1.5.2021 | 15:39
Orsakir verðbólgunnar
eru skráðar í Staksteinum Morgunblaðsins með myndum af Sólveigu Önnu og Ragnari Þór.
Ágeir Jónsson Seðlabankastjóri var búinn að segja það skoðun sína að hagsmunahópar réðu of miklu á Íslandi.
Satt mun það vera að það sem sumum finnst það frekar vera skipulagðir bófaflokkar sem kalla sig verkalýðsfélög og tefla gegn almannahagsmunum í eiginhagsmunaskyni sem hafa tekið sér gíslingavald yfir þjóðfélaginu sem verður að standa og sitja sem þessir flokkar bjóða og ákveða einhliða. Þeir ráði því sem þeir ráða vilja í skjóli ólýðræðislegs fámenniskjörs í fjölmennum félögum. Til dæmis situr Sólveig Anna sem formaður Eflingar í skjóli tíunda hluta atkvæða í félaginu. Völd hennar í þjóðfélaginu eru langt umfram það sem þetta gefur tilefni til.Sömu sögu er að segja um Ragnar Þór. Hans styðst við brot af félagsmönnum í stærsta verkalýðsfélagi landsins, V.R.
Þetta tríó hefur vald til að móta krónulega velferð almennings í landinu og í raun skáka öllum hagstjórnartækjum og stofnunum landsmanna.Ekkert pólitískt skipað ríkisvald þorir að fara gegn þessum flokkum.
Svo segja Staksteinar:
"Verðbólgan hér á landi er orðin of mikil. Hún fer vonandi ekki úr böndum, en verðbólgumælingarnar þarf að taka alvarlega. Ýmislegt hefur áhrif til hækkunar, en það er líka ýmislegt sem hefur áhrif til lækkunar. Við venjulegar aðstæður ætti núverandi ástand í efnahagsmálum, sem orsakaðist af kórónuveirufaraldrinum, að draga úr verðbólgu. Samdráttartími er almennt ekki verðbólgutími.
Hér hefur það engu að síður gerst að í miðjum heimsfaraldri þeim skæðasta í manna minnum lætur verðbólgudraugurinn á sér kræla.
Hver skyldi vera skýringin á þeirri ógæfu ofan á hina?
Þó að heimsfaraldurinn sé eðli máls samkvæmt utanaðkomandi vandi sem Íslendingar höfðu ekkert með að gera, þá er verðbólgan sjálfskaparvíti.
Hér á landi gerðist það að á sama tíma og atvinnulífið glímdi við margvíslegan vanda fóru forystumenn úr verkalýðshreyfingunni fram af miklu offorsi og óbilgirni og þvinguðu fram launahækkanir sem voru algerlega úr takti við það sem atvinnulífið gat ráðið við.
Seðlabankastjóri hefur bent á að hagsmunaaðilar hér á landi hafi stundum of mikil áhrif sem séu landinu ekki til heilla. Vart er til skýrara dæmi um það en fyrrgreindar þvingunaraðgerðir."
Enda eru launhækkanir hér á landi ferfaldar við það sem annarsstaðar gerist, verðbólga fimmföld og vextir sexfaldir.
Sagter að almennar launahækkanir hafi ekki orðið árum saman í Þýzkalandi og efnahagur þess stendur mun styrkara en víða annarsstaðar gerist.Á það hefur verið bent að stundum hefði borgað sig betur fyrir launþega að fá taxtalækkun yfir línuna heldur en taxtahækkun til þess að öðlast betri kaupmátt launanna. En útilokað virðist vera að ræða við verkalýðsforystu um hagfræði eða skynsemi.
Það virðist stundum vera bara kröfuhreystin sem sé mælikvarði á frammistöðu forystumannsins í augum viðhlægjendanna og kjaftgleiddin við kröfugerðina sem skipti máli þegar kemur að endurkjöri í félaginu þar sem þeir æstustu mæta einir.
Hvernig á að sjá einhverja skynsemi í ástandinu á íslenskum vinnumarkaði. Svo segir í Morgunblaðinu:
"Nákvæm greinargerð um síðustu kjarasamningalotu er að mínu mati einna merkilegasta framlag þessarar skýrslu. Þessi og aðrar kjaralotur sem reglulega ganga yfir landið eru afar umfangsmiklar og fyrirferðarmiklar í opinberri umræðu, segir Hannes G. Sigurðsson, ráðgjafi stjórnar og framkvæmdastjórnar SA og einn skýrsluhöfunda.
Hann tekur sem dæmi að í yfirstandandi samningalotu hafi fyrstu stefnumarkandi samningarnir verið undirritaðir í apríl 2019. Viðræður höfðu þá staðið yfir í sex mánuði. Þessi kjaralota stendur raunar enn því ólokið er endurnýjun nokkurra kjarasamninga. Kjaralotur á Íslandi eru mjög langar og flóknar í samanburði við önnur lönd. Í skýrslunni er dregin upp skýrari mynd en áður hefur birst af helstu vinnumörkuðum og aðilum þeirra og þeim mikla fjölda kjarasamninga sem þar eru gerðir, segir Hannes.
Í fyrsta sinn sé framkvæmd talning á fjölda undirritaðra samninga og til hve margra launamanna þeir nái og þessar upplýsingar flokkaðar eftir vinnumörkuðum, samtökum launafólks og viðsemjendum. Helsta niðurstaðan er sú að undirritaðir og samþykktir kjarasamningar voru 320 á þessu tímabili sem spannar tvö ár, frá apríl 2019 til mars 2021, segir Hannes. Fjöldi samningsaðila og samninga gerir samningakerfið mjög flókið og skortur á samstöðu veldur því að ferlið tekur langan tíma og ekki eru neinar ýkjur að segja að stöðugar umræður um kjaramál tröllríði íslenska samfélaginu, ólíkt því sem gerist í öðrum löndum. Samningarnir og hóparnir eru svo margir, hagsmunir þeirra ólíkir og ósamrýmanlegir, þannig að togstreita um launastefnu og launahlutföll milli stétta verður viðvarandi, tekur aldrei enda.
Samningakerfið er einnig svo sérkennilegt að gerðir eru kjarasamningar fyrir mjög smáa hópa, allt niður í einn til tvo starfsmenn, og væntanlega lítið rætt um þjóðhagsleg markmið við endurnýjun þeirra. Óumdeilt er að Ísland eigi óskorað heimsmet í fjölda kjarasamninga og stéttarfélaga miðað við höfðatölu. Því fer ekki fjarri að fjöldi kjarasamninga sé svipaður á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum þar sem íbúar eru 15 til 30 sinnum fleiri, segir Hannes. karitas@mbl.is"
Þó að við berum okkur saman við þau lönd sem við viljum helst líkjast er munurinn óskiljanlegur. Enn segir í Morgunblaðinu:
"Í heildina var kjaradeilum vísað til sáttasemjara í rúmlega helmingi tilvika í yfirstandandi samningalotu.
Til samanburðar eru gerðir um 400 samningar í Noregi og 125 þeirra vísað til norska ríkissáttasemjarans. Fjöldi samninga og sáttamála er því áþekkur á Íslandi og í Noregi þótt norski vinnumarkaðurinn sé fimmtán sinnum fjölmennari en á Íslandi.
Í Svíþjóð er vinnumarkaðurinn 30 sinnum stærri en á Íslandi en þar var 35 kjaradeilum vísað til sáttameðferðar í síðustu samningalotu."
Datt einhverjum í hug að stytting vinnuvikunnar kæmi öðruvísi fram en í auknum kostnaði? Enn segir í Mbl:
"Tímakaup launafólks hér á landi hefur hækkað meira í flestum hópum á vinnumarkaðnum en kostnaðarmat gerði ráð fyrir við gerð kjarasamninganna í samningalotunni sem hófst fyrir rúmum tveimur árum.
Þetta sýna mælingar Hagstofunnar og liggja skýringar m.a. í áhrifum af styttingu vinnuvikunnar á mælda hækkun tímakaups og launaþróunartryggingu, sem áður hafði verið samið um á opinberum markaði. Þetta kemur fram í vorskýrslu kjaratölfræðinefndar, sem er samstarfsvettvangur heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga. Skýrslan var kynnt í gær en í henni er fjallað um samningalotuna sem hófst árið 2019 og um þróun efnahagsmála og launa á þessu tímabili."
Hvernig á að ná einhverju viti í þetta kjarasamningakerfi er ekki auðséð þegar tveggja manna stéttarfélög eru viðmiðið og skipulagið er með þeim hætti sem það er.
Þangað liggja rætur verðbólgunnar meðal annars.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.5.2021 kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.5.2021 | 10:18
Reykjavíkurbréfið
í dag er í algjörum sérflokki góðra stjórnmálaskrifa að mér finnst.
Í heild sinni er það svona:
Það er eiginlega of gott til að vera satt að litlu samrýmdu systurflokkarnir, sem fylkja sér saman og eiga sér ekki viðreisnar von, ætli sér enn að söngla sinn þreytta eintóna söng um ESB, allra meina bót, þegar hvarvetna sést að íbúar þar innanborðs eru óðum að týna galdratrúnni.
Þeim er vorkunn
En það eykur vandræðin að systurflokkarnir fyrrnefndu eiga engan annan kost. Þeir telja sig verða að veifa þessu tré fremur en öngvu. En þar með veifa þeir öngvu!
Einsmálstilveran tryggir að einstigið sem jafnframt er einstefna er aðalbraut hennar og reyndar sú eina. Það var því sjálfgefið að systurflokkarnir myndu enda eins og rolla í sjálfheldu og þar sýnast þeir staddir nú. Frá þeim stað geta þeir hvorki komið né farið. Enginn annar vill deila með þeim sama stað og þeir verða að láta eins og syllan sú sé þúsund hektarar af grænu grasi sem eigi sér engan annan stað líkan. En almenningur er ekki þar. Og hann trúir því seint að syllan sú sé fyrirheitna landið. Og systurflokkunum kemur ekki lengur við hvað það er sem skiptir íslenskan almenning helst máli, bæði nú og í næstu framtíð. Þeir sitja eftir á syllunni og tala saman á belgísku og eru þeir einu í heiminum sem gera það.
Hvers vegna í ósköpunum ætti nokkur kjósandi að reima á sig skó og skokka á kjörstað til að kjósa þá syllumenn? Þeir sameina hið ómögulega að vera í sjálfheldu á syllu og þrátt fyrir það algjörlega úti að aka.
Og talandi um það, þá hatast þetta sama lið reyndar út í alla sem eru úti að aka á sínum bíl, hvort sem er til vinnu, með börn sín til skóla eða tómstunda eða í öðrum þeim erindum, smáum og stórum, þar sem einkabíllinn gegnir lykilhlutverki.
Og svo eru syllumenn hækjur skattpíningar
Og fyrrnefndir systurflokkar eru einmitt helstu hækjur borgarstjórans, sem kjósendur höfðu í raun í tvennum kosningum í röð reynt að reka af höndum sér. En hækjurnar gerðu sitt til að eyðileggja vilja kjósenda og komu í veg fyrir að mjaka mætti borginni úr þeirri ömurlegu stöðnun sem hefur þjakað hana nú um skeið.
Þegar rekstur og framkvæmdageta borgarinnar var sem öflugust var borgin framarlega í röð þeirra sveitarfélaga sem sýndu mesta aðgát í nýtingu skattheimilda sinna. Með núverandi stjórnendum og því hugarfari sem þeir lúta er hver einasti gjaldstofn borgarinnar, stór sem smár, þaninn upp í hæstu hæðir! Fasteignamat bygginga hefur, vegna þrenginga í lóðamálum og vesaldar borgaryfirvalda í skipulagsmálum, hækkað stórlega þar sem eftirspurn eftir húsnæði sprengir nú framboðið.
Þá hefði það verið sjálfgefin sanngirni og eðlileg tillitssemi við íbúa borgarinnar að slá verulega af gjaldstofnunum. Borgin hefði þó verið jafnvel sett eftir sem áður. Væru borgaryfirvöld vinir og samherjar borgarbúa hefðu þau hagað sér þannig. En því var ekki að heilsa heldur var tækifærið nýtt til að þrengja að fólkinu. Það var þó í senn réttlætismál og skylda gagnvart fjárhagslega aðþrengdum borgarbúum að bregðast þeim ekki. Og eins og fyrr sagði yrði hagur borgarsjóðs jafngóður og árin á undan!
Borgarstjóranum einum er ekki um að kenna. Systurflokkarnir bentu ekki á að sjálfsögð krafa væri að setja sanngirni og réttlæti í fyrsta sæti. Þeir þögðu og tryggðu framgang óréttlætisins með atkvæði sínu.
Þvert á allt sem boðað var
Þetta er myndin sem blasir við af þessum mistæku smáflokkum í stjórnarandstöðu á landsvísu og hlaupaLoforðin á ódýra markaðnum endast illa Reykjavíkurbréf30.04.21 liðum á litla sviðinu í Reykjavík, þar sem þeir hugsjónalausu taka glaðbeittir þátt í hverri einustu atlögu gegn venjulegum bifreiðaeigendum sem Dagur B. Eggertsson stendur reglubundið fyrir, til viðbótar þeim vanda sem athafna- og getuleysi borgaryfirvalda hefur þegar valdið þeim. Þær hafa leitt til þess að umferðarmál borgarbúa eru komin í óefni. Og markmiðið er að halda áfram á þeirri braut.
Þá er horft til himins og sagt að borgarlína muni falla þaðan sem himneskt hjálpræði. Það eru öfugmæli og ónýt óskhyggja. Sú tugmilljarða martröð, sem sú glórulausa skrifborðslausn boðar, er gamaldags úrræði í sovéskum stíl, sem byggist á hugmyndum um að vandinn til úrlausnar snúist um, eins og í sovét forðum, að koma lýðnum til og frá úreltum verksmiðjum og heim til sín í úthverfin. Nútímamaðurinn er ekki maur í sovétskipulagi. Hann á erindi víðar. Hann fer þangað sem hugurinn stýrir honum og þangað sem þörfin knýr.
Forsenda borgarlínu felst í því að knýja menn frá því að eiga erindi annað en litlir lenínar telja nóg! Og upp á gamla máta gleypa þægir þá forsendu að það muni hjálpa mest að gera bifreiðaeigendum á höfuðborgarsvæðinu algjörlega ókleift að koma sér annað en þangað sem sovétskipulagið nýja ætlar þeim.
Ríkisstjórnin hefur aldrei gefið skýringu á því af hverju í ósköpunum hún hefur talið sér skylt að falla í þessa gryfju og toga tugi milljarða upp úr buddu fólks um allt land og dæla í þessa endemis þvælu. Önnur óskýrð tiltæki úr þeirri átt benda helst til þess að hún telji almennt að hafi gryfjurnar verið settar þarna þá hefði það sýnt a.m.k. slæma nýtingu að detta ekki í þær, hverja af annarri, og helst í réttri röð, og ef hægt sé að koma því við, að detta svo í þær aftur í bakaleiðinni og þá hljóti nýtingin að vera fullkomin og hrakfallabálkar stjórnmálanna fengju þá einkunn að vera lausnamiðaðir.
Réttdræpur rekstur
Meginverkefni borgaryfirvalda, sem systurflokkarnir fyrrnefndu staulast undir, virðast að öðru leyti, næst á eftir því að tuddast á bifreiðaeigendum, að vega opinskátt eða úr launsátri, ef sú ákjósanlega staða kemur upp, að þeim sem þráast enn við að stunda rekstur í borginni. Núverandi borgaryfirvöld hafa margoft sýnt að þeirra hlutverk sé ekki annað en að útvega slíkum aðilum sem allra öflugastan mótvind í fangið en setja fótinn fyrir viðleitni þeirra, ef mótvind vantar þá stundina.
Hollur smárekstur fellur þó hvarvetna best að viðmótsþýðri og elskulegri uppbyggingu miðbæjar að mati velviljaðra yfirvalda, sem eru ekki með lausa skrúfu. Það er sú starfsemi, þegar best gengur, sem reynist öruggasta einkunnin og heilbrigðasta merkið um að borgarsamfélagið sé lífvænlegt, notalegt og með opinn arminn. Tilræði borgarstjórans við Laugaveg og nágrannastrætin og gamla bæinn í heild hafa örugglega gengið framar vonum hans og mun taka langan tíma að bæta fyrir þau skemmdarverk öll og sum verða seint eða aldrei bætt að fullu.
Lóðbeint á höfuðið
Nú síðast komu svo óvæntar fréttir að þrátt fyrir að skattheimta sé umsvifalaust keyrð í topp sé fjárhagsstaða borgarinnar komin í óefni.
Hún hefur reyndar farið jafnt og þétt í öfuga átt og umframkeyrslan og skortur á aðgát hafa síðustu árin stuðlað að því að koma fjárhagnum á hliðina. Skuldasöfnunin hefur verið hið eina sem virðist hafa lotið styrkri stjórn, en auðvitað gengið í vitlausa átt eins og flest annað á þessum bæ.
En tölurnar, sem nú eru nefndar, eru hrikalegar. Og skyndilega er það kórónuveiran sem ræður ferð! En hvernig stendur á því að staðan í nágrannasveitarfélögunum er önnur og þar tekst að halda í horfi og rúmlega það?
Sé það tilvikið að kórónuveiran hafi komið aftan að borgaryfirvöldum á sínum síðustu metrum þá hlytu þau að hafa upplýst borgarbúa um það fyrir löngu og hvernig þau ætluðu að bregðast við og bjarga borgarrekstrinum og laga hann að þeim veruleika. En ekkert slíkt hefur heyrst. Ekkert orð og ekkert kvak. Borgaryfirvöld hafa verið frá morgni til kvölds í innilegum samningaviðræðum við Borgarlínu langsokk um hvernig væri best að eyða 50-100 milljörðum króna og hvernig væri hægt að draga ríkisstjórnina á asnaeyrunum út í foraðið með sér. Tveggja milljarða afgangur er skyndilega kynntur sem 12 milljarða halli eins og sá veruleiki hefði allt í einu komið upp með einni gusunni úr fjalli geldinganna! Enginn aðdragandi? Engin raunveruleg viðbrögð?
Núverandi borgaryfirvöld hafa brugðist umbjóðendum sínum í þetta sinn eins og svo oft áður. Þegar litið er til loforðanna sem gefin voru fyrir kosningar síðast og fjórum árum þar á undan, stenst ekkert.
Fyrir síðustu kosningar var foreldrum lofað átaki í leikskólamálum strax. Borgarstjórinn lofaði hátíðlega að hann myndi ganga frá því máli strax í vikunni eftir kosningar. Það var svikið, og er svikið enn!
Dagur gaf hátíðlegt loforð um að setja Miklubrautina í stokk á því kjörtímabili sem þá var að hefjast. Kannast einhver við það? Var veiran líka á móti því?
Borgarstjórinn er frægur fyrir að líta á loforð sín eins og hor í nefi. Snýti hann sér sé málið þar með horfið úr hans veröld.
Við erum farin að þekkja þennan Dag. Hann er nákvæmlega eins og Dagurinn á undan honum og því miður er ekki er minnsta ástæða til að ætla að komandi Dagur verði hótinu skárri."
Betri lýsingu á stjórnmálaástandinu á Íslandi er varla hægt að gefa. Enda skrifarinn með ótvíræða reynslu á vandamálgreiningu manna og málefna.Það er nánast móðgun við kjósendur að bjóða fram tvo stjórnmálaflokka sem hafa ekkert mismunandi fram að færa en mismunandi persónumetnað forystumannanna, Þorgerðar Katrínar og Loga Más.
Að stjórnmálaleg þjóðtunga þeirra sé belgíska er napur sannleikur.
Draumur margra embættismanna okkar er að komast til Brüssel á skattfrjáls laun. En óskapnaður skrifræðisins í höfuðstöðvum ESB er slíkur að sambandið hefur aldrei getað skilað af sér endurskoðuðum ársreikningi frá stofnun. Auðvitað er slíkum rekstri ofraun að telja fram til skatts launagreiðslur til starfsmanna.
Og varla batnar það þegar þarf að fara að greiða Evrópuhermönnunum laun og kaupa hergögn.Þá verða réttir digrir reikningar til ríkjanna að finnskum hætti eins og núna.
Hvernig Dagur B. Eggertsson hefur getað haldið völdum í eins mikilli andstöðu við borgarana og raun ber vitni er nær óskiljanlegt fyrir þá sem fyrir utan standa.
Ekki eru nein tímamót í augsýn í þeirri áþján þar sem það vantar í íslenska stjórnskipan ákvæði um að kjósa megi stjórnarflokka frá á kjörtímabili með samtökum borgara eins og eru í Bandaríkjunum.
En það eru kosningar til þings í aðsigi. Margt bendir til þess að stjórnarflokkarnir muni ekki bíða afhroð ef engin stóráföll verða til hausts.En jafnvel vika er langur tími í pólitík og of snemmt að gera spádóma þó Reykjavíkurbréfið gefið mörg tilefni til slíks.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.4.2021 | 14:43
Biden í 100 daga
menn setja stundum skoru í borðstokkinn til að merkja þann stað á forsetaferli.
Ég hef auðvitað enga yfirsýn yfir hvað kallinn er búinn að gera eða hver sé afstaða Pútíns. En ég vona að það sé eitthvað jákvætt í þróuninni sem almenningur kannski sér ekki.
Ég var skítfúll þegar blaðamennirnir ginntu hann Biden til að samsinna því að Pútín væri morðingi.Svona segir maður ekki í alþjóðaviðskiptum finnstmér. Pútín tók þessu merkilega vel og reyndi að gera gott úr að mér sýndist.
Biden er búinn að stinga upp á fundi með þeim sem ég vona að verði að veruleika.Höfði væri skemmtilegur staður fyrir þann viðburð.
Það er mikið undir því komið að Biden reyni að vinna á móti því að Rússum sé þröngvað í faðmlag Kínverja. Það verður ekki gert nema eitthvað betra samkomulag opinberist milli þeirra forsetanna.Bandaríkjamenn gerðu vel í að rétta einhverja vinarhönd yfir finnst mér.
Ég held að Rússar og Kínverjar séu ekki neinir rökréttir vinir. Og Bandaríkjamenn ættu ekki að púkka mikið uppá Kínverja vegna yfirgangs þeirra á Kyrrahafi sem er ekki í þágu Bandaríkjanna.
Mér fannst Trump vera á réttri braut með Kínaafskiptin og Rússa, en ég skil ekki Biden alveg.Biden er ekki að auka á vinsældir sínar með fjandskap við olíuiðnaðinn og undirtektir við CO2 bullið. Heimurinn vill ekki horfast í augu við þýðingu olíuiðnaðarins sem heldur lífinu í mannkyninu hvort sem okkur líkar betur eða verr.
Mér finnst við Íslendingar eigum að rétta Pútín sáttahönd og reyna að koma á sem bestum viðskiptum við Rússa en ekki hengja okkur aftan í ESB. En viðskipti þess og svo Þjóðverja í gasviðskiptunum eru ofar mínum skilningi í ljósi refsiaðgerða sambandsins vegna Úkraínu.
Rússar hafa iðulega sýnt okkur Íslendingum vinskap þegar við höfum á þurft að halda.
Ég vona að Biden gangi vel í næstu 100 dagana og mér sýnist að hann klári sig af þessu enn sem komið er.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2021 | 10:41
Hver er skipulagsþróun í Bretlandi?
þegar reynt er að leysa húsnæðisvandamál almennings við "rauða vegginn" sem mótsvarar "íbúum ryðbeltisins" hjá Trump,
Það kemur í ljós að um og oft yfir 80 % íbúa ferðast með einkabílum. Þar eru skipulögð hverfi með 4 bílastæðum á íbúð. Fólkið hefur valið bílinn.
Þetta geta menn lesið í Economist 03-09 Apríl, mjög fróðlegar greinar um byggingakostnað og opinbera aðstoð við almenning.Fólkið vill einbýli með bílastæðum, eiga börn og 2 bíla að lágmarki og rými til þess að börnin geti líka átt bíla heima við húsin.
Dagur B. og Sigurborg Ósk ættu kannski að lesa um hver skipulagsþróunin er í Bretlandi þó að það sé gengið úr ESB.
30.4.2021 | 10:10
Mismunaskilningur
Hörður Ægisson lítur yfir hið íslenska svið með glöggskyggnum hætti sem oftar.
Nokkur áhersluátriði eru þessi:
"Hinn efnahagslegi veruleiki bankar nú upp á. Nýjar hagtölur sýna að verðbólgan, sem hefur farið stöðugt hækkandi, mælist 4,6 prósent langt yfir 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans og hefur ekki verið hærri í átta ár. Það er ástæða til að hafa áhyggjur af þessari þróun..... Það mun aftur hafa bein áhrif á fjármögnunarkostnað ríkissjóðs, sem þarf að sækja sér mikið lánsfé á komandi misserum, og fyrirtækja sem fjármagna sig á markaði.
Það þarf tæpast að koma á óvart að verðbólgan sé ekki að hjaðna. Kostnaður vegna skipaflutninga hefur stórhækkað, hrávöruverð er upp um nærri 50 prósent frá áramótum og þá hafa orðið verulegar launahækkanir nú þegar stór hluti fyrirtækja er í engri aðstöðu til að taka þær á sig nema að velta þeim út í verðlagið. Aðaldrifkrafturinn að baki verðbólgunni í þetta sinn er stighækkandi fasteignaverð hækkunin er 4 prósent á tveimur mánuðum og aðeins er tímaspursmál hvenær Seðlabankinn virkjar þjóðhagsvarúðartæki sín, eins og að þrengja skilyrði um veðlánahlutföll, til að kæla eftirspurnina á fasteignamarkaði. Undirliggjandi vandinn, skortur á framboði af byggingarlóðum á höfuðborgarsvæðinu, mun þó eftir sem áður standa óleystur.
.... Seðlabankinn lækkaði vexti úr 3 prósentum í 0,75 prósent, sem hefur aukið ráðstöfunartekjur heimilanna, og með gjaldeyrisinngripum tókst að verja gengi krónunnar. Hættan nú er hins vegar að við séum að missa verðstöðugleikann frá okkur. Hagkerfið er að ganga í gegnum eina dýpstu kreppu lýðveldissögunnar, uppsafnaður halli ríkissjóðs verður um 1.000 milljarðar 2020 til 2025 og atvinnuleysið er 11 prósent, en samt er launavísitalan að rjúka upp um 10 prósent vegna kjarasamningsbundinna hækkana hjá hinu opinbera er hækkunin enn meiri og ríkið og sveitarfélög eru að taka á sig milljarða kostnað við styttingu vinnuvikunnar. Dettur einhverjum það í hug, fyrir utan kannski hina nýju forystu verkalýðshreyfingarinnar, að fyrir þessu sé innistæða?
Boltinn er núna hjá Seðlabankanum. Ljóst er að það sem veldur honum einkum áhyggjum er að verðbólguvæntingar á markaði hafa rokið upp og eru nú um 3,5 prósent. Vonir eru bundnar við að gengisstyrking krónunnar, sem nemur um 9 prósentum síðustu sex mánuði, muni hjálpa við að ná verðbólgunni niður, en á sama tíma vill bankinn ekki sjá gengið hækka of mikið og þannig skerða samkeppnishæfni útflutningsatvinnuveganna og þá um leið hamla endurreisn ferðaþjónustunnar. Útlit er fyrir að vextir verði nú hækkaðir fyrr en ella sem mun ekki aðeins bíta fast á fyrirtækin heldur einnig heimilin, sem eru að stórum hluta með íbúðalán sín á breytilegum, óverðtryggðum vöxtum, á tímum þegar það er enn slaki í hagkerfi. Seðlabankanum er vandi á höndum á komandi mánuðum."
Lóðaskortsstefna sveitarfélaganna til langs tíma er vel þekktur verðbólguvaldur án þess að nokkuð sé að gert.Eftirspurn er svo margföld að engu tali tekur.
Loftslagsváin
Í ljósi þessara staðreynda er það með ólíkindum að lesa grein eftir forætisráðherrann okkar um að að forgangsverkefni ríkisstjórnarinner séu útgjöld til að kljást við loftslagsvá.
Ég var farin að vona að ráðherrann væri að færast frá stefnumiðum furðuflokksins yfir til almennrar skynsemi. En það er víst ekki endilega á öllum sviðum þrátt fyrir að við samstarfið við Bjarna Benediktsson hafi ýmislegt lagast.
Katrín segir:
"... Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar eru loftslagsmálin í algjörum forgangi. ..
Kolefnisbinding ásamt samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda mun verða lífsnauðsynleg til að sporna gegn loftslagsbreytingum á næstu áratugum. ..
..Loftslagsmálin voru eitt af stóru málunum í stefnuskrá Vinstri grænna fyrir síðustu kosningar.
..Verkefnið er hins vegar gríðarstórt og meira mun þurfa til en ef við höldum áfram á sömu braut mun það skila frekari árangri og Ísland leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn loftslagsvánni stærsta verkefni samtímans."
Sú barnslega blinda trú á mýrarljós loftslagsvísinda AlGore og Grétu Thunberg er skelfileg þegar til afleiðinganna er litið. Milljarðar eiga að renna til þess að fást við óvísindalega sannaðra fullyrðinga þekkingarlítilla aðila.
Þetta mun kosta almenning, kjósendur Katrínar, blóð svita og tár sem verða tekin að nauðsynjalausu.
Nú á að veita hundruð milljarða í niðurdælingu á CO2 fyrir allan heiminn í Straumsvík án þess að áhrifin né kostnaður hafi verið könnuð.
Hlýnun sem hún er að fást við nemur 0.8 gráðum á hverri síðustu öld eða samtals 1.6 gráðum síðan um aldamótin 1800. Hver getur fullyrt að engar náttúrlegar aðstæður í sólfari komi þarna inn?
Hversvegna kólnaði svo mjög á síðari hluta nítjándu aldar að stór hluti íslensku þjóðarinnar flutti úr landi vestur um haf eins og gerðist um alla Evrópu á þeim árum? Þessi blinda trú er alvarleg ógnun við alla tilvist og lífskjör þjóðarinnar í dag.
Hefur hitastig jarðar ekki sveiflast á áhrifa mannkyns á síðustu árbilljónum?
Steyttur hnefinn
Á milli þessara greina er svo grein eftir Sólveigu Önnu. Þar er steyttur hnefinn í andlit allrar efnahagslegrar skynsemi. Að hér skuli tala lífsreynd kona sem þó hefur búið í Bandaríkjunum og hlýtur að vera mjög upplýst um staðreyndir lífsins.Henni tekst þá svo mjög að dylja þekkingu sína í umbúðum slagorða og þá að tala sér gagnstætt þekkingu sinni.
Hvernig skyldi hún raða í launaflokka og skattflokka fengi hún til þess alræðisvald? Hversu lengi skyldi sú flokkun fá staðist áður en Seðlabanki þyrfti að grípa inn?
Himinhrópandi mismunandi skilningur fólks og greining á vandamálum daglegs lífs er umhugsunarefni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2021 | 08:16
Vond tíðindi?
Þetta er haft eftir Guðna Th. forseta vorum. Jöklar bráðna og talað er um loftslagsvá.
"Þarna sjáum við svart á hvítu vægi hinna táknrænu aðgerða, segir Guðni. Bráðnun jökla er orðin að nokkurs konar ímynd loftslagshlýnunar, loftslagsvár. Og þess vegna held ég að þessi atburður veki eins mikla athygli og raun ber vitni.
En er þetta íslensk vá? Aðkallandi vandi fyrir okkur? Er ekki Ísland byggilegra ef hitastig hækkar? 1.6 gráðu hlýnun meðalhita á síðustu 200 árum samkvæmt Trausta Jónssonar?
Er þetta ekki eitthvað sem gerir Ísland byggilegra? Hvað er rétt hitastig á Íslandi?
Voru ekki ísaldir stórar og smáar að hrjá landið okkar í áranna rás? Er urðin, grjótið og uppblásturinn landgæðin sem við þráum? Hvaða fyrirbrigði var Klofajökull? Var kaldara á Íslandi þá? Hversvegna flykktust Íslendingar til Vesturheims í lok 19. aldar?
Af hverju eru þetta vond tíðindi fyrir Ísland?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.4.2021 | 16:34
Landsölustefna Samfylkingarinnar
er sömuleiðis afdráttarlaus eftir að búið er að eyða meira orðskrúði í almenn atriði heldur en hjá Viðreisn.
En niðurstaðan er sú sama:
"Samfylkingin beitir sér fyrir kraftmikilli samvinnu Íslands við önnur lýðræðisríki, ekki síst við nágranna okkar í Evrópu. Margar af mikilvægustu réttarbótum og umbótum sem náðst hafa fram á lýðveldistímanum eru afsprengi Evrópusamvinnu.
Samstarf EFTA-ríkjanna við ESB hefur verið stórkostleg lyftistöng fyrir íslenskt atvinnulíf og knúið fram nútímavæðingu stjórnsýslu og samkeppnislöggjafar.
Samfylkingin vill efla og dýpka þessa samvinnu og stefnir að fullri aðild að Evrópusambandinu með upptöku evru að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þangað til þessu markmiði er náð þurfa íslensk stjórnvöld að nýta með markvissari hætti þau tækifæri sem felast í samstarfinu innan Evrópska efnahagssvæðisins, efla hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og bæta framkvæmd EES-samningsins."
Í hverju felst valkosturinn að kjósa annan hvorn þessara landsöluflokka, Viðreisn eða Samfylkinguna?
28.4.2021 | 16:24
Landsölustefna Viðreisnar
birtist hreinskilnislega á heimasíðu flokksins.
Þar úir og grúir að mótsögnum sem rekast hver á annars horn.
Lesum textann:
"FRJÁLSLYNDI OG JAFNRÉTTI
Frjálslyndi, frelsi og jafnrétti er leiðarstef Viðreisnar á öllum sviðum. Skapa þarf öllum landsmönnum jöfn tækifæri og styðja þá sem ekki geta nýtt þau.
⏠Viðreisn vill frjálst og opið þjóðfélag þar sem jafnvægi ríkir á milli frelsis einstaklinga, jafnréttis og samkenndar.
⏠Við höfnum hvers konar kynbundinni mismunun.
⏠Við fögnum fjölbreytileikanum og gætum þess að enginn gjaldi fyrir að tilheyra jaðarhópi.
⏠Allir skulu hafa rétt til heilbrigðisþjónustu, menntunar og félagslegrar þjónustu.
⏠Viðreisn ver og virðir skoðana- og tjáningarfrelsi og rétt hvers og eins til að þróa og nýta hæfileika sína til fulls á sínum eigin forsendum.
⏠Náttúruauðlindir eru sameign þjóðarinnar og þær ber að nýta á sjálfbæran og skynsamlegan hátt. Greiða skal markaðsverð fyrir aðgang að þeim.
⏠Viðreisn vill að hver kynslóð skili umhverfi sínu og endurnýjanlegum auðlindum í sama eða betra horfi til komandi kynslóða.
⏠Dreifa á valdi og örva hugmyndaauðgi á öllum sviðum.
⏠Viðreisn vill frjálsan og opinn markað sem veitir fólki og fyrirtækjum raunveruleg tækifæri og býr til jarðveg nýrra hugmynda og nýsköpunar.
⏠Viðreisn hafnar einokun og fákeppni sem takmarkar frelsi og stríðir gegn jafnrétti.
⏠Við setjum hagsmuni neytenda í öndvegi.
RÉTTLÁTT SAMFÉLAG
Ein af grunnstoðum farsæls þjóðfélags er virðing fyrir mannréttindum. Þau þarf að tryggja og verja innan ramma réttarríks með traustum stofnunum.
⏠Mannréttindi eru órjúfanlegur hluti frjálslyndis og þau ber að efla á öllum sviðum.
⏠Mannréttindi eru forsenda framfara og stöðugleika sem virkt lýðræði eitt getur tryggt.
⏠Réttlátt samfélag byggist á heilbrigðu og virku réttarríki.
⏠Virðing fyrir mannréttindum er forsenda þess að almennt traust ríki til yfirvalda og stofnana hins opinbera.
⏠Mannréttindi snúast um mestu verðmæti mannlegs lífs. Samfélagið má aldrei sofna á verðinum gagnvart réttindum einstaklinga.
EFNAHAGSLEGT JAFNVÆGI
Sköpun verðmæta með hugviti og skynsamlegri nýtingu auðlinda til framtíðar eru nauðsynleg forsenda efnahagslegs stöðugleika, samkeppnishæfni og lífskjara sem skulu vera að minnsta kosti jafngóð og í nágrannalöndum Íslands. Efnahagslegu jafnvægi verður aðeins náð með stöðugum gjaldmiðli.
⏠Viðreisn vill skipan efnahagsmála sem tekur tillit til þeirra sem minna mega sín og til sameiginlegra hagsmuna þess samfélags sem við byggjum.
⏠Nauðsynlegt er að endurskoða núverandi peningastefnu til að tryggja samkeppnishæft vaxtastig og draga úr áhrifum gengissveiflna á almenning og fyrirtæki. Þeim markmiðum verður best náð með upptöku evru.
⏠Efnahagslegum stöðugleika verður ekki viðhaldið án félagslegs stöðugleika. Tryggja þarf jöfnuð, jöfn tækifæri og félagslegan hreyfanleika.
⏠Rekstur ríkissjóðs og sveitarfélaga verði að jafnaði hallalaus og skuldir hóflegar.
⏠Frjáls samkeppni stuðlar að aukinni hagsæld almennings með nýsköpun, auknu framboði og lægra vöruverði. Samkeppnishindrunum verði rutt úr vegi í innlendum sem alþjóðlegum samkeppnisgreinum.
⏠Frjáls markaður og gott viðskiptasiðferði veita aðhald og stuðla að efnahagslegum framförum. Skýr löggjöf móti umgjörð um efnahagslífið með stöðugleika og þjóðhagsleg varúðarsjónarmið að leiðarljósi.
ALÞJÓÐLEG SAMVINNA
Þjóðir heims verða að vinna saman að því að leysa mörg viðfangsefni er varða alla jarðarbúa. Ísland á að vera virkt í alþjóðasamfélaginu og stuðla að friðsamlegri samvinnu og auknum viðskiptum milli landa. Vestræn samvinna hefur aukið hagsæld þjóðarinnar og er forsenda sterkrar samkeppnishæfni Íslands. Evrópusambandið er réttur vettvangur fyrir frjálslynt Ísland.
⏠Samvinna við aðrar þjóðir er Íslendingum nauðsyn. Við eigum að taka eins virkan þátt í samstarfi þjóða og framast er kostur. Sérhagsmunir eiga ávallt að víkja fyrir almannahagsmunum í slíkri samvinnu.
⏠Samvinna við önnur ríki á Norðurlöndum, samstarfið innan Evrópska efnahagssvæðisins, aðildin að NATO og þátttaka Íslands í Sameinuðu þjóðunum hefur reynst farsæl fyrir Ísland.
⏠Full aðild að Evrópusambandinu stuðlar að aukinni hagsæld á Íslandi.
⏠Samvinna þjóða tryggir og ver mannréttindi, stuðlar að friði, er nauðsynleg til að taka á umhverfismálum, bætir vernd neytenda og tryggir betur réttindi launafólks.
⏠Mikilvægt er að Ísland taki loftslagsmál föstum tökum og sé virkt í alþjóðlegu samstarfi um lausnir á þeim vanda.
⏠Ísland á að sýna metnað í alþjóðlegu hjálparstarfi, þróunarhjálp og móttöku flóttamanna."
Hvað stendur uppúr af þessu málskrúði?
Að ganga í Evrópusambandið og taka upp Evru er höfuðatriðið í stefnu þessa flokks. Flokks sem talar um alþjóðlega samvinnu en vill ganga í tollabandalag 27 ríkja gegn öllum heiminum. Er það alþjóðleg samvinna?
Þessi 27 ríki ætla að setja upp sameiginlegan her þar sem Íslendingar verða herskyldir með inngöngu.
Þau eru núna að rétta 5.5 milljónum Finna reikning uppá 750 milljónir Evra sem þeir eiga að greiða til bandalagsins og leggja ofan á sinn eigin kostnað vegna faraldursins án þess að fá neitt í staðinn.
Fjölga hér innflytjendum sem allra mest með aukinni viðtöku flóttamanna og hælisleitenda.
Hversu margir Íslendingar munu falla fyrir þessu málskrúði og landsölustefnu sem hér birtist?
Og hver er munurinn á þessu plaggi og stefnuskrá Samfylkingarinnar? Finnst einhverjum þetta vera innblásið og metnaðarfullt plagg fyrir sjálfstæða Íslendinga?
Hvað hefðu okkar menn eins og Jón Sigurðsson sem lögðu allt í sölurnar fyrir frelsi og sjálfstæði Íslands á liðnum öldum sagt eftir að lesa þetta landsöluplagg Viðreisnar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2021 | 10:19
Bjartsýnisverðlaun Bröste
voru eitt sinn í tísku.
Þau hefði mátt veita forystumönnum í íslenskri kjarabaráttu.
Óli Björn birtir þetta línurit yfir launaþróunina hjá einkageiranum og því opinbera.
Þeir opinberu hafa afgerandi vinning. Þeir ættu skilið að fá bjartsýnisverðlaun fyrir að trúa því að þessi þróun leiði þá áfram til hagsældar til lengri tíma litið.
"Niðurstaðan af því er að á síðustu tveimur áratugum hafa launahækkanir hér verið um þrefalt meiri en á hinum Norðurlöndunum, verðbólga fjórfalt meiri og vaxtastig fimmfalt hærra. Margt gefur til kynna að við ætlum enn að fylgja þessari leið.
Launavísitalan hefur hækkað um ellefu prósent milli ára og verðbólga fer vaxandi og mælist yfir fjögur prósent. Hækkandi launakostnaður skiptir þar miklu, og mun hafa enn meiri áhrif á verðlagsþróunina og þá um leið vexti á komandi misserum."
Spurningin er sú hvernig þeir ætla að tryggja fulla atvinnu eftir kófið?
Samfylkingarflokkarnir hafa svarið á hreinu: Ganga í ESB og þann fögnuð sem Finnar standa nú andspænis. En ESB var að rétta þeim 750 milljóna Evru reikning til þess að borga afleiðingar faraldursins í sameiginlegan sjóð ESB. Og Finnar eru aðeins 15 sinnum fleiri en Íslendingar í þrisvar sinnum stærra landi. Skyldum einhverjir hiksta við svona sjö milljarða reikning til ESB ofan á allt annað hér?
Og svo á eftir að stofna Evrópuherinn en Íslendingar ætla sér líklega ekki að taka þátt í honum vegna sérstöðu sinnar(sic!)
Kannski ættu þessir Samfylkingarflokkar, Samfylking og Viðreisn hver sem munurinn er, að athuga hvort enn sé hægt að sækja um Bjartsýnsverðlaun Bröste?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2021 | 09:57
Ný Marshallaðstoð?
í baráttunni við Kófið virðist vera helsta von mannkynsins. Baráttan er töpuð í mörgum ríkjum.
Eina lausnin virðist vera að Bandaríkin komi til bjargar til endurreisnar þar sem hörmungarnar eru mestar eins og þegar Marshallaðstoðin kom til skjalanna efir stríðshörmungarnar.
Indland ræður ekkert við sín vandamál sem stendur. Nú er sagt að Bandaríkin ætli að senda bæði bóluefni og súrefni þangað. Á sama tíma fréttist að indverski herinn eigi fullt af súrefni sem hann hefur haldið fyrir sig meðan almenningur deyr.
Ekkert fréttist frá kínverska kommúnistaflokknum um ástandið í Kína.Kunna þeir eitthvað sem öðrum er hulið?
Það er efnahagsmáttur Bandaríkjanna sem mestu máli skiptir fyrir veröldina eins og oft áður eins og í Marshallaðstoðinni á fyrri tíð.
27.4.2021 | 09:38
Fiskeldi Samherja
er miklu umfangsmeira en ég hafði gert mér grein fyrir.Enda ekkert sérlega margvís.
"Fiskeldi Samherja kemur að öllum stigum eldis og vinnslu, allt frá hrognum til neytenda. Samherji fiskeldi ehf. rekur eina klakfiskastöð að Sigtúnum í Öxarfirði, eina klakstöð fyrir hrogn að Núpum í Ölfusi, þrjár seiðastöðvar og tvær áframeldisstöðvar fyrir bleikju, aðra á Stað við Grindavík og hina að Vatnsleysuströnd. Einnig rekur fyrirtækið eina strandeldistöð fyrir lax að Núpsmýri í Öxarfirði. Allt eru þetta landeldisstöðvar sem nýta jarðvarma og notast við borholuvatn, ýmist ferskt eða ísalt, við framleiðslu á hágæða eldisfiski.
Til að vinna afurðir frá eldinu eru starfræktar tvær vinnslur, önnur í Öxarfirði þar sem laxi er slátrað og pakkað og síðan fullkomin hátæknivinnsla í Sandgerði þar sem bleikju er slátrað og hún unnin í fjölbreyttar neytandaumbúðir. Allar stöðvarnar eru vottaðar af ECOCERT í Sviss fyrir verslunarkeðjuna Whole Foods Market í Bandaríkjunum og vinnslan er jafnframt með BAP vottun (Best Aquaculture Practices). Stefnt er á að bleikjueldið verði vottað af ASC á árinu 2020."
Hvílík glæsifyrirtæki þetta eru er fróðlegt að skoða á netinu.Spurning er hvort eldi matfiska muni ekki yfirskyggja veiðar á villtum fiski þegar fram líða stundir.Kvótagróðinn hefur greinilega runnið í þá átt í þessu tilviki.Fiskeldi er í sókn um allt Ísland með erlendri þátttöku.
Öfundin er aldrei langt undan hjá manni ef eitthvað gengur vel hjá öðrun. Mörgum blæðir í augu að 70 milljarðar runnu nýverið til erfingja eigenda Samherja. Hin hliðin er sú að olýmpskar veiðar aragrúa skipa hefði ekki skapað neitt í líkingu við Samherja.
Í Bandaríkjunum ofbauð mönnum uppgangur Rockefellers og settu auðhringalög um uppskipti Standard Oil. Eftir uppskiptin leið ekki á löngu þar til hvert brotið var orðið stærra en upphaflega fyrirtækið.
Hvað verður gert við Samherja, Brim og þessi 20 útgerðarfyrirtæki sem fara með 70% kvótans? Mun ekki eignarhaldið dreifast af sjálfu sér með tímanum?
En fiskeldi Samherja sem er mikið á landi er allrar athygli vert.
26.4.2021 | 10:40
Næsta efnahagsframtíð
blasir við.
Aukist eftirspurn á Íslandi eftir Kófið er staðan þessi eftir því sem Hörður Ægisson tiltekur:
"
Niðurstaðan af því er að á síðustu tveimur áratugum hafa launahækkanir hér verið um þrefalt meiri en á hinum Norðurlöndunum, verðbólga fjórfalt meiri og vaxtastig fimmfalt hærra. Margt gefur til kynna að við ætlum enn að fylgja þessari leið.
Launavísitalan hefur hækkað um ellefu prósent milli ára og verðbólga fer vaxandi og mælist yfir fjögur prósent. Hækkandi launakostnaður skiptir þar miklu, og mun hafa enn meiri áhrif á verðlagsþróunina og þá um leið vexti á komandi misserum."
Samfylkingarflokkarnir báðir, Viðreisn og hinn, hafa lausnina.
Ganga í ESB og taka upp Evru.Fylgja hagsveiflum í Evrópu í einu og öllu í fjandskap við restina af veröldinni.
Ragnar Ingólfsson og Sólveig Anna geta svo séð um framkvæmdina.
Ekki fá fleiri ferðamenn til landsins umfram það sem gerist í Evrópu. Ekki skara fram úr eða dansa út úr röðinni. Nema í launahækkunum og verkföllum.Þar verður frítt spil.Flokkur Fólksins og Píratar munu sjá um hamingjuna og siðferðið.
Munu Íslendingar falla fyrir þeim rökleysum um næstu efnahagsframtíð sem þetta lið býður uppá?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 3421456
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko