Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011
31.1.2011 | 21:49
Ætli þetta sé ekki nógu fínt
fyrir okkar fanga?
"Nýtt fangelsi á Reyðarfirði?
Í búðunum mætti hýsa 3-500 fanga þar sem lágmarksöryggis yrði gætt. Fangelsi landsins eru yfirfull, en yfir 300 dæmdir menn bíða þess að geta afplánað. Þeir sem í venjulegu árferði yrði stungið inn fyrir að borga ekki sektir ganga líka lausir."
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.1.2011 | 11:50
Slagorð
eru það sem mér finnst mest einkenna það sem frá forsætisráðherra vorum kemur.
Þjóðin vill fá sitt stjórnlagaþing segir hún og röddin skelfur af tilfinningahita. Hún virðist heltekin af sannfæringu fyrir því að þjóðin þrái þetta þing umfram allt annað. Það er eins og hún neiti tilvist skoðanakannana sem segja að aðeins 7 % þjóðarinnar telur það vera forgangsmál að setja þjóðinni nýja stjórnarskrá. Ef marka má undirtektir háskólaliðsins í Fréttablaðinu þá er það líka andsetið af svipuðum hugmyndum um mikilvægi stjórnarskrár fyrir endurreisn landsins.
En fólkið í skoðanakönnunum, sem er líklega eitthvað allt annað en þjóðin hennar Jóhönnu, setur atvinnumálin og skuldavandamál heimilanna í yfirgnæfandi forgang fyrir stjórnarskrá. Ekki einhver eignarhaldsmál yfir fiskimiðunum þar sem óveiddir þorskar synda með verðmiða á sér sem nemur fjórföldu raunverulegu verðmæti þeirra. Og allt getur víst eins getur verið að verðmiðinn sé á þýsku eða Eurospeak eftir því sem Kristinn Pétursson, sá glöggi maður, spurði um í Silfrinu á sunnudag. Það sé hugsanlega búið að selja auðlindina úr landi af bönkunum sem hafa búið til risavaxna loftbólu úr kvótanum sem þeir hafa keypt af nýtingaraðilunum.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins skrifar afbragðs góða grein í Morgunblaðið í dag. Þar brýtur hann mörg slagorð ríkisstjórnarinnar á bak aftur og sýnir í einföldu máli hversu barnalegar þau eru ef ekki hrein vitleysa sem enga skynsamlega skoðun stenst. Nú munu væntanlega vinstriraddirnar fara að skjálfa í stíl Jóhönnu og fara að úthúða íhaldinu sem verði að axla ábyrgð á hruninu með því að steinþegja til að trufla ekki uppbygginguna. En það virtist því miður það það helsta sem vesalings vinstridrengurinn sem sat við hlið Þorgerðar Katrínar í Silfrinu virtist hafa til málanna að leggja.
Þorgerður Katrín flutti mál sitt skörulega svo allir gátu skilið sem heyra vilja. Blaðamaður Íslands óx ekki mikið í áliti hjá mér fyrir órökstudd slagorð um aðskiljanlegar ónáttúrur Sjálfstæðisflokksins og þá stofnun flokksins sem er kölluð Hæstiréttur. Um margt virðast ályktanir hans um eðli Sjálfstæðisflokksins vera ámóta og sagan af blinda manninum sem átti leið fram hjá ostakjallaranum, sér ekki það sem er til sýnis en dregur rangar ályktanir af því sem hann sér ekki.
Seinni blaðamaðurinn Magnús var kærkomin hvíld frá Jóhanni ofurblaðamanni og margt fannst mér skarplega athugað hjá honum um hvernig þjóðfélagið gengur á innantómum slagorðum daginn út og inn. Það er eignlega óhjákvæmilegt að maður minnist orða Árna Magnússonar um þrætubókaráráttu Íslendinga þegar maður horfir á svona hefðbundinn Silfursþátt . Þetta einkenni virðist ekki hafa elst af fólkinu sem virðist margt trúa því að slagorðþulur leysi vandann sem við er að fást.
ÍsIendingar eru fastir í hrikalegri kreppu bæði efnahagslegri og hugarfarslegri. Líklega mun henni ekki slota fyrr en aflandsgengi krónunnar fer að nálgast innlenda gerfigengið hjá Mávi Seðla. Líklega eru einhver ár í að það gerist svo ég komi sjálfur með eitt slagorð til umræðunnar.
29.1.2011 | 12:54
Styrjöld við múslímaríkin
færist líklega nær en margir halda. Talibanar eða skoðanabræður þeirra eru í framrás í múslímaheiminum. Atburðirnir í Túnis og Egyptalandi eru byrjunin á framþróun sem ekki verður séð fyrir endann á. Friðurinn við Íran hangir þegar á bláþræði. Saudi Arabía og Sameinuðu Furstadæmin mun ekki skipta svo auðveldlega um stjórnendur án afskipta Vesturlanda. Vesturlönd munu ekki geta sætt sig við að lifa undir hugmyndafræði ofbeldisdýrkandi strangtrúarmanna. Því mun okkur alveg eins brátt ljúgast friðurinn.
Íslendingar hafa til þessa fremur hagnast efnalega á styrjöldum og þess vegna þurfa þeir ekki að leggja á sig sérstakar byrðar vegna hugmyndafræðinnar á bak við Evrópusambandið. Þó má ekki gleyma því að þoldum manntjón hlutfallslega á við sumar styrjaldarþjóðir þó að margt annað hafi orðið okkur jákvætt.
Auðvitað má endalaust leika sér að tölum og spurningum um hvað-ef. En hvernig stöndum við ef skyndilega verður ekki lengur framboð á olíu? Hvernig róum við til fiskjar þá? Þurfum bara við Íslendingar ekkert að hugsa? Hvað-Ef?
Við erum þátttakendur í NATÓ og munum varla sitja hjá í komandi átökum. Þau koma fyrr en síðar svo mikið er víst. Og hvar eru þau líklegust? Hvenær?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.1.2011 | 10:06
Ef Davíð Oddsson
hefði komið á fund nefndar Alþingis og svarað með þeim hætti sem nefndarmenn fengu að heyra frá Mávi Guðmundssyni, hvað skyldi Skúli Helgason hafa sagt ?
....Skúli Helgason, einn fulltrúa Samfylkingarinnar í viðskiptanefnd, segir aðra sögu: »Þetta var mjög gagnlegur fundur og upplýsandi. Við fengum bæði upplýsingar frá Seðlabankanum og kaupendahópnum sem sagði sig frá söluferlinu í nóvember. Ég tel að fulltrúar Seðlabankans hafi fært sannfærandi rök fyrir því að tilboðið í Sjóvá, sem nú liggur á borðinu, sé vel viðunandi fyrir skattborgara.«
28.1.2011 | 23:21
Að drepa á dreif
raunverulegum vandamálum með flugeldasýningum og þrætubókarlist er aðalsmerki Jóhönnu Sigurðardóttur sem stjórnmálamanns.
Hvenær sem upp kemur nauðsyn þess að taka á aðsteðjandi vandamálum, þá tekst henni að leiða athygli almennings frá þeim með upphrópunum og slagorðum. Þetta hefur einkennt allan stjórnmálaferil hennar frá hruninu. Það er eins og að henni berist sífellt efni í nýjar reyksprengjur og flugelda sem duga henni til að hlaupa frá öllu því sem máli skiptir.
Nú hefur hún Stjórnlagaþingið, íhaldið og Hæstarétt til að tönnlast á þannig að enginn hugsar um vinnudeilur, atvinnuleysi eða skuldavanda heimilanna. Og fólkið fagnar þegar henni tekst að drepa öllu á dreif sem angraði geð. Þvílikir forystuhæfileikar!
28.1.2011 | 22:49
Hæstiréttur
gerði óviðeigandi athugasemdir um kosninguna til Stjórnlagaþingsins. Hann var ekki endilega að dæma neitt, Þetta væri ekki dómur heldur væru einhverjir dómarar í Hæstarétti að gera athugsemdir við framkvæmd kosninganna. Einhverskonar tæknilegt atriði vegna óvenjulegra aðstæðna sem truflaði framkvæmd hins bráðnauðsynlega Stjórnlagaþings. Um nauðsyn nýrrar Stjórnarskrár væri óþarfi að ræða, hún væri svo greinileg. Það má því auðvitað ekki láta þetta álit Hæstaréttar trufla sig í því að að þjóðin fái sitt Stjórnlagaþing sem hún þráir umfram annað.
Þetta varð sá skilningur sem ég meðtók frá Árna Þór Sigurðssyni, þingflokksformanni Vinstri Grænna, í Kastljósinu í kvöld. Það þarf ekki endilega að svara spurningunni um það, hvort þjóðin leggi meiri áherslu á stjórnarskrármálið fremur en atvinnuleysið og skuldamál heimilanna, því Árni telur það augljóst að svo sé. Enda hvað getur annað brunnið á þessari þjóð þegar ríkisstjórnin segist þegar hafa afgreitt atvinnuleysið og skuldavanda heimilanna með skjaldborginni og öðrum ráðstöfunum sínum ?
Guðmundur Steingrímsson tók undir það með Árna að það yrði að finna leiðir til að vinna úr málunum eftir þessi afskipti Hæstaréttar. Það væru margir leikir í stöðunni til að sneiða hjá þessum athugasemdum Hæstaréttar. Þær hefði auðvitað verið hægt að gera mun skynsamlegri ef dómararnir hefðu haft vit á að leita álits hjá Guðmundi þó hann deildi ekki við dómarana úr því sem komið væri. Stjórnlagaþing yrði samt endilega að halda.
Þessi þáttur var Óðni Jónssyni og RÚV til mikils sóma og sýnir vel hversu mikilvægt það er að þjóðin sé upplýst um sannleikann og leiðirnar að markmiðunum. Kynna fólkinu hinar ýmsu hliðar málsins og kalla til málsvara hinna ýmsu sjónarmiða. Þetta er sérlega áríðandi þegar einhverjir álitsgjafar eins og Hæstiréttur eru skyndilega að trufla ríkisstjórnina í að halda Stjórnlagaþing sem þjóðin og Þorvaldur Gylfason þrá heitast. Ný Stjórnarskrá er það sem þjóðina vantar mest þegar atvinnumálin og skuldir heimilanna eru afgreidd mál hjá ríkisstjórninni.
Forsætisráðherra vor hafði líka lagt á það þunga áherslu í ræðustöl á Alþingi, að íhaldið ynni ljóst og leynt gegn Stjórnlagaþinginu. Þetta yrði ekki liðið. Stjórnlagaþing yrði að halda og láta íhaldið ekki komast upp með það að vera á móti því vegna kvótahagsmuna sinna.
Jóhanna Sigurðardóttir er stærri en svo að hún láti Hæstarétt komast upp með að trufla sig á leiðinni til Brüssel. Sem betur fer kemur ekki sú stofnun að öðrum aðkallandi málum eins og Sjóvá og Sparisjóði Keflavíkur. Þar verður málum ráðið til lykta af hinum vísustu mönnum, hverjir sem þeir svo eru. Þar er hinsvegar Jóhanna sjálf Hæstiréttur.
27.1.2011 | 08:15
61 Samviskulausir
hálaunamenn ætla að svipta þjóðarbúið 15 milljörðum í loðnutekjum. Þessir menn eru sýnishorn af vandamálum íslensks samfélags. Samviskulausir fantar taka saklaust fólk í gíslingu undir merkjum "kjarabaráttu". Gersamlega án tillits til staðar og tíma.
Hver hópurinn á fætur öðrum stöðvar allt og rífur kjaft, þykist vera að leiðrétta kjörin sín sem hafi dregist aftur úr. Gvendur í Rafiðn geysist nú um landið og galar á uppreisn svo slökkva megi á virkjununum og hvaðeina á leiðinni í Evrópusambandið. Eiki í Kennarasambandinu brýnir busann sinn og segir sveitarfélögin ga-ga að borga honum ekki meira fyrir minna.
Ef þetta lið væri ekki svona illa upplýst um gang sögunnar þá ætti að vera hægt að skýra það út því að svona fengnar kjarabætur greiðast yfirleitt í verðbólgu og gengisfellingum innan árs. Mánaðarverkfall, sem eru þolmörk lýðsins í hverju sem er, skilar mínus hvernig sem samningar fara. En það er auðvitað borin von að tala af skynsemi við þetta lið. Þó hafa raunverulegar kjarabætur komið í gegnum hagræðingu og aukna atvinnu með verðbólgunni en ekki vegna hennar.
Við ræflarnir, aldraðir og atvinnulausir, hinsvegar borgum mest af þessu í gegnum skerðingu bóta og þjónustu. Við erum afgangsstærð sem þessum lýð er skítsama um hvað sem þeir röfla um annað.
En 61 samviskulausir verða gamlir líka og bíði þeir bara eftir sínum skammti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.1.2011 | 08:12
Náttúrufasismi
birtist í enn einu frumvarpi fáránleikans á Alþingi um breytingar á lögum um náttúruvernd.
Kristjana Bergsdóttir skrifar þarfa grein Í Mbl. í dag. Hún segir m.a.
"En gamanlaust þá er þetta hugtak rauði þráðurinn í hrollvekju frumvarpsins sem boðar afnám frelsis einstaklingsins til gróðursetningar og ræktunarstarfa á Íslandi. Það eru boðuð áður óþekkt höft á ræktun í landinu, þar sem miðstýring ráðuneytis og hugmyndafræði um »ágengar framandi lífverur"
Öfl sem vilja eyða opinberu fé í að eyðileggja handaverk þúsundanna, sem eyddu fé og fyrirhöfn í að rækta og bæta landið, eru til of mikilla áhrifa komin í stjórn landsins. Ríkisstjórnin er holdgerfingur niðurrifsaflanna og bandamaður uppblástursins í þjóðlífinu sem nú herjar til viðbótar öðru.
Þetta frumvarp er Náttúrufasismi af verstu gerð. Vonandi klúðrast þessar fyrirætlanir eins og fleira. Ríkisstjórnarinnar verður lengst minnst fyrir það sem landsmenn sluppu við vegna klúðurseiginleika hennar. .
25.1.2011 | 22:45
Ég stilli mig
um það að gusa á Jóhönnu og ríkisstjórnina útaf stjórnlagaþinginu. Þetta er svo guðsvolað, gersamlega glatað, gríðarlegt gabb að maður er klumsa og kjaftstopp yfir vesaldómnum. Ræfilstuskurnar, þær geta víst bara ekki betur.
Ég stilli mig og held að við ættum bara að gera það sem flest. Þetta er ekki sú auglýsing fyrir þjóðina sem okkur vantaði útávið. Það er líka ljótt að sparka í vesalinga og hrekkja minnimáttar. Stundum er best að grjóthalda sér saman.
Ég held að við þyrftum að fá Jóhannes eftirhermu til að koma í sjónvarpið og flytja okkur stjórnlagaboðskap í gervi Þorvaldar Gylfasonar, sem var kominn með leiðtogahlutverkið á þinginu á tæru fyrir sitt leyti. Það myndi hjálpa okkur að hlægja hressilega eftir þennan farsa allan saman.
Skál elskurnar, og gleðilega framtíð eins og "Ranka Sótt" hefði kannski orðað það einhverntímann.
25.1.2011 | 15:30
Sparisjóðina föllnu til MP-Banka
en ekki í fang ríkisbankanna.
Ríkið leggi fram nauðsynlega víkjandi hluti til MP-banka þannig að hann geti starfað. Bankinn stefni að því að verða almenningshlutafélag á sem breiðustum grunni þar sem engum "kjölfestufjárfesti" verði gert kleift að gleypa allt og stela hinu.
Þeir stofnfjárkaupendur sem staðgreiddu Glitni kaupin í stofnfjáraukningarsvindlinu fái hlutafé í MP Banka. Aðrir stofnfjáreigendur fái keypt nýtt hlutafé í MP-Banka á góðum kjörum. Sparisjóðahugsjónin fái framhaldslíf í banka fólksins, nýjum MP-Banka.
MP-banki er eina bankastofnunin sem ríkið ræður ekki ennþá. Björgum honum frá því aðhljóta þau örlög. Fáum trúverðugt fólk í stjórnina hjá MP-Banka og gerum hann að banka fólksins.
Alþingismenn taki þetta mál upp ekki seinna en strax.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko