Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2018

Rukka frekar en að loka?

í Reykjadal?

Er ekki afdalamennska að gera ferðamenn afturreka frekar en að eiga fé til að laga skemmdirnar af ágangi?

Rukka frekar en að loka? 


Hvað ætlar Theresa að gera?

í eiturgasmálinu?

Eitrið er svo sterkt að nær útilokað er að nokkur lifi það af. Örsmár skammtur er nóg til að bana urmul af fólki.

Hvernig náðu Bretar sýnishorni af eitrinu?

Það er eðlilegt að Rússar vilji fá svör við 27 spurningum sem þeir hafa sent Bretum varðandi málið. 

Ég held að meirihluti fólks á Vesturlöndum trúi ekki á óskeikulleika þeirra skýringa sem Theresa May hefur gefið á málinu til þessa.

Hvað ætlar Theresa að gera til að allir trúi henni en ekki Pútín?


Bendir þetta á Pútín?

sem Jón Steinar Ragnarsson tekur saman um eiturgasmálið í Salisbury?

"Uppfinningamaður eitursins byr í bandaríkjunum og fullyrðir að aðeins þurfi að lesa bók hans um eiturgas til að gera þetta.

Hversvegna myndu Rússar akkúrat nota eitur sem er einstakt og beintengt þeim? Væru ekki aðrar aðferðir skárri.

Þessi njósnari var dæmdur fyrir rúmum 20 árum og sendur til Síberíu í 18 ár, en sat aðeins 4, þegar rússar höfðu fangaskipti. Hversvegna akkúrat nú við kosningar í rússlandi og korteri fyrir heimsmeistara mótið fannst Pútin það upplagt að drepa þennan algerlega ómerkilega fyrrverandi njósnara?

Dóttir hans býr í Moskvu og kíkti á kallinn á um tveggja manaða fresti. Var það ekki upplagt að kala henni heima?

Nú koma fréttir af því að tilræðið hafi ekki verið gert á torginu á pöbbnum eða restúrantinum, sem hafa verið í sóttkví í nokkurra daga morandi í eiturefnabarbapæbbum. Nú á þetta hafa átt sér stað á heimili þeirra, sem er safehouse í ofanálag. Íbúar í húsinu og nágrannar hafa verið upplýstir um að engin hætta stafi af þessu, enda hefur engum orðið meint af.

Þetta setur spurningamerki um lögreglumanninn sem kom fyrst að þeim á bekknum og veiktist. Það er útilokað að það geti hafa gerst enda sýnt að læknir sem sinnti þeim óvarinn á bekknum í hálftíma hafði ekki meint af heldur.

Auðvitað er þetta múgæsing og pólitískt blekkingarmál. Ekkert hefur sannast.stærsta eiturgasverksmiðja og rannsóknarstofa í hernaðarskyni í allri Evrópu er aðeins sjö mílum frá tilræðisstaðnum í Salisbuy, sem vekur einnig spurningar. Það apparat hefur nú fengið 48 milljón punda aukafjármagn í kjölfar þessa.

Eru efasemdir manna eitthvað undarlegar? Ég hefði haldið ekki"

Finnst mönnum að þetta mál liggi jafn klárt fyrir og Theresa May leggur það upp fyrir veröldina?

Sjá menn einhverja nauðsyn þess fyrir Rússaveldi að blanda sér í svona mál akkúrat þegar þeir eru að reyna að ná sáttum vil alþjóðasamfélagið?

Er það borðliggjandi að Ísland skrifi undir sakfellingu Theresu?

Látum vera þó þeir Guðlaugur Þór  mæti ekki á boltann, Þorgerður Katrín kláraði eiginlega  kvótann og vel það með ferðatíðni sinni á Olýmpíuleikana á sínum tíma og. Sýndi viðhorf sitt hvað varðar afstöðu til opinbers fjár  við það tækifæri.

Enn býður sama Þorgerðir Katrín sig fram til að fara með okkar peninga og völd.Persónulega svíður mér mest að við sitjum uppi enn uppi með ónýtt grunnskólakerfi án aðgreiningar frá þessari sömu konu og styð hana ekki til frekari opinberra starfa.

Minni hagsmunir víki fyrir meri. Mannkynið á allt undir því að ná betri og friðvænlegri sambúð milli vesturs og austurs. Þessi Rússagaldur Theresu May hefur stórskaðað friðarviðleitnina sem Trump og Pútín voru byrjaðir með.Hún er líklega vísvitandi að reka fleyg á milli Bandaríkjanna og Rússlands til að þessir aðilar fjarlægist.

Þetta morðtilræði bendir ólíklega til Pútíns eða ríkisstjórnar Rússlands og við Íslendingar eigum að hætta að taka þátt í refsiaðgerðum ESB gegn vinaþjóð okkar Rússum.

 


Borgarvirkið

hið síðara virðist vera óvinnandi ef marka má skoðanakannanir.

Og þvert á hið fyrra þá virðast mörsiður Dags.B.Eggertssonar þó gert sé úr glærum og góðum áformum þegar hið hið fyrra var raunverulegt sem gekk fram af umsátursliðinu, duga til árangurs.

Kjósendur í Reykjavík sjá ekki muninn og trúa því sem virkisstjórinn segir.Foringi umsátursliðsins virðist ekki ná að sannfæra virkisbúa um að það sé rétt að gefast upp þar sem lítinn kraftmikinn sé að finna í glærum virkisstjórans heldur framtíðarmör sem þeir fái einungis innan eins og hálfs kjörtímabils.Næstu fjögur ár geti því alveg verið  verið virkisvetur þar sem fullnaðarsigurinn vinnist þá örugglega innan sex ára.

Það verður því væntanlega áframhald á þrengingu gatna og byggingu fuglahúsa fremur en fjölgun akreina eða leiguhúsnæðis.Enda hver þorir að treysta á íhaldið sem engu hefur komið til leiðar í svo ótalmörg ár?

Borgarvirkið virðist til bardaga búið og ósigrandi.

 


Er Pútín líklegur?

til að hafa fyrirskipað morð á manni og dóttur hans sem ekki skiptir pólitísku máli lengur?

Á þessum tíma er Pútín að starfa að því að endurreisa skaddað álit Rússlands alþjóðlega með því að standa fyrir heimsmeistarakeppninni? Leggur í óheyrilegan kostnað til þessa markmiðs. 

Sýnist manni líklegt að það sem hann hefði þurft á að halda við þessi tímamót að lenda í svona máli?

Datt þeim sem gerðu árásina það í hug að enginn myndi taka eftir þessu? Af hverju völdu þeir að nota vopn sem mátti rekja beint til Rússlands? Er ekki flóknara að nota svona tveggja þátta gas sem getur strádrepið fólk í umhverfinu heldur en að nota byssu. Fara laumulega en ekki velja opinberan stað?

Finnst mönnum líklegt, að þrautreyndur leyniþjónusturefur eins og Pútín hugsi ekki um svona hluti ef hann þarf?

En ef maður vildi koma höggi á Pútín persónulega vegna kosninganna?

Ef ríki vildi koma viðskiptalegu höggi á Rússland? Hvaða ríki væri líklegt?

Í fyrsta lagi samkeppnisríki í olíuframleiðslu. Í öðru lagi samviskulaust einræðisríki.

Hvaða ríki þjáist mest núna vegna samkeppni Rússlands?

Saudí-Arabar standa frammi fyrir því að þegnarnir þurfi að fara að vinna í fyrsta sinn  í heila öld.Til þess verði að reka erlent verkafólk úr landi.

Myndu Bandaríkin standa að svona máli? Þeirra hagsmunir eru að olíuverð hækki. Sömu hagsmunir og Rússlands og Sáudanna.Eru Bandaríkin líkleg til svona mála með forseta sem öll spjót standa ? Venezúela með fjallheimsk og skítblönk kommúnistastjórnvöld?

Sama gildir um Noreg og Bretland. Þeirra hagsmunir eru hækkun á olíu.En þau eru lýðræðisríki sem ekki standa í svona málum.

Ég get ómögulega komið auga á annað en að óvinir Pútins og Rússlands fremur en hann hafi staðið að þessu þaulskipulagða ódæðinu sem er til þess sniðið að setja rjúkandi byssu í hendur Rússlands.

Ísland hefur hagnast á þessu þegar þar sem íslenskir ráðamenn munu ekki fara á boltann.

Er ekki  Pútín manna ólíklegastur?

 


Ég sé hvar í skýjum þú brunar á braut

ó berð þú mitt ljóð  heim í ættjarðarskaut.

húsnæðismarkaður valur arnarsonAf síðu Vals Arnarsonar stel ég þessari mynd.

Hún segir allt sem segja þarf um afrek Dags B. Eggertssonar í húsnæðismálum unga fólksins á kjörtímabilinu þegar hann lofaði 4000 íbúðum. Nú lofar hann enn meiru á næsta einu og hálfa kjörtímabili.

Reykjavík er blái kassinn, hinir eru önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.

Dagur hefur næstu 4 ár upp á að hlaupa áður en hann svíkur nokkuð til viðbótar.

Auðvitað verður hann endurkosinn.

Maður með svona háleitar framtíðarsýnir brunar í skýjum á braut til framtíðarinnar.


Hvaða skoðanir hef ég ?

Ég verð var við það á athugasemdaskrifum að margir telja mig vera eitthvað allt annað en ég tel mig vera sjálfur.

Það er kannski ekki úr vegi að kynna mínar skoðanir aðeins fyrir þeim sem eru að búa sér til skoðanir sem þeir segja að ég hafi.

Henry Ford sagði samt þessi orð: Never complain, never explain.Sem meginreglu hef ég orð Fords því það þýðir ekki að rífast við þá sem allt vita betur en maður sjálfur.

Nokkrar skoðanir mínar eru samt þessar:

Ég er og hef verið Sjálfstæðismaður þó ég hafi stundum kosið Alþýðuflokkinn í gamla daga til að hjálpa viðreisnarstjórninni. En Sjálfstæðisflokkurinn er hugsanlega minna hrifinn af mér en ég af honum. Að minnsta kosti kaus hann mig aldrei í miðstjórn eða há embætti. Vinstri flokkar eru fyrir mér safnheitið kommaflokkar, kommatittir eða kommerí.

Ég er ekki haldinn neinu hatri í minni sál gagnvart útlendingum, hörundsdökku fólki, aröbum, hinsegin fólki eða góðu fólki yfirleitt, hvað þá kommeríinu sem er mest vanþekking í mínum augum.
 
Mér er hlýtt til alls fólks sem er hjálparþurfi. Ég styð raunhæft hjálparstarf og þróunaraðstoð. En ég vil ekki að það verði til þess að okkar fólki sé ekki hjálpað. Og það er ekki sama og ég vilji að allt bágstatt fólk í öðrum löndum flytji hér inn til okkar þegar við hjálpum ekki okkar eigin fólki nægjanlega .
 
Ég trúi því að kynhneigð sé meðfædd en ekki áunnin.Ég hef átt marga yndislega vini sem voru  hinsegin.Mér kemur kynhneigð annarra ekkert við. 
 
Ég sé ekki hörundslitinn á góðum manni. Mér kemur það barasta ekkert við ef hann er umskorinn, Gyðingur, Hindúi eða Múslími. Ef hann er góð manneskja og góður við mig  þá er það hið eina sem að mér snýr. Ég á góða vini sem eru öðru vísi á litinn en ég og  annarrar trúar en ég. Mig varðar bara ekkert um það. Það er manneskjan sjálf sem skiptir mig máli.
 
Ég er hræddur við ISIS liða því að hann vill hugsanlega skera af mér hausinn sem ég kæri mig ekki um. Þó eru aðrar skoðanir á því að finna í athugasemdadálkum.
 
Ég vil ekki að glæpamenn og geðsjúklingar geti átt byssur. En það er ekki byssan sem drepur heldur höndin og hugurinn. Því skiptir uppeldið öllu máli.
 
Það helsta sem ég hef verið að reyna að segja varðandi hælisleitendur og flóttamenn er að  ég vil fara vel og sparlega með íslenskan ríkisborgararétt og íslenska menningu eins og hún er. Íhaldsmennska er best í því sem öðru.
 
Ef á að fá hingað flóttamenn, þá vil ég velja þá með tilliti til að þeir falli sem best inn í þjóðfélagið. Þeirra vegna og þjóðfélagsins vegna en ekki mín sérstaklega. Og ég vil ekki tilviljanalegan fjölda slíks fólks heldur stjórnaðan. Hvítir kristnir eða trúlitlir, falla betur að okkar þjóðfélagi til dæmis en strangtrúaðir múslímar." Það krækilyng sem eitt sinn óx við klett...."
 
Nokkrar af mínum fyrstu bókum voru Litli svarti Sambó og Tíu litlir negrastrákar. Nú er mér sagt að það megi ekki lengur nota orðið negri.Mér hefur ekki verið tilkynnt um þetta en get alveg tekið það til athugunar ef mér er úthlutað leiðbeiningum um leyfilega málnotkun.
 
Ég á fullt af vinum í öðrum stjórnmálaflokkum.Trúmál vil ég helst ekki ræða.
 
Mér kemur auðvitað ekkert við hvað annað fólk hugsar um mig eða skrifar í athugasemdum.En það er hugsanlega  óþarfi að gera mér upp skoðanir og reyna að skaða Sjálfstæðisflokkinn með því.
 
 
.
 
É

Stormy Daniels

hefur stundað þannig atvinnugrein sem fest er á tugi myndskeiða á netinu, að það þyrfti meira en meðalheimskingja til að koma nálægt henni þó ekki væri nema fyrir hættuna af ólæknandi smitsjúkdómum. 

Það þarf Demókrata að mínu mati eða fólk úr 101 til að halda því fram að milljóneri eins og Donald Trump sé slíkur maður?


Góða fólkið

ræður sér ekki á DV fyrir eina bloggfærsluna hér að framan.

Athugasemdirnar veita innsýn í sálarlíf þessa góða fólks,sem hefur svo réttari skoðanir en mínar að það sér ástæðu til að senda mér skeyti.

Ég er nú ekki klár á því hvað þetta yndislega, já alþjóðlega búsetta,  fólk að vill að ég geri?

Þurrki út bloggfærsluna?

Gangi út og hengi mig fyrr en seinna?

 

Ég sé áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum sem fælir það frá því að kjósa hann?

Ég hætti að blogga um mínar  ógeðslegu skoðanir?

Ég hafi alið börn mín illa upp og eigi að breyta því?

Segi mig úr Sjálfstæðisflokknum hans vegna og gangi í annan flokk?

Til dæmis VG? Gætu þeir neitað mér um inngömngu? Ég fengi kannski loks einhver áhrif í stjórnmálaflokki því aldrei vildu sjálfstæðismenn kjósa mig í miðstjórn hvað þá annað?

En ég vil endilega tilfæra hér aðdáendaskrif til mín af DV:

Ragnar Omar Magnusson ·

Reykjavík, Iceland

hefur hann eÄ·ki bara misst gaedagripinn i klossettid kukad a thad og kallad thad verdskuldada jardafor krypplingar mongolitar og negra handleggir i hausin er audvitad nattura sliks tals um alla eilifd.

Thorgerdur Sigurdardottir ·

De Montfort University, Leicester

Þetta er einn af þessum gömlu körlum sem svo sannarlega gera sjàlfstæÄ‘isflokkinn af þeim fordæmafulla rasistaflokki sem hann er....var ekki gefiÄ‘ mikiÄ‘ vit ì vöggugjöf svo þaÄ‘ er best aÄ‘ halda sig til hægri..

 Thorunn Sif Ravn ·

Works at Dalsgaard Antik

DX samansafn steingerfinga, barnaperra, ofbeldismanna og sjálftökuglæpamanna........og þetta kýs fólk?

 Jóna Ástríður ·

Selfoss, Iceland

Mikið er ég þakklát að vera ekki blámann eins og Halldór og hafa alldrei kosið bláaflokkin með öllu sína siðblindu einstaklinga.

 Ingibjörg Ottesen

Eitt er að vera heimskur og annað er að vera vond manneskja, ég held að þessi Halldór sé hið síðarnefnda nema hvort tveggja sé.

 Freyr Barkarson

A sama hatt er Halldor heimskur og fyrirlitlegur madur sem litid getur gert i thvi .. annad en ad haetta ad basuna thad i pistlum sinum.

 Þórey Rakel Mýrdal ·

Service Advisor at Hekla bílaumboð

Sem betur fer fyrir betri heim er kynslóð svona manna að deyja út. Halldór er í flokki manna sem taka hatt sinn ofan fyrir misyndismönnum á borð við barnaníðinga. Ég vona að sá flokkur sem hann tilheyrir eigi eftir að sýna af sér meiri mannúð, og sýna þeim sem minna mega sín meiri virðingu og nærgætni.

 Jóhanna Kristinsdóttir ·

Works at Keilir Aviation Academy

Á ekki orð yfir hvernig þessi maður hagar sér,gamall orðljótur fýlukall,og hafðu það.Viðerum öll börn Guðs sama hvernig við erum.

 Jon Bragi Sigurdsson ·

Works at Translations/Översättningar/Þýðingar

"Geta menn ekki lifað án þess að þjóna kynhvöt sinni og finna henni stað hjá öðrum?" Ekki virðist hann hafa komið þessu heilræði til skila í uppeldi barna sinna . . 

 Sverrir Gauti Hilmarsson ·

Interior Designer at Fröken Fix

Ég mun fagna þegar þessir ræfill fer yfir móðuna. Þvílík úrhrak af manneskju

 Sigurveig Eysteins ·

DTK - Kunstfagskolen i Bærum

Árið 2018 og enn finnast svona hræðilegir fordómar og auðvita koma þeir frá einhverjum mannaumingja sem er hræddur Sjálfstæðismaður ....það sem hann sér ekki fyrir blindu og fordómum er hvað hann gerir lítið úr sjálfum sér með þessum skrifum ...

 Steingrímur Karl

Finnst að þessi maður ætti að halda kjafti þar sem sonur hans, Þorsteinn Halldórsson, situr inni fyrir að halda unglingsstrák föngnum í eina viku, dópa hann upp og nauðga honum ítrekað.

 Linda María Magnúsdóttir ·

Háskóli Íslands

getur ekki gert upp við sig hvort er ógeðfelldara; skrif Halldórs eða D.V. fyrir að hafa þau eftir.

 Ómar Sverrisson ·

Artist at Self-Employed

æ!! þótt ég hati ofbeldi! þá þarf að gefa leyfi að svæfa svona fornalda risa! eða bara hreinlega banna fólki yfir 70ára með hans sjúka fornaldarhugsun að vera i valda stöðu eða slikt!

 Sigursteinn Tómasson ·

Skibsfører at Skive Kommune

klædir bjána láta slíkt frá sér , en hvad er á milli eyrna hans er ekki gott seygja til um en má vera frekar lítid ef nokkud sé .

 Gudrun Marta ·

Skóla Lífsins

Ágætt þegar svona menn draga gardínurnar frá sálinni sinni, þá sést hvað býr þar inni.

 Thordis Hafsteinsdottir ·

Works at Lopi knitting

Viðbjóður þessi Halldór

 Inda Björk Alexandersdóttir ·

Háskóli Íslands

Negrans?? Í alvöru?

 Stefán Ragnar Pálsson ·

High School From Hell

halldór er viðbjóður

 Gudrun Marta ·

Skóla Lífsins

Ágætt þegar svona menn draga gardínurnar frá sálinni sinni, þá sést hvað býr þar inni.

 Guðmundur Skúli Halldórsson

Risaeðlur þekkjast innan allra flokka, flestar kunna samt ekki á FB !!

Agnes Ósk

Ógeðlegur karl!!

 Ég hafði bara ekki hugmynd um að ég ætti svona stóran og alþjóðlegan lesendahóp.Hvað þá að ég væri svona vondur og ógeðslegur.

En skildi ekki Guðmundur góði þá staðreynd að einhversstaðar yrðu vondir að vera og skildi eftir hluta af Heiðnabergi þegar hann var að vígja hamrana í Drangey?

Nema að Mogginn loki bara á mig blogginu af tillitssemi við þetta yndislega fólk? 

Yrðu þá ekki  margir fegnir sem vegsama tjáningarfrelsið, sé það  notað rétt?

 


Á 4.hæð

mislægra gatnamóta í Florída er ég  fastur í slöngu vegna óhapp1190s á hæðinni minni

 dettur mér í hug hvernig væri að segja þessari þjóð Bandaríkjamönnum að hætta að menga með öllum þessum bílum og fara að hjóla. Myndu þeir ekki taka þeim boðskap fagnandi. Að vísu er nokkuð langt útí sjóndeildarhringinn sem er þarna í þessum sama bæ sem er  Orlando.

Nokkuð langur hjólatúr í þeim bæ hvert sem maður ætlar að fara þó enginn sé snjórinn og slabbið eða rokið. Og enginn gangandi né hjólandi umferð sést nokkurs staðar. Og engin Borgarlína heldur.

Hvernig væri að Dagur B. Eggertsson og Hjálmar Sveinsson kæmu hingað til að boða nýja sýn á umferðarmál og Hjálmar gæti selt bókina sína um skipulagsmál í leiðinni?

Manni dettur margt í hug þegar maður fær að bíða í hálftíma á 4.hæð á vegamótum.


Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband