hugmyndakerfi sem einhverjir þrætubókarmenn sem kalla sig spekinga og spámenn, hafa sett fram sem heilu kerfin. Við erum að miklu leyti frelsaðir frá þessu. Þess vegna getum við ekki sætt okkur við innrás Múslíma í okkar samfélög. Frumstæðs fólks sem lifir í fangelsi grillufángara af allskyns uppruna.
Allir vita að við slíkar aðstæður er leiðin greið fyrir glæpamennina sem notfæra sér sakleysið. Þess vegna loga þessi lönd í ófriði og munu loga lengi enn. Því þetta fólk er svo vanþroska að það getur ekki lifað við frjálsan vilja né lýðræði. Það getur aðeins lifað undir harðstjórn samviskulausra þrælmenna sem berja með bókinni helgu og byssukúlum. Við lifðum þetta allt á öldum áður með kirkjunni og okkar bófum.
Ég ætlaði að skrifa athugasemdir á bloggsíðu Valdimars Jóhannesarsonar en varð of seinn vegna tímamarka. Ég las þó þetta hjá honum:
"Ég er ekkert endilega sammála þér um trúarbrögð almennt þó að ég sé ekki trúmaður. Ég hef þó skilgreint mig sem kristinn guðleysingja, þ.e. maður sem er þakklátur fyrir kristnina þó að ég eigi erfitt með að trúa á draugasöguna eins og einhver fyndinn maður sagði.
Ég vil búa í kristnu samfélagi og á auðvelt með að taka þátt í kirkjulegu athöfnum. Ég tel að Vesturlönd eigi kristninni að þakka að þeim hefur tekist að mynda bestu samfélög manna sem heimurinn hefur nokkurn tímann átt þó að enn megi þau batna og munu gera ef þau fá frið til þess fyrir froðufellandi íslam sem sækir með vandamál sín og frumstætt alræðiskerfi inn í heim okkar."
Ég dáist nokkuð að næmum skilningi Valdimars á nútímanum í okkar samfélagi. Við erum mikið kristnir guðleysingjar sem hringjum ekki í Almættið fyrr enn allt um þrýtur eins og Winston Churchill og séra Sigvaldi. En við erum svona og þeir eru öðruvísi. Við getum illa lifað með þeim af því að þeir krefjast þess að undiroka okkur. Þeir vilja ekki hafa vopnahlé heldur sækja á okkur.
Ég veit ekki hvernig fólki kemur til hugar að við getum flutt hér inn árlega hundruðin af fólki sem stendur okkur öldum að baki í þroska. Við höfum hér þjóðfélag sem við viljum hafa áfram í svipuðum dúr. Við viljum ekki fleiri vandamál, af þeim höfum við ærið.
Valdimar skrifar enn:
"Ímyndaðar gullaldir íslams voru aldrei til en hámenningin sem var til á þessum svæðum fyrir daga íslams hvarf ekki á sama augabragði og íslam náði völdum heldur var smámsaman murkað úr menningunni lífið eins og auðséð er hvar sem litið er um hinn múslímska heim, einnig þar sem olían vellur fyrirhafnarlaust fram. Vesturlönd hafa liðið hagsmunaöflum að koma afbakaðri sögu múslíma á framfæri, - sögu sem er röng í öllu sem skiptir máli og orðið löngu tímabært hreinsa til, m.a. í Háskóla Íslands.
Allar aldirnar þar til Ottóman-veldið féll í fyrri heimsstyrjöldinni þoldu flest löndin í sunnanveðri Evrópu og þó sérstaklega við Miðjarðarhaf endalausar skærur af hálfu múslíma og þá ekki hvað síst Ottómana sem Evrópubúar óttuðust og hötuðu og báðu góðan guð að forða sér frá.
Herskáir múslímar í dag eru með endalausar heitingar að farga öllum þeim sem ekki eru múslímar og leggja allan heiminn undir íslam, - ekki síst höfuðvígi kristninnar að þeirra mati, Róm, en London og Washington eru einnig iðulega nefnd hjá froðufellandi sjeikum. Feneyjabúar háðu mannskæð stríð við hin myrku öfl íslams eins og fleiri ríki Ítalíu, stundum með sáru tapi. Dante lýsir dvöl Múhameðs í helvíti og í myndlist þess tíma sést fyrirmynd allra múslíma dvelja á sama stað.
Þetta er sagan í mjög stuttu máli sem þarf að hafa í huga þegar skoðuð er sú snargalna ákvörðun yfirvalds íslenskra lista og menningar að heiðra »menningararf íslams« í Feneyjum með því að opna þar mosku í nafni íslenskrar listar inni í aflagðri kirkju í trássi við staðfasta ákvörðun yfirvalda þar að leyfa ekki byggingu mosku í borginni.
Því verður ekki trúað að illur vilji búi hér að baki. Þessi fráleita og hættulega ákvörðun fyrir hagsmuni Íslands sýnir mikla vanþekkingu á Íslandi á sögunni og hugmyndafræði íslams. Stjórnvöld, fjölmiðlaheimurinn, kirkjan og háskólasamfélagið vita nánast ekkert um íslam eða sögu þess nema afar afbakaðar upplýsingar sem eru verri en engar.
Vita ekki að íslam er fyrst og fremst stjórnmálakerfi sem miðar að því að ná heiminum undir þetta fráleita alræðiskerfi sem er varhugaverðara en kommúnisminn og fasisminn samanlagðir. Ég vil þó ekki leysa stjórnvöld undan ábyrgð. Enginn getur verið svo blankur að hann viti ekki að þetta er eldfimt efni. Þess vegna ber að vanda sig en ana ekki áfram í ábyrgðarleysi. Hagsmunir Íslands krefjast þess að ofangreindir aðilar taki hausinn upp úr sandinum og kynni sér þá ógn sem steðjar að Íslandi. Vankunnátta er hættuleg."
Hér er kveðið fast að orði. En Valdimar hefur kynnt sér Islam lengi og er vel heima í sögunni. Það er því ástæðulaust að afgreiða hann sem einhvern öfgamann. Ályktanir hans eru dregnar af vel yfirveguðu máli. Ég stórefa að tillaga Rauðakrossins á Íslandi um stóraukinn innflutning flóttamanna sem skiptir tæpu þúsundi á ári hafi verið rýnd með yfirveguðum hætti.
Eru Múslímar og við hin yfirleitt samþættanleg?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2015 | 10:29
Ingibjörg H.Bjarnason
var afasystir mín f.1867 og lést 1941. Mig rétt rámar í það að ég hafi séð hana í heimsókn til hennar með föður mínum. En hún var í miklu og gagnkvæmu uppáhaldi hjá honum.
Pabbi átti fallegan danskan pening úr skíra gulli. Mig minnir að hann hafi sagt peninginn vera gjöf til hans frá Ingibjörgu H. þegar hann sigldi til náms 1930. Það fylgdi gjöfinni að honum skyldi þá fyrst eytt ef hann yrði svo blánkur að engin önnur leið væri til. Hann pabbi minn var áreiðanlega oft blánkur á sinni ævi. En hann dó frá peningnum góða sem var geymdur í lítilli öskju í bómull í náttborðsskúffu hans.
Þessi afasystir mín fær um þessar mundir margt orð fyrir svona umhyggjusemi eins og hún sýndi þessum 19 ára stúdent á þessum tíma. Hún arfleiddi hann líka að stórum skáp sem stóð heima og var í mklum metum hjá pabba. Ennfremur að málverki af henni sjálfri eftir Gunlaug Blöndal. Það er nú í Alþingishúsinu þar sem það sómir sér vel á viðeigandi stað. Íbúðin hennar fröken Ingibjargar í Kvennaskólanum mun vera varðveitt að öðru leyti eins og hún skildi við hana 1941. Þar gengur nú í skóla sonardóttir mín yndisleg hún Anna Karen.
Hann Gústi frændi, Ágúst H. Bjarnason rafmagnsverkfræðingur og geimvísindamaður, www.agbjarn.is, minnist fröken Ingibjargar veglega á sínu bloggi með aðstoð góðs ritverks vinar míns Jóns Vals Jenssonar. Þar segir m.a.:
"Helztu hugsjónamálin voru landspítalamálið, bætt fátækralöggjöf og eftirlit með umkomulausum börnum og gamalmennum, en hún beitti sér einnig fyrir öðrum þjóðþrifamálum, m.a. þeim sem vörðuðu réttarbætur kvenna, menntamál og listir. "Hún leit ekki á sig fyrst og fremst sem málsvara kvenna í landinu, heldur þingmann allrar þjóðarinnar" (SBT). Hún var 2. varaforseti Efri deildar Alþingis 1925-27.
"Hún flutti merkt frumvarp um skipun opinberra nefnda árið 1927. Í því fólst áskorun til ríkisstjórnarinnar um að konur fengju sæti í nefndum sem skipaðar væru á vegum þingsins og vörðuðu almenning.
Hún sagði að konur hefðu beðið eftir því að vera kallaðar til samvinnu um fleira en það eitt að kjósa í þau 12 ár sem þær hefðu haft kosningarétt, en án árangurs. Þessi tillaga hennar náði ekki fram að ganga á þingi" (Heimastjorn.is).
Sagnfræðingur, sem lítur til baka, lýsir ástandinu þannig: "Þegar Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin á þing árið 1922 voru flestir þeirra karla sem stutt höfðu kvenréttindin horfnir á braut, enda voru róttækustu tillögur hennar felldar, jafnvel umræðulaust. Það þurfti ekki að ræða svona kvenréttindaraus. Hér er fullkomið jafnrétti milli karla og kvenna og hefur lengi verið," skrifaði Morgunblaðið árið 1926.
Tímar bakslags og andstöðu gengu í garð, og þeir tímar stóðu fram yfir 1960" (Kristín Ástgeirsdóttir, í erindi um íslenzka karla og réttindabaráttu kvenna)....
"Það var Ingibjörg sem hafði forgöngu um söfnun fjár til stofnunar sjúkrahússins; var hún formaður landspítalasjóðsnefndar frá stofnun sjóðsins 19. júní 1915 til æviloka. Vann hún að því með oddi og egg að koma byggingu spítalans í framkvæmd. Þá var hún einnig formaður Minningargjafasjóðs landspítala Íslands frá upphafi hans til æviloka, en fé hans var lagt til framfærslu fátækum sjúklingum. Þakkaði Guðmundur Hannesson prófessor íslenzkum konum heiðurinn af því, að spítalinn tók til starfa, þær söfnuðu með margra ára erfiði 300.000 kr., sem reið baggamuninn...."
Nú eru komnir aðrir tímar. Nú spyr helst enginn að því lengur hvað hann geti gert fyrir þjóð sína heldur aðeins hvað þjóðin geti gert fyrir viðkomandi sjálfan.
Lítið fer fyrir þjóðarvitund þegar kemur að kjaramálum einstakra hópa. Enda gefur helmingur þjóðarinnar lítið fyrir slíka þjóðrembu og finnst hún best geymd á ruslahaugum Evrópu að fordæmi Dana. Öskuröpum líðst að eyðileggja hátíðarstundir lýðveldisins og mörgu fólki finnst það bara sjálfsagt.
Hvort hún fröken Ingibjörg hefði skilið þennan nýja stíl og þessa nýju tíma er ég efins um.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.6.2015 | 21:52
Er yfirleitt hægt að stjórna Íslandi utan ESB?
ef einstaka samtök vilja annað en löglega kjörin stjórnvöld?
Hjúkrunarfræðingar skilja ekki 500 milljónir í jafnréttissjóð þegar þá vantar meiri peninga. Þeir segja bara upp og hóta að hætta. Stjórnvöld og allir eru svo hræddir að þeir eru að gefast upp. Már hækkar vexti upp í þegar gerða verðbólgu.
Verkalýðsfélögin bíða bara eftir að hækka hjá sér þegar ríkið gefst upp fyrir þrýstihópunum. Það má ekki ráða útlendinga í stað fólksins sem er að hætta, er það?
Svo til hvers er verið að ströggla? Þjóðin vill verðbólgu, meiri spítala og ríkisrekstur. Og þá auðvitað hærri skatta. Til hvers er verið að lofa skattalækkunum þegar fólkið vill þær ekki?
Verða ekki allir ánægðir með 30 % kauphækkun strax? Og staðgreiðsluna upp í 60 % Og virðisaukann í 26%? Og stýrivextina upp í 10 %. Verðtryggingin sér um hagsmuni lánveitendanna og lífeyrissjóðanna.Má ríkisstjórnin ráða þessu?
Er þetta ekki samræðu-og samráðspólitíkin í sinni tærustu mynd? Ef ekki Lýsistratískt tjáningarform hjúkrunarfræðinga? Ætli þetta séu loks kjarasamningar sem klekkja á auðvaldinu?
Má ekki fækka á Alþingi niður í 52 eins og var? 18% stytting á umræðum um fundastjórn forseta og lækkandi kostnaður? Færri lög? Minni vitleysa?
Er yfirleitt hægt að stjórna Íslandi utan ESB?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2015 | 16:20
Ég hef hitt
rauða sem halda því fram að það hafi verið hinn góði réttur öskurkórsins á Austurvelli að yfirgnæfa Fjallkonuna, tónlístina og forsætisráðherrann.
Ég hef skilið stjórnarskrána þannig að mönnum sé rétt að safnast saman og mótnæla að vild þegar þeir vilja. EN þó þannig að það skerði ekki lifskjör annars fólks, hindri för þess, grýti það eða banki að utanverðu. Frelsi eins endi þar sem frelsi annars byrjar?
Kommaskríllinn á Austurvelli 17.júní virtist ekki ekki þeirrar skoðunar.
Í hruninu minnir mig að hjónin Davíð Odssson þá seðlabankabankastjóri og kona hans Ástríður hafi mátt þola það nótt eftir nótt að skríllinn væri á ferð í garðinum þeirra með læti? Löggan hafi ekkert verið sérlega rösk í því að hindra þetta? Var það kannski í lagi af því að Davíð er ekki kommi?
Ef þær aðfarir voru í lagi er það þá í lagi að ég kæmi með lúðrasveit léti hana spila mín uppáhaldslög kl 24:00 fyrir utan svefnherbergisgluggana hjá einhverjum úr stjórnarandstöðunni?* Ætli ég væri lengi í friði með það?
Er ekki munur á hávaða og mótmælaskilti?
Ég hef líka hitt rauða sem skilja þetta eins og ég.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.6.2015 | 12:23
17.júní 2015
er athöfn á Austurvelli að vanda í þjóðræknilegum stíl sem öll þjóðin á og nýtur. Forsetinn leggur blómsveig á Jón Sigurðsson.Forsætisráðherra talar. Kórar flytja hin fegurstu ljóð. Fjallkonan fer með kvæði. Allt í sjónvarpinu í beinni.
Athöfnin er trufluð af tiltölulega fámennum brjáluðum kommúnistaskríl fyrir aftan sem gargar og ber trumbur. Við, sem erum fjöldinn heima, megum ekki einu sinni njóta tónlistarinnar fyrir hávaðanum sem er stöðugur. Því miður sýndu myndavélarnar ekki nægar myndir af hyskinu svo við gætum þekkt þá úr og tekið þá fyrir á förnum vegi, sem þarna fóru hæst.
Hafi maður haft samúð með fólki sem hefur og lágt kaup á spítölunum þá saxaðist vel á hana þarna, þegar fulltrúar þess sýna sitt rétta andlit ofbeldis og ófriðar.
BHM og þessum aragrúa af kjarabaráttufélögum gegn hinu opinbera er skítsama um lög og rétt. Þeim er skítsama hvort einhverjir deyja ótímabært í kjölfar kjaraaðgerða. Þeim er yfirleitt skítsama um allt nema sjálft sig og sína buddu.
Mér líka skítsama um þessi félög núverandi mynd. Ég vil bara að þau verði gerð skaðlaus og svona aðgerðir heyri sögunni til með einum eða öðrum hætti. Nú hefur fjöldi fólks úr þessum félögum sagt upp og ætlar úr landi. Ég vil bara fagna því og vona að það komi aldrei aftur. Ég er viss um að við getum fengið ekki mikið verra fólk í staðinn eins og alltaf er því maður kemur í manns stað. Allavega verður það fólk ekki í næsta upphlaupi.
Ég mun gleðjast meira eftir því sem fleira af félögum úr þeim fer úr landi. Ég sætti mig miklu frekar við erlendar hjúkrunarkonur og geislafræðinga og jafnvel erlenda lækna, ef þetta fólk vill ekki vera með þessari þjóð og hlýtt hennar lögum. Það geta flestir talað ensku og þeir sem ekki geta það ættu að geta fengið túlka. Og þá má væntanlega fara að huga líka að fjárveitingunum til Læknadeildarinnar og Hjúkrunarskólanna.
Það virðist eiga að vera svo, að ákvarðanir Alþingis og löglega kjörinnar ríkisstjórnar eigi ekki að gilda ef bolsjevikkunum þóknast annað. Menn ættu að geta gert það sem þeim sýnist í mótmælum en þó aðeins án þess að ganga á rétt meðborgaranna eins og þarna gerðist á Austurvelli. Skrílnum á ekki að leyfast að fótum troða rétt meðborgarans til að hlusta og njóta.
Sem hliðstæðu mætti hugsa sér að ég hefði viljað fá að hleypa úr mínum eigin táragaskút þarna við hornið á Sjálfstæðishúsinu til að mótmæla skerðingum á öldruðum sem líklega jafnmikið tilefni er til? Var það ekki alveg eins minn réttur eins og hinna mótmælendanna sem hindra mig í að njóta stundarinnar? Mitt eigið gas? Ef þeir ekki vilja lykta af því geta þeir þá bara ekki flutt sig?
Hverskonar ræfildómur er það af heilu þjóðfélagi að gefast upp fyrir svona fámennum skríl og leyfa honum að hleypa upp helgistund þjóðarinnar. Jafn fáránlegt og að líða öskurapa á áheyrendapöllum Alþingis.
Girðingin á Austurvelli verður bara að vera fjær næst en friðsamt fólk má alveg koma nær.
17.júní 2015 er lexía fyrir okkur öll.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.8.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 3421318
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko