Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2017
30.11.2017 | 09:25
Stælar
Andrésar Inga og Rósu Bjarkar sem eru kjörin af kjósendum VG til að vinna að heillum þjóðarinnar eru með ólíkindum. Þetta fólk er með billegum stælum að vekja á sér athygli til að þvælast fyrir flokki sínum þegar hann ætlar að axla ábyrgð. Fyrir hvaða flokk eru þau kjörin á þing? Bera þau enga ábyrgð gagnvart flokki sínum? Ætla þau að hlaupa frá borði þegar þeim dettur í hug? Hverskonar uppeldi hefur þetta fólk fengið? Skilur það ekki hugstakið samábyrgð þjóðar og þings?
Þetta fólk styður formann sinn en er samt með þessa billegu auglýsingamennsku fyrir sjálft sig. Vekur vantrú almennings á heilindum stjórnarinnar og meirihluta hennar.
Vonandi uppsker þetta fólk eins og það sáir.Gjalda skaltu lausung við lygi. Stálhörku gegn stælum þessara þingmanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.11.2017 | 15:54
Katrín er að vaxa
í áliti meðal almennings heyrir maður glögglega.
Fólk er farið að tala meira um að eitthvað sé spunnið í hana sem menn voru auðvitað ekkert að spá í meðan hún var bara puntuformaður í þessum kommúnistaflokki hans Steingríms Jóhanns og stóð sífellt í skugganum af honum, Svandísi Svavars og Stalíns.
Nú er hún að springa út og ég er að fá meira álit á henni með degi hverjum. Hún þarf bara að sýna þessu uppivöðsluliði sem er að vaða þarna uppi í VG hver sé húsbóndinn á heimilinu og láta ekki svona frekjustampa eins og Björn Val og stelpuna sem er að rífa sig hvað sem hún heitir og laglega strákinn sem ég man ekki heldur hvað heitir, vera með múður.
Áfram Katrín, þú ert að vaxa með nýrri stjórn.
28.11.2017 | 23:04
Hækkum þröskuldinn inn á Alþingi
Þarf ekki að hækka þröskuldinn í 7.94% greiddra atkvæða.Þá er enginn þingflokkur minni en 5 þingmenn. Hlusta ekki á rausið um að þá séu svo margir kjósendur án þingmanna. Þeim sömu er það bara mátulegt fyrir að sóa atkvæðinu á vonlaus framboð sem allar skoðanakannanir geta sagt þeim fyrirfram
Stjórnmálaflokkur þarf að vera yfir krítískri stærð til að geta myndað starfhæfa deild, vera flokkur og skipulagsleg heild en ekki sérviskupúki eða bara fjárplógstæki óprúttinna reyfara sem eru bara á eftir aurnum fyrir sig en gefa skít í skyldurnar.
Þess vegna verður að fækka flokkunum á Alþingi. Þeir sem sóa atkvæðum sínum á vonlaus smáframboð verða bara að sitja uppi með það að eiga ekki þingmenn. Aðeins stjórnmálaflokkar en ekki upphlaups fáprósentsflokkar komist inn á þing.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.11.2017 | 18:20
Kysstu mig Kata !
er heiti á vinsælum farsa vestanhafs. Hann gengur út á það að ná ástum Kötu. Akkúrat eins og landsmenn eru nú að sverma fyrir. En það eru misjafnar væntingarnar sem kærastarnir hafa.Sumir sjá sæluríki í hillingum, aðrir sjá það fyrir að forynjur íhaldsins muni eyðileggja allt sem þær mega og koma í veg fyrir allt það góða sem átti að verða í söngleiknum.
Yfirleitt er það nú þannig að þeir fáu munu hafa það litlu betra þegar ríkisvaldið segist ætla að bæta hag fólksins með aðgerðum. Frekar verða það hinir mörgu sem munu hafa það verra.
Hún Kata í væntanlegum söngleik er líklega ekki með þá ása uppi í erminni sem munu gleðja hina mörgu á sviðinu frekar en hina fáu um stundarsakir. Miklu frekar munu hinir mörgu líklega borga um stund meira fyrir þá fáu sem teljast vera undir í þjóðfélaginu og standa höllum fæti. En svo er vanjan að allt skekkist og misréttið vex og vex þangað til að það er orðið óþolandi eins og það er víst núna. Sumir telja meira að segja á sér brotið til langframa og þeir eigi að fá til baka það sem þeim sé skuldað. Öðrum mun finnast þeir fá of lítið of seint.
Þeir fáu eru jafnan ástmegir hennar Kötu sem er sú besta á sviðinu og er í nöp við allt misrétti. Einhverjum finnst það vera öll millistéttin og þeir sem hafa það bærilegra en hinir verst settu. Þeir skulu því þola að hafa það verra svo hinir geti haft það betra. Jafnaðarstefna er það víst kallað.
Alveg eins og í frönsku byltingunni getur þetta snúist í höndum hinna velmeinandi. Í stað þess að fá gull og græna skóga úr fjárhirslum aðalsins kom Napóleon og setti öreigana í úniform og lét drepa þá í ránsferðum til Þýskalands pour la gloire de France. Það var sú eilífa sæla sem beið hugsjónamannanna sem fögnuðu byltingunni við fallöxina. Það verður nefnilega aldrei neitt til úr engu hérna megin grafar og yfirleitt verður þunnt smurt eigi allir að fá sneið. Í sveita þíns andlits...
Og þar með er líklega nokkuð fyrirséð hvernig næsti þáttur söngleiksins Kysstu mig Kata muni enda.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2017 | 08:57
Fullveldi Íslands
á 99ára afmæli í vikunni. Í því tilefni setur konungur bloggaranna , Páll Vilhjálmsson, fram eftirfarandi hugleiðingu:
"
Í lok vikunnar verður fullveldið 99 ára. Þann 1. desember 1918 fékkst fullveldið sem Jón Sigurðsson lagði drög að með greininni Hugvekja til Íslendinga. Hugvekjan var skrifuð 70 árum áður, þegar Friðrik sjöundi konungur Dana lét af einveldi.
Danska embættismannakerfið hugsaði sér að fjarstýra Íslandi frá Kaupmannahöfn, líkt og það hafði gert mörg hundruð ár, þrátt fyrir endalok einveldis. Rök Jóns Sigurðssonar voru annars vegar söguleg, við vorum í konungssambandi við Danakonung en ekki hluti Danmerkur, og hins vegar hagnýt, engar framfarir yrðu á Íslandi á meðan landinu væri stjórnað frá Kaupmannahöfn.
Eftir hrun var alið á efasemdum um að Íslendingar kynnu fótum sínum forráð. Viðkvæðið var að landinu yrði betur stjórnað frá Brussel en Reykjavík. Umsókn Samfylkingar um ESB aðild frá 16. júlí 2009 var vantraust á fullveldið.
Ný ríkisstjórn fullveldisdaginn 1. desember 2017 er til marks um að óreiða eftirhrunsins sé tekin að sjatna. Fullveldið skiptir sköpum, Ísland virkar."
Þarna dregur Páll fram það sem öllu máli skiptir. Að landsmenn standi vörð um fullveldi Íslands og láti ekki glepjast af landsöluöflunum sem hér vaða uppi í heilum stjórnmálaflokkum sem finnst allt útlent vera betra en innlent. Trúa á -isma og erlendar kennisetningar, erlendar myntir og reglugerðir. Ávallt tilbúið að hlaupa á eftir erlendum hégiljum. Tilbúin að flytja inn sýkla og fjölónæmar bakteríur bara af því að þær eru útlendar og aþjóðlegar. Tilbúin að moka hér inn erlendu fólki af hvaða kynstofnum sem er, erlendri menningu í stað íslenskrar af því að fjölmenning sé svo hipp og kúl og inn.
Er ekki skynsamlegra að flýta sér ögn hægar í byltingunum þegar um er að ræða spurningar sem varða beinlínis fullveldi Íslands og framtíð þjóðarinnar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2017 | 08:27
Klípiþörfinni fullnægt?
með nýjustu framförum í kynslífsdúkkum?
Nú eru dúkkurnar orðnar svo fullkomnar að þær tala og syngja og svara snertingum með stunum. Búið er að opna heilt gleðihús í Barcelona sem er bara með dúkkur en ekki stelpur. Nýjasta modelið heitir Samantha og býr yfir áður óþekktum hæfileikum til ástaleikja.
https://www.thesun.co.uk/tech/2084051/robot-sex-doll-barcelona-sex-brothel-cost/
Eru þetta slæm tíðindi eða góð? Vinnur þeta á móti kynbundnu ofbeldi?
Slær þetta á klípiþörf dónanna?
26.11.2017 | 18:25
50 flóttamenn
er búið að velja handa okkur til innflutnings af einhverri sendinefnd sem er búin að fara fyrir okkur til Miðausturlanda, halda námsskeið fyrir hina handvöldu svo þeir geti undirbúið sig til þess atburðar að mæta okkur.
Við eigum ekki að undirbúa okkur undir neitt til að taka við þessu fólki. Nema að útvega þeim mannsæmandi húsnæði hér í skortinum og svo mat og peninga. Við höfum ekki fengið að vita hvaða fólk var valið og hvernig og svo sent til að velja þessa flóttamenn og eftir hvaða formúlum það var gert. Hversu mörg prósent þeirra völdu eru múslímar? Hversu mörg prósent eru menntuð til muns eða handa?
Það eru sögð talsverð líkindi til þess að kristið menntafólk aðlagist okkar samfélagi frekar en múslímar. Þeir eru sagðir klæðast öðruvísi, hafa aðra siði, stunda ekki ærumorð, barnagiftingar og sitthvað annað sem múslímar gera eftir sínum sjaríalögum sem þeir setja víst gjarnan ofar landslögum þar sem þeir setjast að.
Er ekki hægt að velja eitthvað af þessum 50 flóttamönnum eftir aðlögunarlíkindum og menntun?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.11.2017 | 13:08
Framtíð Sjálfstæðisflokksins
er mér nokkuð hugleikin. Hvert verður gengi flokksins á næstu árum?
Hér á árum áður náði fylgi flokksins stundum yfir 40 af hundraði og yfir helming á sumum svæðum. Allt þetta virðist ekki gerast lengur. Flokkurinn er fastur í fjórðungs fylgi á landsvísu og örlítið meir annarsstaðar.Hvað veldur?
Ég heyrði þá skýringu á dögunum að flokkurinn væri búinn að missa tengslin við verkalýðshreyfinguna. Má vera sannleikskorn í þessu. En hvað hefur verkalýðshreyfingin misst af sjálfri sér? Eru ekki breyttir tímar þar?
Það má velta þessu fyrir sér hvort sama breidd sé að baki Sjálfstæðisflokksins og áður var? Er uppruni forystunnar sprottinn úr nægilega víðfeðmum ökrum?
Forystumenn sjálfstæðisflokksins hafa jafnan komið úr ólíkum áttum og lyfst til valda á eigin baráttuvilja. Ekki endilega vegna auðs og ættgöfgi eða samtakamáttar einstakra bardagahópa eins og gerðist með SS-sveitum Hitlers. En þær voru beinlínis notaðar til að tryggja réttu fólki völd enda stofnaðar af þeim sömu. Fráleitt var hægt að kenna þjóðernissósíalista flokkinn, sem Hitler gekk í sem níundi flokksmaður minnir mig, við lýðræðisflokk eins og Sjálfstæðisflokkinn. Þjóðernissósíalistaflokkurinn var máttlaus meðan forysta hans byggðist þannig upp. Hann fór fyrst að vaxa þegar Hitler kom með sina miklu forystuorku og einræði sitt og sinnar klíku inn í raðirnar. þrátt fyrir að Hitler væri ómenntaður durgur með litla þekkingu á heiminum, þá náði flokkurinn á rúmum áratug að verða þriðjungsflokkur í Þýskalandi. Flokkurinn byggðist hinsvegar mest upp á kjaftaviti Hitlers sjálfs og hans nánustu bandamanna en ekki lýðræðislegu kjöri forystumannanna. En Hitler auðvitað réði mestu um val þeirra hvers og eins.Og Þjóðverjar eins og fleiri eru alltaf veikir fyrir sterkum foringjum.
Sjálfstæðisflokkurinn, og raunar ýmsir íslenskir stjórnmálaflokkar eru byggðir skipulagslega upp eins og þýski nasistaflokkurinn, sem var sjálfsagt byggður upp á öðru eldra módeli, frá Mussolini og þar áður ungmennafélögum. Byggðir frá grasrótinni upp í sífellt stærri einingar sem svo mynda eina heild. Mjög skilvirk og rökrétt uppbygging þar sem hinn smæsti félagsmaður tekur þátt í í stækkandi hugsjónakerfi og áhrifastarfi. Allir geta tekið þátt og starfað og vaxið með starfinu ef þeir vilja og hafa úthald.
Í tilviki Sjálfstæðisflokksins hefur grunnstefnuskrá hans verið með þeim hætti að hún hefur höfðað til margra Íslendinga sem hafa hugsanlega erfðafræðilega þætti frá hinum sjálfstæða bónda í sér eða áræði formannsins á fiskibátnum eða útgerðarmannsins sem leggur allt undir. Þessi tónn hefur orðið ofan á í íslenskri stjórnmálasögu og höfðað til fleiri heldur en ýmsir -ismar eða kennisetningar um allskyns sérvisku sem gjósa stundum upp en lognast svo útaf þegar vindurinn fer úr, sbr smáflokkaflóruna íslensku.
Hvað hefur þá breyst hjá Sjálfstæðisflokknum? Hversvegna hættir hann að draga til sín fólkið í sama mæli og áður?
Finnst fólki hann vera hættur að sækja sína forystu út á akurinn? Er komið klíkuyfirbragð á flokkinn? Er flokkurinn hættur að tala mál sem fólkið skilur? Er þetta orðinn skrifstofumannaflokkur sem bara framkvæmir fyrirliggjandi verkefni? Raðar niður paragröffum sem einhverjir embættismenn leggja fyrir, situr á fundum og stundar samskipti, tjáskipti, samráð og hvað þetta heitir allt saman nýðmóðinslega? Talar ekki lengur um hugsjónir eða framtíðina. Raðar niður fjárveitingum til málaflokka en talar minna um hvaða skipan skuli verða til framtíðar með fólkinu? Hverjar séu hugsjónir og væntingar flokksins fyrir hönd þjóðarinnar?
Þeir sem sátu síðasta Landsfund geta illa séð fyrir sér hvaða breidd í vali forystu birtist þar. Lítill bardagahópur ungliða réðist til atlögu við sitjandi ritara flokksins og hirti af honum embættið mótspyrnulaust. Sami hópur hleypti upp fundinum með skrílslátum þegar málefni flóttamanna komu á dagskrá í fundarlok.
Þessi sami hópur hefur nú yfir að ráða Alþingismanni, ritaraembætti og embætti Varaformanns flokksins allt í sömu persónunni. Breidd í kjöri forystusveitar er vart um að tala á þessum bæ. Vesgú, hér er forystan handa ykkur sem megið falla fram og tilbiðja. Er hægt að koma auga á framtíðarsýn í þessari atburðarás?
Hugsanlega verður ekki talið mögulegt að búa við óbreytt fyrirkomulag stjórnarkjörs lengur að örfá prósent Sjálfstæðismanna sem mæta á Landsfund séu látin marséra í halarófu og velja í æðstu embætti flokksins og forystusveit? Heldur verði að velja þá með breiðu umboði í almennri kosningu meðal flokksmanna eins og rætt hefur verið að gera.
En svona var þetta nú líka framkvæmt á árum áður og virkaði þá svo vel að flokkurinn var á toppnum. Svo hver er þá lausnin ef einhver betri er?
Það er ekki hægt annað að dást að því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur starfað eins og vel byggð vél árum saman. Landsfundur flokksins er ótrúlega skynsöm skepna og fundvís á réttar leiðir. Auðvitað mistekst honum en hann hreinsar sig yfirleitt fljótt og áttar sig. Flokkurinn hefur slampast fjárhagslega þó að hann sé nú kominn að mestu á ríkisframfæri með hinum litlu flokkunum. Mörgum finnst þetta miður og stjórnmálaflokkar eigi ekki að fá ríkispeninga. Enda hefur þeim snarfjölgað síðan til beinnar bölvunar að margra mati meðan Sjálfstæðisflokknum hefur hnignað hlutfallslega frá því að hann stóð á eigin fótum fjárhagslega.
En víst er að Sjálfstæðisstefnan er til. Hún felst í því að standa ævarandi vörð um sjálfstæði þjóðarinnar og að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli eintaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Kjörorð flokksins, Stétt með stétt, Gjör rétt þol ei órétt og Eign fyrir alla, sem flokkurinn hafði í hávegum hér áður fyrr höfða enn til margra Íslendinga.
Að framgangi Sjálfstæðisstefnunnar hennar verða allir Sjálfstæðismenn að vinna eigi að svara spurningunni jákvætt um hver sé framtíð Sjálfstæðisflokksins á næstu árum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.11.2017 | 12:15
Rót vandans
í þessum málum öllum sem snerta kynferðislega áreitni er nokkuð augljós þó ekki megi tala um hana. Konur eru nefnilega svo aðlaðandi í augum karlmanna að til vandræða er.
Múslímar eru búnir að sjá við þessu. Þeir klæða allar konur í svarta ruslapoka. Það veit enginn hvað er innan í pokanum þannig að það er engin freisting að klípa né þukla og oft er andlitið líka hulið með klút eins og ræningjar gerðu í villta vestrinu. Samt fjölgar þeim eins og rottum án þess að ég skilji það. Og flestir þeirra vilja ekki búa heima hjá sér heldur hjá okkur á Vesturlöndum en halda sínum siðum og helst á okkar kostnað.
En hjá okkur er þetta allt í mínus. Við getum illa hamið á okkur lúkurnar þar sem við höfum alla þessa fegurð og freistingar fyrir augunum. Tilraun til vangadanss getur verið stórhættuleg og faðmalag getur kostað kæru fyrir kynferðislegt ofbeldi.
Það er vandlifað með rót vandans.
24.11.2017 | 11:51
Dómurinn yfir Geir
var um það að 16 grein stjórnarskrárinnar segir til um skyldu forsætisráðherra til að halda ríkisstjórnarfundi. Segir greinin ekki endanlega hvað honum beri skylda til að ræða eða hvort hann megi sleppa einhverju sem hann telur nauðsynlegt.
Nú var það svo að innan ríkisstjórnarinnar ríkti ekki traust. Einn ráðherra fór með það sem honum sýndist í blöðin og forsætisráðherra gat ekki treyst á þagmælsku hans. Hann sýndi sig svo síðar að það voru ýmsir þverbrestir í skapgerð hans sem gerðu þetta að verkum frekar en en að þetta sé pólitískt prinsípmál Krata að sprengja allt í loft upp sem hægt er samanber orð eins formanns Alþýðuflokksins sem sagði þá myndu sprengja og sprengja hvenær sem þeir gætu.
Geir gat hugsanlega haldið ríkisstjórnarfund og haft bara einnar mínútu þögn á dagskrá. Katarnir voru komnir hálfir út úr stjórninni hvort sem var, Þá hefði hann verið sýknaður.
Geir H. Haarde er almennt talinn grandvar maður í hvívetna. Hann segir um dóminn án þess að geta um framangreindar ástæður :
Ákæran á hendur mér var vissulega áfall á sínum tíma. Ýmsir þeirra sem að ákærunni stóðu hafa hins vegar ýmist opinberlega eða í einkasamtölum lýst eftirsjá yfir þátttöku sinni í þeim pólitíska leik eða beðist afsökunar. Mér þykir vænt um þau viðbrögð. Ég er sömuleiðis þakklátur þeim fjölmörgu sem hafa lagt mér lið í þessu máli undanfarin sjö ár. Stuðningur þeirra hefur verið mér og fjölskyldu minni ómetanlegur. Í stjórnmálum eiga menn að gera út um ágreining á hinum pólitíska vettvangi, á þingi og í kosningum. Um það ályktaði þing Evrópuráðsins sérstaklega vorið 2013 og vísaði m.a. til landsdómsmálsins. Vonandi getur náðst víðtæk samstaða á Íslandi um þetta grundvallaratriði.
En lekamál á Íslandi virðast frekar vera meðhöndluð sem dyggð en afbrot gagnstætt því sem er meðal siðaðra þjóða.Hagsmunir skítablaðamanna virðast vera settir ofar hagsmunum ríkisins.Aðfarir og mannorðsmorð er minniháttar ef hægt er að selja fréttina.
Ýmsir hafa iðrast opinberlega vegna þáttar síns í Landsdómsmálinu. Er það tilviljun að Steingrímur Jóhann Sigfússon sér ástæðu til að taka það fram að hann hafi aðeins verið að vinna í þágu samfélagsins í grein sinni í Morgunblaðinu í dag þar sem fjallað er um dóminn yfir Geir H. Haarde?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 40
- Sl. sólarhring: 41
- Sl. viku: 61
- Frá upphafi: 3419910
Annað
- Innlit í dag: 38
- Innlit sl. viku: 57
- Gestir í dag: 38
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
4 flokkar eru yfirdrifið á Alþingi, Allt umfram það er til bölvunar. Þá koma svona týpur eins og Þór Saari og Þráinn Bertelsson sem komast aldrei ekki neitt fyrir sérvisku sinni af því að þeir geta ekki unnið sem teymi. Svo gáfaðir einstaklingar að engir aðrir komast að. Það vantar ekki séní á Alþingi heldur vinnuhesta. En heldur ekki menn sem halda að þeir séu það eins og Jimmy Carter og Steingrím Jóhann sem fá litlu áorkað af því að þeir skilja ekki alveg hvað þeir eru að gera.Of fáir menn með of mikil völd eru hættulegir.